Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Síða 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Síða 56
VISINDASJOÐUR Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í Vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein eign sjóðsins um áramót er hverju sinni til úthlutunar. Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A- og B-hluta. A-hluti í A-hluta koma 90% af tekjum sjóðsins og skal þeim varið til að greiða hverjum sjóðsfélaga árlega framlag fyrir útlögðum kostnaði vegna endurmennt- unar, rannsóknar- eða þróunarstarfa. Félagið sér um að greiða úr A-hluta sjóðsins til félagsmanna á fyrsta árs- íjórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækia sérstaklega um framlagið. upphæðin er lögð inn á bankareikning félagsmanna sem hafa gefið upp reiknings- og bankanúmer sitt hjá félaginu. Félagsmaður, sem hefur verið í fullu starfi tímabilið 1. janúar til 30. nóvember árið fyrir úthlutun, á rétt á fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag. Ekki er úthlutað til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. september árið fyrir úthlutun. Vísindasjóður A-hluti Greiðslur tir A-hluta Vísindasjóðs (éJagsins verða lagðar Iteinl inn á Imnkareikning félagsmanna í lok mars nk. ísaf jarðar flpótek Pollgötu 4, 400 isafjörður Sími: 456-3009 Fax: 456-3020 Opið mánud.-föstud. kl. 09.00-18.00 og laugardaga kl. 11.00-12.00 B-hluti Ur B-hluta Vísindasjóðsins er þeim 10% sem eftir eru af tekjum sjóðsins varið til að stuðla að aukinni fræði- mennsku f hjúkrun með því að styrkja rannsókna- og þróunarverkefni. Úr þeim liluta er úthlutað einu sinni á ári. Úr starfsreglum fyrir B-hluta Vísindasjóðs Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að sjóðnum, geta sótt um styrki úr honum til að sinna fræðimennsku. Umsóknir skulu metnar af stjórn Vísindasjóðs og sérfróðum aðilum á hverju sérsviði hjúkrunar. í þverfaglegum verkefnum, sem fleiri en einn aðili sækir um og ekki eru allir aðilar að sjóðnum, getur upphæð styrks aldrei orðið hærri en sem nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu. Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni nemenda í B.S. námi eru ekki styrkhæf. Lokaverkefni til M.S. eða doktorsgráðu geta verið styrkhæf að uppfylltum almennum skilyrðum enda sé viðkom- andi hjúkrunarfræðingur aðili að sjóðnum árið sem réttur til úthlutunar úr A-hluta sjóðsins ávinnst. Styrkupphæðir verða greiddar út í áföngum í samræmi við framgang verksins enda skili styrkþegi inn áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað til stjórnar Vísindasjóðs ásamt niður- stöðum, t.d. tfmaritsgrein. Vísindasjóður hefur á hverjum tíma yfirlit yfir allar styrkumsóknir og styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann liluta styrksins sem ekki liefur verið notaður til verkefnisins. 1 umsókii uin styrk þurfa að konia fram eftirfaraiuli upplýsingar: Nafn umsækjanda, menntun, starfs- reynsla og reynsla af rannsóknar- eða þróunaninnu. Greinaskrif: • Heiti rannsóknarverkefnis/þróunar- verkefnis. • Markmið með vinnu verkefnis. • Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir hjúkrun/heilbrigðisvísindi. • Rannsóknaráætlun/verkáætlun. • Aðferðafræði. • Heimildaskrá. • Mælitæki. • Tímaáætlun. • Kostnaðaráætlun. Við mat á styrkhæfni skulu þessi atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum: Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða þróunar? Hvert er mikilvægið? Er framsetning markmiða skýr? Erframkvæmdaáætlun raunhæf og í samræmi við markmið? Er nauðsynleg aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking umsækjanda fullnægjandi? Er kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug? Er hægt að fella niður eða lækka einhverja kostnaðarliði, hvernig? Almennar athugasemdir um umsókn og verkefni. Hver ofangreindra þátta verði metinn samkvæmt ákveðnum kvarða, t.d. 0-5 til að auðvelda mat og ákvarðana- töku við styrkveitingar. Styrkir úr vísintlasjóði geta nýst til að ljúka verkefnum til kynningar á ráðstefnum Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1997. Umsóknum sé skilað ó skritstofu télagsins að Suðurlandsbraut 22. TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 1. tbl. 73. árg. 1997

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.