Morgunblaðið - 07.05.1964, Qupperneq 30
30
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtuðagúr 7. maí 1964
Skemmtilegt hraðmót KR
í körfuknattleik
SL. þriðjudagskvöld gekkst
körfuknattleiksdeild KR fyrir
hraðkeppni í körfuknattleik í til-
efni -af 65 ára afmæli félagsins.
Ails tóku sex lið þátt í keppn-
inni, þ.e.a.s. KR, Ármarín, ÍR,
KFR og ÍS og lið af Keflavíkur-
ílugvelli, sem keppti sem gestur.
Fór keppnin í alla staði hið bezta
fram, gekk mjög fljótt og tafar-
laust fyrir sig og bauð upp á
mjög skemmtilegan. körfubolta.
Leikirnir
Mótið hófst með leik KFR
gegn ÍR. Að sjálfsögðu var búizt
við að íslandsmeistarar ÍR myndu
eiga auðvelt með I. flokkslið
KFR, enda varð sú raunin, en þó
sýndu KFR-ingar góða baráttu,
einkum í Seinni hálfleik, og end-
aði leikurinn með tólf stiga mun,
41:29.
Næsti léikur, milli Ármanns og
Keflavíkurvallarliðsins, var nokk
uð jafn allan tímann, en endaði
þó með öruggum sigri Ármanns,
21 gegn 16.
Þriðji leikurinn var milli af-
mælisbarnsins Kp og iiðs stúd-
enta. Var aldrei um neina bar-
áttu að ræða og sigruðu KR-ing-
ar með yfirburðum, 33 stigum
gegn 16.
.Undanúrslitin voru milli ÍR og
Ármanns. Var sá leikur hinn
skemmtilegasti og mjög spenn-
andi fram eftir seinni hálfleik.
Ármann hafði yfir í hálfleik,
12:10, og leit jafnvel út fyrir að
þeir ættu möguleika á sigri. En
ÍR-liðið reyndist miklu sterkara
í seinni hálfleik og sigraði örugg-
lega, 33:23.
Úrslitaleikurinn var þannig:
ÍR—afmælisbarnið. — Var þetta
lang-bezti ðg skemmtilegasti leik
ur mótsins og mjög spennandi all
an tímann. í hálfleik er aðeins
eins stigs munur ÍR í vil. í seinni
hálfleik helzt sama spennan, lið-
in skiptast á að skora og þegar
þrjár mínútur eru eftir hefur ÍR
enn yfir, þá fjögur stig. Enda-
spretturinn varð svo mjög jafn
og endar leikurinn með sigri ÍR,
20:16.
Fyrir sigur sinn í þessu
skemmtilega og spennandi móti
hlutu ÍR-ingar fagran grip, sem
Helgi Sigurðsson, formaður
körfuknattleiksdeildar KR af-
henti þeim um leið og hann sleit
mótinu með stuttu ávarpi.
— EMATT.
Þorsteinn Hallgrimsson, fyrirliði ÍR, hefur tekið við sigurlaunum af Helga Sigurðssyni, formanni
körfuknattleiksdeildar KR. (Ljósm.: Sveinn Þorm.)
Hermann Hermans-
son þjálfar FH.
Mikill knattspyrnuáhugi í Hafnarfirði
þriðjudag- og föstudagskvöldum
frá kl. 5,30—8,30.
Skráning knattspyrnumanna.
Skráning knattspyrnumanna
FH hefir gengið mjög vel og hafa
flest allir látið skrá sig, en skrán
ing mun fara fram eftirleiðis á
æfingum flokkanna.
WííískS
Barizt um knöttinn — þrír ÍR-ingar hafa hendur á lionum, þrír
KR-ingar horfa á.
Frjálsíþrdtta-
mót á Snæfells
nesi
INNANHÚSSMÓT HSH í frjáls-
um íþróttum var haldið í íþrótta-
húsinu í Stykkishólmi 19. apríl.
Þátttakendur voru 13 frá 5 fé-
lögum. Sigurvegarar urðu:
Hástökk með atrennu: Jón Ey-
þór Lárentsínusson, Snæf., 1.75.
Hástökk án atrennu: Jón Ey-
þór Lárentsínusson, Snæf., 1.50.
Lángstökk án atrennu: Sigurð-
ur Hjörleifsson, ÍM, 3.03.
Þrístökk án atrennu: Sigurður
Hjörleifsson, ÍM, 9.14.
