Tíminn - 24.12.1948, Síða 7

Tíminn - 24.12.1948, Síða 7
J'ÓLABLAÐ TÍMANS 1948 7 þá heldur segja, að hann hafi verið með afbrigðum skyggn og draumspakur. Vitaskuld var þankaflugið mikið, og hann kann að hafa verið gjarn á að ýkja — sérdeilis fyrir það, að þetta var svoddan fjör- og líf- maður, en það hygg ég, að mér væri óhætt að láta rista eftir mér í hellubjarg, að vísvitandi hafi sá mað- ur ekki tekið ósatt orð í sinn munn, og rétt skoðað hafi ailtaf verið fótur fyrir því, sem hann fór með. En satt er' það, að yfirmáta gat bæði hann og þaö, sem hann sagði og gerði, komið manni kúnstuglega fyrir. — Plann hefir náttúrulegá séð dauða menn? — Hvort hann sá! Stundum, þegar við vorum að ganga sjávargötuna, hvítbjarta vornóttina, þá eins og hrinti hann frá sér, þar sem hann skundaði í far- arbroddi, og mælti um leið: — Nú þykir mér þið standa fullþétt, piltar mínir! Við sáum ekki neitt.... Það voru annars veggja- brot, utarlega í túninu á Töngum, sýndust vera í fír- kant, og svo voru einhverjar þúfnaleifar innan þess- ara fornu veggja. Þetta var sagður gamall kirkju- garður, var gamalla manna mál, að þegar mest hefði verið útræðið á Töngum á fyrri öldum, þá hefði verið þar bænhús. Þar hefðu prestar sungið messu einu sinni eða tvisvar á vertíð, og þar hefðu verið jarð- sungin sjórekin lík og eins þeir, sem veiktust og dóu í verinu og voru langt að. í norðvestur hörninu á þessum garði var reitur — það er nú kannski búið að umturna þessu nú — sem kallaður var Flandrara- reitur. Þar var sagt, að grafin hefði verið átján manna skipshöfn af franskri skonnortu, sem lent hefði. upp í brotið fram af Tangatánni.... Einu sinni kemur hann inn til okkar, Hákon bóndi, þegar við erum að hátta, og segir: — Nú er mikið um að vera hjá þeim frönsku. Nú standa þeir allir átján við færi á veggbrotinu, sem veit niður að sjónum, og eru að dorga, og þarna draga þeir hann rígroskinn upp á vegginn .... Verður ekki sjóveðrið okkar í fyrramálið, piltar! Og hvað heldurðu, Hvítur minn? Þó að bezta og blíðasta veður væri um kvöldið, þá rauk hann upp undir morguninn af hafnorðri með því ógnarbrimi, að það var grasganga á Mölunum, fórst þá hérna út af danskur saltgalías, sást frá orlögsmanninum franska, þegar hann fór niður. Og rétt eftir að ég var farinn heim til sláttarins, rak tvo þá dönsku upp í vararvegginn á Töngum. En nú verö ég að stinga upp í mig svörtum spotta, — svo skal ég segja þér sögukorn, sem ég ætla þér að muna, garmurinn. Hann paufaðist niður í vasa sinn og tók upp í sig, og svo hélt hann áfram, enda sagöi ég ekki orð til þess að vera viss um að hleypa ekki í hann neinum dinti — enda bezt, því að nú fór heldur að gráma í lofti, svo að bráðum kallaði veiðiskapurinn. — Fyrra vorið, sem ég reri hjá honum, fluttist til þeirra hjóna gamall og hrumur einstæðingur — flutt- ist, segi ég, já, það var nú eins og það var: Hún sótti, hann inn að Lambastöðum, hún Sæhildur. — Hét hún — já, hún hét Sæhildur, konan hans? — Jú, var látin heita í höfuðið á hafmeyju, sem bað hana móður hennar um nafn, en Hákoni var ekkert vel um nafnið, sagði það væri vont í draumi — í sæ, í sæ, i sæ, sagði hann, — og hildur — þáð væri orrusta, ævinlega líka fyrir vondum sjó og veðri að dreyma þetta nafn, og einmitt vegna þess, hvað hon- um var meinlega við nafnið, var það, að hann kall- aði konuna alltaf Dúfu — eða dúfuna sína. Jæja, já. Hún Sæhildur kom einu sinni niður a'S sjó, þegar við komum í land, og hann fór nú og kyssti hana, eins og hans var vani — og svo sagði hún rétt si svona: — Hann biður kærlega að heilsa þér, hann Mangí gamli Vigdísarson. ... Hann var skrifaður þetta, því að hún hafði ekki getao feðrað hann, hún móðir