Tíminn - 24.12.1943, Qupperneq 22
22
T í M I N N
Leo N. Tolstoy:
(1828-1910)
Ghið sér sannleikann, en bíður
í borginni Vladimir bjó ungur kaup-
maður að nafni Ivan Dmitrich Aksionov.
Hann var húseigandi og átti tvær búðir.
Aksionov var laglegur maður með ljóst,
hrokkið hár, glaðvær mjög og söngvinn. Á
unga aldri byrjaði hann að drekka vín og
gat orðið fremur illur viðskiptis, þegar
hann drakk um of. En eftir að hann gift-
ist, hætti hann að mestu leyti að drekka.
Eitt sumar ætlaði Aksionov að fara á
Nizhny-markaðinn. Um leið og hann
kvaddi fjölskyldu sína, sagði kona hans
við hann:
— Ivan Dmitrich, farðu ekki af stað í
dag, mig hefir dreymt þig svo illa.
Aksionov hló og sagði:
— Þú ert hrædd um, að ég fari að
drekka, þegar ég kem til markaðsins.
Konan svaraði:
— Ég veit ekki hvað það er, sem ég
hræðist, en mig dreymdi svo illa. Mig
dreymdi, að þú varst orðinn gráhærður,
þegar þú komst aftur heim úr borginni
og tókst ofan húfuna.
Aksionov hló.
— Þetta er gæfumerki, sagði hann.
Sjáðu nú bara til, hvort ég sel ekki allar
mínar vörur og kem heim aftur 'með
eitthvað fallegt handa þér.
Síðan kvaddi hann fjölskyldu sína og
hélt af stað.
Er hann var kominn á miðja leið, mætti
hann kaupmanni nokkrum, sem hann
þekkti, og tóku þeir náttstað í sama gisti-
húsinu. Þeir drukku te saman um kvöldið
og fóru síðan að sofa, sinn í hvoru her-
bergi, en skammt á milli.
Aksionov var ekki vanur að sofa fram-
eftir, því að honum þótti gott að ferðast
í morgunkælunni og vakti hann því öku-
mann sinn fyrir dögun og sagði honum
að spenna hestana fyrir.
Síðan fór hann til gestgjafans, sem bjó
í litlu bakhúsi, greiddi reikninginn og
hélt því næst áfram förinni.
Þegar hann hafði ferðazt um tuttugu
og fimm mílur, áði hann til þess að láta
hestana bíta. Aksionov hvíldist um stund
í gistihúsganginum, en fór síðan inn í
anddyrið og bað um te. Síðan tók hann
upp gítarinn og byrjaði að leika á hann.
Allt í einu kom vagn með klingjandi
bjöllum. í honum sat opinber embættis-
maður með gyllta hnappa og auk hans
tveir hermenn. Maðurinn gekk til Aksion-
ov og tók að spyrja hver hann væri og
hvaðan hann kæmi. Aksion svaraði spurn-
ingum hans greiðlega og sagði við hann:
— Má ekki bjóða þér te með mér? En
embættismaðurinn hélt áfram að spyrja
hann:
— Hvar varstu í nótt? Varstu einn eða
með öðrum kaupmanni? Sástu hinn kaup-
manninn í morgun? Hvers vegna fórstu úr
gistihúsinu fyrir dögun?
Aksionov skildi ekki hvers vegna hann'
var spurður allra þessara spurninga, en
sagði þó frá öllu sem gerzt hafði á leið-
inni, og bætti svo við:
— Hvers vegna þráspyrðu mig svona,
eins og ég væri þjófur eða ræningi? Ég
er í verzlunarerindum fyrir sjálfan mig
og það er þarflaust að spyrja mig svona.
Þá sagði embættismaðurinn og kallaði
á hermennina:
-7- Ég er lögreglustjórinn í þessu héraði
og ég spyr þig af því að kaupmaðurinn,
sem þú gistir með um nóttina, hefir fund-
izt skorinn á háls. Við verðum að rann-
saka farangur þinn.
Þeir fóru inn í húsið. Hermennirnir og
lögreglustjórinn leystu upp farangur Ak-
sionovs og skoðuðu hann gaumgæfilega.
Allt í einu dró lögreglustjórinn hnif upp
úr einum pokanum og hrópaði:
— Hver á þennan hníf?
Aksionov horfði á aðfarirnar og þegar
hann sá blóðstorkinn hníf dreginn upp
úr pokanum sínum, varð hann óttasleginn.
— Hvernig stendur á því að þessi hnif-
ur er blóðugur?
Aksionov gerði tilraun til að svara, en
gat naumast komið upp nokkru orði, en
stamaði þó út úr sér:
— Ég —- veit það ekki — ekki ég.
Þá sagði lögreglustjórinn:
— í morgun fannst kaupmaðurinn í
rúminu, skorinn á háls. Þú ert eini mað-
urinn, sem hafðir getað gert það. Húsið
var læst að innanverðu og engir aðrir í
því en þið tveir. Blóðugur hnífur fannst í
poka þínum, og andlit þitt og hátterni
koma upp um þig. Segðu mér, hvernig þú
drapst hann og hvað miklum peningum
þú stalst.
Aksionöv sór þess dýran eið, að hann
hefði ekki gert það, — að hann hefði ekki
séð kaupmanninn eftir að þeir drukku
saman teið, — að hann hefði enga pen-
inga, nema átta þúsund rúblur, sem hann
ætti sjálfur, og hnífnum ætti hann ekk-
ert i. En rödd hans var sem lömuð og
hann var orðinn fölur í andliti, og skalf
af hræðslu eins og hann væri sekur.
