Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 13
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 2008 13Helgarblað
Björgólfur Thor Björgólfsson
er holdgervingur útrásarvík-
inganna en hann er fyrst og
fremst alþjóðlegur fjárfestir.
Ungur að árum horfði Björg-
ólfur Thor upp á föður sinn
handtekinn og niðurlægðan
þegar Hafskipsmálið náði
hæstu hæðum en atburðarás-
in hafði djúpstæð áhrif á
hann. Björgólfur Thor er rík-
asti maður Íslandssögunnar
og efnaðist vel á bruggverk-
smiðju í Rússlandi. Hann er
kyndilberi Thors-veldisins og
berst fyrir virðingu með pen-
ingum, viðskiptaviti og völd-
um. Þjóðin hyllti Björgólf
Thor og föður hans en nú er
komið babb í bátinn. Lands-
bankinn skuldar hundruð
milljarða og virðingin sem
Björgólfur Thor eitt sinn barð-
ist fyrir gæti orðið að engu.
BERST FYRIR
VIRÐINGU
Lögreglumenn voru þungbúnir þeg-
ar þeir börðu að dyrum hjá Björgólfi
Guðmundssyni og eiginkonu hans,
Þóru Hallgrímsson. Klukkan var sex
um morguninn og allir á heimilinu
sváfu værum svefni. Lögreglumenn-
irnir gengu fram af hörku og réðust
að heimilisföðurnum þegar útidyrnar
opnuðust. Björgólfur Thor, þá aðeins
nítján ára verslunarskólanemi, stóð
agndofa og horfði á lögreglumenn-
inna niðurlægja föður hans með
ókvæðisorðum áður en þeir hand-
járnuðu hann. Móðir Björgólfs Thors
var á náttkjólnum og réð ekki við tárin
sem streymdu niður kinnarnar.
„Þeir voru hrottalegir þessir lög-
reglumenn í atgangi sínum og sögðu
Björgólfi Thor að drulla sér í burtu því
honum kæmi þetta ekki við,“ segir ná-
inn vinur fjölskyldunnar um þennan
örlagaríka morgun.
Björgólfur Thor reyndi að hjálpa
föður sínum en lögreglumennirnir
gengu af hörku gegn honum. Þegar
Björgólfur Thor náði áttum var faðir
hans á bak og burt.
Morgunninn 20. maí 1986 átti eft-
ir að hafa mikil og djúpstæð áhrif á
Björgólf Thor sem síðar kom eins og
stormsveipur inn í íslenskt efnahags-
líf, staðráðinn í að endurheimta virð-
ingu „Thorsaranna“ og halda merkj-
um ættarinnar á lofti.
Ríkasti Íslendingurinn
Björgólfur Thor fæddist í Reykja-
vík 19. mars árið 1967. Áhuga Björg-
ólfs Thors á viðskiptum er í raun
og veru hægt að rekja til Thors Jen-
sen, langafa Björgólfs í móðurætt,
en hann var umsvifamikill athafna-
maður sem fluttist ungur til Íslands.
Thor Jensen er fyrirmynd Björg-
ólfs Thors en sá fyrrnefndi var dáður
og virtur af Íslendingum sem frum-
kvöðull og athafnamaður. Til marks
um það voru fjölmörg fyrirtæki á
landinu lokuð daginn sem hann var
borinn til grafar af virðingu við Jen-
sen.
Morgunblaðið birti frétt um and-
lát Thors Jensen á forsíðu blaðsins
laugardaginn 13. september 1947
en þar var ritað orðrétt: „Með Thor
Jensen er hniginn einn hinn mesti
framfara- og athafnamaður sem Ís-
land hefir átt.“
Björgólfur Thor er að mörgu leyti
líkur langafa sínum sem var ríkasti
Íslendingurinn um aldamótin 1900.
Það má því segja að fyrsti milljarða-
mæringur Íslands hafi fetað í fót-
spor langafa síns en Björgólfur Thor
komst fyrstur Íslendinga á lista yfir
ríkustu menn í heimi hjá tímaritinu
Forbes. Björgólfur hóf viðskiptaferil
sinn aðeins níu ára gamall en þá var
gróði hans aðeins í krónum og aur-
um en ekki þúsundum milljarða.
Seldi hasarblöð í
Austurbæjarbíói
Hasarhetjur á borð við Spid-
erman, Hulk og Superman voru í
miklu uppáhaldi hjá Björgólfi Thor
en hann fékk iðulega send teikni-
myndablöð frá Bandaríkjunum. Sú
sem sendi honum blöðin var engin
önnur en Sonja Zorrilla, landsfræg
kaupsýslukona á Manhattan, en
hún var vinkona Þóru, móður Björg-
ólfs Thors. Sonja lýsir því í ævisögu
sinni, Líf og leyndardómar Sonju W.
