Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Side 15
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 2008 15Helgarblað
ur stofnað til og Landsbankinn hef-
ur gengist í ábyrgð fyrir.
Lyfjafyrirtæki til sölu?
Flestar eignir Björgólfs Thors
eru á breskum markaði. En hryggj-
arstykkið í eignasafninu er Acta-
vis sem er eitt stærsta lyfjafyrirtæki
veraldar og hyggur á landvinninga í
Asíu. Nú síðast bárust fregnir af því
frá Financial Times að Björgólfur
íhugi að selja hlut sinn í fyrirtækinu.
Þegar haft var samband við þá sem
til þekkja innan fjármálaheimsins
fengust þau svör að Björgólfur Thor
myndi ekki selja hlut sinn ótilneydd-
ur. Sé hluturinn falur sé Björgólfur
kominn í veruleg vandræði.
Björgólfur hefur hagnast á lyfja-
og símafyrirtækjum í Austur-Evrópu
en það var Deutsche Bank sem bauð
honum upprunalega að fjárfesta í
litlu lyfjafyrirtæki í Búlgaríu. Björg-
ólfur haslaði sér völl og hagnað-
ist gríðarlega í landinu. Samkvæmt
heimildum á Björgólfur Thor nær
allt undir Deutsche Bank .
Einfari í viðskiptum
„Það sem gæti komið Björgólfi
illa er að hann er einfari í viðskipt-
um,“ sagði einn viðmælenda við
DV og átti þá við að Björgólfur sé
verulega tregur til að leyfa öðrum
að hagnast með sér. Hann spili ein-
leiki í viðskiptum og myndi frekar
traust við aðila í þeim löndum sem
hann á viðskipti í. Hann passar vel
upp á sitt og er grjótharður í við-
skiptum að sögn kunnugra. Annar
viðmælandi segir Björgólf ekki í leit
að frægð eða peningum, „hann
er rekinn áfram af metnaði til
þess að gera það sem föður
hans mistókst“.
Björgólfur á fáa að sem
hann treystir. Feðgarnir eru
mjög samrýmdir að sögn
heimildarmanna en vissu-
lega slettist stundum upp
á vinskapinn í viðskiptum.
Aftur á móti hafi slíkt engin
sjáanleg áhrif á persónu-
legt samband þeirra.
Magnús Þorsteins-
son, fyrrverandi stjórn-
arformaður Eimskips,
er einnig náinn Björg-
ólfi Thor. Þeir vinni
enn saman og engu
skipti að risalán XL-
Leisure, sem Magnús
stjórnaði, hafi fallið á
Landsbankann. Lán-
ið var upp á tuttugu og fimm millj-
arða. Fyrir stuttu sagði talsmaður
Björgólfs að lánið yrði ekki borgað
af þeim feðgum. Þannig væri það
bara.
Leyndardómsfullur Thorsari
Björgólfur Thor hefur ávallt hald-
ið sér og fjölskyldu sinni fyrir utan
kastljós fjölmiðlanna. Hann hefur
nánast aldrei mætt í opinskátt við-
tal og rætt um eignir sínar eða líf og
af þeim sökum hvílir mikil leynd yfir
högum hans.
Þeir fjárfestar sem DV ræddi við
segja það mjög erfitt verkefni að
kortleggja eignir hans erlendis því
aðeins hluti af fjárfestingum hans
sé ræddur í fjölmiðlum.
Heimildarmaður innan fjár-
málageirans segir Novator vera fé-
lag sem enginn komi til með að ná
almennilega utan um án þess að
komast í trúnaðarupplýsingar. Eign-
ir Novators eru úti um allan heim og
viðskiptafélagar Björgólfs eru þög-
ulir sem gröfin. Novator er stund-
um kallað „black box“ vegna allrar
þeirrar leyndar sem ríkir um
fjárfestingar félagsins.
Töffari af guðs náð
Björgólfur Thor er ann-
álaður fyrir töffaraskap
bæði í klæðnaði og fram-
komu. Hann er smekkmað-
ur þegar kemur að klæðn-
aðinum en hann er oftast í
fráhnepptri skyrtu og flott-
um jakkafötum. Þó eru til
undantekningar á þessum
klæðaburði hans. Ef fund-
urinn fjallar um alvarleg
málefni, eins og fall Lands-
bankans, hneppir hann
skyrtunni upp í háls og setur
upp bindi.
Þegar kemur að leikföng-
um á Björgólfur Thor það
flottasta og dýrasta. Ófáar
greinar í Séð og heyrt hafa
fjallað um „dótakassa“ Björ-
gólfs Thors en í honum eru
meðal annars sérsmíðað
mótorhjól og snekkja.
Kristín Ólafsdótt-
ir sagði í áðurnefndu
viðtali við Nýtt Líf að
áhugamál þeirra hjóna
séu ferðalög og meiri
ferðalög: „Okkur Bjögga
finnst gaman að ferðast
saman, til dæmis fara
á skíði og sigla.“
Glamúrlíf í háloftunum
Björgólfur Thor hefur ekki far-
ið varhluta af glamúrnum sem fylg-
ir því að vera ríkasti maður Íslands.
