Morgunblaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 24
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HERMANN ÓLAFUR GUÐNASON
fv. yfirverkstjóri
Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar,
hjúkrunarheimilinu Mörk,
Suðurlandsbraut 66,
lést þriðjudaginn 7. febrúar.
Útför hans verður gerð frá Grensáskirkju föstudaginn
17. febrúar kl. 15.00.
Elsa P. Níelsdóttir,
Ólöf Dóra Hermannsdóttir,
Ragnhildur Hermannsdóttir, Hjörtur Pálsson,
Erlendur N. Hermannsson, Anna María Grétarsdóttir,
Jóhann Gísli Hermannsson, Kristín Björg Óskarsdóttir,
Erla Ósk Hermannsdóttir, Gunnar S. Gottskálksson,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2012
✝ Kristín SvavaSvavarsdóttir
fæddist í Reykjavík
1. apríl 1957. Hún
lést á heimili sínu
4. febrúar 2012.
Foreldrar hennar
voru Svavar Guðni
Guðnason sölumað-
ur, f. 25. ágúst
1930, d. 30. desem-
ber 2011, og kona
hans Sigríður
Andrésdóttir, f. 26. september
1936, d. 2. nóvember 1993.
Systkini Kristínar eru 1) Andr-
és, f. 24. nóvember 1955,
kvæntur Þóru Stephensen. Þau
eiga tvö börn. 2) Guðni Birgir,
1931. Sonur Kristínar og Við-
ars er Andrés, f. 10. ágúst 1988.
Unnusta hans er Margrét Helga
Skúladóttir, þau eiga dótturina
Telmu Svövu, f. 3. apríl 2011.
Kristín bjó og starfaði í
Reykjavík alla sína ævi utan
átta ár sem þau Viðar bjuggu í
Vestmannaeyjum. Hún vann
margvísleg störf s.s. við fisk-
vinnslu og umönnun barna og
aldraðra. Síðustu árin vann hún
hjá Röntgen í Domus Medica og
hjá heildsölu. Frá 2009 var
Kristín félagi í Oddfellowregl-
unni.
Útför Kristínar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 15.
febrúar 2012, kl. 13.
f. 3. janúar 1960,
kvæntur Kristínu
Guðrúnu Ólafs-
dóttur. Þau eiga
þrjú börn og fimm
barnabörn. 3)
Rannveig Elín, f.
20. ágúst 1970.
Hún á eina dóttur
með fyrrverandi
eiginmanni sínum
David Beiter.
Kristín giftist
15. maí 1982 Viðari Gíslasyni
bryta, f. 21. desember 1957.
Foreldrar hans eru Gísli Guð-
mundsson, f. 11. september
1926, d. 4. júlí 2009, og k.h.
Dagbjört Ólafsdóttir, f. 15. júní
Elsku mamma mín, ég á eftir
að sakna þín mjög mikið, þú varst
alltaf svo góð, hlý, hjálpsöm og
frábær kona í alla staði. Mamma,
þú varst alltaf svo umhyggjusöm
og gættir þess að mér liði vel en
það var erfitt að fá þig til þess að
þiggja hjálp. Það er svo margt
sem ég get skrifað um þig elsku
mamma en ég vil geyma þær
minningar í hjarta mér um
ókomna tíð.
Elsku mamma, ég vil þakka
þér fyrir allar dýrmætu stundirn-
ar sem við áttum saman, hvíldu í
friði, ég mun ávallt sakna þín.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Þinn sonur,
Andrés.
Ég trúi því ekki að mín elsku-
lega tengdamóðir sé farin og er
mjög skrítin tilhugsun að hún
komi ekki aftur. Það eru komin
sjö ár síðan ég hitti hana Stínu
mína fyrst, þá tók hún mér strax
eins og sinni eigin dóttur en við
urðum strax mjög góðar vinkon-
ur. Eru þær eru ófáar stundirnar
sem við áttum saman við eldhús-
borðið í Gautavíkinni en þar gát-
um við setið og spjallað um allt
milli himins og jarðar. Ekki leidd-
ist okkur það að fara saman í búð-
ir en það eru ekki allir svo heppnir
að geta farið með tengdamömmu
sinni í búðaráp.
Það var svo í ágúst 2010 að
Stína og Viddi buðu okkur Andr-
ési með til Benidorm sem verður
okkur ógleymanleg ferð. Í ferð-
inni færðum við Andrés þeim þær
fréttir að von væri á þeirra fyrsta
barnabarni eða eins og við Andrés
orðuðum það „að hún fengi
kannski stóra afmælisgjöf“ en sú
litla fæddist tveimur dögum eftir
afmælið hennar Stínu. Við sáum
um leið að Stína ljómaði öll þegar
hún fékk fréttirnar og ekki síður
Viddi og voru þau strax farin að
hugsa um allt sem tengdist litlu
kríli enda voru þau löngu farin að
bíða eftir að verða amma og afi.
