Morgunblaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2012 ✝ Sigríður Sig-urðardóttir fæddist í Reykjavík 30. mars 1950. Hún lést í Svíþjóð 26. janúar 2012. Foreldrar henn- ar: Sigurður Krist- ján Sigurbjörnsson, f. 12. nóvember 1903, d. 27. sept- ember 1989, og María Finn- bogadóttir, f. 24. apríl 1914. Systkini hennar eru Hákon, f. 20. september 1942, og Björg, f. 12. desember 1943. Sigríður giftist hinn 11. sept- ember 1971 eftirlifandi eigin- manni sínum, Hauki Viggóssyni, f. 14. júní 1951. Börn þeirra eru: Finnbogi Már, f. 11. maí 1971, dóttir hans er María, Jóhann Steinar, f. 3. nóvember 1974, og Una Ragnheiður, f. 7. mars 1979. Sigríður fluttist með foreldrum sín- um til Kópavogs fimm ára gömul. Þar bjó hún til þrí- tugs er þau Haukur fluttu til Reykjavík- ur. Seinustu árin áður en þau fluttu til Svíþjóðar vann hún hjá Námsgagna- stofnun. Í Svíþjóð fóru þau í framhaldsnám tengt kennslu sem bæði höfðu valið sér sem ævistarf. Sigríður menntaði sig til að sinna börn- um með félagsleg vandamál. Eftir það kenndi hún við Verner Rydén-skólann í Malmö. Tvö barna þeirra og barnabarn búa í Svíþjóð en eitt á Íslandi. Útför Sigríðar fer fram frá Digraneskirkju í dag, 15. febr- úar 2012, og hefst athöfnin kl. 15. Fyrsta vitneskja mín um hana litlu, elskuðu, systur mína var í desember 1949 þegar ég vældi yfir því að vinkona mín hefði eignast bróður. Mamma svaraði mér því að ég skyldi bíða róleg fram í mars, þá gæti vel verið að ég yrði jafnheppin. Þetta gekk eftir og var þessi viðbót við fjölskylduna okkur öllum kærkomin. Ég taldi hana vera hálfgerða framlengingu af mér því þegar ég fékk að passa hana og var að basla með vagn- inn þurfti ég að losa mig við ut- anyfirfötin og fannst mér þá sjálfsagt að það væri eins með hana. Ekki minnist ég annars en að okkur systkinunum hafi fundist eðlilegt að hún yrði nánari mömmu en við sem vorum nokkru eldri en hún. Hún var rólegt barn og þægileg í um- gengni eins og hún hefur alla tíð verið. Þegar Sigga var fimm ára fluttum við í Kópavog. Þar gekk hún í Kársnesskóla og fór seinna í Kennaraskólann. Eftir það fór hún að kenna í gamla barnaskólanum sínum. Sagði hún þá að hún hefði ekki getað orðið kennari ef hún hefði ekki farið í sveit og kynnst lífinu þar. Hún vann við Námsgagna- stofnun í nokkur ár áður en fjöl- skyldan flutti til Svíþjóðar til framhaldsnáms. Ætlunin var að vera þar í fáein ár en það breyttist og árin eru orðin tutt- ugu og tvö. Sigga fór í sérnám og lærði að sinna börnum með félagsleg vandamál. Þar var hún á réttum stað. Hún sinnti börnunum „sín- um“ vel og náði góðum árangri. Sem dæmi má taka unglings- dreng sem færður var í bekkinn hennar. Hann var talinn vonlaus í skóla. Þegar að skólaslitum kom á sal bað þessi sami piltur um að fá að koma upp á svið og segja nokkur orð. Þangað kom hann með þrjá blómvendi. Fyrsta vöndinn færði hann skól- anum, annan einni skólasystur í þakklætisskyni fyrir besta kvöld sem hann hafði upplifað á loka- skemmtuninni kvöldið áður og þriðji vöndurinn var til Siggu kennarans hans. Það segir allt sem segja þarf. Ég ætla þó að minnast á rétt- lætiskennd systur minnar. Sigga sagði nemendum sínum að segja sér alltaf ef þau yrðu fyrir að- kasti því hún sæi það ekki á þeim ef slíkt