Tíminn - 24.12.1951, Side 33

Tíminn - 24.12.1951, Side 33
JÓLABLAÐ TÍMANS 1951 33 §ó£in luúmct Lengi hefir verið sagt að jólin væru hátíð barnanna, sem mun rétt vera. Börnum hefir alltaf virzt eðlilegt að hlakka til jólanna. Sú tilhlökkun, eða jólagleði hefir ætíð byrjað löngu fyrir jól og orðið svo sterkari og innilegri, því nær sem hefir dregið þeim. En þessi gleði nær til fleiri en barnanna. Hún gegntekur og hina fullorðnu svo, að eigi mun nein fjarstæða, þó sagt sé, að um jólin verði allir börn, að á jólunum gríp- ur alla barnsleg gleði, sem á öðrum tímum er eigi tiltæk. Þá hverfur allur kuldi og kergja úr hugum manna. Þá gleymist og hverfur öll óvild tii meðbræðra vorra, sem á öðrum tímum kann að gera vart við sig. Þá vilja menn allt gera hver fyrir annan. Allar hendur eru þá útréttar til hjálpar hvar sem henn- ar er þörf. Menn óska hver öðrum gleðilegra jóla og ég hygg, að þeirri ósk fyigi oftast allur hugur þess, Sem óskina ber fram. Svona eru menn bljúgir og góðir um jólin. Þau hafa gert menn betri en venjulega. Þau hafa gert menn barn í annað sinn. Þau hafa opnað hugi vora fyrir öllu fögru og góðu, svo vér erum meðtækilegir fyrir á- hrif þeirra, sem vér finnum allir til, en skynjum þó ef til vill ekki til fulls hvers eðlis eru. Varla dylst það samt okkur, sem gamlir erum orðnir, að nútíma jól eru þó nokkuð með öðrum hætti en áðúr var. Prangaraeðli nútíma- mannsins lætur um of á sér bera í sambandi við jólin. Það er allt of mikið að því gert, að gera þau að auglýsinga og markaðshátíð. Koma þeim sem mest undir áhrif fjáröfl- unar á aðra hliðina, en óhóflegrar eyðslu á hina. Þetta hvorttveggja eru þó vafasamar dyggðir og heyra alls ekki til hinni sönnu jólahyggju. En það var ekki þetta, sem ég ætlaði að gera hér að umtalsefni, heldur það, að rifja upp gömlu jól- in eins og þau gerðust í sveitinni minni fyrstu þrjá tugi líðandi ald- ar. Jólin heima. Áður en lengra er haldið vil ég þó taka það fram, að þó ég segi hér frá jólunum heima á Hafranesi, er það ekki vegna þess, að þau hafi verið neitt sérstaklega frábrugðin því, sem almennt gerðist. Jólahug- urinn og löngun til þess að gera þau sem hátiðlegust, mun hafa ver- ið líkt á flestum heimilum, þó ýms- ar aðstæður réðu því, að í fram- kvæmd urðu jólin nokkuð misjöfn á þeim. Það sem mestu réði þó í þessu efni, að minni hyggju, voru húsakynni og fólksfjöldi. í þeim efnum var Hafranesheimili alltaf vel sett. Það var ætíð mikið annriki fyrir jólin, en þó mest síðustu vikuna. Var þetta þó einkum á kveimhönd- ina, þó karlmenn reyndu á ýmsan hátt að létta því verkin. Húsin, sem búið var í, voru öll þvegin hátt og lágt, og hreingerð á allan hátt, jafnvel þó hrein mættu heita áður. Svo var verið að búa út jólagjafir, sem ekki mundu nú þykja ríkmannlegar. Lengi fram- eftir árum eitthvað heima unnið, en breyttist svo á seinni árum í að- keyptan varning að nokkru leyti. Var öllum gefið eitthvert lítilræði til gamans þeim. Á þorláksmessu var oftast smal- að til að ná í jólakindina, sem kall- að -var og henni lógað. Var þá ætíð lokið allri brauðgerð og jólabakstri, sem var mikið verk á mannmörgu heimili, þar sem jafnan var