Mér finnst mjög erfitt að hugsa
til þess að Stína mín fékk ekki
lengri tíma með ömmusnúllunni
sinni, en við Andrés munum gæta
þess að Telma Svava okkar fái að
heyra sögur og sjá myndir af
ömmu Stínu. Einnig veit ég að
Viddi afi verður duglegur að
halda minningu hennar á lofti.
Það verður sárt að hafa hana
ekki hjá okkur þegar Telma
Svava verður eins árs í byrjun
apríl en við Stína vorum þegar
búnar að ákveða að slá saman í
eina afmælisveislu fyrir þær sam-
an hinn 1. apríl, sem var afmæl-
isdagur tengdamömmu. Ég ætla
að halda þeirri áætlun og halda
upp á afmæli þeirra beggja þenn-
an dag.
Ég er mjög þakklát fyrir að
hafa verið með tengdó um síðustu
jól en hún Stína mín var mikið
jólabarn enda var heimilið hennar
ávallt fallega skreytt á þessum
tíma. Það hvarflaði þó ekki að mér
að þetta yrðu mín fyrstu og einu
jól með henni.
Elsku Stína mín, þakka þér
fyrir allt sem þú gafst mér og
gerðir fyrir mig, ég á eftir að
sakna þín mikið en minning þín
mun lifa um ókomin ár. Hvíl í friði
og megi guð og englar geyma þig.
Þín tengdadóttir,
Margrét Helga.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson)
Stína er dáin. Hún var tekin frá
okkur snögglega og án mikils fyr-
irvara. Við skiljum ekki hvers
vegna. Það eins og annað er í
hendi guðs. En við trúum því að
nú líði henni vel og allar hennar
þrautir og erfiðleikar séu á bak og
burt. Allar góðu minningarnar
sem við eigum um hana skilja eft-
ir yl í hjartanu. Hún var glaðvær
og góð, æðrulaus og dugleg. Hún
átti við heilsuleysi að stríða í mörg
ár en lét það ekki stjórna lífi sínu.
Það var ekki hennar stíll. Hún var
sterk stoð í fjölskyldunni og hugs-
aði vel um fólkið sitt. Bar um-
hyggju fyrir okkur öllum. Hún
var innilega glöð yfir því að vera
orðin amma og hlakkaði til að
fylgjast með Telmu Svövu vaxa úr
grasi. Hún naut þess að hugsa um
heimilið sitt og gera það sífellt fal-
legra. Hún var mikið jólabarn og í
desember varð íbúðin þeirra
Vidda að ævintýralegu jólalandi.
Um Stínu eigum við því dýrmæt-
an sjóð góðra minninga sem við
varðveitum. Minningar um góða
systur, mágkonu og frænku sem
við hefðum viljað njóta svo miklu
lengur. Við fáum engu um það að
ráða en erum þess fullviss að leið-
ir okkar muni liggja saman síðar.
„Leið okkar liggur ekki um grængresið
mjúka, hún er fjallvegur og talsvert
grýtt. En hún liggur upp í mót, áfram í
sólarátt.“
(Ruth Westheimer)
Hafðu þökk fyrir samfylgdina
elsku Stína.
Andrés, Þóra, Örvar
og Dagbjört.
Síðustu dagar hafa verið sem í
draumi sem ég hef beðið eftir að
vakna af. En það er víst raunveru-
leikinn en ekki draumur að hún
Stína mín er farin fyrir fullt og
allt. Það er erfitt að hugsa til þess
að við eigum aldrei aftur eftir að
sitja yfir kaffibolla, spjalla og
hlæja saman.
Það er stórt skarð sem mynd-
ast í lítilli fjölskyldu þegar tveir
einstaklingar falla frá á rúmum
mánuði, fyrst tengdapabbi og nú
Stína.
Hugurinn þýtur um garð minn-
inganna og erfitt er að staldra við.
Það eru svo margar góðar minn-
ingar eftir rúmlega 30 ára vinskap
og fjölskyldutengsl.
Stína, Addi og Guðni flissandi
og hlæjandi eins og smákrakkar.
Stína, Viddi og óskabarnið
Andrés sem beðið var eftir í mörg
ár.
Boðin hennar þar sem borðið
svignaði undan kræsingum og allt
svo smekklega borið fram.
Ferðalögin okkar bæði erlend-
is og hér heima.
Stína var glæsileg kona, trú og
trygg sínu fólki hvort heldur
væru börn, gamalmenni eða mál-
leysingjar. Alltaf tilbúin að rétta
fram hjálparhönd.
