Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Síða 36
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200836 Helgarblað Ég er enn að venjast því að vakna svona snemma á morgnana. Stundum stelst ég til þess að vaka lengur og maður finnur fyrir því daginn eftir,“ segir Kolbrún sem gekk til liðs við útvarpsþáttinn Í bítið á Bylgjunni fyrir rúmu einu og hálfu ári og vakn- ar með Íslendingum á hverjum virk- um morgni við hlið Heimis Karls- sonar. „Ég ólst upp í Árbænum, bjó þar frá fjögurra ára aldri. Tók smá útúrdúr í tvö ár er ég bjó í Kópavogi. En í fyrra keyptum við hús í Árbænum, við hliðina á húsi foreldra minna og hús- inu sem ég ólst upp í,“ segir Kolbrún og brosir breitt. „Ég upplifi það ennþá að keyra inn í hverfið hversu undar- legt það er að vera ekki á leið heim til mömmu og pabba og inn í herberg- ið mitt, heldur í mitt eigið hús,“ bæt- ir hún við. Henni líður aldrei betur en heima. „Árbærinn er eins og sveit í borginni, hér er mikil veðursæld og notalegt að vera.“ Stimpluð af Djúpu lauginni Íslendingar fengu þó fyrst að kynnast Kolbrúnu í stefnumótaþætt- inum Djúpu lauginni sem sýndur var á Skjá einum á sínum tíma. Þetta var gullöld stöðvarinnar og Kolbrún sem hafði aldrei unnið í fjölmiðlum, hvað þá sjónvarpi, lét verða af því og sótti um. „Mig langaði lengi í stjórnmála- fræði og hugur minn stefndi fyrr eða síðar í fjölmiðla þó kannski ekki í þátt eins og Djúpu laugina,“ segir Kolbrún og viðurkennir að hún hafi sótt um því þetta var nokkuð sem kitlaði for- vitni hennar. „Ég horfði oft á Skjá einn á þeim tíma. Sá að það var verið að auglýsa eftir fólki og lét verða af því. Það er skondið en ég átti í svakalegum erf- iðleikum með að finna mynd til að senda með umsókninni, en ég er með fóbíu fyrir myndavélum,“ segir Kol- brún og hlær. Hún viðurkennir að þó svo að þátturinn hafi verið skref í rétta átt hafi hann háð henni meira en ella í seinni tíð. „Ég hef fengið það á tilfinninguna að fólk taki mig ekki alvarlega. Ég er stimpluð af Djúpu lauginni en er svo miklu meira en bara þessi þáttur,“ segir Kolbrún og bætir við: „Það er lygilegt hvað fólk man vel eftir mér sem er fyndið því ég er búin að gera svo margt annað.“ Kolbrún eignaðist sitt fyrsta barn Theodóru ung að aldri. Hún var að- eins 22 ára. Hún lét það aldrei stöðva sig í því sem hún vildi gera og vann hún hin ýmsu störf til þess að drýgja tekjurnar. Kolbrún vann um tíma sem hárgreiðslukona, en sneri þó fljótt baki við því starfi. Það var eitthvað annað sem beið hennar. Vonlaus í saumaklúbbum Frá unga aldri hafði stjórnmála- fræðin heillað hana. Hún viðurkennir að vera mjög ástríðufull þegar kemur að pólitíkinni. Og lét hún loksins verða af því að fara í háskólann. „Þeir sem þekkja mig vita að ég með ofboðslega sterka réttlætiskennd og ég hef mik- inn áhuga á stóru myndinni. Er lítið að velta mér upp úr minni hlutunum. Ég er vonlaus í saumaklúbbum. Er al- veg úti á túni þegar vinkonurnar eru að tala um einhverja manneskju. Svo kaffæri ég þær með pólitískum skoð- unum mínum. Um tíma voru þær orðnar svakalega þreyttar á mér, en í dag hafa þær meiri áhuga sjálfar á því sem er að gerast,“ segir hún. „Annars kynntist ég mörgum af mínum bestu vinkonum í dag í stjórn- málafræðinni og við tökum heilu kvöldin þar sem við tölum einungis um pólitík. Fórum eitt sinn upp í bú- stað þar sem stjórnmálin voru rædd í pottinum og vandamál heimsins nánast leyst,“ segir Kolbrún hlæjandi og ástríðan skín í gegn. Skíthrædd í sjónvarpi Eftir fyrsta árið í stjórnmálafræð- inni, leysti hún af í morgunþættin- um Ísland í bítið sem sendur var út í beinni útsendingu á hverjum ein- asta morgni. Þar kynntist hún Heimi Karlssyni sem átti stóran þátt í því að Kolbrún sneri aftur í morgunþáttinn Í bítið. „Það skiptir miklu máli að geta unnið vel saman. Ég vissi nákvæm- lega að hverju ég gekk er ég sneri aft- ur. Við erum afar ólík og á sama tíma mjög lík,“ segir Kolbrún og lýsir því hvernig það var að vakna með þjóð- inni á hverjum einasta morgni nánast óreynd. „Ég var skíthrædd til að byrja með. Það er svo miklu erfiðara að vera í sjónvarpi en fólk gerir sér grein fyr- ir. Þetta var stuttur tími, aðeins þrír mánuðir og það tók megnið af tím- anum að komast inn í þetta,“ játar Kolbrún. Hún lét þó ekki deigan síga þrátt fyrir erfitt sumar. Um haustið fékk Kolbrún vinnu á fréttastofu Rík- isútvarpsins þar sem hún vann sem fréttamaður í rúmt ár með skólanum og undi sér vel. „Ég gekk í gegnum sömu krísur þar og í sjónvarpinu. Það má segja að ég hafi verið eins og skrattinn úr sauðarleggnum þar og þurft að sigr- ast á fullt af nýjum áskorunum. Ég komst þó að því þar að útvarp á mjög vel við mig. Það sem truflaði mig við sjónvarpið voru myndavélarnar í stað þess að geta slappað af fyrir fram- an hljóðnemann. Það er allt öðruvísi upplifun að hlusta en að horfa,“ segir Kolbrún. Magnaðir tímar Blaðamaður forvitnast um hvort Kolbrún sé krítísk á sjálfa sig. „Ég er örugglega minn versti óvinur. Ég hugsa oft með mér „ég gerði þetta ekki nógu vel“ eða „þetta var asna- legt“ en ef maður ætlar að lifa eftir því er alveg eins gott að leggja mann bara Vill gifta sig í gallabuxum KrefjanDi Vinna Kolbrún viðurkennir að gott sé að hafa Heimi Karlsson sér við hlið á morgnana. Það sé stundum erfitt að vinna fyrir framan alþjóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.