Benjamínsdóttur Zorrilla, þegar hún
keypti blöðin í New York og sendi
þau til Björgólfs Thors á Íslandi.
Þrjúbíóið í Austurbæjarbíói var
fyrsti vettvangur viðskipta Björgólfs
Thors en hann ásamt félögum sín-
um seldi þessi teiknimyndablöð dýr-
um dómum inni í bíósalnum til þess
að eiga fyrir poppi og kók. Stundum
var gróðinn af sölunni svo mikill að
Björgólfur Thor hafði efni á öðrum
bíómiða fyrir næsta þrjúbíó. Aðeins
níu ára var Björgólfur Thor því orð-
inn þekktur á meðal jafnaldra sinna
– strákurinn sem seldi teiknimynda-
blöðin.
Á þessum tíma var Björgólfur
Thor í Hagaskóla ásamt fjölmörgum
félögum sínum en hann varð fljótt
hrókur alls fagnaðar og var einn af
„vinsælu“ strákunum í skólanum.
Eftir Hagaskóla lá leið hans í Verzl-
unarskóla Íslands þar sem Björgólfur
var einn af „töffurunum“ sem ætluðu
sér stóra hluti í framtíðinni.
Pabbi handtekinn með látum
Kennarar Verzlunarskólans, sem
DV ræddi við, segja að Björgólfur
Thor hafi verið kraftmikill og duglegur
námsmaður sem setti svip sinn á lífið í
skólanum og þá skipti engu hvort það
var félagslífið eða námið. Árið 1986
dundu svo ósköpin yfir. Björgólfur átti
þá aðeins eitt ár eftir í Verzló.
Faðir Björgólfs var handtekinn
með látum og niðurlægður af lög-
reglu sem gekk fram af mikilli hörku
og fékk Björgólf eldri dæmdan í fimm
vikna gæsluvarðhald í Hafskipsmál-
inu fræga. Björgólfur eldri var forstjóri
fyrirtækisins og var einn af sex mönn-
um sem voru handteknir morguninn
20. maí. Atburðarásin sat í Björgólfi
Thor.
Gleymir þessu seint
Trúnaðarvinir Björgólfs Thors
segja að hann komi seint til með að
gleyma þessum örlagaríka morgni.
Meira en tólf klukkutímar liðu þar til
Björgólfur Thor heyrði eitthvað um
örlög pabba síns.
Það var ekki fyrr en Björgólfur Thor
kveikti á kvöldfréttunum sama kvöld
sem hann gerði sér grein fyrir því að
allir stjórnendur Hafskips höfðu verið
handteknir af RLR.
Rannsókn RLR leiddi til ákæru
sem var hvorki meira né minna
en í 450 liðum. Dómurinn dæmdi
hann þó ekki fyrir nema brotabrot af
ákærunni; fimm minniháttar bók-
haldsbrot og var Björgólfur eldri
dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið
fangelsi.
Hafskipsmálið dróst heldur betur
á langinn en því lauk ekki fyrr en í júní
árið 1991.
Skemmtanaglaður götumálari
Björgólfur Thor starfaði við ým-
islegt á uppvaxtarárunum. Hann
starfaði til að mynda við götumálun
hjá kunningja sínum til margra ára,
verðbréfasalanum Guðmundi Frank-
lín Jónssyni. Þar vann hann í nokkur
sumur.
„Hann var besti götumálari sem ég
hef kynnst,“ segir Guðmundur Frank-
lín spurður um starfsmann sinn til
nokkurra ára. „Björgólfur málaði allt-
af beina línu því hann var alltaf edrú,“
segir Guðmundur Franklín.
Þá var Björgólfur Thor líka skemmt-
anastjóri á Tunglinu og á Borginni hjá
Guðmundi Franklín og fór mikinn í
samkvæmislífinu. Björgólfur kynntist
eiginkonu sinni, Kristínu Ólafsdótt-
ur, þegar hann var skemmtanastjóri
á Borginni en þá hafði hann nýlokið
BS-prófi í fjármálafræðum frá New
York University.
„Hann var fullur af orku og húmor
og vissi nákvæmlega hvað hann vildi,“
segir Kristín í viðtali við Nýtt Líf sem
birtist á þessu ári. Þá var Björgólfur 23
ára en Kristín 18 ára.
Leið Björgólfs lá til Rússlands eft-
ir útskriftina þar sem boltinn fór að
rúlla fyrir alvöru.
Misheppnuð frumraun
Árið 1993 fór Björgólfur Thor
ásamt föður sínum og góðvini,
ATli MáR GylfASon
oG vAluR GReTTiSon
blaðamenn skrifa: atli@dv.is og valur@dv.is
Framhald á
næstu opnu
„Hann var besti götu-
málari sem ég hef
kynnst.“
Björgólfur í eldlínunni Hér gengur Björgólfur
út úr ráðherrabústaðnum eftir átakafundi með
ríkisstjórninni vegna efnahagshrunsins.