Morgunblaðið - 07.05.1964, Page 14
14
MORGUNHiAÐIÐ
Fimmtudagur 7. maí 1964
Sigurður Á. Björnsson frá Ve&ramóti
— Minnmgarorð —
Kveðja frá formanni
Sjálfstæðisflokksins
FÖSTUDAGINN 1. maí andaðist
á Landsspítalanum Sigurður
Árni Björnsson frá Veðramóti,
tæplega áttræður að aldri. •
Hann var fæddúr á Heiði í
Gönguskörðum 22. maí 1884,
sonur hinna alkunnu hjóna
Björns Jónssonar hreppstjóra og
dannebrogsmanns á Veðramóti
og Þorbjargar Stefánsdóttur á
Heiði Stefánssonar.
Björn Jónsson, sem lengst bjó
á Veðramóti, var sonur Jóns
Jónssonar hreppstjóra á Háa-
gerði á Skagaströnd og konu
hans Guðríðar Ólafsdóttur á
Harastöðum Guðmundssonar. —
Þorbjörg Stefánsdóttir var al-
systir hinna landfrægu alþingis-
manna Sigurðar prests í Vigur
og Stefáns skólastjóra á Möðru-
völlum og Akureyri. Er sú ágæta
ætt, sem flestir kenna við Heiði
alkunn, og ákaflega fjölmenn.
Sigurður ólst upp hjá foreldr-
um sínum í hópi margra syst-
kina, fyrstu árin á Heiði, en síð-
an á Veðramóti. Hann stund-
aði nám í Hólaskóla og útskrif-
aðist þaðan 1904.
Hann kvæntist 21. 5. 1912 Sig-
urbjörgu Guðmundsdóttur frá
Holti, alsystur þeirra ágætu
bræðra Magnúsar ráðherra,
Jakobs bónda í Hnausum og Jó-
hanns bónda í Holti.
Fóru hin ungu hjón sama vorið,
þ.e. 1912, að búa á Veðramóti og
bjuggu þar samfleytt til 1934,
en þá fluttu þau til Reykjavíkur.
Þau hjón eignuðust 5 börn, 4
sonu og eina dóttur. Náðu þau
öll fullorðinsaldri og eru fjögur
á lífi.
Börnin voru þessi talin eftir
aldursröð:
1. Dr. Björn, læknir á Keldum,
er kvæntur var Unu Jóhannes-
dóttur frá Hofsstöðum í Skaga-
firði. Hann lézt árið 1959, 46 ára
að aldri.
2. Dr. Jakob, fiskiðnfræðingur,
nú forstjóri, kvæntur Katrínu
Sívertsen, dóttur Jóns skólastjóra
í Reykjavík.
3. Dr. Magnús Z. hagfræðingur,
kvæntur Nadezdu, læknisdóttur
frá Tékkóslóvakíu.
4. Björgvin, lögfræðingur og
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands, kvæntur
Steinunni Vilhjálmsdóttur.
5. Frú Guðrún Björg, gift Sig-
urði Benediktssyni, fram-
kvæmdastjóra.
Barnabörn þeirra Veðramóts-
hjóna eru 13.
Meðan Sigurður bjó á Veðra-
móti tók hann mikinn og marg-
víslegan þátt í félagsmálum, og
var innan sveitar og utan valinn
til forystu. Um margra ára skeið
var hann samtímis hreppstjóri,
odditi, sýslunefndarmaður, for-
maður búnaðarfélags, formaður
skólanefndar o. fl. Einnig var
hann formaður Ungmennafélags-
ins Tindastóll og í stjórnum allra
samvinnufélaga sýslunnar, þ. e.
Sláturfélags Skagfirðinga, Kaup-
félags Skagfirðinga og Verzlun-
arfélags Skagfirðinga.
Eftir að hann kom til Reykja-
víkur keypti hann húsið nr. 23
við Fjólugötu og hefir búið þar
alltaf síðan. Hans aðalstarf í
Reykjavík varð það, að hann
gerðist framfærslufulltrúi Reykja
víkurbæjar. Því starfi gegndi
hann frá 1935 til 1959, en þá varð
hann fullra 75 ára. Mörg önnur
störf hlóðust á hann hér í bæn-
um. Hann varð einn af stofnend-
um Ofnasmiðjunnar h.f., lengi
þar í stjórn og formaður stjórn-
arinnar þar um nokkurra ára
skeið. Þá var hann lengi í sókn-
arnefnd dómkirkjunnar og for-
maður henpar nokkur ár. Einnig
var hann lengi í Sáttanefnd
Reykjavíkur o. fl.
