Sagnir - 01.04.1988, Page 37
Arni Daníel Júlíusson
Lénsveldi eða
bændasamfélag
Þverá í Laxárdal í Þingeyjarsýslu. Hinn dœmigerði bóndabœr á 19. öld. Máluerk Arngríms Gís/asonar. málara, en hann uaruppi
á 19. öld. dó 1887.
Að undanförnu hefur verið
töluverð umræða um bænda-
samfélag 19. aldar meðal ís-
lenskra sagnfræðinga.1 Mest hefur
verið rætt um málið í tengslum við
'ðnbyltinguna sem varð á seinni
hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar
“0. Tvær meginhugmyndir eru uppi
^eðal sagnfræðinga um bænda-
sanafélag 19. aldar.
fáuðmundur Jónsson segir í grein
1 Nýrri sögu:2
... viðhorf ráðandi stéttar í land-
inu, jarðeigenda og embættis-
manna... [var] ... að telja leigu-
liða, húsmenn og þurrabúðar-
menn, lausamenn og vinnufólk
ekki fullgilda þjóðfélagsþegna.
Samkvæmt þessu viðhorfi skiptist
þjóðfélagið í tvær andstæðar stéttir,
þar sem jarðeigendur höfðu kúgun-
arvald yfir meirihluta fólks.
Hitt viðhorfið er það að bændur
hafi litið á þjóðfélagið sem stéttlaust
þjóðtélag, að öðru leyti en því að til
var sérstök embættismannastétt. Til
bænda töldust einnig leiguliðar, og
vinnumenn unnu sig yfirleitt upp í
bændastétt að lokum, eða það var
a.m.k. norm samfélagsins.3
Eðli samfélagsins á íslandi fyrir
1900 er samkvæmt þessu óljóst. Var
þetta einhvers konar lénsveldi, eða
var þetta fyrst og fremst bændasam-
félag? Grein.ng á gamla samfélag-
SAGNIR 33