Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Side 25
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 2008 25Fókus
Hvað er að
GERAST?
föstudagur
n Dansaðu við mig í Iðnó
dansaðu við mig er frumsýnt í Iðnó í kvöld
en þar er rifist, hlegið, daðrað, drukkið,
öskrað, strippað, málað, elskast, saknað og
leitað. Það er dansað á helstu málefnum
tilverunnar. Verkið fjallar um það þegar
maður hittir konu / kona hittir mann og
um vondar tímasetningar og fullkomin
augnablik.
n Bubbi í Reykjanesbæ
Bubbi Morthens ætlar að halda hausttón-
leika á nokkrum stöðum á landinu og
byrjar hann í duus
Húsi í reykjanesbæ í
kvöld. Á efnisskránni
er blanda af gömlu
og nýju efni.
Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30 og
húsið er opnað
klukkan 20.
n Dj Casanova á Tunglinu
dJ Casanova skemmtir dansþyrstum
Íslendingum á Tunglinu í kvöld. Skífu-
þeytarinn stillir sér upp við plöturnar á
miðnætti og spilar eðaldansmúsík fram á
rauðanótt. aðgangseyrir er þúsund krónur
við dyr.
n Dj Áki Pain og Rikki G á sólon
Það eru félagarnir Áki Pain og rikki g sem
skipta sér milli hæða á Sólon í kvöld.
Stemningin verður í algjöru hámarki og
má reikna með dansstuði fram á morgun
að venju á Sólon.
n 32c Crew á Prikinu
32c Crew verður með tónleika og partí frá
klukkan níu í kvöld á Prikinu. Ekki nóg með
að hægt sé að dansa við flotta hipp hopp
tóna heldur verða fríar veigar í boði
hússins. Þegar 32c hefur lokið sér af tekur
danni deluxx við og klárar kvöldið.
laugardagur
n Útgáfutónleikar Nýdanskrar
Sveitin var að gefa út nýja breiðskífu.
daníel Ágúst og Björn Jörundur hafa aldrei
verið jafn ferskir og nú. Húsið er opnað
klukkan 21.30. allir þeir sem kaupa nýja
diskinn fá boðsmiða á útgáfutónleikana.
aldurstakmark er 20 ára.
n Dj Kári á Kaffibarnum
dj Kári eða Evander Holyfield plötusnúð-
anna er ekki hættur að spila á Kaffibarnum
þrátt fyrir leiðinlegt atvik á barnum fyrir
nokkrum árum. Kári kann að halda uppi
góðri stemningu langt fram eftir nóttu.
Fjörið hefst á miðnætti.
n Últra Mega á Prikinu
Hin ofurhressa hljómsveit Últra Mega
Teknóbandið Stefán heldur mega tónleika
á Prikinu í kvöld. Stuðið hefst klukkan 22. Á
miðætti tekur síðan dj anna Brá við og
hjálpar fólki að hrista rassinn langt fram
eftir nóttu.
n Dj Stef á Hverfisbarnum
Hann dj Stef er aðalgaurinn á Hvebban-
um. Hann veit hvað fólk vill heyra og gerir
þetta vel. dj gunni Stef veldur engum
vonbrigðum. Fjörið byrjar á miðnætti.
n Sometime á Q-Bar
Hljómsveitin Sometime heldur styrktar-
tónleika fyrir sjálfa sig á skemmtistaðnum
Q-Bar í kvöld. Plötusnúðurinn danni
deluxxx verður sveitinni til halds og traust.
Það kostar eitt þúsund krónur inn og hefst
ballið klukkan 23.
TuRNINuM
Með
NýD-
aNSKRI
gargandi
snilld!
m
æ
li
r
m
eð
...
THe aMazING TRuTH
aBouT QueeN RaQuela
Snotur
mynd um
strák með
brjóst.
ÓDÁðaHRauNI
efTIR STefÁN MÁNa
Stefán Máni heldur sig
við harðsvíraða
glæpamenn og heldur
stefnunni sem hann tók
með Skipinu.
HaRT í BaK
Klassískt verk,
kannski ekki
fyrir
útlendinga,
en fyrir okkur. Mörg frábær
tilþrif, en annað þó fálmkennt.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
MÚSaGIlDR-
uNNI HjÁ
leIKfélaGI
aKuReyRaR
Skref aftur á
bak hjá La.
