Tíminn - 24.12.1957, Síða 12

Tíminn - 24.12.1957, Síða 12
12 í tunglsljósi, stóð afi gamli klæddur hlífðarklæðum með þrúgur á fótun- um. í hægri hendi hélt hann á öxi. Hann hafði heyrt eitthvað hljóð neðan úr dalnum rétt áðan. Þaö hafði ekki verið skothvellur, og ekki þytur í snjófokinu. Hann hafði heyrt eitthvað annað . . . II. Litli, svarti hesturinn, sem brauzt áfram í snjónum andaði svo ótt og títt, að strókurinn út úr honum stóð langar leiðir. Á baki hans sat roskinn kvenmaður, hávaxin og mögur. Hún var klædd kápu úr úlfskinni og andlit hennar var hörkulegt, nefið beint og hvasst, munnurinn lítill og varirnar þunn- ar, augun smá og skörp. Hesturinn mássaði og hún laut fi'am og klapp- aði honum. — Svona, klárinn minn. Þú verð- ur að reyna að komast dálítinn spotta enn, aumingjans klárinn minn. Hott, hott. Reyndu nú. Og hesturinn brauzt áfram. Á eftir hestinum, óð maður snjóinn. Hann hafði byssu um öxl sér og hafði hneppt frá sér loðfeldinum, svo að kaldur snjórinn féll niður á bringu hans. Hann var þakinn snjó frá hvirfli til ilja, svo að varla sá f hann. Rauðleitt hár hans féll fram á ennið öðru hverju nam hann staðar og reyndi að þurrka svitann af þreytulegu andlitinu. — Þú verður að reyna að herða á klámum, Anna, sagði hann, — eins mikið og þú getur. r— Sérðu þá? spurði konan á hestinum. — Ekki ennþá. Nokkur hundruð metrum fyrir aftan þau heyrðist ýlfur, og dökk- ur skuggi kom i ljós, síðan annar ogiloks sá þriðji. Anna sneri sér við í hnakknum: — Þeir hafa fundið slóðina okkar, Andrés. Heyrurðu ekki til þeirra? — Hertu bara á klárnum. Kann- ske hötfum við það. Andrés tók byssuna af öxlinni til að vera Viðbúinn. Hesturinn festi sig í snjóskriðu, sem hrunið hafðKniður á götu- slóðina. Anna snaraðist af baki og þreif, beizlið, klappaði örþreyttri skeppnunni og talaði hvetjandi til hennar. Hesturinn brauzt um af öllum kröftum. Hann steig nokkur skref ái'ram, svo stóð hann aftur fa.stur. Ándrés rak á eftir og áfram öraiúzt veslings sl/epnan, fáfeina metra í senn. Ýifrið heyrðist nú miklu nær. Þau litu við og í um það bil þundpað metra fjarlægð sáu þau úifan'a koma. Sá er fremstur var nam staðar. Hínir' tveir komu upp að hlið hans; síðáh' stönzuðu þeir. ' Andrés lyfti byssunni. —‘-Nei, það var of dimmt. Hann gekk Vnokkur skref í áttina til þeisíra, nám staðar, gekk enn nokk- ur skref. Úlfarnir stóðu enn kyrrir Hapn ,heyrði til Önnu, þar sem hún stritaðist áfram með klárinn. Hghn . ætlaði að snúa sér við og hrópa til, hennar, en sá þá, að sá fremmsti ,var lagður af stað. Þeg- ar 'hann var kominn spölkorn frá hinhm nam hann staðar og rak upp hátt ög lángdregið ýlfur. Þá fylgdu hiniT á eftir, gætilega en án þess aö : hika, og nálguðust manninn. Andrés horfði fast á þá, hann var fullkomlega rólegur nú. . Anna .hrópaði eitthvað. Hann heyrði ekki almennilega hvað hún sagði, en skildi, að hún var komin yfir skaflinn og biði eftir honum. - Farðu á bak, og hraðaðu þér eins og þú getur, hrópaði hann. í guðanna bænum reyndu að hraða þér. Um tvö mannslíf er að tefla. Hann lyfti byssunni og hleypti af, Einn úlfanna stökk til hliðar ★ JDLABLAÐ TlMANS 1 Q c ” pcet hósmceð- ut, sem reynt haía Clozone þvottaduh pota atdret annað. ( Clozone innt- hetdur súretnis- kom sem " treyða ddsam_ lega og 9)°ra * „ þvott\nn ^aUahvítan og bragg'e9' an. Clozone hefir hlotió sér- stök meðmœli sem gott þvottaduft í þvottavélar. :: :: Heildsölubirgðir: Eggert Kristjónsson & Co. h.f. og féll síðan dauður í snjóinn. Hin- ir tveir stukku eldsnöggt burtu en fundu þá blóðlyktina, sneru við og fóru að rífa í sig hinn dauða fé- laga þeirra. Andrés gekk aftur á bak og reyndi að hlaða byssuna á ný. Eftir á vissi hann aðeins óljóst um það sem gerðist, fyrr en hann stóð með byss- una og reyndi að hleypa af. Ár- angurslaust, skotið reið 'ekki af. Hann sá dýrin koma nær