og margt góðra og velkominna gesta. Ávallt var reynt aö stilla svo til á aðfangadag jóla, að lokið væri öllum heimilisstörfum kl. 4—5 síð- degis. Fóru þá allir að búast spari- fötum og reyndu að vera búnir að því fyrir kl. 6, því þá var lesinn húslestur. Var hann ætíð lesinn í Péturs hugvekjum á þessu kvöldi þangað til húslestrabók Haraldar Níelssonar kom út. Eftir það var lesið í henni. Ég, sem þetta rita, las húslestra heima í 30 ár. Minn- ist ég nú, þegar ég hugsa um liðna daga þeirra stunda, sem fólkið safn- aðist saman til að lilýða á lestur og lesturinn fór fram, meðal hinna allra ánægj ulegustu í lífi mínu. Á aðfangadagskvöld var ávallt sunginn undan lestri sálmurinn: „Nú eru byrjuð blessuð jól.“ En þessi látlausi en innilegi sálmur er nú ekki lengur 1 sálmabókinni og þykir mér það furðu sæta. En það mun nú trauðla þörf neinna sálma til söngs við guðs- þjónustu í heimahúsum. Sá fagri og góði siður mun nú víðast lagður niður, til ómetanlegs tjóns fyrir siðferðis- og trúarlífið í landinu. Þegar búið var að lesa, þökkuðu allir fyrir lesturinn með handar- bandi. En lesarmn sagði við hvern og einn: „Guð blessi þig.“ Var þetta að ég hygg ekk-i þýðingarlaus at- höfn, að þakka lesturinn með handatengingu. Meðan húslesturinn fór fram, mallaði steikin og annað góðgæti matarkyns yfir eldinum. Söfnuðust nú allir saman til máltíðar. Tóku menn til matarins með misjöfnum dugnaði, en flestir vel. Var jafnan fábrotinn og lítill miðdegisverður á aðfangadag og flestir því listargóð- ir að kvöldi. Þegar máltíð var lokið, dreyfðust menn um bæinn og fór hver sínu fram. Aldrei skemmtu menn sér heima þetta kvöld, nema við söng. Söfn- uðust allir, sem hug höfðu á, þang- að sem hljóðfærið var og þar var sungið. Voru það aðallega jólasálm- arnir. Söngkraftar voru ætíð sæmi- legir og stundum góðir, eftir því, sem viö er hægt að búast á sveita- heimili, enda mikið iðkaður söng- ur. Ég vil geta þess, að allt af var tvíbýli á Hafranesi meðan ég bjó þar. En það var hlýtt sameiginlega á húslestra frá báðum heimilunum og eins fóru allar skemmtanir fram. Þarna ríkti alger eining. Kl. um 10 á aðfangadagskvöld var aftur sezt að borði og þá drukkið kaffi og með því bornir fram alls kyns bakningar. Fóru menn svo úr því smátt og smátt að ganga til hvílu. Fyrstu ár mín á Hafranesi hélzt þar sá siður, sem áður var á hafð- ur, að kl. 5—6 á jóladagsmorgun var lesinn húslestur. En sá siður lagðist niður 1913. Eftir það voru lesnir tveir lestrar á aðfangadagskvöld. Annar á þeim tíma, er fyrr greinir, en hinn kl. 12. Byrjaði jóladagurinn eftir það með því, að fólkinu var borið kaffi með brauði um kl. 8. Þeir, sem þess óskuðu, gátu svo fengið hrísgrjónagraut með rúsín- um í og sj'kur og kanel. Miðdegisverður var kl. 12. .Var það jafnan kaldur matur, svo sem hangikjöt, saltkjöt, kartöflur og brauð ásamt einhverjum heitum rétti..Oft höfðu þeir, sem það kusu skemmt sér við spil fyrir miðdag. Ef fé var komið á gjöf, var reynt að gefa því alla dagsgjöfina fyrir miðdag og þá haft heldur í rífara lagi, sem skammtað var. í fjósi varð aldrei breyting vegna hátíðar- halds. Húslestur var lesinn milli mið- dagsverðar og