Morgunblaðið - 25.05.2018, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 25.05.2018, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is #bergmálsklefinn nefnist ný íslensk-ensk ópera um kynjahyggju á samskiptamiðlum frá tónleikfélaginu Aequitas Collective í samstarfi við Alþýðuóperuna sem frumsýnd verð- ur í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.30. Leikstjóri er Ing- unn Lára Krist- jánsdóttir sem jafnframt skrifaði handrit sýningar- innar, tónlistina samdi Michael Betteridge, með hlutverk fara Rosie Middleton, Ísabella Leifs- dóttir, Jónína Björt Gunnars- dóttir og Ívar Helgason, en um pí- anóleik sér Matthildur Anna Gísla- dóttir. „Hugmyndin að því að skoða nið- urlægingu, smánun og sambönd á netinu kviknaði af minni eigin reynslu af því að vera á samfélags- miðlum á borð við Twitter og Face- book,“ segir Ingunn og tekur fram að bókin So You’ve Been Publicly Sham- ed eftir Jon Ronson hafi líka veitt sér mikinn innblástur. Sjálfsmynd kostaði vinnuna „Ég fékk leyfi höfundar til að nota bókina og tók í framhaldinu líka við- töl við konur á Íslandi sem hafa orðið fyrir miklu netníði eða tengjast því á einhvern hátt. Þeirra á meðal eru Hildur Lilliendahl og Margrét Erla Maack,“ segir Ingunn og rifjar upp að sjálfsmynd á Facebook og Twitter hafi kostað hana vinnuna. „Ég var að vinna baksviðs í bresku leikhúsi þar sem Martin Freeman úr Hobbitanum og Sherlock var meðal leikara. Að lokinni vel heppnaðri aðalæfingu spurði ég hann hvort ég mætti taka sjálfsmynd af mér með honum og hann tók því bara vel. Ég deildi myndinni bæði á Facebook og Twitter. Viku seinna var ég kölluð á fund með stjórnendum leikhússins þar sem ég var rekin fyrir að deila myndinni. Þá kom í ljós að þeir vildu ekki að starfsmenn leikhússins deildu slíkum myndum, þótt þess væri hvergi getið í starfsreglum hússins, en þeir ákváðu greinilega að gera mitt mál að fordæmi. Ég missti því vinnuna tveimur dögum fyrir út- skrift, sem var mér mikið áfall, en stressið sem þessu fylgdi olli tíma- bundinni andlitslömun hjá mér, sem er þekkt viðbragð við streitu,“ segir Ingunn og tekur fram að sem betur fer hafi lömunin gengið til baka. Ing- unn útskrifaðist úr Rose Bruford College of Theatre and Performance 2014 með menntun í leik, skrifum og leikstjórn, en hún er núna að klára meistaranám í ritlist við HÍ. „Í #bergmálsklefanum kynnast áhorfendur fjórum persónum sem segja sögur sínar, sem fléttast saman í verkinu. Sýningin hverfist um per- sónu sem Rosie Middleton syngur og byggist á reynslu Hildar Lilliendahl og Justine Sacco, sem Jon Ronson skrifar um í bók sinni en mannorði Sacco var rústað á samfélagsmiðlum vegna kaldhæðins tísts sem aðeins uppistandarar hefðu komist upp með.“ Með símann í andlitinu Í #bergmálsklefanum gefst áhorf- endum tækifæri til að hafa áhrif á framvindu verksins með því að tísta gegnum Twitter. „Á sviðinu verður skjár þar sem tíst áhorfenda birtast í beinni. Ég fékk forritara til að útfæra kerfið þannig að allt sem áhorfendur tísta birtist nafnlaust á skjánum. Verkið felur í sér rannsókn á því hvað áhorfendum dettur í hug að tísta þeg- ar þeir vita að tístin birtast nafn- laust,“ segir Ingunn og bendir á að persónan sem Ísabella Leifsdóttir syngur eigi nánast heima á sam- félagsmiðlum og tali stöðugt við áhorfendur og syngi það sem birtist á skjánum. „Þannig taka áhorfendur í raun þátt í því að skrifa senuna og geta heyrt sinn texta sunginn í beinni,“ segir Ingunn og tekur fram að ólíkt öðrum leikhúsum verði áhorf- endur ekki beðnir að slökkva á sím- um sínum þar sem ljós frá þeim geti truflað aðra gesti. „Ég mun minna alla á að hafa kveikt á símum sínum og nota þá óspart meðan á sýning- unni stendur,“ segir Ingunn, en sýn- ingin er leikin án hlés og tekur um 70 mínútur. „Ég er mjög spennt að upp- lifa hvernig samspilið verður þegar leikararnir