Tíminn - 24.12.1951, Page 31
31
JÖLABLAÐ TÍMANS 1951
Sumardagar í Öræfum
Fram af bls. 10
nokkrir fleiri lægri reyniviðir og
bjarkir. Þar vaxa líka rúmlega 20
tegundir skrautjurta. Ofan við bæ-
inn er nýlegur reitur með birki,
reyni, þingvíði, Alaskaösp, furu og
greni. í Vestri-Hvammi í Kvískerj-
um er eini fundarstaður glitrósar-
innar hér á landi. Hvammurinn er
grunnur og liggur móti suðaustri
skammt frá bænum, í brattri,
skilðu'rtmwrmTi-hTO, undir klett-
um. Vex þar smávaxið birkikjarr
með miklu af blágresi, undafíflum,
bláberja- og aðalbláberjalyngi,
hrútaberjalyngi og sortulyngi. Þeir
Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson
fundu glitrósina árið 1756.
Rósin var nú smá og mikið nög-
uð af maðki. Virðist hún í afturför
á síðari tímum, kannske mest
vegna grjóthruns og uppblásturs.
Hún hefur verið flutt heim í garð
á Kvískerjum og blómgast þar.
Hinn sjaldgæfi klettaburkni vex í
klettum í hvamminum, örskammt
frá rósinni. Spölkorn austar liggur
Eystri-Hvammur. Hann er miklu
stærri og gróðurmeiri, með falleg-
um kjarrbrekkum og stöðuvatni, en
hamrar fyrir ofan. Þar vex eski,
dökkasef og gullstör í brekkunum,
en mari og þráðnykra í vatninu. Víð
sýnt er austur um sand, jökul og
Suöursveitarfjöll af hæðunum við
hvamminn. — Engjar eru litlar }
Kvískerjum og er sóttur heyskapur
til Fagurhólsmýrar. Fengum við
far með Hálfdani að Hnappavöll-
um, í heyskaparferð þeirra bræðra
19. júlí, og gistum njá Gunnari og
Páli Þorsteinssonum. Fyrir neðan
Hnappavelli eru viðlendar og mjög
grösugar engjar. Vex þar gulstör á
stórum svæðum, en á milli eru
mýrastaraflákar og mikið af
hrafnastör, bæði dökkri og ljós-
leitri. Skriðdepla vex um allt og
dökkasef allvíða. í klettum með-
fram enginu ofanverðu, vestantil
vex mikið af köldugrasi, liðfætlu,
klettafrú og skriðuhnoðra. Fjalla-
puntur og fjallafoxgras vaxa víða
í mýraþúfum. Segir vatnsaginn og
nálægð fjallanna glöggt til sín.
Blátoppastör er algeng og stórvax-
in. f pollum vaxa vatnsliðagras,
vatnsnarvagras, þráðnykra, gras-
nykra, lófótur, síkjamari, sefbrúða
og flagasóley. Tveir hnúðlaga tind-
ar standa upp úr jöklinum. Ber þá
hátt og eru þeir gott auðkenni á-
lengdar að sjá. Af þeim er dregið
heiti Hnappavalla. Haldið er að
Hnappavellir hafi fyrrum staðið
vestar en nú, en eyðst af jökul-
hlaupum og vatnagangi snemma á
öldum. Á Hnappavöllum teljast sjö
búendur, þar af ein kona. Þar eru
reisulegir bæir í hverfi, líkt og að
Hofi. Flestir eru bæirnir meö
gamla laginu, nema nýlegt stein-
hús hjá Gunnari og Páli Þorsteins-
sonum. Standa Hnappavellir undir
svipmiklum, klungróttum fjöllum.
Vesturfrá bæjahverfinu liggur
klettarani til Fagurhólsmýrar, en
láglendi bæði fyrir ofan hann og
neðan. Þar er Salthöfðinn og hinn
frægi Blesaklettur, þar sem sagnir
telja blesóttan klár hafa staðiö af
sér jökulhlaup.
