Tíminn - 24.12.1943, Blaðsíða 31

Tíminn - 24.12.1943, Blaðsíða 31
T í M I N N 31 Idá Drangsholt: Ejrnalokknrinn „Svona nú, Litli-Jarpur, þú mátt ekki éta ermina mína, ég skal heldur gefa þér sykurmolann þinn,“ sagði Wenche og strauk Litla-Jarp um makkann. Folinn hnusaði varlega með flipanum í lófa ungu stúlkunnar. Það var gengið hægt um hesthúsdyrnar og hár, dökkhærður piltur kom inn. Hann staðnæmdist í ganginum og horfði með aðdáun á ungu stúlkuna uppi í básnum. Ljóskerið varpaði flöktandi bjarma á hið hrokkna, gullbjarta hár hennar, er var bundið saman með kornbláu silkibandi í hnakkanum. Það glitraði á hálsmenið og skein á naktar axlirnar upp úr silkikjóln- um, er lá í fellingum um hinn grannvaxna líkama hennar. Wenche sneri sér við, er hún heyrði fótatakið. „Nei, hvað þú ert falleg, Wenche. Ég var einmitt að óska þess, að þú myndir eftir sykurmolanum handa Litla-Jarp í kvöld eins og endranær.“ „En átti ég þá ekki líka að efna það, sem ég lofaði þér, að þú skyldir fá að sjá mig í dansskrúðanum?" „Hvað þú varst væn að koma, elskan,“ sagði hann og kyssti á hönd hennar, sem hvíldi á makka hestsins. „Mikið, að þú skyldir ekki gleyma mér í allri dýrðinni.“ „Gleyma þér? — Nei, Hermann." Hún strauk blíðlega um álútan koll hans. „Ég sakna þess svo mikið að fá ekki að dansa við þig í kvöld.“ „Ég sómdi mér víst illa meðal ellra ein- kennisbúninganna," sagði hann og brosti hálfnapurlega. „Þetta mátt þú ekki segja, Hermann, það er aðeins af því, að Jetta frænka þekk- ir þig ekki nógu vel. En nú verð ég að flýta mér. Gestirnir geta komið á hverri stundu.“ Wenche tiplaði varlega yfir flór- inn í hesthúsinu. ,Nei, en hamingjan góða! Þú ert á silf- urskóm í hesthúsinu, elskulega tindiltát- an mín,“ tautaði hann, þreif hana í fang sér og bar hana út úr hesthúsinu, yfir myrkan húsagarðinn heim að húsniu, sem gnæfði hvítt og rismikið með tindrandi, rauðleit ljós í hverjum glugga. Hann lét hana úr fangi sér á tröppurnar, og hún vafði hann örmum og grúfði höf- uðið að brjósti hans. „Flýttu þér nú, svo að þér verði ekki kalt. Ég geng hér fram hjá einhvern tíma í kvöld til að vita, hvort ég sjái þér ekki bregða fyrir inn um dyrnar á svölunum.“ Augu hennar ljómuðu, er hún hljóp inn <um anddyrið og upp stigann. „Hefir þú beðið eftir mér, frænka?“ „Já, sannarlega. Gestirnir geta komið á hverri stundu. Hvar í ósköpunum hefir þú verið?“ „Ég skrapp bara út í hesthús með sykur- mola handa Litla-Jarp.“ „Það er meiri áhuginn, sem þú hefir fengið fyrir hestunum í seinni tíð.“ Jetta frænka leit rannsakandi augum á ungu stúlkuna. „Hann er annars allra snotrasti og geðugasti piltur, nýi ráðsmaðurinn.“ „Hvað ertu að segja,“ stamaði Wenche og roðnaði. „Ég ætla aðeins að minna þig á það, Wenche, að það eru þegar nógu margir í ættinni, sem hafa tekið niður fyrir sig.“ „Þú átt við mömmu.“ Wenche leit ásök- nuaraugum á frænku sína. „Mamma hefir nú alltaf verið 'ánægð, en hefir þú verið það, frænka?“ „Sei, sei, Wenche, vertu nú róleg. Ég hefi að minnsta kosti gert skyldu mína. Hefði ég farið að eins og móðir þín, væri ættaróðalið fyrir löngu síðan gengið úr greipum ættarinnar." „Ég veit það.“ Wenche stóð og starði niður í skartgripaskrínið. „Hvað er þetta frænka?“ Hún tók smáhlut upp úr skríninu og hélt honum upp á móti ljósinu á nátt- borðinu. „Nei, hvað þetta er fallegur eyrn- alokkur.