HaMleT 2
Nafn
myndar-
innar
boðar
gott en
myndin sjálf er vonbrigði.
Ég vissi ekki alveg við hverju ég
átti að búast af de Blob. Hvort þetta
væri barnaleikur eða hvað. Maður
er samt fljótur að komast að því að
svo er ekki. Ekki beint í það minnsta.
Ungir sem aldnir geta skemmt sér
konunglega yfir litadýrð og einfald-
leika de Blob.
Leikurinn fjallar um undarleg-
an ævintýraheim þar sem litadýrð
er allsráðandi. Síðan kemur hið illa
stórfyrirtæki INKT og hneppir íbú-
ana í ánauð. Ekki nóg með það held-
ur svipta þeir heiminn öllum litum.
Þannig að veröldin sem var áður lit-
rík og falleg er nú orðin grá og litlaus
steinsteypa.
Saga de Blob er sögð í gegnum
skemmtileg myndbrot sem koma
inn á milli. Sagan er einföld og ævin-
týraleg og er fljót að ná manni. Lista-
maðurinn og fagurkerinn í manni er
ekki lengi að upplifa óréttlætið sem
INKT hefur upp á að bjóða.
Þá bregður maður sér í hlutverk
de Blob og markmiðið er einfalt. Að
leiða andspyrnuhreyfinguna í því að
lita heiminn á ný og sigrast á hinum
illu INKT.
Sú einfalda aðgerð að fá að lita
heiminn í öllum regnbogans litum
er ótrúlega gefandi og litadýrðin
gleður augað fljótt. Tónlistin í leikn-
um er skemmtileg sem eykur enn
á stemninguna. Spilunin er einföld
og útlit leiksins og hljóð er alveg frá-
bært. Einfaldleikinn er það sem ger-
ir de Blob skemmtilegan en dregur
úr honum um leið. Áskoranirnar
mættu vera fjölbreyttari og endur-
tekningin verður fullmikil.
Engu að síður leikur sem kom
skemmtilega á óvart og er flott til-
breyting. Ásgeir Jónsson
Tónaflóð og litagleði
tölvuleikir
de BloB
Nintendo Wii
Ævintýraleikur
hvernig það væri að vera í þorpi þar
sem öll dýrin myndu breytast í steina
og hvað gæti mögulega orsakað það.“
einn strákur fékk martröð
Að sögn Gunnars er sagan um
Steindýrin svolítið hryllileg á köflum.
Kannski ekki furða þegar haft er í huga
að Gunnar hefur skrifað hjá sér og
unnið mismikið með hinar ýmsu hug-
myndir að hryllingssögum. Eina slíka
sögu sendi hann reyndar í Gaddakylf-
una, glæpasagnakeppni tímaritsins
Mannlífs og Hins íslenska glæpafé-
lags, fyrir þremur árum og vann.
Gunnar viðurkennir að hafa ver-
ið smeykur um að krakkarnir yrðu
hræddir við að hlusta á söguna, og
þjóðsögurnar líka, og myndu í fram-
haldinu klaga í foreldra sína. „Ég var
sérstaklega smeykur um það fyrst. Ég
passaði mig því mikið til að byrja með
í þjóðsagnalestrinum,“ lýsir Gunnar
en áheyrendafjöldinn jókst jafnt og
þétt og var þegar mest var um fjörutíu
talsins.
„En bara einu sinni kom ein
mamman til mín og sagði að strák-
urinn sinn hefði fengið martröð eftir
að hafa hlustað á þjóðsögu þar sem
kom fyrir sæskrímsli. Ég fór strax í smá
kerfi og fór að biðjast afsökunar, en
konan sagði bara „Nei, nei, allt í lagi,
ég las þessar sögur þegar ég var lítil
og þetta er bara eðlilegt.“ Svo passaði
ég mig eiginlega of mikið þegar ég fór
að skrifa Steindýrin, enda sögðu þau
í dómnefndinni við mig að ég mætti
auka og ýkja dramatíkina á stöku stað.
