Tíminn - 24.12.1943, Page 24
24
T f M I N N
Jóannes Patursson kongsbóndi:
FRÁ FÆREYJ UM
Seytján Færeyja eru byggðar, og alls býr
fólk í meira en eitt hundrað byggðum í
eyjunum. í meðalstórum byggðum eru 15
—20 hús, en í stærstu byggðunum meira
en 100. Til eru og byggðir, þar sem ein-
býli er, eins og til dæmis í Stóru-Dímon.
Inn til fjalla og í dölum er óbyggt að kalla;
allar byggðirnar eru á láglendi við sjó
fram. Húsin standa í þyrpingu, hlið við hlið,
stafn gegn stafni. Neðst eru naustin og
„grjóthúsin", þá íbúðarhús, fjós og hey-
garðar, og hjallarnir efst.
Það er vetur. í fimm vikur samfleytt
hefir engin fleyta komizt á sjó. Sífelldur
sunnanrosi hefir hamlað gæftum, og hvað
eftir annað hefir landsynningurinn snúizt
í útsynning og síðan vestangarra, þar eftir
hefir hann hækkað sig á, en gengið jafn-
skjótt í austrið og suðrið á nýjan leik.
Þannig hvern hringinn af öðrum. Nú var
hann kominn í landnorðrið og hafði hlað-
ið niður miklum snjó á einni nóttu. Veð-
ur var orðið stillt.
Menn höfðu risið árla -úr rekkju og bú-
izt í fiskiróður. Ræsirinn lætur boð ganga
milli húsanna. Þeir ætla tiu saman á ein-
um báti. Bóndinn hefir brugðið sér upp í
kjöthjallinn og tekið þar skerpikrof af rá.
Hálfan ganglim og einn brauðhleif, „drýl“,
skyldi hver maður hafa með sér. Þetta var
látið í skrínurnar, ásamt önglum og átta-
vita.
Er gengið er niður sjávargötuna, ber
hver maður skinnklæði sín og vettlinga
undir hendinni. Nú eru hendur látnar
standa fram úr ermum. Báturinn er dreg-
inn út úr naustinu, settur fram og hrundið
á flot. Enn er dimmt, því að eykt er til
dagmála. En stjörnubjart er og auðratað
á miðin.
Vinnukonan kemur inn. Hún er hálf-
stúrin, er hún leggur glæðurnar á arin-
inn í reykstofunni; útróðrarmennirnir
hafa skilið útidyrnar eftir opnar, og það
stendur kuldagjóstur inn um þær. Létt
fótatak heyrist frammi i ganginum. Þar
eru hundarnir á stjáki. Þeir finna á sér,
að í dag er nokkurs ætlazt af þeim. Fjár-
maðurinn er líka setztur framan á. Annar
maður kemur inn og tekur tal við hann um
fannfergið og féð. Fjármaðurinn býr sig
þannig, að hann fer í bolpeysu og mórauð-
an stakk utan yfir og þrönga og stutta
brók, og eru skálmarnar opnar neðan við
hnén. Sokkum er hann í, er ná'vel upp
í hnésbætur, en nú brýtjur hann fitina
niður fyrir hnén. Húfu hefir hann á höfði,
kragahettu um hálsinn og leðurskó á fót-
um. Hálfum drýl stingur hann í aðra
ermi sína, en bita af skerpikjöti í hina,
tekur síðan fjallastafinn qg blístrar á
hundana. Síðan leggja mennirnir af stað.
Nú birtir óðum. Bóndinn hefir leyst
skarð í stálið og er að draga hey í fjósið.
Meðan elzti sonur hans ber hneppin inn
og leggur fyrir kýrnar, kemur folaldsmeri
aðvífandi. Hún hefir fundið anganina af
grænu heyinu og tínir upp stráin, sem
drengurinn hefir slætt á drifhvítán skafl-
inn. Folaldið vill fá að sjúga, en hún er
farin að geldast og slær frá sér svo að
gnestur í klakasoppunum, sem setzt hafa
í hófskeggið. Fleiri hross koma að. Dálít-
illi heyvisk er kastað til þeirra á gaddinn,
það verða þau að láta sér nægja. Að öðru
leyti verða þau að sætta sig við þarann
í fjörunni.
Mjaltakonan er farin norður í fjósið að
mjólka. Fjósið er fornlegt: Veggirnir
hlaðnir úr torfi og grjóti, sperrur og bönd
úr rekaviði og ofan á viðinum lag af hálmi,
en síðan tyrft yfir. Flór er ^ftir miðju
gólfi, en básar til beggja hliða, og eru
•gripirnir bundnir við vegginn. Þeim er öll-
um hleypt út og brynnt, þegar búið er að
mjalta.
