Tíminn - 24.12.1943, Síða 45

Tíminn - 24.12.1943, Síða 45
T í M I N N 45 Kaupfélag Suður-Borgíirðinga, Akranesí Bændur og aðrir vidskiptamenn! Við höfum jafnan flest, er yður vanhagar um. Við seljum allar vörur með sannvirði, en tökum ekki af einni til að gefa með annari. Við tryggjum yður sannvirði fyrir afurðir yðar. Síðastliðið ár nam ársarður félagsmanna 11%. Það munar um minna. Gangið í kaupfélagið. Skiptið við yðar eigin verzlun. ^dl&ð/le^ j ól/ ^yór^œ/l Áx>mci/zð/ dr/ Þökkum viðskipíin á þvi liðna. Kaupfélag Suðar-Borgfirdinga, Akranesi — Sími 51 in var harðari og myrkrið svartara, varð heimkoman í matinn, ylinn og spilin bjart- ari og hlýrri. Skemmtilegast jólaveður þótti, þegar saman fór snjór og heiður himinn, en ákjósanlegast að tungl væri þá í fyllingu. Hvít jól, rauðir páskar þótti spá góðu. Rauð jól, hvítir páskar benti til þess að seinna myndí þá vora. Að loknum útiverkum á jóladagskvöld voru kertaljósin tendruð á ný, þótt færri væru þau nú en á sjálfa jólanóttina. Karl- menn voru nú orðnir matlystugir eftir kirkjuferð og fénaðarhirðingu, en vel var fyrir því séð, að úr væri bætt. Til viðbót- ar við hinn áður talda jólamat voru rjúp- ur steiktar í smjöri, en’ betri rétt gátu fáir kosið. Um jarðarávöxt var þá ekki að ræða. En eitt staup af víni þótti hæfileg hýrgun á jóladagskvöld, en þó aöeins handa ' fullorðnu fólki. Nú voru það spilin. Á þeim mátti eng- inn snerta fyrr en hann hafði þvegið sér vel og vandlega. Úr þvi mátti hver og einn fletta þeim eftir vild. Pyrst var að skoða tígulkónginn, sem var höfuðpaurin í al- korti og laufagosann, sem hafði mest völd- in í púkki, en þetta voru spilin, sem fólk gat þá vakað við frá jóladagskvöldi til ann- arsdagsmorguns og gengið þá að sínum óumflýjanlegu heimilisverkum. Fólkið var þá að mestu útilokað frá öðrum skemmt- unum og bókakostur fábreyttur mjög á flestum bændabýlum. Þess vegna náðu spil- in svo mikilli hylli á mannmörgum sveita- bæjum. „Það er engin spilamennska, ef maður er ekki kófsveittur í frosthúsi." var haft eftir einum öldruðum borgfirzk- um bónda á þessum árum. Það var strax á annan dag jóla, sem mesta dýrðin tók að dvína. Jólakertin brunnu út eitt af öðru og ljósin slokknuðu á þurru skari. A jólamatinn saxaðist líka furðu fljótt hjá mörgum. Lengst entist hin bráðfeita bringa, en að lokum varð þó að- eins eftir bert og kroppað beinið. Nauð- synin fyrir daglegum þörfum knúði full- orðna fólkið til þess að halda ekki að sér höndum, nema rétt meðan hátíðin stóð sem hæst. Að liðnum tveim jóladögum voru kambar, rokkar og önnur vinnutæki dreg- in fram á ný og allt komst aftur í sitt hversdagslega horf. En ylur sá er jólin höfðu vakið í hjörtum fólksins hlýjaði því eftir á í önnum og áhyggjum. Ég hefi nú lýst að nokkru þeim jóla- venjum, sem brosa við mér frá löngu liðn- um tímum. Þau jól voru mótuð af fornum venjum, sem gengið höfðu í arf frá kyni til kyns. Vegna þess mætti telja þessar gömlu jólavenjur nokkurs konar fornmenjar, sem vert væri að geyma meðal annarra minn- ingargulla. Um jól og jólasiði hefir nú margt verið skrifað, en sinn er siður í hverjum landshluta, og er því ekki úr vegi að lýsingar á ýmsum þjóðháttum komi sem víðast að til samanburðar. Með það fyrir augum hefi ég ritað þennan stutta þátt. Alltaf er jólastjarnan jafn himinhrein, úr hvaða átt, sem á hana er starað. En smælingjarnir, sem til himins horfa, en á jörðu búa, eru sinn við hverja heimskuna bundnir, en allir menn eiga þá ósk í sínu innsta eðli, að mega verða ljóssins börn. GLEÐILEG JÓL ! Kolaverzlun Siyurðar Ólafssonar GLEÐILEG JÓL! Sláturfélaff Su&urlands GLEÐILEG JÓL ! EimsUipafélaff tslands GLEÐILEG JÓL ! tjllarverksmiðjjan Framtíðin

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.