gerðist. Þá tók hún strax á málinu og viðkomandi óróaseggur var ekki til vand- ræða eftir það. Það er erfitt að skrifa eft- irmæli eftir þá sem maður elsk- ar og getur ekki sætt sig við að missa. Við Sigga höfum ekki bú- ið í sama landi nema helminginn af ævi hennar. Maður leiðir ekki hugann að því þegar tengslin eru sterk. Maður ber þessar manneskjur ætíð innra með sér. Sigga og Haukur voru mér og börnum mínum betri en enginn þegar maðurinn minn og faðir þeirra lést. Það var reynt að hugsa fyrir öllu sem hægt var til að gera okkur lífið léttara. Fyrir það og alla aðra hjálp frá þeim þakka ég nú og við berum Siggu í huga okkar og hjarta um ókomna tíð. Ég sendi kveðjur frá móður okkar aldraðri til ljúflingsins hennar. Haukur minn og börnin. Sam- úðarkveðjur sendum við ykkur. Björg Sigurðardóttir, Sig- varður Ari, Hróðný María og Eðna Hallfríður Huld- arsbörn. Í dag kveð ég systur mína Sigríði, ég hef alltaf litið á hana sem litlu systur þó svo að það séu bara átta ár á milli okkar. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Sigga var óvenjulega ljúf og skapgóð manneskja og sá alltaf jákvæðu hliðarnar á öllum málum – nema í pólitík. Hún var þannig gerð að fólk þurfti ekki að þekkja hana mikið til að líka vel við hana. Það er bara þannig að sumir hafa eitthvað við sig; ljúft og bjart fas og hún átti gott með að ná sambandi við fólk og það sama má segja um Hauk, þess vegna eignuðust þau marga vini og stóran kunningjahóp. Þegar Haukur og Sigga ákváðu að flytja til Svíþjóðar vegna framhaldsnáms var mein- ingin að vera aðeins í fáein ár en þau eru nú orðin 22 og þau voru ekki á leiðinni heim vegna þess að þeim leið vel þar. Gríska skáldið Aristófanes sagði: „Föð- urland manns er þar sem honum gengur vel“ og þeim leið vel í Svíþjóð en taugarnar til Íslands voru sterkar og Sigga vildi koma heim til Íslands að lokum. Sigga hafði til að bera ein- stakt æðruleysi og vildi ávallt sjá heiminn björtum augum. Hún gerði lítið úr veikindum sínum og fannst ekki taka því að gjaldfella sjálfa sig með veik- indatali og það villti um fyrir okkur hinum sem vorum svo langt í burtu, hún vildi hlífa okk- ur við áhyggjum. Ég vil þakka elsku systur minni fyrir hvað hún var góð og sýndi mömmu okkar mikla alúð og hlýju með því að bjóða henni til sín í Svíþjóð á hverju sumri í mörg ár, hún naut þess að sitja úti í fallega garðinum þar innan um fjölskrúðug blómabeðin. Að kveðja ástvin sem deyr fyrir aldur fram eftir langa og góða samferð er erfið reynsla sem mörg okkar verða að takast á við einhvern tímann á lífsleið- inni. Það getur verið erfitt að sjá framhaldið og hvernig á að fylla upp í það tómarúm sem skapast við slíkar aðstæður. Það er nú verkefnið sem blasir við Hauki og börnunum og þá skipt- ir máli að eiga góðar minningar, geta rifjað upp allt það góða og skemmtilega. Fjölskylda Siggu á fjársjóð minninga sem léttir sporin og auðveldar þeim að byggja framtíðina án hennar. Gangi henni vel á þeirri leið sem hún hefur nú lagt út á. Megi góður Guð blessa minn- ingu Siggu systur. Hákon Sigurðsson. Kær vinkona er látin. Fal- legar minningar um hlýja og trausta vinkonu streyma um hugann. Fagran haustdag lá leið okkar Siggu saman í strætó. Við fórum út á Þóroddsstöðum og héldum af stað í