hans, vesalingurinn. Hann var kominn niöur að bátnum, Hákon, leit nú til dúfu sinnar. — Hvað ertu að segja, kona? — Það datt í mig í morgun að taka hann Rauð og hana Blesu og sækja þennan aumingja, kom hérna maður í gær, sem hafði komið við á Lambastöðum og enginn verið í bænum, svo að hann hafði haft tal af gam!a manninum. Þar var ekkert ofsagt: Það er konungi musteristimbrið með olíunni. Sennilega notaði Jakob hana einnig, er hann hellti olíu yfir steininn, sem hann hafði undir höfðinu, þegar hann dreymdi himnastigann og fékk fyrir- heitið. Olífurnar eru bláleitar og líkjast plómum. Salomon konungur lýsir .sjálf- ur ræktunarframkvæmdum sínum: Ég gróðursetti vínvið og gerði bæði trjá- garða og urtagarða, ég gróðursetti allskonar ávaxtatré og gerði vatnsþrær til að vökva úr gróðurinn. Enginn veit hvað lífsinstréð hefir ver- ið, en sumir geta þess til, að þar sé átt við döðlupálrnana. Hann er enn aðal matartré vinjanna í eyðimörkinni og fæðir milljónir manna. Úr stofni döðlupálmans er unnið arrakvín. Það er enn drukkiö á Indlandi og víðar. Gæti pálmavínið verið sterki drykkur- inn, sem um getur í dómarabókinni XIII. 4. og viðar. Fikjutrjáa er oft get- ið. Adam og Eva gerðu sér mittisskýlur úr fíkjuviðarblöðum, eftir syndafallið, sennilega úr blöðum Sykamare trésins. Það er 12—15 m hátt og ber fjölda fremur lélegra ávaxta. Amos spámaöur ræktaði það og safnaði ávöxtunum. Venjulegt fíkjutré var einnig ræktað. Ýmsar sígrænar eikartegundir vaxa í landinu helga. Er eikin oft nefnd í ritn- ingunni og virðist hafa verið rnikils metin sökum stærðar, endingar og ald- urs. Hún er líka skuggasælt tré og það þykir gott í sólheitum löndum. Eik Abrahams er fræg, sbr. komu englanna til hans í Mamhres-lundi. í Mósebók XXX., 37., segir frá slægvizku Jakobs. Og Jakob tók sér stafi af grænni ösp hestlivið og hlyni; skóf á þá hvítar rák- ir og lagði stafina í vatnsþrærnar þar sem féð kom að drekka um fengitím- ann. Ætlaðist Jakob til, að fleiri af lömbunum yrðu þá mislit en ella, en honum báru mislitu lömbin, samkvæmt samningi við Labar. Hlyntré ritningar- innar mun raunar vera platantré en ekki hlynur sá, sem við þekkjum með því nafni og hér vex í görðum. .Vaxa platantré víða í Palestínu og Libanon. Hestlitré ritningarinnar mun*heldur ekki vera hesli það, sem notað var til að hasla völl með til forna og við stund- um etum hnetur af, heldur sennileg- ast möndlutré, sem enn vex þar eystra. Jesaja spámaður ræðir um trjágróður (XLI., 19.) og leggur drottni orð í munn: Ég læt sedrustré, akasinutré, myrtutré og olíutré vaxa í eyðimörkinni og kýp- rustré, álmtré og buxtré spretta hvert með öðru á sléttunum. Buxtré eða harð- viður (Buxus sempervirens) er notað til smíða. Hin eru alkunn. í Jobsbók (XXX., 4.) stendur svo um soltna menn: Þeir reita hrímblöðku hjá runnunum og gýfilrætur eru fæða þeirra. Og síðar stendur: Undir netlunum safnast þeir saman, milli runnanna rymja þeir. Hrímblöðkutegundir vaxa hér í fjörum allvíða. Netlur stinga og brenna illilega, ef við þær er komið, eins og alkunn- ugt er. Tvær tegundir vaxa hér á landi. Gýfill (Genista eða Ratama), er útlend jurt með eitraðar rætur. Sennilega hefir það verið sníkjujurt ein (Gynomar- ina), sem etin var. Hún vex hjá gýfil- rótum. Mórberjatréð, sem um getur hjá Samúel mun í rauninni hafa verið ösp, eftir frásögninni að dæma. „Ég læt það ske þegar þú heyrir skrjáfið í toppi mórberjatrjánna“. Espilaufin skrjáfa viö minnsta blæ, en það gera mórberja- blöð ekki. Amos spámaður getur jurta- sjúkdóma (IV.): „Ég refsaði yður með sótsvepp, korndrepi og gulnan og eyddi aldingarða yðar og víngarða. Engi- sprettur uppátu fíkjutré yðar og olíu- tré. Hvað nagarinn lét eptir, át