sjá áhorfendur upplýsta af köldu ljósi símskjáanna. Mig lang- ar að skoða hvernig samfélagið okkar er orðið þegar við erum stöðugt með símann í andlitinu. Mig langar að sjá hversu fjölhæfir áhorfendur eru, geta þeir tíst á sama tíma og þeir fylgjast með óperunni,“ segir Ingunn og bendir á að áhorfendum gefist líka kostur á að tísta gegnum síðuna echochamber.is ef þeim hugnast ekki að tístin birtist á þeirra Twitter. Að sögn Ingunnar felst ákveðin áskorun í því fyrir tónskáldið Michael Betteridge að byggja sýninguna að hluta til á spuna. „Michael Betteridge er búinn að skrifa ákveðnar reglur fyrir Ísabellu. Hann gefur henni ákveðinn takt og ákveðnar nótur sem hún má leika sér með í spunanum,“ segir Ingunn og tekur fram að afar spennandi sé að skoða tungumál netsins gegnum tónlist. Tungumálið í stöðugri þróun „Óperan hentar mjög vel sem mið- ill til að skoða netið og samskipti. Tungumálið er í stöðugri þróun og samskiptamátar okkar breytast. Nú- orðið fer meirihluti samskipta okkar við fólkið í lífi okkar fram í gegnum netið. Ef það verður raunin áfram er tilvalið að skoða þetta tungumál í list- formi á borð við óperu. Þetta er nú- tímaópera, þannig að fólk sem er hrætt við klassískar óperur þarf ekki að óttast þessa sýningu, því það geta allir notið hennar,“ segir Ingunn og bendir á að flestar óperur sem hún hafi séð byggist á litlum texta og mik- illi endurtekningu. „Í sýningunni okkar erum við að vinna með svo mikinn texta að hann verður á köflum yfirþyrmandi, sem kallast á við þá textaofgnótt sem birt- ist okkur á netinu,“ segir Ingunn og bendir á að útkoman þegar ólíkum formum og stílum sé blandað saman geti iðulega komið á óvart. „Það birt- ist skýrt í söngleiknum Hamilton þar sem fjallað var um fyrsta fjármála- ráðherra Bandaríkjanna í rapp/ hipphopp-söngleik. Það reyndist mjög góð blanda og ég myndi segja að það sama ætti við um okkar sýn- ingu.“ Þess má að lokum geta að sýn- ingin er sungin jöfnum höndum á ís- lensku og ensku, en þýðingar verða birtar á skjá. Næstu sýningar verða 27., 29. og 31. maí og eru miðar seldir á tix.is. Áhorfendur tísta á sýningum  Aequitas Collective og Alþýðuóperan frumsýna #bergmálsklefann í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.30  Í verkinu er verið að skoða niðurlægingu, smánun, netníð og sambönd á samfélagsmiðlum Ljósmynd/Ómar Sverrisson Ópera Ívar Helgason og Ísabella Leifsdóttir í hlutverkum sínum í #bergmálsklefanum sem frumsýndur er í kvöld. Ingunn Lára Kristjánsdóttir Raflistahátíðin Raflost hófst í fyrradag og er hátíðin nú haldin í tólfta sinn, „framsækin hátíð fyrir nýja tónlist og miðlalist þar sem rafmagn og tækni eru notuð við sköpun eða flutning“, eins og henni er lýst í tilkynningu. Í ár er áhersla á tölvulist og tónlistarforritun í rauntíma og breski snarkóðarinn Alex McLean verður aðalatriðið á fyrsta Algo- rave-viðburðinum sem haldinn verður á Íslandi annað kvöld kl. 21 í Mengi. „Algorave eru við- burðir þar sem dansvæn raftónlist er kóðuð á staðnum, hreyfingin byrjaði á Englandi og hefur síðan verið að berast út um allan heim. Kóðanum er varpað á tjald jafn- harðan og geta áheyrendur ráðið hvort þeir fylgjast með kóðanum eða bara dansa,“ segir í tilkynn- ingunni en einnig munu koma fram Daninn Lars from Mars og Hlöðver Sigurðsson sem mun vera fremsti snarkóðari Íslendinga. Í kvöld kl. 21 verður uppákoma í Mengi þar sem fram kemur fjöldi innlendra rafrænna mynd- og tónlistarmanna: Sól Ey & Jesus Canuto Iglesias, Páll Ivan frá Eið- um, Rúnar Örn Jóhönnu Mar- inósson & Árni Jónsson, Andri Björgvinsson, Kristín Helga Rík- harðsdóttir, Una Sigtryggsdóttir, Lommi og Margrét Iversen. Dag- skrá hátíðarinnar má finna á raf- lost.is. Tónlistarforritun í rauntíma á Raflosti Snarkóðun Alex Lean kemur fram á hátíðinni Raflost. DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.