Morgunblaðið - 07.05.1964, Síða 16
16
MORCUNBfAÐIÐ
Timtnfu<Jaí?ur T. maf I9#4
3M*t9mtirIjifr$fr
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstj órar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
END URFÆÐING
FRAMSÓKNAR
fT’ími kraftaverkanna er ekki
-*■ liðinn. Hin gamla Fram-
sóknarmaddama er endur-
fædd. Hún kemur nú daglega
fram í alveg spánýju gervi.
Hún er búin að slétta úr elli-
hrukkunum og hefur klæðzt
nýjum og litríkum kyrtli.
Hvað er til marks um þessa
endurfæðingu hinnar gömlu
maddömu?
Fyrst og fremst það, að nú
segja Framsóknarmenn að
stærsta áhugamál þeirra sé að
lækka skatta og tolla á bless-
aðri þjóðinni þeirra! En þeir
segjast vilja gera meira. Þeir
segjast vilja vera einlægur
verkalýðsflokkur og gera sem
allra bezt við launþega,
hækka kaupið þeirra, stytta
vinnudaginn og tryggja þeim
nýtt, betra og ódýrara hús-
næði.
Hin gamla maddama vill
gera enn meira. Hún segist
geta lokið öllum verklégum
framkvæmdum í landinu í
einu vetfangi, ef hún að-
eins fái að ráða. Niðurlögum
dýrtíðarinnar segist hún einn-
ig geta ráðið á skömmum
tíma, ef hún aðeins fái tæki-
færi til þess að beita snjall-
ræðum sínum.
Finnst íslendingum ekki
dásamlegt að horfa upp á
þessa endurfæðingu? Það eru
ekki nema tæp sex ár síðan
Framsóknarflokkurinn hafði
forýstu í svokallaðri vinstri
stjórn. Þá gafst hún upp á
miðju kjörtímabili. Hinn
mikli vinstri hertogi, Her-
mann Jónasson, stökk fyrir
borð af stjórnarskútunni og
landslýður allur sá í iljar hon-
um í haf þeirrar óðaverð-
bólgu, sem úrræðaleysi stjórn
ar hans hafði leitt yfir þjóð-
ina. Á valdatímabili stjórnar
hans drógust verklegar fram-
kvæmdir saman, lífskjör al-
mennings þrengdust og algert
hrun blasti við, þegar formað-
ur Framsóknarflokksins lýsti
því yfir, að innan stjórnar
hans væri ekki samkomulag
um nein úrræði til lausnar
þeim mikla vanda, sem við
var að etja.
Allt þetta heldur hin end-
urfædda maddama að sé graf-
ið og gleymt. Hún heldur líka
að það sé gleymt, að ævinlega
þégar Framsóknarflokkurinn
er í ríkisstjórn hækka skatt-
ar og tollar. Þegar hin fyrsta
vinstri stjórn Hermanns Jón-
assonar fór með völd á árun-
um 1934 til 1938 margfaldað-
ist til dæmis skatta- og tolla-
byrðin. Það er íslendingum í
fersku minni, að Eysteinn
Jónsson, núverandi formaður
Framsóknarflokksins, hefur
aldrei átt nema eitt úrræði
gegn hvers konar vanda, að
hækka skatta og tolla, þyngja
byrðarnar á almenningi.
Það þarf mikla endurfæð-
ingu til þess að láta íslenzku
þjóðina gleyma þessu öllu
saman. En Framsóknarmenn
virðast þó trúa því að það
geti tekizt. Þeir segjast nú
vilja og geta gert allt það,
sem þeir ekki gátu gert, þeg-
ar þeir höfðu aðstöðu til og
fóru með völd í landinu. Þeir
segjast geta sigrazt á verð-
bólgunni með því að æsa til
stöðugs kapphlaups milli
kaupgjalds og verðlags,
heimta hærri laun handa
launþegum og hærra verð fyr
ir kjötið, mjólkina og kartöfl-
urnar, sem bændurnir fram-
leiða. Þannig ætlar hin gamla
og endurfædda maddama að
leysa vandann, sem hún gafst
upp fyrir haustið 1958, þegar
vonir hennar um áratuga
vinstri stjórn brustu og leið-
togar Framsóknarflokksins
lýstu með átakanlegum hætti
hinu hrikalega skipbroti
vinstra ævintýrisins.