engi- sprettan. Það, sem hún leifði, át aldin- barri og það, sem þá var eftir, át kornormurinn." Jurtasjúkdómar hafa auðsjáaniega herjað frá alda öðli. Fræg er frásögnin um „Manna", sem rigndi af himni og forðaöi ísraels- mönnum frá sulti í eyðimörkinni. — Segir svo í Mósebók (II.,16.): „Um morguninn var döggmóða umhverfis tjaldbúðirnar. En er upp létti dögg- móöunni, lá eitthvað smákornótt yfir eyðimörkini. Þunnt eins og héla á jörðu? "Móses sagði ísraelsmönnum að safna því saman og eta, en þeir máttu ekki ieifa af því til morguns. Sumir geymdu það samt til morguns, en þá fúlnaði það og kviknuðu maðkar í því. Þegar sólin skein heitt, bráðnaði það. Það var hvítt — likast kúrennufræi og á bragðið eins og hunangskaka.“ Þetta Manna liélt lífinu í ísraelsmönnum á eyðimerkurreiki þeirra í 40 ár. Mörgum getum hefir verið að því leitt hvað Manna hafi í raun og veru verið. Sumir álíta það skófnategund eina æta (Le- canora esculenta), sem viða vex á stein- um og klettum í Vestur-Asíu og myndar stórar breiður. Stormar losa hana oft, sundra og þeyta í loft upp. Getur henni síðan rignt af himnum þegar lægir. En þessi Mannaskóf eða flétta hverfur ekki með dögginni í sólskini, maðkar heldur ekki né fúlnar á tveimur dögum. Tamariski runninn kemur líka til greina. Á ákveðinni árstíð borar skordýr smá- holur í stofn hans. Út um holurnar seytlar hunangskendur vökvi. Arabar safna vökvanum og nota hann líkt og hunang eða gera úr honum kökur og telja mesta- hnossgæti. (En verzlunar- varan Manna er unnin úr asktré). Al- hagi-baunarunninn kemur einnig til á- lita. í sólarhitanum drýpur úr blöðum hans og stofni sætur, gúmmíkendur vökvi, sem brátt storknar. Er hann nefndur Manna, runnarnir hristir og vökvanum safnað. En afurðir þessarra þriggja plantna mundu hvergi nærri nægja til að fæða tvær til hálfa þriðju milljón manna, en svo fjölmennir munu ísraelsmenn hafa verið. Samkvæmt ritningunni mundu þeir hafa þurft um tvær þúsundir smálesta á dag. Líkleg- ast er kannske til getið, að Manna hafi verið sveppir. Ferðamenn lýsa svipuðum fyrirbærum og ritningin greinir — frá svæðinu við Tanganyika vatnið í Af- ríku. Var þar um sveppi að ræða. Liljur eru oft nefndar í ritningunni. í fjallræðunni segir: „Gefið gaum að lilj- um vallarins, hversu þær vaxa, hvorki vinna þær né spinna, en ég segi yöur, Salómon í allri sinni dýrö var ekki svo skrýddur sem ein af þeim.“ Ef til vill hafa liljur ritningarinnar verið sam- nefni ýmsra fagurra, opinna blóma, en ekki það sama og við köllum liljur. Ad- onis, skógsóleyjar (Anemónur), sverð- liljur o. fl. skrautjurtir eru algengar í landinu helga. Fallegu skógsóleyjarnar marglitu, sem hér eru ræktaðar til skrauts í görðum, geta vel verið „liljur vallarins". Vex mikið af þeim á Olíu- fjallinu og víðar í landinu helga. Liljur eru nefndar í Konungabókunum og voru notaðar í musterinu, sem skraut á súlur. Það gætu hafa verið vatnasóleyjar (Nymphaea). Blóm þeirra eru mjög stór og skrautleg og fljóta á vatninu. Fornar egypskar myndir benda til þessa. í Ljóðaljóðunum (II.) stendur: „Ég er narissa á Saronvöllum, lilja í dölunum." Hvitasunnuliljutegund ein (Tazettur) vex mikið á Saron-völlum enn þann dag í dag. Er það eflaust narsissan eða „rósir“ frá Saran. Ýmsar fleiri jurtir og jurtaafurðir eru nefndar í Ljóðaljóðun- um, t. d. nardusgrös og nardussmyrsl, myrra, kýprustré, apaldur, epli, sedrus- viður, vínviður, rúsínukökur, fíkjur, granatepli, krókus, safran, kanel, kal- amus, alóe (drekablóðstré), balsam, kryddjurtatréð, hnotgarður, pálmaviður, kýprusblóm, ástarepli, kryddvin og kjarneplalögur. Allt nefnt sem samlík- ingar, er unnustinn og unnustan dást

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.