Sigurður Á. Björnsson var með
al myndarlegustu manna, hár og
þrekinn og samsvaraði sér vel.
Hann var mikið hraustmenni, af-
burða verkmaður og mikill
íþróttamaður á yngri árum.
Einkum lagði hann stund. á okk-
ar íslenzku glímu. Stóðu honum
líka fáir á sporði í þeirri list.
Fór þar saman mikil bragðfimi
og örugg hreysti.
Sigurður var mikill gæfumað-
alla sína tíð. Næst á eftir eigin
hæfileikum, var hans mesta gæfa
sú, að eignast ágæta konu, mennt
aða, vel ættaða og í alla staði
góðum hæfileikum gædda. Þau
voru á sama ári, að aldri, og hafa
notið gæfu lífsins í' margvísleg-
um myndum: Góðrar heilsu
lengst af, mjög efnilegra barna,
tengdabarna og barnabarna. —
Synir þeirra allir urðu háskóla-
lærðir menn og hafa staðið mjög
framarlega hver á sínu sviði.
Eina dóttirin er og vel menntuð
kona og prýðileg á allan hátt.
Eini skugginn, sem á leiðina
féll, var að missa elzta soninn,
dr. Björn lækni, á bezta aldri.
Kom sá atburður mjög óvænt,
því lengst af hafði hanp haft
góða heilsu.
Búskapur Veðramótshjóna var
alltaf með miklum myndarbrag.
Þar var aldrei skortUr á neinu
því er nauðsynlegt var að hafa,
og öll stjórn heimilisins á þá leið,
að hagur búsins gekk árlega
fram og oft í stórum stíl. Þegar
til Reykjavíkur var komið var
öll stjórn heimilisins líka í föst-
um skorðum. Á báðum stöðum
ríkti gestrisni og höfðingsskap-
ur. Þar þótti frændum og vinum
ánægjulegt að koma. Góðar veit-
ingar, glaðværð og alúð hélzt í
hendur, og allt bar vott um góða
stjórn og ánægjulegt samkomu-
lag innan heimilis.
í Skagafjarðarsýslu var Sig-
urður á Veðramóti lengi einn
hinn helzti og áhrifamesti hér-
aðshöfðingi, og kom það Ijóst
fram í því, að víða var hann
valinn til forystu. Innan sveitar
sinnar stjórnaði hann öllum fé-
lagsmálum sem oddviti og hrepp-
stjóri, formaður búnaðarfélags
o. fl. í sýslunefnd Skagafjarðar-
sýslu var hann í sinni tíð meðal
áhrifamestu og glæsilegustu full-
trúa. Og í samvinnumálum hér-
aðsins var hann einn af helztu
forystumönnum, er lýsti sér í því,
að hann var í stjórn helztu fé-
laga á því sviði, sem voru Kaup-
félag Skagfirðinga, Sláturfélag
Skagfirðinga og Verzlunarfélag
Skagfirðinga. Að vísu mun hann
eigi hafa verið í stjórn þeirra
allra samtímis.
Það sem til þess bar, að hann
reyndist svo mikill áhrifamað-
ur, sem raun bar vitni, var það,
að maðurinn var skarpgreindur,
prýðilega máli farinn, stefnufast-
ur og svo glöggur á hvert mál,
að honum veittist létt að greina
aðalatriði hvers máls frá auka-
atriðum, og sjá hvað mestu varð-
aði og bezt gat til hagsbóta
verið.
Þegar til Reykjavíkur kom
breyttist aðstaða þessa ágæta
manns að vonum mikið. En það
breyttist ekki, að hann var mik-
ill áhrifamaður og hvar sem hann
tók á varð hann sér og sínu fé-
lagi til gagns og sæmdar. Hvar
sem hann lét sín sín heyra á
mannfundum, vakti hann athygli
og á hverri gleðisamkomu, sem
hann mætti, þótti það miklu
varða að hafa hann með og vita
hvað hann legði til málanna. Það
fór aldrei á milli mála, að hann
var maður stefnufastur og heil-
brigður í skoðunum. Hann var
heldur aldrei hikandi við að
segja sitt álit og enginn gat ver-
ið í vafa um það, að hann var
alla tíð einlægur og ókvikull
Sjálfstæðismaður, er styrkja
vildi hag og heiður og framtíðar-
gengi íslenzku þjóðarinnar.
Veikindin, sem leitt hafa til
þeirra úrslita, sem nú eru orðin,
voru örðug eins og víða reynist.
