Morgunblaðið - 12.10.1965, Blaðsíða 2
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. október 1965
Frá slysstaðnum á Hofsvallagötu
Stdrslys á Hofsvallagðtu
M J Ö G harður árekstur varð
um kl. 3 í gær á mótum Hofs-
vallagötu og Grenimels.
Þarna var stór sandflutninga-
bíll á leið suður Hofsvallagötu,
en Volkswagen 1500 á leið norð-
ur göftma. Vörubílnum var sveigt
til hægri inn á Grenimel og
var kominn yfir miðlínu götunn-
ar, er Volkswagenbíllinn skall
framan á honum. Skullu saman
hægri framhorn bílanna beggja.
Lagðist hægri hlið Volkswag-
enbílsins mjög mikið inn og
þvingaðist niður þakið og glugga
karmurinn, þannig, að fullorðin
kona, rúmlega fimmtug, sem var
í framsæti Volkswagenbílsins
sat þar klemmd undir og varð
fyrir miklu höggi. Eru meiðsli
hennar talin mjög alvarleg.
Stúlka, sem sat hægra megin
í aftursæti, fékk mikið högg
hægri fót og hlið og er sennilega
um brot að ræða. Stúlkan er 17
ára að aldrL
Skiptust á kveðjum á
degi Leifs heppna
í TILEFNI af degi Leifs Eiríks-
sonar, 9. október, hefur forsetti
Bandaríkjanna, Lyndon B. John-
son, sent for9eta íslands svo-
fellda orðsendingu:
Kæri herra forseti.
Margir þættir tengja ísland og
Bandaríkin, og er e.t.v. elztur
þeirra hin sameiginlega minning
vor um Leif Eiríksson .
Margar kynslóðir Bandaríkja-
manna hafa hrifizt af sögunni um
hinar frækilegu könnunarferðir
þessarar miklu norrænu hetju.
í því skyni að minnast afreka
hans og vekja athygli á sameig-
inlegum verðmætum og erfðum
þjóða vorra, hef ég mælt svo
fyrir ,að 9. október skuli vera dag
ur Leifs Eiríkssonar. Á þessu
ári minnumst vér sérstaklega
mikilvægra tengsla milli ís-
lenzku þjóðarinnar og Bandaríkj
anna með því að 25 ár eru liðin,
síðan stofnað var opinbert sam-
band milli þjóða vorra.
Af þessu tilefni sendi ég yður,
herra forseti og íslenzku þjóðinni
kveðjur mínar og árnaðaróskir.
Yðar einlægur
Lyndon B. Johnson.
Forsætisráðherra, dr. Bjarni
Benediktsson, hefur í fjarverul
forseta Islands, þakkað kveðjul
Bandaríkjaforseta á þessa leið:
Herra forseti!
í fjarveru forseta íslands,
herra Ásgeirs Ásgeirssonar, leyfi
ég mér að þakka vinarkveðju
yðar til hans í tilefni af degi
Leifs Eiríkssonar, 9. október.
Þegar það fréttist fyrir ári, að
þér, herra forseti, hefðuð ákveðið
að 9. október skyldi vera helgað
ur minningu Leifs Eiríkssonar
var því mjög fagnað á íslandi
sökum þess að með því var stað-
fest að nýju hversu mikils þjóð
yðar metur afrek þessa sonar
íslands.
Minningin um Leif Eiríksson er
nátengd virðingunni fyrir eðlis
kostum, slíkum sem áræði, þreki
og þrautseigju og einnig hugsjón
unum um jafnrétti og lýðfreLsi,
einmitt þeim hugsjónum og eðiis
kostum, sem mjög hafa eflt
Bandaríkjaþjóðina til þeirrar for
ystu, sem hún nú gegnir í hinum
frjálsa heimi.
íslendingar telja sér sæmd að
því að eiga slíkan arf ásamt með
Bandaríkjamönnum, og í tilefni
af því að 25 ár eru síðan stofn-
að var til opinberra og mjög vin-
samlegra tengsla milli þjóða
vorra, sendi ég yður og banda-
rísku þjóðinni alúðarkveðjur.
Yðar einlægur
Bjarni Benediktsson.