GÆTIÐ
BARNANNA
rimm banaslys hafa orðið
4 hér í Reykjavík í um-
ferðinni frá síðustu áramót-
um. Nú síðast varð þriggja
ára telpa fyrir bifreið og beið
þegar bana.
Þessi sorglegi atburðúr
hvetúr enn tií aukinnar að-
gæzlu. Umferðin á hinum
þröngu götum hinnar íslenzku
höfuðborgar er orðin óskap-
leg. Hver einasti borgarbúi
verður að líta á það sem
þelga skyldu sína að koma
fram af fyllstu varfærni. Það
verður heldur aldrei nógsam-
lega brýnt fyrir fólkinu að
gæta barnanna. En því miður
brestur mjög á að það sé gert.
Um allar götur getur að líta
börn eftirlitslaus að leik. Á
þessu verður að verða breyt-
ing. Börnin eru ekki aðeins
hjartað í brjósti foreldra
sinna, þau eru ókomna tím-
ans von. Dauði lítils barns
skilur ekki aðeins eftir sorg
og söknuð í brjósti foreldra
og annarra ástvina, heldur
stórt skarð í röðum lítillar
þjóðar. Kjörorðið í umferðar-
málunum hlýtur þess vegna
að vera: Gætum barnanna,
verndum þau fyrir hinum vél-
vædda hraða, sem alls staðar
Bandaríska flugvélaflutningaskipið Card við hafnarbakkann í Saigon eftir sprenginguna. Skipi4
hvilir nú á botni Saigon-árinnar. Hermaður stendur vörð. (AP)
Kommúnístar sökkva
bandarísku f lutningaskipi
Saigon, 2. maí (AP): —
SKÆRULIOAR Viet Cong komm
únista sökktu að morgni 2. mai
bandarísku herflutningaskipi í
höfninni i Saigon, höfuðborg
Suður-Vietnam. Flutningaskipið,
Card, var 15 þúsund tonn og sér-
staklega smíðað árið 1942 til að
flytja flugvélar og þyrlur.
Card hafði flutt nýjar þyrlur
og spcengjuflugvélar frá Banda
ríkjunum til Saigon. Var afferm
ingu lokið fyrir nokkru og búið
að skipa utn borð gömlum og bi'l
uðum þyrlum, sem átti að flytja
til baka til Bandaríkjanna. Ætl-
unin var að skipið legði af stað
frá Saigon klukkan 10 um morg
uninn.
Klukkan fimm um morguninn
varð sprenging í skipinu, og
kom þá stórt gat á skipseíð-
una neðan sjávarborðs. Tók skip
ið þegar að sökkva. 73 manna
áhöfn var á Card og komust all
ir í land. Sökk Card þa-rna á 15
metra dýpi, og standa yfirbygg-
ing skipsins og þyrluþiljur upp
úr. 8 bandarískir hermenn særð
ust í sprengingunni.
Skipstjórinn á Card, Borge
Langeland, segir að ekki sé vit
að með vissu hve miklar skemmd
ir urðu á -skipinu við sprenging-
ana, e« telur að gatið á síðunn.
hljóti að vera mjög stórt, því
skipið var fljótt að sökkva. Ray
mond Arbon, annar stýrimaður,
var á vakt þegar sprengin varð.
Þeyttist hann til og féll kylli-
flatur, en varð ekki meint af.
Járnbútar úr skipinu og bjálkar
úr bryggjunni, sem það lá við,
flugu langar leiðir.
Fullvíst er talið, að hér hafi
skæruliðar kommúnista, Viet-
Cong, verið að verki, og hafi
þeir valið tímann til skemmdar-
verksins í sambandi við 1. maí.