SIGURÐUR Björnsson var
kominn fram yfir miðj'ain ald-
ur, þegar hann settist að í
Reykjavík. Hann hafði þá
lengi stuindað búskap og var
víðkunnur ekki aðeins í
heimahéraði sínu heldur um
allt land, sem ágætur búhöld
ur, hygginn og fylginn sér.
Um þessar mundir var mikið
atvinnuleysi hér í Reykjavík,
svo að þúsundir. manna voru
bjargarlitlir mikinn hluta
árs. Framfærslubyrði bæjar-
sjóðs var því þung og mikils
um vert, að hæfir menn
gegndu störfum framfærslu-
fulltrúa eða fátækrafulltrúa
eins og þeir þá munu hafa
verið kailaðir. Ég man, að
Pétur heitimn Halldórsson
hreyfði því þá, að hyggilegt
mundi vera að fá Sigurð
Björnsson til þessa starfs og
varð það að ráði. Sigurður
réðst til bæjarins og vann síð
an hjá bænum á meðan starfs
aldur entist.
Sigurði var ærinn vandi á
höndum þegar hann gerðist
framfærslufulltrúi. Fá störf
krefjast meiri mannúðar og
hæfileika til að setja sig í ann
arra spor en jafnframt festu og
fjármálavits. Þnátt fyrir það
þótt Sigurður væri í fyrstu
lítt kunnuguir staðh.áttum hér,
En hann tók þeim örlögum með ró
og stillingu. Og þó að svona færi,
má þegar alls er gætt, telja það
meðal gæfuatriða þessa skör-
ungsmanns, að þuifa eigi að
stríða lengi við ellihrumleika og
ósjálfbjarga tilveru. Hann var í
hópi þeirra manna, sem ekki eru
í neinum vafa um betra fram-
haldslíf á æðra tilverustigi. Hann
hafði sterka trú á guðlega for-
sjón og guðlega handleiðslu. Að-
alatriði kristindómsins voru hon-
um helgari en allt annað. Þess
vegna óttaðist hann hvorki veik-
indi né dauða.
Hitt er víst og eðlilegt, að nú
þegar hann er horfinn af sjónar-
sviði þessa hérvistarlífs, þá er
hans sárt saknað, ekki aðeins af
konu og börnum og öðru nánasta
skylduliði, heldur og af miklum
leysti hann starf sitt ætíð af
hendi með þeirri prýði, sem
aflaði honum vinsælda sam-
sarfsmanna og virðingar bæði
þeirra, sem áttu mál undir
hann að sækja og yfir honum
höfðu að segja.
Sigurður Björnsson hélt til
æfiloka virðingu allra þeirra,
sem komust í kynni við hann,
en þeir voru harla margir hér
í bæ. Auk síns eiginlega lífs-
starfs átti hann hlutdeild í
blómlegum atvinnurekstri,
sótti manna bezt fundi Sjálf
stæðisflokksins og var maður
kirkjurækinn.
Tillögur Sigurðar voru hvar
vetna mikils metnar og á mál
hans hlýtt með athygli, enda
var hann vörpulegur á veMi,
skörulegur og vel máli farirnn.
Skoðanir hans voru ætíð sikyn-
samlegar og settar fram af
hreinskilni og hispursleysi.
Það leyndi sér ekki, að mik-
ið ástríki var með þeim Sig-
urði Björnssyni og konu hans,
frú Sigurbjörgu Guðmunds-
dóttur. Bæði voru af þjóð'kunn
um ættum og höfðu óvenju-
legt barnalán. Sannaðist þar,
að eplið fellur sjaldan fjarri
eikinni. Sigurður var því
gæfumaður og samferðamenn
hans munu ætíð halda minn-
ingu hans í heiðri.
Bjarni Benediktsson.
fjölda annara manna sunnan-
lands og norðan.
En í því felst mikil huggun,
að minningarnar um þennan
ágæta mann eru allar góðar og
skemmtilegar. Mér og öðrum, sem
vorum hans vinir, þykir það
miklu skipta, að hafa kynnzt
honum, haft mikið saman við
hann að sælda og átt þess kost,
að njóta með honum svo margra
ánægjulegra stunda, á hans
heimili og utan þess.
Konu hans og börnum, tengda-
börnum, barnabörnum og syst-
kinum votta ég hérmeð einlæga
samúð og hluttekningu.
Jón Pálmason.
ÞAÐ var þarun 10. maí 1938, sem
leiðir okkar Sigurðar A. Björns-
sonar frá Veðramóti Lágu saman.