Lögreglustjórinn skipaði hermönnunum
að binda Aksionov og setja hann upp í
vagninn. Aksionov signdi sig og grét með-
an þeir bundu fætur hans og fleygðu hon-
um upp í vagninn. Peningarnir og varn-
ingurinn var tekin frá honum, og síðan
var hann sendur til hæstu borgar og sett-
ur í fangelsi. í Vladimir var haldið spurn-
um fyrir um mannorð hans. Kaupmenn-
irnir og aðrir borgarbúar sögðu, að fyrr
á árum hefði hann drukkið nokkuð, en
hann væri góður maður. Þá hófst máls-
sóknin. Hann var sakfelldur fyrir morð á
kaupmanni frá Ryazan og fyrir að ræna
hann tuttugu þúsund rúblum.
Konan hans örvænti um hann og vissi
ekki hverju hún ætti að trúa. Börn þeirra
voru öll á unga aldri, og' það yngsta var
enn á brjósti. Hún tók þau öll með sér og
fór til borgarmnar, þar- sem maður hennar
var í fangelsi. Fyrst í stað fékk hún ekki
að sjá hann, en fyrir þrábeiðni sína fékk
hún leyfi yfirvaldanna og var farið með
hana í fangelsið. Þegar hún sá mann sinn
í fangabúningi og hlekkjum, lokaðan inni
hjá þjófum og glæpamönnum, féll hún í
ómegin og kom ekki til sjálfrar sín fyrr
en eftir langan tíma. Þá lét hún börnin
koma til sín og settist niður nálægt hon-
um. Hún sagði honum frá ýmsu, sem gerzt
hafði heima og spurði hann síðan, hvað
hefði komið fyrir hann. Hann sagði henni
söguna eins og hún hafði gerzt, og spurði
hún þá, hvað þau gætu gert.
— Við verðum að senda bænarskrá til
keisarans, til þess að saklaus maður verði
ekki dæmdur sekur.
Kona hans sagðist hafa sent bænar-
skrá- til keisarans, en henni hefði verið
synjað.
Aksionov svaraði ekki, en horfði í
gaupnir sér. Þá sagði kona hans:
— Það var ekki fyrir engu, að mig
dreymdi, að þú varst orðinn gráhærður.
Þú« manst hvað ég. sagði þér. Þú hefðir
ekki átt að leggja af stað þennan dag. 0
Kæri Ivan, segðu konunni þinni sannleik-
ann. Gerðir þú þetta alls ekki? Hún strauk
hendinni gegnum hár hans um leið og hún
talaði. |
— Svo að þú tortryggir mig líka, sagði
Aksionov, huldi andiitið í höndum sér
og fór að gráta. Þá kom hermaður og
tilkynnti konunni, að hún yrði að hverfa
á brott með börnin. Aksionov kvaddi fjöl-
skyldu sína í hinzta sinni.
Þegar þau voru farin, fór Aksionov að
rifja upp fyrir' sér það, sem kona hans
hafði sagt, og þegar hann minntist þess,
að jafnvel hún hafði tortryggt hann, sagði
hann við sjálfan sig:
— Það virðist svo sem guð einn viti
sannleikann. Til hans eigum við að skjóta
málum okkar, og aðeins frá honum er
miskunnar að vænta.
Aksionov skrifaði ekki fleiri bænaskrár,
en tók að biðja til guðs.
Aksionov var dæmdur til hýðingar og
síðan átti að senda ' hann í þrælkunar-
vinnu í námunum. Hann var hýddur með
hnútasvipu, og þegar sár hans voru gróin,
var hann fluttur til Síberíu ásamt öðr-
um föngum.
f tuttugu og sex ár dvaldi Aksionov í
Síberíu, sem afbrotamaður. Hár hans var
orðið snjóhvítt, en skeggið var orðið sítt
og þunnt og grátt að lit. Glaðværð hans
var horfin og hann hló aldrei, en bað til
guðs. Hann var orðinn hokinn, gekk hægt
og talaði lítið.
í fangelsinu lærði Aksionov að búa til )
stígvéh og vann sér inn dálitla peninga á
þann hátt, sem hann svo notaði til þess
að kaupa fyrir bók, sem hét „Æfisögur
dýlinganna“. Hann las þessa bók, þegar )
nógu bjart var í fangelsinu. Og á sunnu-
dögum las hann í henni í fangelsiskirkj-
unni og söng í kórnum, því að rödd hans
var góð ennþá.
Fangaverðirnir voru hrifnír af Aksionov
fyrir auðmýkt hans, og félagar hans báru
virðingu fyrir honum. Þeir kölluðu hann
„afa“ eða „dýrlinginn". Þegar þeir þurftu
að biðja fangelsisstjórnina um eitthvað,
var Aksionov alltaf sjálfsagður talsmaður
þeirra. Og þegar deilur komu upp meðal
fanganna, var hann ávallt fenginn til
þess að skera úr þeim og dæma mál
þeirra.
Aksionov fékk engar fréttir að heim-
an og hafði jafnvel ekki hugmynd um,
hvort kona hans og börn væru enn á lífi.
Einn góðan veðurdag kom nýr hópur af-
brotamanna til fangelsisins. Um kvöldið
söfnuðust gömlu fangarnir saman kring-
um þá nýju og spurðu þá, frá hvaða borg
eða þorpi þeir kæmu og fyrir hvaða af-
brot þeir væru dæmdir. Aksionov settist
líka niður nálægt gestunum og hlustaði
á frásögn þeirra með alvörusvip.
Einn af nýju afbrotamönnum, hár og
sterklegur maður um sextugt, með gráan
Frh. a bls. 39