Kennaraskól- ann. Við vorum 16 ára; á tíma- mótum; skólaævintýri að hefjast og lífið var gott. Þar hófst vin- átta sem hélst æ síðan. Sigga var Kópavogsbúi og ég nýlega flutt þangað. Hún var listræn og skáldleg og tók mig með í leik- hús og söfn; dró mig á sinfón- íuna, sleppti aldrei úr tónleikum. Hún kenndi mér að meta klass- íska tónlist og bókmenntir. Kennaraskólinn var okkur dýr- mætur í glaðværum hópi í C-bekknum, lærdómurinn góð- ur. En við mótuðumst einnig af bítlunum; hippunum; vorum ’68- kynslóðin, blómabörn; pólitískar og baráttuglaðar og gengum í takt. Sigga tók bílpróf og nýr kafli hófst í ferðalögum okkar; við fórum rúntinn á kvöldin, spiluðum bítlalögin í botn og „Hey Jude“ varð okkar lag. Glaumbær beið handan við hornið og þar fann Sigga Hauk- inn sinn. Skólaárunum lauk og lífið tók nýja stefnu, kennarastarfið og fjölskyldulíf tók við; árin liðu. Við fögnuðum hvor með annarri þegar börnin okkar fæddust. Hvor með tvo drengi og eina stúlku. Fylgdumst með börnun- um dafna og þroskast, bárum saman bækur okkar í leik og starfi. Stundum leið langt milli funda, en það var alltaf eins og við hefðum hist deginum áður; Hlustuðum, heyrðum og töluð- um lengi; deildum gleði og sorg- um. Sigga og Haukur fóru í fram- haldsnám í Svíþjóð og settust að í Åkarp á Skáni. Sigga tók sér- kennarapróf með góðum vitn- isburði, varð afbragðs sérkenn- ari í Malmö svo eftir var tekið. Þau eignuðust barnabarn í Sví- þjóð og undu hag sínum vel. Við Bjarni áttum þess oft kost að koma til þeirra, njóta þeirra ein- stöku gestrisni; það voru góðar stundir, mikið hlegið; „Hey Jude“ og dans inn í nóttina. Síðustu árin tókst Sigga á við erfiðan sjúkdóm með þeim bar- áttuvilja og æðruleysi sem ein- kenndi hana. Lífsins ferðalagi hennar er nú lokið. Í huga mér er sár söknuður en jafnframt þakklæti yfir að hafa fengið að verða henni samferða öll þessi ár. Blessuð sé minning hennar. Stillt vakir ljósið í stjakans hvítu hönd, milt og rótt fer sól yfir myrkvuð lönd. Ei með orðaflaumi mun eyðast heimsins nauð. Kyrrt og rótt í jörðu vex korn í brauð. (Jón úr Vör) Elsku Haukur, Una, Jói, Finnbogi og María litla, á þess- ari kveðjustund er hugur okkar Bjarna hjá ykkur. Okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Kolbrún Þórðardóttir. Lífið er fljótt; líkt er það elding sem glampar um nótt ljósi, sem tindrar á tárum, titrar á bárum. (Matthías Jochumsson) Kær vinkona og skólasystir, Sigríður Sigurðardóttir, er fallin frá, alltof fljótt. Með sorg í hjarta kveð ég þessa ljúfu æsku- vinkonu mína. Við Sigga vorum bekkjarsystur, fyrst í Kársnes- skólanum í Kópavogi, í Gagn- fræðaskóla Kópavogs og í Kenn- araskóla Íslands, þar sem við útskrifuðumst sem kennarar að- eins tvítugar að aldri. Sigga var yndisleg að utan sem innan, fíngerð og falleg, brosmild og hæglát, góð og traust. Margt kemur upp í hug- ann þegar ég lít til baka og oft var glatt á hjalla t.d. þegar Sigga spilaði á píanóið fyrir okk- ur krakkana eða þegar við fór- um á rúntinn á bíl pabba henn- ar. Einu sinni sem oftar fórum við Sigga saman í Glaumbæ og hittum þar fyrir ungan og myndarlegan mann frá Eski- firði, Hauk Viggósson, sem var góður vinur minn. Ég kynnti þau að sjálfsögðu og hann bauð Siggu upp í dans. Nú eru liðin meira en