JorSoziör Guðmnndor
Guðmundssonur í Óleigsiirði
t DAG fer fram jarðarfor Guð-
mundar Guðmundssonar frá
Ófeigsfirði, sem lézt af slysförum
4. október s.l. Verður hann jarð-
settur að Árnesi. Guðmundur var
á 16. ári er hann lézt. Hann var
sonur Guðmundar Péturssonar
bónda í Ófeigsfirði og Elínar
Guðmundsdóttur konu hans.
Guðmundur Guðmundsson var
mesti efnismaður. Hann átti að
fara í héraðsskólann að Reykjum
í haust. En foreldrar hans munu
í þessum mánuðsi flytjast vestur
til Bolungarvíkur. Mikill harmur
er að þeim kveðinn og öðrum
ættingjum ' og venzlamönnum
hins unga pilts, sem féll í blóma
lífsins, með svo sviplegum hætti.
Til fólksins í Ófeigsfirði streymir
í dag hljóðlát samúð mikils
fjölda fólks, sem þekkir til hins
forna höfuðbóls og þess dug-
mikla og drengilega fólks. sem
þar hefur búið.
f aftursæti voru einnig tvítug-
ur píltur og 17 ára stúlka, dóttir
konunnar, Stúlkan er með á-
verka í andliti og fótum og mik-
ið marin. Pilturinn varð ekki
fyrir meiðslum.
Ökumaður Volkswagenbílsins,
tvítugur piltur, sonur konunnar,
slapp ómeiddur við áreksturinn.
Ökumaður vörubílsins slapp einn
ig algerlega við meiðsli.
Konan og stúlkan, sem sat
hségra megin aftur í, voru fluttar
í Landsspítalann, en dóttirin til
rannsóknar í Slysavarðstofuna.
Volkswagenbíllinn er mjög
mikið skemmdur, ef ekki ónýt-
ur, en vörubíllinn er lítið
skemmdur.
Vegna hinna alvarlegu meiðsla
konunnar hefur rannsóknarlög-
reglan beðið blaðið að bíða með
birtingu nafna.
Fréttin um
kortafundinn
FKÉTTIN um kortafundinn mikla, sem Morgunblaðið
birti sl. laugardag, hefur að vonum vakið gífurlega
athygli. í blaðinu í dag er skýrt nánar frá staðreynd-
um málsins, en samkvæmt þeim hníga öll rök að því,
að kortið sanni siglingar norrænna manna til Vestur--
heims. Er því ekki einungis um að ræða „merkasta
kortafund aldarinnar“, heldur er hér um að ræða eina
merkustu frétt aldarinnar í augum Isleiidinga.
Tvö Reykjavíkurblaðanna réðust á sunnudag á
Morgunblaðið fyrir birtingu fréttarinnar og segja, að
það hafi verið gert í heimildarleysi. Auðvitað er á-
stæðulaust að elta ólar við slíkar bollaleggingar, enda
birti Ríkisútvarpið fréttina á sunnudag frá norsku
fréttastofunni NTB, svo að þá hefði hún einnig átt að
brjóta af sér samkvæmt áliti Reykjavíkurblaðanna
tveggja (sem fullyrtu, að ekki mætti minnast á málið
fyrr en í gær, mánudag). Auk þesá má benda á, að
fréttar þessarar er getið í Norðurlandablöðum fyr-
ir helgi, t.d. í Berlingatíðindum (á föstudag) og í
Politiken (á sunnudag, sú frétt virðist þó vera mjög
brengluð).
Morgunblaðið frétti af máli þessu á föstudag, eða
áður en fréttatilkynningin frá útgáfufyrirtækinu barst
íslenzkum blöðum í hendur, bað fréttaritara sinn í
London að hafa samband við útgáfufyrirtækið og leita
nánari fregna af þessum merka kortafundi. Var það
auðsótt mál og gaf útgáfufyrirtækið upplýsingar um
það, sem spurt var um og skýrði m.a. frá för sérfræð-
inganna til Noregs til þess að skýra frá fréttinni. Hef-
ur för þeirra til Noregs (sem ekki er minnzt-á í frétta-
tilkynningunni) ekki vakið hvað minnsta athygli hér
vegna deilna um það, hvort Leifur hafi verið Islend-
ingur eða Norðmaður.
En hvað sem því líður taka NTB-fréttin í íslenzka
Ríkisútvarpinu á sunnudag og upplýsingar þær, sem
Morgunhlaðið fékk hjá hinu erlenda forlagi á föstu-
dag af allan vafa um, að rétt hafi verið að geta um
fréttina á laugardag, degi Leifs heppna, eins og Morg-
unblaðið gerði. Er augljóst að snnars hefði fréttin bor-
izt íslendingum frá útgáfufyrirtækinu fyrir milli-
göngu NTB-fréttastofunnar'norsku.
