Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 22
71
V 16 STÖÐLUN Á AÐFERÐUM TIL MÆLINGA Á
ORKUBÚSKAP OG VEFAUKANDI
EFNASKIPTUM BLEIKJU (SALVELINUS
ALPINUS)
Þórarinn Sveinsson. Haukur Haraldsson.
Rannsóknastofa í lífeðlisfræði.
I bleikjueldi er mikilvægt að hraða vexti
seiða upp að sláturstærð. Við slíka meðferð
verður bleikjan oft kynþroska mjög smá, eða
áður en markaðsstærð er náð (ótímabær
kynþroski). Ymsar rannsóknir benda til að
ákvarðanir um hvenær eigi að byrja að setja
orku í vöxt kynkerfa (kynþroski) hjá laxfiskum
stjórnist af efnaskiptum og orkuástandi (t.d.
fituforða) á ákveðnum árstíma. Fyrir þróun
aðferða til stjórnunar á vexti og kynþroska, er
nauðsynlegt að skilja orkubúskap bleikjunnar og
hvernig hann hefur áhrif á ofangreinda þætti. I
slíkum rannsóknum er nausynlegt að hafa
aðgang að aðferðum sem eru fijótvirkar og
ódýrar en meti orkubúskap og efnaskipti í
V 17 PROSTAGLANDÍN AF F-GERÐ SEM
FERÓMÓN HJÁ FISKUM
Þórarinn Sveinsson.
Rannsóknastofa í lífeðlisfræði.
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að ýmsar
tegundir fiska noti lyktarefni við hrygningu.
Virðist sem annað kynið seyti slíkum efnum út í
umhverfið þar sem þau eru numin af hinu
kyninu með lyktarskynfærum í nasaholum.
Lyktarefnin vekja breytingar í atferli eða
starfsemi innkirtla (hormóna) þeirra sem þau
nema. Slík lyktarefni kallast ferómón. Þau efni
sem hingað til hafa verið greind eru annaðhvort
kynsterar (og afleiður þeirra), eða prostaglandín
af F-gerð.
Með rafskráningum var sýnt fram á að
bleikja (Salvelinu alpinus) hefur mjög næmt
lyktarskyn fyrir prostaglandíninu F2a (PGF2a)-
Athuganir sýndu að kynþroska hængar
(rennandi) losa efni sem líkist PGF2a. þegar
mismunandi veljum bleikjunnar á fullnægjandi
hátt.
Markmið verkþáttarins var að aðlaga og
staðla aðferðir til mælinga á prótein-, glýkógen-,
og fituinnihaldi mismunandi vefja í
bleikjuseiðum; jafnframt að mæla RNA/DNA
hlutfall í sömu vefjum til að meta vefaukandi
efnaskipti þeirra. Viðurkenndar litunaraðferðir
og ljósgleypnimælingar voru notaðar og
aðlagaðar fyrir örplötuljósgleypnimæli og
staðlaðar fyrir vöðva-, lifrar-, og innyílasýni úr
bleikjuseiðum. Aðferðir þessar henta vel til þess
að meta orkubúskap og vefaukandi efnaskipti
bleikju.
Rannsóknnrsjóður H.Í., Rannsóknaráð ríkisins,
og Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrktu
þessa rannsókn.
þeir verða varir við kynþroska (rennandi)
hrygnur. PGF2a í lágum styrk (0,1 nM) laðaði
að rennandi hrygnur og örvaði hrygningar
atferli þeirra; einnig laðaði það að rennandi
hænga.
Markmið þeirra rannsókna sem kynntar
verða var að bera saman lyktarnæmi
mismunandi fisktegunda lyrir prostaglandínum
af F-gerð. Þannig má fá upplýsingar um hversu
tegundasérhæf ferómón af þessari gerð eru.
Niðurstöðurnar sýna að lyktarnæmi fyrir efnum
af þessari gerð er mjög mismunandi eftir
tegundum.
Vísindaráð styrkir þessa rannsókn.