fjörutíu ár og hafa þau Haukur dansað saman alla tíð síðan. Fjölskyldan var henni kær, eiginmaðurinn, börnin og nú síð- ast barnabarnið, María, litla fal- lega stúlkan hans Finnboga. Hún var augasteinn afa og ömmu og dvaldi mikið hjá þeim. Er missir hennar mikill. Fyrir nokkrum árum fór Sigga að kenna sér meins en tókst að vinna bug á því að talið var. Þá átti hún góðan tíma þar til meinið tók sig upp á ný. Fyr- ir tæpum tveimur árum héldum við bekkjarsystkinin upp á fjörutíu ára útskriftarafmæli úr Kennaraskólanum og kom Sigga þá frá Svíþjóð þar sem fjöl- skyldan hefur verið búsett síð- astliðin tuttugu ár. Hún var orð- in mjög veik en sýndi mikið æðruleysi og styrk þó svo að hún yrði að fara á læknavaktina seinna um kvöldið. Rétt fyrir jólin áttum við Þór- leifur þess kost að heimsækja þau hjónin og eiga með þeim góðan tíma þó svo að skuggi veikindanna hvíldi yfir. Löngu og ströngu stríði æskuvinkonu minnar er lokið og kveð ég hana með þökk og hlýju. Við biðjum góðan Guð að hugga Hauk og fjölskylduna alla í þeirra miklu sorg. Stefanía María Júlíusdóttir. Sigríður Sigurðardóttir  Fleiri minningargreinar um Sigríði Sigurðardótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Ferðalög Costa Brava - Playa de Aro Gullna ströndin, fyrir fjölskylduna í sumarleyfið. starplus.is og starplus.info Gisting AKUREYRI Höfum til leigu íbúð með gistiaðstöðu fyrir 6-7 manns. Fullbúin íbúð, gott verð. Upplýsingar í síma 690-4899. Hvataferðir, fyrirtækjahittingur, óvissuferðir, ættarmót Frábær aðstaða fyrir alla hópa. Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. Minniborgir.is Gisting á góðum stað. Upplýsingar í síma 868 3592. Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Handskornir trémunir frá Slóvakíu í úrvali. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endurvinnslu. Fannar verðlaunagripir, Smiðju- vegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - s. 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta KLIPPING - dömu og herra - 3.000 kr. VERÐDÆMI virka daga, stutt hár: Lagning 2.400, blástur 2.800, perm. 5.900, litun 6.000. GJAFAVÖRUÚRVAL. EVÍTA, Starmýri 2, 108 Rvík, s. 553 1900, www.evita.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun og smáviðgerðir. Tökum að okkur að fara með bíla í skoðun. Bílavarahlutir VW og Skoda varahlutir s. 534 1045 Eigum til notaða varahluti í VW, Skoda, Audi og Pajero frá '02. Kaup- um bíla til niðurrifs og uppgerðar. Bílabúið Kaplahrauni 11, s. 534 1045. Hjólbarðar Kebek vetrardekk - Tilboð Hönnuð og prófuð í Kanada. 185/65 R 15 12.900 kr. 195/65 R 15 12.900 kr. 205/55 R 16 14.900 kr. 215/65 R 16 17.990 kr. 205/50 R 17 17.900 kr. Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Rýmingasala á vörubíladekkjum 13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk. 425/65 R 22.5 kr. 49.900 + vsk. 1100 R 20 kr. 39.500 + vsk. 1200 R 20 kr. 39.500 + vsk. Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333.Ökukennsla Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '11. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Auris '11. 8637493/5572493. Húsviðhald Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni Sími 847 8704, manninn@hotmail.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.