14 hafa viðurkennt eignaraðild
að smygivarningnum í Langjökfi
ÖIBum skipverium hefur verið
sleppt úr liaidi
Fyrri hluta ágúst sl. fann toll-
gæzlan mikið magn af óleyfi-
Iega innfluttu áfengi og tóbaki
í ms Langjökli við komu skips-
ins til Reykjavíkur frá útlönd-
um. Var málið kært til saka-
dóms. Margir skipverja voru
úrskurðaðir í gæzluvarðhald og
var hinn seinasti þeirra látinn
laus úr haldi sl. laugardag.
Niðurstaða rannsóknarinnar
er meðal annars þessi: 14 skip-
verjar hafa viðurkennt að hafa
smyglað í þessari ferð skips-
ins samtals 2940 flöskum af
genever, 990 flöskum af gin, 19
flöskum af öðru áfengi svo og
125.400 vindlingum og 200 smá-
vindlum. Voru skipverjar ýmist
sex, tveir eða einir síns liðs hér
að verki. >eir áttu mjög mis-
munandi mikið magn af -varn-
FÉLÁGSHEIMIU
Opið hús í kvöld
Nýtízkuleg húsakynni
Veitiiigar
Tónlist
HEIMDALLAR
ingnúm, sumir aðeins vindlinga
eða fáeinar flöskur en aðrir
nokkur hundruð flöskur og einn
kveðst hafa átt samtals 642
áfengisflöskur og 30 þúsund
vindlinga. Varningurinn var fal
inn á 12 stöðum víðsvegar í skip
inu, bæði 1 farmi, í vistarverum
Góð síldveiði í
Sondunam
í GÆR var góð síldveiði inni
í Sundum. Voru komnir þrír
bátar að bryggju hér í Reykja-
vík í gærkvöldi með góðan
afla allt að 300 tunnur á bát, en
þarna er um litla báta að
ræða.
og vinnustöðum skipverja milli
þilja, í geymslum, loftræstingu
svo og í tvöföldum rúmbotni.
Skipverjar segjast" hafa keypt
geneverinn mestmegnis í Hol-
landi á sem svarar 24—25 ís-
lenzkar krónur flöskuna og að
nokkru í Þýzkalandi fyrir lítið
eitt hærra verð, en ginið hafi
þeir keypt í Bandaríkjunum á
sem svarar um 43 krónur flösk-
una.
Þeir skipverja, sem mest
áfengismagn áttu, hafa viður-
kennt að hafa ætlað það til sölu
hér á landi en þeir hafa stac-
fastlega neitað því að kaupandi
hafi verið ákveðinn.
ítarleg rannsókn hefir farið
fram í því skyni að staðreyna
hvort einhverjir í landi háfi
átt hlutdeild í fyrrgreinöu
áfengis- og tóbakssmygli svo og
hvort hér hafi verið um fram-
hald á fyrri smyglstarfsemi skip
verja að ræða.
Rannsókn málsins er nú lokið
og verður það sent saksó'knara
ríkisins til ákvörðunar.
(Frá sakadómi Reykjavíkur).
Skotið að 2 mönnum
SKOTIÐ var að tveim mönnum
um fimmleytiö aðfaranótt
sunnudags á bak við Ilótel
Skjaldbreið, er næturvörður
hótelsins var að fylgja gesti í
bakhús, sem þar er. Lenti skotið
í járnvarða hlið hússins, skammt
frá nönnunum.
Að því er Njörður Snæhóím,
rannsóknarlÖgreglumaður, tjá'ði
blaðinu, heyrðu mennirnir skot-
hveli og þótti sem kúlan færi
rétt hjá þeim. Fundu þeir gat
á húshliðinni, sem þeir töldu
geta verið eftir byssukúlu. Gerðu
þeir lögreglunni viðvart. Ekki
uröu þeir varir við mannaferðir.
Njörður kvaðst hafa fundið
riffilkúlu, sem skotið hafði ver-
ið í vegginn. Sagði hann, áð
rannsókn málsins stæði enn yfir.
Það lægi enn óljóst fyrir og
skotmaðurinn ekki fundizt.