Hástökk með atrennu: Sesselja
G. Sigurðardóttir, Snæf., 1.30., 2.
Rakel Ingvarsdóttir, Snæf., 1.30.
Langstökk án atrennu: Signý
Bjarnadóttir, Helg., 2.32, 2. Rakel
Ingvarsdóttir, Snæf., 2.28.
Indónesar ekki
með í Tokíó-leik-
unum
INDONESIA fær ekki að taka
þátt í OL í Tokíó í haust. Alþjóða
Olympíunefndin tók þessa af-
stöðu í vikunni og fylgdi sú skýr
ing að bréf frá olympíunefnd
Indonsiu hefðu bundið enda á
allar vonir um sættir milli Indo
nesa og alþjóða nefndarinnar.
Frumorsök málsins er sú að
Indonesar neituðu ísrael og
þjóðernisinnastjórn Kína um
þátttöku í Asíuleikum á sl. árL
Var það kært til alþjóða OL-
nefndarinnar. Hún gaf Indones-
um tækifæri til að lýsa yfir stuðn
ingi við alþjóða-Olympíureglur
og vilja til að fylgja þeim. Þetta
boð hefur OL-nefnd Indonesiu
ekki vilja þiggja og það eP nú
útrætt og afgreitt mál að Indo-
nesar fá ekki að taka þátt 1
Tokíóleikjunum.
MIKILL áhugi er meðal knatt-
spyrnumanna F.H. og sérstaklega
hafa meðlimir yngri flokkanna
mætt vel á æfingar. Hermann
Hermannsson, hinn gamalkunni
knattspyrnumaður hefir tekið að
sér þjálfun yngri flokka félags-
ins og sér um æfingar félagsins á
Aust-norðaustan áttin ríkti
enn í gær. Var Kalsaveður
norðan lands með aðeins eins
til 6 stiga hita og jafnvel
slydda víða um hádaginn. Á
sunnanverðu landinu var A.-
gola eða kaldi og 6—10 stiga
hiti.
Líkur benda til, að svipað
veður hatdist áfram næstu
dægrin. Og nægur kuldi er
norðurundan, ef vindur blæs
þaðan t.d. 12 stiga frost á
Tóbinhöfða.
Þjó&arátak í Bandaríkjunum
til að ná Rússum í íþróttum
BANDARÍSKA Olympíunefnd
in er að hefja mikla sókn eft-
ir fyrirfram gerðri áætlun til
að „komast fram úr Rússum á
Olympíuleikum og vinna aft
ur það álit og traust sem
bandaríska þjóðin hefur tap-
að á íþróttavettvanginum". Á-
ætlun OL-nefndarinnar nær
til allra þeirra íþróttagreina,
sem keppt er í á Olympíuleik
unum bæði vetrar- og sumar
leikjum. „Þetta er tilraun til
skera úr því hvort lýðveldis
fyrirkomulag getur keppt við
einræðisveldin“ sagði formað
ur bandarísku nefndarinnar,
Franklin L. Orth. Hann bætti
því við að áætlunin yrði dýr
í framkvæmd og myndi auk
fjárútláta kosta bandarísku
þjóðina mikla vinnu.
Áætlunin gerir ráð fyrir að
þjóðia öll sameinist um til-
lögur og hugmyndir sem
verða megi til þess að Banda-
ríkin geti aftur borið hæstan
hlut frá borði á Olympíuleikj
um vegna þess hve allar þjóð
ir leggja mikið upp úr mörg-
um og miklum sigrum á þessu
höfuðíþróttamóti heims.
Gert er ráð fyrir að veru-
legur árangur af áætluninni
komi í ljós á leikunum 1968
og enn meiri á hverjum leik-
um eftir það.
Sex stórfyrirtæki hafa tek-
ið að sér vissa þætti áætlunar
innar. „Við vitum“ sagði Orth
„að Rússar vörðu 1,2 mildjörð
um dollara- (eða 51,6 milljörð
um ísl. kr.) til íþróttastarfs-
ins í Rússlandi 1963. Þeir ætla
sér að sýna og sanna m.a. með
iþróttasigrum, öllum umheim
inum að stjórnarfyrirkomu-
lagið í Rússlandi sé bezt og
ennfremur að sanna hnignandi
íþróttagetu fólksins í lýðræðis
löndunum. Fyrst mun áætlun
okkar kanna hvar þörf er auk
ins stuðnings og síðan bæta
við þjálfurum, bæta aðstöðu,
auka við tæki og annað það
er þarf til takmarkið nóist“
sagði Orth við blaðamenn.
U
kU