Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Qupperneq 56
VISINDASJOÐUR
Vinnuveitendur greiða sem nemur
1,5% af föstum dagvinnulaunum
hjúkrunarfræðinga í Vísindasjóð Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein eign
sjóðsins um áramót er hverju sinni til
úthlutunar. Sjóðurinn er í vörslu
félagsins og skiptist í A- og B-hluta.
A-hluti
í A-hluta koma 90% af tekjum
sjóðsins og skal þeim varið til að greiða
hverjum sjóðsfélaga árlega framlag fyrir
útlögðum kostnaði vegna endurmennt-
unar, rannsóknar- eða þróunarstarfa.
Félagið sér um að greiða úr A-hluta
sjóðsins til félagsmanna á fyrsta árs-
íjórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækia
sérstaklega um framlagið. upphæðin er
lögð inn á bankareikning félagsmanna
sem hafa gefið upp reiknings- og
bankanúmer sitt hjá félaginu.
Félagsmaður, sem hefur verið í fullu
starfi tímabilið 1. janúar til 30.
nóvember árið fyrir úthlutun, á rétt á
fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur
unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á
úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag.
Ekki er úthlutað til félagsmanna sem
hófu störf eftir 1. september árið fyrir
úthlutun.
Vísindasjóður A-hluti
Greiðslur tir A-hluta
Vísindasjóðs (éJagsins verða
lagðar Iteinl inn á
Imnkareikning félagsmanna í
lok mars nk.
ísaf jarðar flpótek
Pollgötu 4, 400 isafjörður
Sími: 456-3009 Fax: 456-3020
Opið mánud.-föstud. kl. 09.00-18.00
og laugardaga kl. 11.00-12.00
B-hluti
Ur B-hluta Vísindasjóðsins er þeim
10% sem eftir eru af tekjum sjóðsins
varið til að stuðla að aukinni fræði-
mennsku f hjúkrun með því að styrkja
rannsókna- og þróunarverkefni. Úr þeim
liluta er úthlutað einu sinni á ári.
Úr starfsreglum fyrir
B-hluta Vísindasjóðs
Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild
að sjóðnum, geta sótt um styrki úr
honum til að sinna fræðimennsku.
Umsóknir skulu metnar af stjórn
Vísindasjóðs og sérfróðum aðilum á
hverju sérsviði hjúkrunar. í
þverfaglegum verkefnum, sem fleiri en
einn aðili sækir um og ekki eru allir
aðilar að sjóðnum, getur upphæð styrks
aldrei orðið hærri en sem nemur hlut
styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu.
Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta
á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur
við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni
nemenda í B.S. námi eru ekki styrkhæf.
Lokaverkefni til M.S. eða doktorsgráðu
geta verið styrkhæf að uppfylltum
almennum skilyrðum enda sé viðkom-
andi hjúkrunarfræðingur aðili að
sjóðnum árið sem réttur til úthlutunar úr
A-hluta sjóðsins ávinnst.
Styrkupphæðir verða greiddar út í
áföngum í samræmi við framgang
verksins enda skili styrkþegi inn
áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað
til stjórnar Vísindasjóðs ásamt niður-
stöðum, t.d. tfmaritsgrein.
Vísindasjóður hefur á hverjum tíma
yfirlit yfir allar styrkumsóknir og
styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í
janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni
eða því ekki lokið af einhverjum
ástæðum skal styrkþegi gera stjórn
sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og
endurgreiða þann liluta styrksins sem
ekki liefur verið notaður til verkefnisins.
1 umsókii uin styrk þurfa að konia
fram eftirfaraiuli upplýsingar:
Nafn umsækjanda, menntun, starfs-
reynsla og reynsla af rannsóknar- eða
þróunaninnu.
Greinaskrif:
• Heiti rannsóknarverkefnis/þróunar-
verkefnis.
• Markmið með vinnu verkefnis.
• Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir
hjúkrun/heilbrigðisvísindi.
• Rannsóknaráætlun/verkáætlun.
• Aðferðafræði.
• Heimildaskrá.
• Mælitæki.
• Tímaáætlun.
• Kostnaðaráætlun.
Við mat á styrkhæfni skulu þessi atriði
metin skv. eftirfarandi viðmiðum:
Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða
þróunar? Hvert er mikilvægið?
Er framsetning markmiða skýr?
Erframkvæmdaáætlun raunhæf og í
samræmi við markmið? Er nauðsynleg
aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking
umsækjanda fullnægjandi? Er
kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug?
Er hægt að fella niður eða lækka
einhverja kostnaðarliði, hvernig?
Almennar athugasemdir um umsókn og
verkefni.
Hver ofangreindra þátta verði metinn
samkvæmt ákveðnum kvarða, t.d.
0-5 til að auðvelda mat og ákvarðana-
töku við styrkveitingar.
Styrkir úr vísintlasjóði geta
nýst til að ljúka verkefnum
til kynningar á ráðstefnum
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr
B-hluta Vísindasjóðs
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1997.
Umsóknum sé skilað ó skritstofu télagsins að
Suðurlandsbraut 22.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 1. tbl. 73. árg. 1997