og nær, hann hrasaði og féll. Hann heyrði óhugnarlegt ýlfur og fann hvernig dýrin rifu í andlit hans. Hugsun- in um hnifinn þaut í gegn um huga hans, hníf . . . Hann þreifaði ör- væntingarfullur í tómu sliðrinu, sá rauða, lafandi tungu og hvassar tennur. Vinstri handleggurinn — hann fann stingandi sársauka í vinstri handlegg . . . Hann heyrði niðurbælt hróp að baki sér. Bjalla hljómaði. III. Aðfangadagur! Það er aðganga- dagur í dag, hugsaði Árni litli, þegar hann vaknaði uppi á dimmu fjós- loftinu og heyrði dýrin japla á morgunfóðri sínu. Hann greindi ekki, hvað afi og amma voru að tala um, en hann fann ósjálfrátt öryggi að heyra til þeirra þarna niðri, þar sem þau voru bæði að mjólka. En svo heyrir hann, að ókunnug kona kemur inn í fjósið, og hann er á svipstundu glaðvaknaður. Hún talar hátt og hvellt: — Sofa, nei, ég held nú síður. Ég get alltaf sofið og hvílt mig. Ef ég^fæ aðeins að vera hér til morguns, \dl ég fá að gera gagn eins og aðrir. Síðan hvarf hún út og Árni litli vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Hann varð að gera eitthvað til að bæla niður þessa hræðilegu óvissu, sem gagntók hann. — Inga, hvíslaði hann lágt, — Ertu sofandi, Inga? — Nei, og þú þá ekki heldur? — Nei. — Veiztu að Anna er komin? — Já, ég heyrði til hennar niðri í fjósinu. Hvað helduröu, Inga? — Ég held að við séum búin að eignast nýjan bróður, sagði Inga hreykin. — Af hverju heldurðu það? — Ég heyrði þau vera að tala um þaö áðan. — Ertu viss um það? — Næstum því. Þegar börnin þrjú komu inn í baðstofuna seinna um morguninn, fundu þau þegar, að eitthvað hafði gerzt. Eitthvað var öðruvísi en áð- ur. Það var aðfangadagur, en samt einhvern veginn ólíkt því sem þau áttu að venjast á aðfangadag. Anna gekk um og tók til. Afi og amma voru þar bæði og mamma í hinu herberginu. En byssan hans pábba lá brotin á skápnum og pabbi . . . ? Þau ætluðu einmitt að fara að spyrja eftir honum, þegar móðir þeirra kallaði til þeirra: — ÆtliÖ þið ekki að koma og sjá litla bróður? Þau urðu svo undarlega lítil og feimin og þorðu ekki að hreyfa sig alveg strax. Þarna stóö mamma svo grönn og fögur, að þau þorðu alls ekki að líta á hana. En svo gátu systurnar ekki lengur á sér setið, hlupu inn í herbergið og lædd ust að rúminu. — Ó, hvað hann er lítill og fall- egur, hrópuðu þær báðar frá sér numdar. En aumingja litli Árni stóð kyrr og barðist við grátinn. — En, stamaði hann loks, — en pabbi? Enginn svaraöi, en um leið kom pabbi inn um dyrnar og var alveg óþekkjanlegur í framan, og vinstra handlegg hafði hann i fatla. — Já, Árni, sagði hann hlæjandi, þegar hann sá, hvað barnið starði á hann, — hér sérðu, hvernig fer, þegar maður slæst við úlfa með berum höndum. — Með berum höndunum, sagði Árni litli ráðvilltur, en hafðirðu ekki . . . ? — Jú, ég hafði byssuna, skal ég segja þér, en hún hafði blotnað svo mikið, þegar ég ætlaði að skjóta á úlfana, að skotið reið ekki af. Þá réðust tveir á mig og það var rétt að ég gat rekið hnífinn í annan áður en ég datt og .. . — Og svo . . . ? — Svo, jæja, við skuíum sleppa þvi, sagði faðirinn hægt. Hann þagnaði. Allt í einu stóð afi gamli hjá drengnum og klappaði á öxl hans: — Það var gott, að allt fór vel í þetta skiptið, sagði hann rólega, — varla hefur það mátt tæpara standa. Svo held ég að við ættum ekki... Hann þagnaði, en hélt síðan á- fram: — Svo held ég að við ættum ekki að tala meira um þetta núna. Það eru jól núna og margt aö gera í dag. Við getum byrjað með því, að sækja jólatré út, eða hvað finnst þér, Árni? Rödd gamla mannsins skalf ofur lítið, en svo lítið-, að hin tóku .alls ekki eftir því. J.K. þýddi úr scensku. — ug góði guð, mikið yrði ég glaður ef ég fengi reiðhjól. — Þú þarff alls ekki að kalla svona hátf, guð heyrir alltaf til þín." — Já, en ekki pabbi —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.