Þannig að ég gerði það, lét krakkana
til dæmis særast örlítið meira í leið-
angri sínum og lenda í aðeins meiri
lífsháska.“
jesús og rokkstjarna
Gunnar minnti einna helst á
Jesúm að leyfa börnunum að koma
til sín í samnefndri frásögn Biblí-
unnar við verðlaunaafhendinguna í
Hlíðaskóla á þriðjudaginn. Skeggjað-
ur, síðhærður með ljúflingssvip og
krakkarnir hópuðust að „sínum“
manni. „Mér leið líka svolítið eins og
rokkstjörnu. Þetta var rosalegt. Þetta
voru allt krakkarnir sem voru hjá mér
í sögustund þegar ég skrifaði bók-
ina og ég hef ekki séð þau öll saman
síðan þá, rekst kannski á eitt og eitt
þeirra á göngunum.“
Eins og áður sagði heitir aðal-
persónan Gunnar líkt og höfundur-
inn. Strákurinn Gunnar er jafnframt
sögumaður og segir Gunnar Theodór
ákvörðunina um nafnið vera krökk-
unum að þakka. „Upphaflega hét
söguhetjan Björn. Krökkunum fannst
hins vegar skrítið að ég segði söguna í
fyrstu persónu, segði alltaf „ég“ þetta,
„ég“ hitt, en svo héti persónan Björn.
Krakkarnir fengu mig því til að breyta
nafninu í Gunnar. Ég spurði svo þau
hjá Forlaginu hvort það væri ekki
skrítið að aðalpersónan héti sama
nafni og höfundurinn en þau sögðu
að það væri allt í lagi.“
Gunnar hafði setið á handritinu í
tæpt ár áður en hann skilaði því inn
í keppnina. Þá var hann búinn að
breyta hinu og þessu frá því hann las
söguna fyrir krakkana, til að mynda
staðháttum. „Í útgáfunni sem ég
sagði krökkunum var risastór skógur í
kringum þorpið, enda var það þannig
í Neuenkirchen. Svo fékk ég ábend-
ingu um að ef sagan ætti að gerast á Ís-
landi væri það eiginlega ekki hægt. Ég
bjó því til helli og færði skóginn ofan
í jörðina.“
Gat ekki staðið í fæturna
Þegar meðlimir dómnefndarinn-
ar hringdu í Gunnar í sumarbyrjun,
að tilkynna honum að þeim litist best
á hans sögu, voru þau stödd á bóka-
safninu í Hlíðaskóla. Fulltrúar krakka
í dómnefndinni í ár komu nefnilega
úr skólanum en það er breytilegt ár frá
ári. Gunnar var sjálfur staddur í Hlíða-
skjóli í kjallara skólans að gefa sex ára
krökkum að borða.
„Ég hefði átt að hlaupa upp og
heilsa þeim en ég var bara svo rugl-
aður eftir þetta símtal. Ég fór svo upp
eftir tíu mínútur en þá voru þau farin.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef þurft
að setjast niður eftir að hafa fengið
einhver tíðindi. Ég bara gat ekki stað-
ið í fæturna,“ segir Gunnar og hlær
svo skeggið og dreddarnir í hári hans
hristast. Hann bætir við að svolít-
ið fyndið sé hvernig svona margt við
keppnina tengist Hlíðaskóla. Auk þess
sem hér er lýst stendur svo fjölskylda
barnabókahöfundarins vinsæla Ár-
manns Kr. Einarssonar að Íslensku
barnabókaverðlaununum, ásamt
Forlaginu og fleirum, en Ármann var
lengi kennari við skólann.
Gunnar bjó jafnframt fyrstu átta
æviárin við hliðina á Hlíðaskóla, án
þess þó að ganga í hann. „Meirihluti
móðurfjölskyldu minnar var hins veg-
ar í honum,“ segir Gunnar en aðspurð-
ur kveðst hann ekki vita hvort Ármann
Kr. hafi kennt mörgum forfeðra hans.
Þess má geta að foreldrar Gunnars eru
sagnfræðingurinn Eggert Þór Bern-
harðsson og sagnfræðingurinn og rit-
höfundurinn Þórunn Erlu-Valdimars-
dóttir sem hafa skrifað ófáar bækur og
greinar. Kannski eins gott að blaða-
maður komst ekki að þessu fyrr en
eftir að hann hitti Gunnar að máli því
höfundurinn ungi slapp þar af leið-
andi við leiðindaspurningar á borð við
hvort sú staðreynd – það er að hann sé
sonur „þessa fólks“ – hafi eitthvað með
að gera að hann hóf að skrifa.