20. júlí fórum við að Fagurhóls-
mýri. Stendur bærinn uppi á
klettahæð og mun þar æöi veöra-
samt. Ingólfshöfði blasir við, eins
og víðar úr Öræfum. Seinlegt er að
komast út í höfðann fyrir bleytu
og vatnsmagni, en samt vel fært
kunnugum, jafnvel á bílum.
í höíðanum hefir Hálfdan talið
jurtir. í klettunum hjá rafstöðinni
í túnfætinum á Fagurhólsmýri vex
blátoppan sjaldgæfa. Klettafrú,
hjónagras, eski, liðfætla, köldugras
og háliðagras vaxa víða í klettun-
um, en strandstör á sandinum fyrir
neðan. Vísaði bóndinn okkur á jurt-
irnar. Dálítið kal var í lægð í tún-
inu. Stóðu háliðagras, vallarsveif-
gras og túnvingull helzt eftir í kal-
blettinum.
Tvíbýli er á Fagurhólsmýri. Er
hún orðin allmikil umferðamiðstöð
héraðsins, einkum síðan flugferðir
hófust. Liggur flugvöllurinn á mal-
arborinni sandflatneskju undir
hömrum, rétt neðan við túnið.
Nokkrar hríslur standa í garði
framundan bæjunum. Stærstur og
elztur er 24 ára reyniviður. Byrjað
er á blómarækt í garðinum.
Öræfin voru lengi einhver af-
skekktasta sveit á íslandi. En þetta
hefir gerbreytzt með flugferðunum.
Eru nú flugsamgöngur við Reykja-
vík, Hornafjörð og Kirkjubæjar-
klaustur tvisvar í viku á sumrin.
Mestöll þungavara er flutt loftleið-
is, t. d. ket og jafnvel lifandi fén-
aður, vélar, kornvara o. s. frv. Ör-
æfingar búa vel að sínu. Þeir eru
fjármargir, enda er víða snjólétt
og fjárbeit góð. Ennþá eru sauðir
hafðir til heimaslátrunar á flest-
um bæjum. Fengum við Gröntved
víða flatbrauð, og hangikjöt af feit
um sauðum og þótti herramanns-
matur. Hefur Gröntved oft verið
hér í rannsóknarferðum og geðjast
vel að íslenzkum réttum. En rétt á
undan okkur var danski fiðriida-
fræðingurinn Wulf á ferð í Öræf-
um. Þorði hann naumast að bragða
hangikjöt, flatbrauð, skyr, slátur
og aðra íslenzka þjóðarrétti. Mátt-
ur vanans er mikill.
Garörœkt er talsvei’ð í Öræfum
og heppnast ágætlega. Mest eru
ræktaöar kartöflur og rófur, en kál
tegundir þrífast líka prýðilega. Tún
virðast grasgefin. Mundi naut-
griparækt aukast, ef fært yrði að
koma mjólkinni á markaö. —
Ströndin er sendin og hafnlaus,
eins og nafn sveitarinnar bendir
til. Er ströndin hættuleg sigling-
um. Liggja þar skipsskrokkar, flest
ir orpnir sandi. Verður víst seint
gerð höfn eða fiskveiðar stundað-
ar frá þeirri strönd, en selveiði er
nokkur. Fyrrum kvað samt hafa
verið útræði frá Ingólfshöfða. Hef-
ur sennilega verið vík eða fjörður
við höfðann, þegar Ingólfur kom
þar að landi. En síðan hafa sand-
arnir færst út og fyllt fjörðinn.
Tækni nútímans hefur rofið ein-
angrun Öræfa. Rafmagn, sími og
útvarp hafa aukið þægindin og
fært fólk nær hvert öðru. Bílar
þjóta um sandana og ösla yfir flest
ar árnar. Flugvélar flytja menn til
Reykjavíkur á tveimur tímum. Von
andi kemur ekki of mikið los á
fólkið við þessar öru breytingar,
heldur una menn glaðir við sitt
ekki síður en áður.
Ferð milli fjarða
Framh. af 17. síðu.
reyna landtöku við Hofsströnd.