Bandarísk yfirvöld hafa fyrir-
skipað ítarlega rannsókn á at-
burði þessum, sem talinn er
geta orðið til meiriháttar álits-
hnekkis fyri Bandaríkjamenn í
Viet-Nam. Málið er enn óupp-
lýst, en sérfraeðingar telja að
skemmdarverkamennirnir hafi
ýtt sprengjunum með þar til
gerðum stöngum frá naerliggj-
andi hafnarbakka og að skips-
hliðinni. >aer ha.fi síðan verið
sprengdar með rafmagnsþræði
úr fjarlsegð. Talið er að sprengi
efnið hafi ails numið 25 kg. og
er ekki- talið ósennilegt að hér
hafi verið um pJasteprengiefni
að ræða.
Card @r fyrsta- bandaríska
skipið, sem verður fyri tjóni í
styrjöldinni í S-Viet Nam.
Npkkru eftir að sprengingin
varð í skipiniu, lýsti Williatn
Bundy, aðstoðarutanríkisráð'
herra, því yfir í sjónvarpsvið-
tali, að hann teldi að hér gæti
verið um að ræða fyrsta þáttinn
í aukinni skemmdarverkastai j
semi kommúnista.
Ráðstefna um
meimtim utan
skólanna
DAGANA 11.—13. marz sl. sótti
Þorsteinn EinarssOn, íþróttafulU
trúi, af hálfu menntamálaráðu-
neytisins, fund í Strasbourg, sem
efnt var til á vegum Evrópuráða
í nefnd þeirri, er fjallar Um
menntun utan skólanna. Meðal
annarra mála fjallar nefnd þessi
um íþróttamál og tók íþróttafull-
trúi þátt í þessum fundum vegna
þeirra.
Helztu viðfangsefnin, sem tek-
in voru til umræðu, voru þessi:
íþróttir og örvunarlyf, sameigin-
legt afreksmerki, íþróttakvik-
myndir, rekstur áningastöðva
fyrir ferðafólk, efling íþróttaiðk-
ana meðal almennings, sameigin-
legar lágmarkskröfur fyrir í-
þróttaþjálfara og leiðbeinendur,
gagnkvæm aðstoð Evrópuráðs-
þjóðanna á sviði íþróttamála, o*
loks var rætt um námskeið, sem
fyrirhuguð eru á ýmsum sviðum
íþróttamála. (Frá menntamála-
ráðuneytinu)
skapar hættu á slysum og
dauða.
Á MÓTI
VOPNLEYSI
ITmboðsmenn hins alþjóð-
lega kommúnisma hér á
íslandi þykjast nú miklir
unnendur friðar og vopnleys-
is. En sú var tíðin, að komm-
únistar voru herskárri. Blöð
kommúnista hér á íslandi
hvöttu Islendinga til dæmis
ákaflega til þess að taka sér
vopn í hönd og berjast með
kommúnistum á Spáni á sín-
um tíma. Brynjólfur Bjarna-
son sagði líka að hér á ís-
landi mætti skjóta, ef það
væri Rússum í hag.
Árið 1937 komst Einar Ol-
geirsson einnig þannig að orði
í „Þjóðviljnum“:
„Frá því að ísland fékk
sjálfstæði sitt 1918 hefur orð-
^ ið svo stórfelld breyting á al-
þjóðaháttum, að sú trygging,
sem menn þá treystu á að
nægja mundi fyrir sjálfstæða
smáþjóð eins og ísléndinga:
Virðing fyrir sjálfstæði þjóð-
arinnar og drengskapur gegn
vopnlausri smáþjóð, er nú
horfin".
Einn aðalleiðtogi kommún-
istaflokksins á íslandi var
þannig á móti vopnleysi á
þessum tíma. En þá voru
kommúnistar líka á móti hlut
leysinu, auðvitað vegna þesa
að Sovétríkin voru þá hlut-
leysisstefnunni andvíg.
Nú, þegar íslendingar hafa
leitað sjálfstæði sínu og ör-
yggi trausts í varnarbanda-
lagi frjálsra þjóða, þá heimta
kommúnistar og aftaníossar
þeirra að ísland verði hlut-
laust og varnarlaust. Engum
dylst, að það er vegna þess a3
Sovétríkin telja sig nú hafa
hagsmuni af því að smáþjóð-
ir Evrópu aðhyllist hlutleysia
stefnu.
Þannig er utanríkisstefna
kommúnista. Hún miðast í
engu við íslenzka hagsmuni.