Mjaltakonan kemur beint frá kvörninni.
Hin vinnukonan varð eftir og sáldaði. Það
var færeyskt bygg, sem þær höfðu malað.
Húsmóðirin hefir rennt undan, og mjólk-
in er að komast í suðu yfir hlóðunum.
Gömul kona rær yfir prjónum sínum og
próventukarl situr á viðhögginu og saumar
flókaskó úr ull. Mjög er kyrrlátt inni,
því að flestir eru úti við.
Kindahóp hafði hrakið í afdrep í Bratta-
bergi, beint þar niður undan sem
skaflinn er þykkastur. Mönnunum gengur
illa að komast að kindunum, því að bergið
er illgengt og skaflarnir viðsjárverðir. En
ef þeir ná þeim ekki brott, er úti um þær.
Jafnskjótt og þánar mun snjóskriðan falla
og ryðja þeim í sjó fram, ef ekki er að
gert. Þeir verða því að freista að komast
að þeim og troða þeim braut gegnum snjó-
dyngjurnár. Hundarnir verða dauðhrædd- v
ir, þegar þeir sjá mennina hverfa niður
fyrir bjargbrúnina og þora ekki að fylgja
þeim eftir. Þeir hlaupa ýlfrandi fram og
aftur og ætla hvað eftir annað að ráðast
til niðurgöngu, en þegar þeir koma fram
á brúnina, snúa þeir alltaf við. Svo fer í
hvert sinn. Þeir vilja komast niður, en þora j
það ekki. .
Kindurnar taka að ókyrrast, er mennirn-
ir nálgast. Tvær þrekmestu ærnar taka sig
út úr hópnum og stökkva út í skaflinn, er
lokar leið þeirra. Þær ætla suður bjargið,
en sökkva strax í fönnina og komast ekki
áfram. Þær brjótast fast um og leita und-
an brekkunni og lenda loks í sjálfheldu í
klettaskúta. Þar er vont að komast að
þeim, en annar smalinn leggst fram á
snösina og hinn heldur í stakk hans og
með því að reka broddstafinh í ull kind-
anna og snúa síðan að, tekst honum að
draga þær til sín. Það er erfitt að bera
þær upp til hinna kindanna, en þó tekst
þeim það. Síðan troða þeir slóð gegnum
fannbeðjurnar, og stall af stalli heppnast
þeim að koma fénu, alls sjötíu kindum,
út úr ógöngunum og niður á jafnsléttu.
Þrevetur sauður er alltaf fremstur.
Það var hálfrunnið austurfall, er þeir
fóru í róðurinn. Straumurinn var orðinn
svo harður, að þeir neyddust til að róa
fyrst lengi mótstreymis með löndum
fram. Er þeir. lögðu á fjörðinn, beittu þeir
bátnum til hálfs mót straumi, en svo mjög
bar þá, að þeir rétt sluppu fyrir Núpinn.
Þaðan héldu þeir til hafs, og hafa brátt
sjávarfallið með sér.
„Allir lögdu árar í kav
tá mundi skrokkur ganga“,
kveður maður, er situr í skut, og
hinir taka undir. Síðan kveða þeir „Bát-
vísur frá Sandi“, er Brynsaleggur hafði
forðum ort um kappróður. Síðan kveða
þeir Göngu-Hrólfsrímu, og er henni lýkur,
eru þeir komnir á fiskislóðirnar.
En það er ekki orðið svo bjart, að þeir
Kirkjubœr, setur Jóannesar Paturssonar, sjálfstœðishetju Fœreyinga,
séð út yfir Hesteyjarfjörð. Sandey í fjarska. Kirkjan stendur niðri
við sjóinn. Ofan við hana eru hinir frœgu múrar dómkirkju þeirrar,
er Erlendur biskup œtlaði aö láta reisa í lok 13. aldar, er bœndur
risu upp gegn álögum lians og sigruðu lið hans í Mannskaðadal.
Fuglafjörður á Austurey. Byggðin stendur fyrir botni fjarðarins. Til
vinstri er Húsafjall, en til hægri Ritufjall, er á myndinni virðist loka
mynni fjarðarins. — Sunnan undir Ritufjalli er Götuvík. Þar bjó
höfðinginn Þrándur í Götu til forna.