Báturinn brotnaði í spón, en fólk
bjargaðist með naumindum til
lands yfir jakahrönglið. Var það
einkum þakkað frábæru snarræði
og dugnaði Norðmannsins Bent, er
þá var í Asknesi í Mjóafirði. Með
þessum bát voru m. a. tvær konur,
Guðríður heitin Magnúsdóttir í
Friðheimi og Kristín heitin Ás-
mundsdóttir.
Mér virðist einsætt, að töfin á
Hánefsstöðum fyrr um daginn hafi
bjargaö lífi okkar. Allar líkur benda
til, að við hefðum náð suður fyrir
palatanga, ef við hefðum verið lit-
ið eitt fyrr á ferð. Og það er alveg
fráleitt að ætla, að okkur hefði tek
izt lendingin þó eins vel og hinni
bátshöfninni, Árni mjög við aldur
og fatlaður eins og fyrr er lýst, og
báturinn að öðru leyti menntur kon
um og unglingum.
Nú víkur sögunni heim að Hofi.
Þarf engum getum að því að leiða,
hvernig heimamönnum var orðið
innanbrjósts. Fólkið af bátnum,
sem brotnaði viö Ströndina, kom
að Hofi um nóttina, illa til reika.
Hafa hrakningar þess síður en svo
verið til hughreysingar þeim, sem
von áttu á sínum á heimleið á
sama tíma.
Þeir bræður, Vilhjálmur og Ein-
ar, höfðu frétt það utan frá Grund,
daginn sem við vorum á Skálanesi,
að Höfrungur hefði sézt við „Rast-
arhælinn" í ljósaskiptunum og svo
horfið í myrkrið. Vöruðust þeir að'
láta konur sínar (og systur mínar)
vita um þetta. — Þann dag varð
ekkert aðhafzt fyrir roki.
Á þriöja degi var aftur stillt veð-
ur og sjór rennisléttur eftir vest-
anáttina. Afréðu þeir þá, bræður,
að fara út að Steinsnesi aö sækja
hey, í þeirri von, að við kæmum
þá og þegar. Annars átti að fara
norður og leita frétta um kvöldið.
En til þess kom ekki. því það stóð
heima: Þeir voru rétt búnir aö
koma heyinu í bátinn þarna í
Steinsnesfjörunni, þegar Höfrung-
ur skreið fyrir „Halann“.
Háværum hlátrum þeirra bræðra
og húrrahrópum, sem bergmáluðu
á móti okkur frá klettunum í kring,
ætla ég ekki að reyna að lýsa. En
þau óma ennþá í eyrum mínum,
þegar ég minnist þessa atburðar.
Og þau minna á marga ógleyman-
lega stund, þegar sterka tenór-
röddin hans Vilhjálms mágs míns
hljómaði skærast, er við höfðum
hópast saman til að taka lagið, en
það var ekki svo sjaldgæft í þá
daga.
Það þarf svo ekki að greina nán-
ar frá heimferðinni. Ekki heldur
heimkomunni, því þar giltu þau
lögmál, sem lifa enn og allir
þekkja.
Viðurkenndar
iandbúnaðar-
vélar í 100 ár
Yfir 30 ára
reynsla hér
á landi
Framleiðsla á P O N Y dráitarvélinni er nú hafin í Frakklandi og er hún nú
ódýrasta dráttarvélin, sem býðst hér á landi.
Kostir PcHlf eru ótvíræðir:
Mjög sparneytin. Bensíneyðsla
aðeins 1/3 til 1/2 af eyðslu
stærri véla
ODYRASTA
Sérlega lipur og meðfærileg
Sláttuvélin út frá hliðinni
Öflug til dráttar
DRÁTTARVÉLIN
BÆNDUR: PONY dráttarvélin getur sparað yður alllt að 2.000 kr. á
ári í minni bensíneyðslu
Hafið samband við oss og fáið
frekari upplýsingar
flllltitr
Laugaveg 166
i
•:♦