“ Hún bar hann upp að eyranu september. Eftir það voru þær mjólkaðar einu sinni á dag til októberbyrjunar. Tvær mjaltir voru þær mjólkaðar út ágúst á hverju máli, og var það kallað fyrir og eftirmjölt. Til þess að þekkja þær ær, sem mjólkaðar voru í hvorri mjölt, var fingri drepið ofan í mjólkurskjóluna og slett á hrygg hvorrar ær, sem mjólkuð var. Aftari slettan táknaði fyrri mjölt, en sú fremri seinni mjölt. Venjulegast var ánum smalað kl. 9 á morgnana og 8 á kvöldin. Einhvern af síðustu dögunum, sem ærnar voru mjólkaðar, átti smalinn ráð á mjólkinni. Var mjólkin þá soðin, og var það kallað sauðaþykkni, eða honum var gerður ágætlega góður grautur úr henni. Gaf hann öllu heimafólkinu af þessari kræsing með sér. Við fréfærurnar eru bundnar ýmsar minningar liðinna ára, þó að það slægi á strengi tilfinninga hjá sumum að sjá lömbin tekin frá mæðrunum og rekin vægðarlaust frá þeim, þá var það bót í máli, að fráfærulömbin fengu oftast að lifa að haustinu, og það var þeim nokkur huggun, sem höfðu tilfinningu með þeim. Fráfærurnar hafa horfið úr okkar at- vinnuháttum eins og margt fleira með breyttum tíma. Mér þótti það alltaf í sam- ræmi við sveitalífið, þegar ær voru reknar á kvíaból. Þess vegna sé ég eftir, að þær skuli hafa lagzt niður. oftast kallað, þó að ég hafi nefnt það hér að framan Breiðabólstaðarfjall). Geystist þá hver fram fyrir annan, unz heim var komið. Morguninn eftir fráfærudaginn var snemma vaknað til þess að mjólka ærnar. Voru þær þá reknar i sömu réttina og kvöldið áður og mjólkaðar þar. Allar héldu þær sig við stekkinn um nóttina. Þurfti því ekkert að hafa fyrir smala- mennsku þann morgun. Þennan morgun kom venjulegast fremur lítið úr ánum, og var það kallað sáramálið. En næsta kvöld var kallað fíflamálið. Það málið kom mest •úr ánum allan mj altatímann, og þótti gott, ef mörk kom þá úr ánni til jafnaðar. Ærnar voru mjólkaðar í svo kölluðum færigrindum. Þær voru gerðar á þann hátt, að þrjú borð, fimm til sex þumlunga breið bg 3—4 álnir á lengd, voru negldar á uppi- stöður eða oka, sem kallaðir voru. Borðin voru greypt þykkt sína inn í okann og rammlega negld. Síðan voru grindurnar bundnar saman á okunum, hver við aðra, annað hvort með vír eða kaðli, og látnar mynda hring, en teknar opnar á einu horn- ' inu, þegar inn í þær var rekið eða út úr þeim hleypt. Daglega eða jafnvel tvisvar á dag voru þær færðar til eftir því, hvað mikið tað safnaðist í þær. Tala grind- anna fór eftir því, hvað margar ær voru mjólkaðar í þeim. Ærnar voru mjólkaðar bæði kvölds og morgna fram yfir miðjan %Dlbeínn Tiögnason: Mnnarmold Þótt maðurinn sé moldu frá, að moldu verði hinzt, þá aðeins heimamoldin má þó manninn hræra innst. Þar aðeins manni er moldin hlý og moldarbragðið sætt, þar aðeins veit hann virðing í að vera af hennar ætt. Því heimamold er annað allt en önnur mold á jörð. Frá henni andar aldrei kalt — hún ein er þannig gjörð. Hún megnar ein þann færa frið og fögnuð, er með þarf, ef hún varð fyllri og frjórri við þá fórn, er bjó þitt starf. Hve áhrif hennar eru sterk í æskudagsins sól að draga fram til dáða verk og draumsins bjóða skjól. Hún ein er hlý og heil og góð, en hörð og ströng um leið. Hún yrkir mannsins æviljóð með undarlegum seið. Þá talar móðir blítt við barn, sem burtu hvarf um stund, en engin brigð né hugarhjarn þar hafði fest í lund. Við óhapp hafði ekkert misst, en aðeins færzt í lag. Svo heilög moldin hinzt er kysst hinn hlýja fyrir dag. í fjarlægð, mold, svo finna þig sér faðminn bjóða senn, í vaxtaræsku að vita sig þar vera að störfum enn, það þrek fær barni þínu veitt um þunga vökunótt, er bíður þess með bakið þreytt að blunda sætt og rótt. Sá snauður er, sem enga á sér ástarmold — né garð, sem hann með trega hverfur frá, ef hann það gera varð. Og hann, sem fann ei moldannátt sig mildan draga neinn, þótt hann sé glaður, hann á bágt, því hann er meira en einn. til að sjá, hvernig hann færi. „En áttu ekki annan á móti?“ „Nei.“ Wenche leit undrandi upp. Frænka var óvanalega mild i máli. „Hefir þú týnt honum?“ „Nei, ég hefi gefið hann.“ Wenche sá í speglinum, að augu frænk- unnar urðu gljáandi og fjarræn, og hún roðnaði alveg upp í hársrætur. „Ég gaf hann einu sinni og hefi aldrei séð hann síðan,“ hvíslaði frænkan skjálf- andi rödd, og skeifa myndaðist um munn- inn, sem að jafnaði var nokkuð hörku- legur. „Oh, frænka mín,“ sagði Wenche og lagði hið unga andlit sitt að hrukkóttum vanga frænkunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.