Sumarið 2006 keypti Björgólfur Thor
einkaþotu sem er talin hafa kostað í
kringum einn milljarð króna. Þot-
an er af gerðinni Bombardier Chall-
enger 604 og er leðurklædd í hólf og
gólf.
Þota Björgólfs er
í algjörum sér-
flokki þegar
kemur að
einkaþot-
um auð-
manna.
Björg-
ólfur
Thor er
sá eini
sem
hefur lát-
ið merkja
einkaþot-
una sína
en hún er með einkennismerki
Björgólfs sem er flott útfærsla af
Þórshamrinum fræga úr goðafræð-
inni. Merkið er líka lógó fyrirtækis
Björgólfs Thors, Novators, en nafnið
má útleggja sem hinn nýi Thor. Útlit
einkaþotunnar og lógóið eru líka til
marks um það hve Björgólfi er um-
hugað um að halda á lofti uppruna
sínum sem kyndilbera veldis Thors-
aranna í samtímanum.
Afmæli aldarinnar
Björgólfur Thor hélt upp á fer-
tugsafmæli sitt eins og sönn-
um milljarðamæringi sæmir.
Hann sérpantaði farþegaflug-
vél fyrir gesti sína en vélin var
öll innréttuð eins og lúxus-
farrými í einkaþotu.
Gestirnir voru 130 tals-
ins en þeir vissu ekkert hvert
ferðinni væri heitið þegar þeir
mættu út á Keflavíkurflugvöll.
Það eina sem fylgdi boðinu
var að fólki var bent á að
hafa léttan klæðnað
og strandfatnað
meðferð-
is.
Flugstjórinn tók stefnuna á Jam-
aíka þar sem afmælið var haldið í
gríðarstórum kastala sem ber nafn-
ið Trident.
Skemmtikraftarnir í afmælinu
voru ekkert slor. Aðalnúmerið var
bandaríski rapparinn 50 Cent sem,
eins og Björgólfur Thor, byrjaði á
botninum en vann sig síðan upp og
er nú einn af tekjuhæstu tónlistar-
mönnum í heimi. 50 Cent til halds
og traust var meðal annars son-
ur Bobs Marley, Ziggy Marley, og
bandaríski tónlistarmaðurinn Jam-
iroquai.
„Maður var bara í sæluvímu frá
því að maður fór í loftið og þang-
að til maður kom til baka,“ sagði
einn gestanna við blaðamann Séð
og heyrt skömmu eftir lendingu á
Keflavíkurflugvelli.
Skuldafangelsi Íslendinga
Björgólfur Thor horfir fram á
erfiða tíma í viðskiptalífinu á sama
tíma og kona hans til margra ára,
Kristín Ólafsdóttir, ber annað barn
þeirra undir belti. Maðurinn sem
sór að hefna þegar hann sá föð-
ur sinn niðurlægðan og gerðan
landflótta, hefur líklega náð fram
hefndum en herferðin hefur reynst
dýrkeypt.
Virðing hans hefur vaxið og nafn
Thorsaranna er orðið heimsþekkt.
En nú eru varhugaverðir tímar. Nafn
þeirra gæti líka orðið alræmt með
hruni Landsbankans. Hart er tek-
ist á í hinum pólitíska heimi vegna
innlánsreikninga Icesave. Þeir hafa
orðið að milliríkjadeilu sem náði há-
marki þegar ákvæðum um hryðju-
verkalög var beitt gegn Landsbank-
anum á breskri grundu. Breska ríkið
hefur boðist til þess að lána því ís-
lenska tæplega sex hundruð milljón-
ir króna til þess að standa straum af
láninu. Björgólfur og faðir hans liggja
undir þungu ámæli landa sinna fyr-
ir að axla ekki ábyrgð á mistökunum
í Bretlandi. Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra skoraði á þá feðga
í DV í gær að axla siðferðilega ábyrgð
og að skilja ekki eftir sig sviðna jörð.
Þessu hafa feðgarnir enn ekki svarað
og á þeim standa öll spjót.
Skattborgarar óttast að hátt flug
feðganna muni verða skuldafang-
elsi þjóðarinnar.
Kynntust á Borginni Eiginkona Björgólfs
er Kristín Ólafsdóttir. Þau kynntust á Borginni
þar sem Björgólfur var skemmtanastjóri, en
þá var hún 18 ára og hann 23 ára.
Heimildarmaður innan
fjármálageirans segir
Novator félag sem eng-
inn kemur til með að ná
almennilega utan um án
þess að komast í trúnað-
arupplýsingar.
Vinur Rússlands Björgólfur efnaðist á bjórverk-
smiðju í rússlandi. Hér stígur hann út úr einkaþotu
sinni ásamt Mikhail gorbatsjov, fyrrverandi
sovétleiðtoga, sem hélt fyrirlestur í reykjavík.