Tíminn - 24.12.1943, Blaðsíða 33

Tíminn - 24.12.1943, Blaðsíða 33
I TÍMINN 33 Kaupfélag Austur-Skagfírðínga, HoSsós. Sioinselt 1919 StarSrækír kjötbúd á SígliaSirdi Heiðruðum viðskiptavinum vorum viljum vér benda á, að vér höfum jafnan fyrirliggjandi allar fáanlegar tegundir af erlendum og innlendum nauðsynjavörum. Rekum hraðfrysti- og sláturhús. SaiiiviniiiiEiienii! Munið, ad kaupfélagið er yðar verzlun. Geymið sparifé yðar í Innlánsdeild félagsins. Þannig tryggið þér bæði yðar framtíð og félagsirj^s. Þökkum viðskiptin á hinu líðandi ári. g»feðtfeg jóf! gtarfceft homanði dr! Jettu frænku varð ekki svefnsamt þá nótt. Að undanskildu dálitlu brunasári á handleggnum, amaði ekkert að Wenche, en það setti hroll að henni, er hún hugsaði til þess, sem hefði getað skeð. Hún tók eld- tengur og skaraði í eldinn. Svo sneri hún nokkrum eplum, sem snörkuðu á ofninum. Jetta frænka vissi varla, hvaðan á sig stóð veðrið. Henni var orðið órótt innan brjósts. Úti hlóð niður snjó, er lagðist hljóðlega að hinum litlu blýgrópuðu gluggarúðum. Jetta dró tjöldin betur fyrir gluggann og hreiðraði um .sig á legubekknum. Hún hafði gert ráðsmanninum boð að finna sig. Þetta var sennilega alvarlegra milli hans og Wenche en hún hafði ímynd- að sér. Hann var nú geðugur piltur. Eng- « inn skyldi neita því. En það hvíldi svo mikil ábyrgð á henni. Hún hallaði sér betur upp að sessunni með perluísaumnum. Það skíðalogaði á birkikubbunum, og lagði rauðleita glætu frá ofninum á stóra spegilinn, sem hékk milli fjölskyldumyndanna á veggnum andspænis ,yfir skattholinu. Það kom værð yfir Jettu frænku, og hún hvarf inn á land draumanna. Hana dreymdi, að hún var orðin ung í annað sinn í hvítum silkikjól með breitt, blátt belti um mittið, og henni fannst sem hún væri að dansa við Hermann og hann horfði á hana tinnudökkum augum. Svo gengu þau inn í litla herbergið, og hún hallaði höfðinu að öxl hans. „Nei, en Iler- mann, nú er farið að spila keðjudans. Okkar verður saknað, ef við komum ekki.“ Hún lyfti höfðinu, en eyrnalokkurinn hennar sat fastur í axlaskúfnum á ein- kennisbúningnum hans. Hún hálfroðnaði við ,er hann 'laut höfði og kyssti hana á eyrnasnepillinn. „En eyrnalokkinn á ég,“ sagði hann brosandi og stakk honum í brjóstvasa sinn. Ég ætla að geyma hann sem tryggðapant fyrir loforði þínu, sem þú gafst mér í kvöld, og meðan þú heimt- ar hann ekki af mér, veit ég að þú mun- ir elska mig. Dyrnar opnuðust hljóðlega. „Farðu ekki frá mér Hermann,“ tautaði Jetta frænka í hálfum hljóðum og breiddi út faðminn. „Nei, ég fer ekki ,frú Jetta, því að ég var að koma í þessum svifum,“ var svarað djúpri rödd. Frænka hrökk við með stír- urnar í augunum. En hvað var þetta, sem glitraði svona fyrir augum hennar? Jetta frænka starði galopnum augum. í dökku hálsbindi glitraði eyrnalokkurinn, sem hún hafði ekki augum litið síðan kvöldið góða fyrir 40 árum. Roðasteinninn glitraði með hlýlegum blæ, greyptur milli fjög- urra gulllaufa. Jetta frænka reis upp náföl og benti á hann. „Hvaðan hafið þér fengið þetta?“ „Frá Hermanni móðurbróður mínum, lofsællar minningar.“ „Var hann móðurbróður yðar?“ „Já, og ég heiti Hermann í höfuðið á honum. Á dánardægri sínu gaf hann mér eyrnalokkinn og sagði, að sér þætti vænzt um hann af öllu, sem hann ætti, því að hann hefði fengið hann að gjöf hjá æsku- unnustu sinni, og hann væri trygging fyr- ir því, að ást þeirra hefði ekki kulnað þótt leiðir þeirra hefðu skilizt. „Sagði hann það?“ — Jetta frænka greip í handlegg unga mannsins. — „Guði sé lof— Þá hefir hann skilið ,að það voru ekki tilfinningar mínar, sem brugðust, heldur skyldan, sem bauð mér. Far þú nú inn til Wanche litlu. Hún bíð- GLEÐILEG JÓL! HAMAR h.f. GLEÐILEG JÓL! « Dósaverksmiðjan h.f. H H ' *: H , H « H H jnnnntjjmnn H GLEÐILEG JÓE ! I II Guðm. Þorsteinsson, quflsmi&ur H H ur áreiðanlega. En láttu mig fá eyrna- lokkinn. Mig langar til að sitja hér stund- arkorn og láta mig dreyma. Svo skal ég gefa Wenche báða lokkana, þegar þið giftið ykkur.“ Svo hallaði Jetta frænka sér aftur á bak í legubekknum og þrýsti roðasteinin- um að vörum sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.