Spurninguna um hvort Gunnar
eigi börn sleppur hann aftur á móti
ekki við í ljósi tilefnis viðtalsins. „Nei,
engin. Nema auðvitað börnin í Hlíða-
skjóli á milli klukkan eitt og fimm á
virkum dögum.“ Þorpi hefur Gunnar
heldur aldrei búið í þótt það sé sögu-
sviðið sem hann velur sögu sinni.
í óvirkustu, virku hljómsveitinni
Gunnar hóf doktorsnám í bók-
menntafræði við Háskóla Íslands
í haust. Hann kveðst þó ekki alveg
kominn á fullt ennþá í því þar sem
útgáfa Steindýranna sé búin að taka
svolítið mikinn tíma undanfarnar vik-
ur. Gunnar er einnig í þriggja manna
hljómsveitinni Malneirophrenia þar
sem hann spilar á píanó.
„Þetta er óvirkasta, virka hljóm-
sveit landsins. Hún var stofnuð fyrir
átta árum en við höfum ekki ennþá
gefið út plötu,“ segir Gunnar brosandi
og horfir niður á borðplötuna á Kaffi
Hljómalind þar sem viðtalið fer fram.
Nafnið segir hann komið úr sálfræð-
inni. „Þetta er hugtak sem lýsir ástand-
inu sem maður er í þegar maður er ný-
vaknaður eftir martröð og er ekki viss
hvort maður sé vaknaður eða ennþá
að dreyma; svona á milli svefns og
vöku, en á sérstaklega við að líða illa
og hafa verið með martröð.“
Hinir tveir hljómsveitarmeðlim-
irnir spila á bassa og selló en söngur
er ekki hluti af tónlistarsköpun félag-
anna. „Þetta er hádramatísk tónlist,“
segir Gunnar. „Henni er oftast líkt við
kvikmyndatónlist, nýklassík og metal.
En við spilum allt of sjaldan. Stærstu
tónleikarnir sem við höfum spilað á
var á RIFF-kvikmyndahátíðinni í fyrra
þar sem lifandi tónlist var spiluð undir
sýningu hryllingsmynda. Annars spil-
um við alltaf fyrir sama fólkið á sömu
búllunum á hálfs árs fresti. Við verð-
um eiginlega að drífa okkur að klára
plötu svo fleiri geti heyrt í okkur.“
Tónlist við Hollywood-útgáfuna
Hvað frekari skrif snertir segist
Gunnar kannski vera byrjaður á nýrri
bók. „Ég er ekki viss ennþá. Ég var
byrjaður að semja nokkrar styttri sög-
ur fyrir krakkana sem ég las í fyrra og
voru á einn eða annan hátt draugasög-
ur. Það getur vel verið að það sé hægt
að stækka þær upp í hryllingssögu
þannig að kannski kemur hryllings-
bók eftir mig út á næsta ári.“ Aðspurð-
ur hvort það sé ekki þungur kross að
bera á hugsanlegum rithöfundaferli
að fyrsta bók hafi verðlaunastimpil á
sér frá fyrsta degi segist Gunnar ekki
vera farinn að hugsa svo langt inn í
framtíðina.
En þar sem hann getur brugðið
sér í alls kyns hlutverk, meðal annars
hlutverk rithöfundar, fræðimanns,
tónlistarmanns og starfsmanns frí-
stundaheimilis – og er menntaður í
kvikmyndafæðum – má kannski ætla
að kvikmyndar hvers konar sé að
vænta úr smiðju Gunnars í framtíð-
inni. „Ja, ég hef aldrei verið nógu dug-
legur í því. En ég fæ kannski vin minn
eða frænda til að gera Hollywood-út-
gáfuna af Steindýrunum. Svo geri ég
músíkina við myndina og skrifa svo
náttúrlega um hana eitthvað voðalega
fræðilegt.“
kristjanh@dv.is
Leið svolítið
eins og
roKKstjörnu
Gunnar Theodór eggertsson
Með bók sína og viðurkenningar-
skjal við verðlaunaafhendinguna í
vikunni. „Þetta var rosalegt. Þetta
voru allt krakkarnir sem voru hjá
mér í sögustund þegar ég skrifaði
bókina og ég hef ekki séð þau öll
saman síðan þá,“ segir gunnar.
MyND KRISTINN MaGNÚSSoN