Heirna í héraði hafði ég oft heyrt
hans getið, sem mikils atihafna-
manns og bónda. Nú urðum við
samstarfsimenn á framfærsluskrif
stofunni hér í Reykjavík.
Sigurður frá Veðramóti var fá
gætur starfsmaður og samstarfs-
maður. Ávallt glaður og_ reifur,
uppörvandi og hvetjiandi, hrein-
skilinn og tillögugóður og mjög
vinsæll meðal starfsm.anna. Hans
var því mjög saknað er hann lét
af störfum á árinu 1959.
Það var ekki vandalaust og vin
sælt að vera framfærslufultlrúi
í Reykjavík á árunum fyrir síð-
ari heimsstyrjöldina. Reyndi þar
mjög á mainndóm og skilning
þeirra er með þau mál fóru. Van
þakklátt var starfið og erfiðara
en menn gera sér nú í hugar-
lund. Þurfti þá bæði festu og lip
urð svo að vel færi. Þar var Sig-
urður frá Veðramóti, að mínu á-
liti, réttur maður á réttum stað.
Við fyrstu kynni gat margur
haldið að hann væri harður og
mjög af „gamla skólanum“, en
því var ekki svo farið. Hann
mat manndóm og vilja til sjálfs-
bjargar og var þeim hlýr og góð-
ur er veikir voru eða höfðu orð
ið illa úti í veðragangi mannlegs
lífs. Er mér vel kunnugt, að hann
tók oft nærri sér, að geta ekki
veitt alla þá hjálip, sem þörf var
á. Hef ég oft fengið að heyra,
eftir að Sigurður frá Veðramóti
lét af störfum sem framfærslu-
fulltrúi, að rnargir voru honum
þakklátir fyrir leiðbeiningar hans
og uppörfanir á erfiðum tímum.
Þeir minnast hans nú með sökn-
uði. Það gerum við einnig sam-
starfsfólkið á borgarskrifstof-
unni og vottum aðstandendum
hans innilega samúð.
SkúM Tómasson,
yfirframfærslufulltr.
ÞEGAR Sigurður Á. Björnsson
frá Veðramóti er horfinn úr hópi
ástvina og venzlaifóllks, þá sakna
ég vinar í stað.
Hann kenndi sig jafnan við
föðurleifð sína, Veðramót í Skaga
firði. Þar var hann fæddur og
uppalinn. Eftir föður sinn tók
hann við jörðinni og fór að búa
með eftirlifandi konu sinni Sig-
urbjörgu Guðmundsdóttur.
Að Veðramóti kom ég með föð
ur mínum, hálfstálpuð Reykja-
víkurstúlka. Skagafjörður var
búinn sínu fegursta skarti. Sólih
hellti geislum sínum gjafimild
yfir litskrúðuga jörðina, svo jafn
vel gömul bæjarhús urðu falleg.
Þetta var um há sláttinn. Það
var ekki slegið slöku við á bærf
um þeim. Það vakti þegar í stað
athygli mína hve glæstur og
frjálslegur þokki var yfir hús-
bændum og börnum. Það var
sem hefðu þau drukkið eibtíh vað
í sig úr sínu fagra umhverfi. —
Börnin eru Bjöm, nú liátinn,
Jakob, Magnús, Björgvin og
Guðrún. Gat ég ekki séð að þau
vantaði neitt, þó farið höfðu þau
á mis við ys og þys borgarlífs-
ins. Þeim var kennt að vinna og
draga ekki af sér, og gengu glöð
að sínu. Enda höfðu þau fyrir-
myndina, sem faðir þeirra var.
Hann var með afbrigðum dug-
legur og áhugasamur að hverju
sem hann gek'k. Karlmenni í lund
og fasi.
Hann nnni íslenzkri náttúru af
heilum hug og fannst það fólk
mun fátækara, sem ekki þekkti
þann unað, að ganga á vit móður
náttúru og hlusta á raddir þær.
Bnda var það í fegurð og mikil-
leik hennar og þess er hana skóp,
sem fólikið sótti kraft og styrk,
er veður og hríðar börðu utan
baðstofuþil á dimmum skamm-
degisvetruim. Jók þeim þrá og
biðlund eftir nýju vori.
Þegar börnin komust á legg
brugðu þau hjón búi, fluttust
hingað til Reykja-víkur, til að
hægt væri að mennta þau eins
vel og kostur var á. Allt vildu
þau fyrir börnin gera, innan skyn
samlegra takmarka. Bnda hafa
þau kunnað að meta það og
Framhald á bls. 19