eftirmiðdagskaffis, ef því varð við komið. Var það gefið kl. 3—4. Oftast voru þá komnir ein- hverjir gestir ef færj var veður bæja milli. Var það oft milli 10 og 20 manns og stundum fleira. Þótti það góður fengur, að fá sem flesta gesti. Þess meiri urðu möguleikar til skemmtana. Að loknu eftirmiðdagskaffi fóru menn svo aö skemmta sér eitthvað. Var oftast dansaö fram að kvöld- verði af hinu yngra fólki, en það eldra sat og spilaði. Tók þó margt af því þátt í öllu því, er til skemmt- unar var haft og lét sitt ekki eftir liggja. Veitingum til gesta, var skipt að mestu jafnt milli búanna (útenda og framenda, sem kallað var). Þegar lokið var kvöldmjöltun í fjósi og þar með öllu dagsins striti, fóru menn óskiptir og af fullum krafti að skemmta sér. Var þá farið í alls konar leiki svo sem: jólaleik, (biðilsleik) gjafaleik, axarskafta- leik, pantaleik, þegjandaleik, sjö- orðaleik, sögð ferðasaga, leiknir málshættir, leikin bókarheiti o. fl. í þessum leikjum tóku allir þátt, ungir og gamlir, hver eftir löngun sinni og getu. Þótti þetta ágæt skemmtun í sveitinni á þessum árum. Voru þarna oft að leikjum 40—50 manns, gestir og heimafólk, einhuga um, að njóta vel þeirrar skemmtunar, sem hægt var að veita. Reynt var eftir megni, að hafa heldur hljótt viö, eftir að leið á nótt og gamalt fólk og börn var gengið til náða. En sjaldan var hætt við gleðskapinn fyrr, en kl. 4—5 að morgni. Héldu þá gestir heim til sín, en heimafólk gekk til hvílu. Á annan dag jóla gekk allt eins til og á jóladag, nema það, að oft- ast var þá færra af gestum. Þó kom það fyrir að gestir voru þá fleiri, ef vont veð'ur var á jóladag. Það var alltaf siöur heima, að bjóða til kaffidrykkju um jólin heimafólki á milli búanna. Var þ.essi samdrykkja venjulega á jóla- dag hin fyrri, en sú seinni á annan dag jóla, eða þá ekki fyrr en á ný- ársdag. í þessu þótti og var nokkur tilbreyttni frá því venjulega og varð því til skemmtunar þeim, er þess nutu. Ég hefi hér að framan reynt að bregða upp mynd af jólum í sveit- inni, þar sem ég var á þeim tíma, sem um getur í upphafi máls míns hér aö framan. Þótt ég nefni í því sambandi eitt tiltekið heimili, er það vegna þess, að það er mér kunnast. En engu síður tel ég þessa jólalýsingu eiga almennt við á þessum árum. Þó með þeim afbrigðum, sem ýmsar misjafnar aðstæður heimilanna hlutu að skapa. Eins vil ég taka það fram, að þar sem ég tala um Hafranesheimili, á ég þar við bæði búin. Þarna ríkti svo mikil eining, að aldrei brá út af og líktist í öllu góðu fjölskyldu- lífi. Ég vil svo að endingu tjá mínar beztu þakkir öllum þeim, bæði gest- um og heimafólki, sem ár eftir ár hjálpuðu til aö gera jólin heima svo skemmtileg, sem raun bar vitni. Sérstaklega þakka ég þó okkar ágæta heimilisfólki, sem ætíð á all- an hátt, af kostgæfni og trú- mennsku, vann að velferð og gengi heimilisins bæði í skemmtun og starfi. Gleðileg jól. Einar Friðriksson. frá Hafranesi. | Munið.... i ] að vér erum ætíð þjónar | viðskiptavinarins I Þökkum viðskiptin i i | GLEÐILEG JÖL! ! j Farsælt komandi ár! j i 1 S ! KAUPFÉLAG AUSTFJARÐA j SEYÐISFIRÐI c ! i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.