Börnin okkar Guðna hafa alltaf
notið góðmennsku hennar enda er
engin eins og Stína frænka í
þeirra huga. Hún gladdist með
þeim, þerraði tárin og gaf þeim
góð ráð.
Stolt var hún af einkasyni sín-
um Andrési, unnustu hans Mar-
gréti og litla sólargeislanum
Telmu Svövu sem gaf ömmu sinni
ómælda gleði síðustu mánuðina.
Veikindi sín bar hún í hljóði,
beit á jaxlinn og hélt ótrauð
áfram. Hún skyldi hafa betur.
Nú er komið að leiðarlokum.
Með þakklæti kveð ég mína kæru
vin- og mágkonu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Kveðja
Kristín G. Ólafsdóttir.
Kristín Svava Svavarsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Kristínu Svövu Svav-
arsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÚN S. HAFSTEIN,
lést á Landspítalanum Fossvogi miðviku-
daginn 8. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 17. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að
láta björgunarsveitir landsins njóta.
Stefán Jón Hafstein, Guðrún K. Sigurðardóttir,
Þórunn Júníana Hafstein,
Sigrún Soffía Hafstein, Snæbjörn Jónsson,
Hildur Björg Hafstein, Stefán B. Mikaelsson,
Hannes Júlíus Hafstein, Hrafnhildur B. Haraldsdóttir
og barnabörn.
✝
Þökkum af alhug auðsýnda samúð, stuðning
og vinarþel við fráfall elsku mömmu okkar,
dóttur, systur, mágkonu og frænku,
INGIBJARGAR VAGNSDÓTTUR,
Holtastíg 11,
Bolungarvík,
sem lést í Kína sunnudaginn 20. nóvember.
Kristín, Birna og Ívar Ketilsbörn,
Birna Hjaltalín Pálsdóttir,
Soffía, Hrólfur, Margrét, Pálína, Haukur og
Þórður Vagnsbörn og fjölskyldur.
✝
Alúðarþakkir öllum þeim er sýndu mér og
fjölskyldu minni vinsemd og hlýju við andlát
og útför eiginkonu minnar,
HERDÍSAR S. GUÐMUNDSDÓTTUR.
Sigurjón Jóhannesson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
stjúpfaðir, bróðir, tengdafaðir, afi og langafi,
RÓBERT BENEDIKTSSON
húsasmíðameistari,
Hafnargötu 23,
Reykjanesbæ,
lést laugardaginn 28. janúar.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 18. febrúar
kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem viljast minnast hans er bent á Hjartavernd.
Auðbjörg Guðröðardóttir,
Guðrún Pétursdóttir,
Róbert Benedikt Róbertsson, Diljá Mist Einarsdóttir,
Jón Pétur Róbertsson,
Baldur Már Róbertsson, Jill Renea Róbertsson,
Guðmundur Þór Róbertsson, Þórdís Magnúsdóttir,
Halldór Ingi Róbertsson,
Rúnar Valur Róbertsson, Ragnheiður Arnardóttir,
Berglind Friðbergsdóttir, Björn Þór Baldursson,
Brynjar Friðbergsson, Guðrún Lind Brynjólfsdóttir,
Haraldur Guðmannsson, Dóra Björk Marinósdóttir,
Guðjón Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
UNNUR SCH. THORSTEINSSON,
Hlíðarhúsum 3,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 12. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju þriðju-
daginn 21. febrúar kl. 15.00.
Sigmundur Guðmundsson,
Bergþóra Sigmundsdóttir, Gunnar V. Johnsen,
Egill Þ. Sigmundsson, Petra Lind Einarsdóttir,
Björg Sigmundsdóttir, Már Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SVAVA SIGURÐARDÓTTIR,
Reyðarfirði,
sem lést á dvalarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði
sunnudaginn 12. febrúar, verður jarðsungin
frá Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn
18. febrúar kl. 14.00.
Sigurður Valtýsson, Dagný Sighvatsdóttir,
Katrín Valtýsdóttir,
Ingibjörg Valtýsdóttir, Michael Mann,
Guðrún Valtýsdóttir, Árni Páll Ragnarsson,
Svavar Valtýr Valtýsson, Guðrún Kjartansdóttir,
Valur Þór Valtýsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS H. HARALZ
hagfræðingur,
Efstaleiti 12,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk mánudaginn
13. febrúar.
Halldór Haralz, Gyða Rafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTINN FINNSSON
frá Þverdal,
síðast til heimilis á dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi,
sem lést föstudaginn 3. febrúar, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn
17. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hans er bent á dvalarheimilið Höfða Akranesi.
Sigurbjörg Kristínardóttir,
Guðlaug Kristinsdóttir, Sigurður Ólafsson,
Finndís Kristinsdóttir, Mikael Appelgren
og barnabörn.