Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Page 97

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Page 97
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 22 93 Klínískar rannsóknir II V-50 Reynir T. Geirsson V-51 Þorsteinn Njálsson V-52 Þorsteinn Njálsson V-53 Guörún Marteinsdóttir V-54 Ásta Thoroddsen V-55 Júlíus K. Björnsson V-56 Andrés Magnússon V-57 Jóhann Axelsson V-58 Ragnheiöur Haraldsdóttir V-59 Jóhann Ág. Sigurðsson V-60 Reynir T. Geirsson V 50 Fylgir háþrýstingi í meOgöngu aukin hætta á hjarta- og æOasjúkdómum síOar á æ v i n n i ? Lilja S. Jónsdóttirl, Reynir Amgrímssonl’3, Revnir T. GeirssonI. Nikulás Sigfússon^, 1 Kvennadeild, Landspítalanum, Reykjavik, ^Hjartavernd, Reykjavik, og ^Duncan Guthrie Institute of Medical Genetics, Glasgow, Skotlandi. Til að athuga langtima áhrif háþrýstings í meðgöngu á lífslíkur og síðari hjarta- og æðasjúkdóma, var konum sem vistuðust með háþrýsting í meðgöngu (140/90 mm Hg og hærra) á Landspítalanum árin 1931- 47 fylgt eftir og síðara heilsufar þeirra flokkað m.t.t. slíkra sjúkdóma. Af 7543 konum sem fæddu á þessu tímabili voru 374 með háþrýsting. Vitneskja fékkst um síðar heilsufar hjá 337 (68% frumbyrjur). Haft var samband við þær sem voru á lífi og þeir beðnar um að svara styttum spurningalista Hjartaverndar, sem ætlað er að benda til háþrýstings- og kransæðasjúkdóma. Allar sem náðist til voru skoðaðar. Upplýsingar um þær sem dáið höfðu fengust úr dánarvottorðum, en að auki var reynt að athuga krufninga- og sjúkraskýrslur. Enn á lífi þegar skoöun fór fram 1991 voru 166 (49%), en 171 voru dánar. Af öllum hópnum höfðu 285 (70% frumbyrjur) lifað 20 ár eða lengur eftir fæðinguna. Af þeim höfðu 64% haft háþrýsting og 34% sögu um kransæðasjúkdóm áður en þær létust eða voru skoðaðar. Af frumbyrjum fengu 29% kransæðasjúkdóm, en 46% af fjölbyrjum (X2=7.5; P=0.006). Varðandi háþrýsting voru samsvarandi tölur 63% og 66% (ekki marktækur munur). Meðal þeirra kvenna sem fengu alvarlegan meðgönguháþrýsting eða fæðingakrampa (n=81) voru 34% síðar með kransæðasjúkdóm og 68% háþrýsting, en meðal kvenna með vægari háþrýsting í meðgöngu (n=l 19) voru 26% með kransæðasjúkdóm og 55% með háþrýsting. Ekki var marktækur munur milli þessarra hópa. Af 171 sem voru látnar 1991, höfðu 80 dáið fyrir 65 ára aldur (13 dóu við fæðinguna). Af þessum 171 voru 91 (53%) frumbyrjur, en meðal þeirra reyndust 37 (41%) hafa sögu um kransæðasjúkdóm og 37 (41%) háþrýsting. Meðal fjölbyrja (n=63), voru 30 (48%) með kransæðasjúkdóm og 36 (57%) með háþrýsting. Hjá konum sem fá háþrýsting í meðgöngu virðast kransæðasjúkdómar og háþrýstingur algengt vandamál síðar á ævinni. Nauðsynlegt er að athuga hvort tfðnin er hærri en við er að búast í þessum aldurshópum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.