Morgunblaðið - 12.10.1965, Qupperneq 3
íriðjudagur 12. oktSber 1965
MORCUNBLAÐIÐ
3
FÉL.AGS- og tómstundastarf-
semi Æskulýðsráðs Reykja-
víkur er nú nýlega hafið. í
tilefni þess 'efndi Æskulýðs-
ráð til almennrar kynningar
á starfsemi sinni á laugardag
síðastliðinn og jafnframt sýn-
ingar á tómstundarviðfangs-
efnum æskufólks að Fríkirkju
vegi 11. Meðal gesta sem sóttu
sýninguna á laugardag voru
ýmsir fulltrúar úr borgar-
stjórn Reykjavíkur. Upphaf-
lega átti henni að ljúka í gær,
en hefur nú verið framlengd
til kl. 10 í kvöld.
Fjölmörg félög og klúbbar
starfa í náinni samvinnu við
æskulýðsráð og má þar nefna
Leikhús æskunnar, en mark-
mið þess er að efla leiklistar-
áhuga æskufólks á aldrinum
15—25 ára. Hyggst klúbburinn
Flokkur úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur kynnti þjóðdansa af ýmsu tagi.
Sýningunni lýkur ■ kvöld kl. 10
Tónlistarklúbburinn lagði einnig fram sinn skerf og lék létt lög fyrir gestn
Vilhjálmur H. Gíslason
hermdi eftir þjóðfrægum
mönnum og gerði mikla
lukku.
Auk þessa sem hér er að
framan nefnt hefur Æsku-
lýðsráð beina eða óbeina
samvinnu við fjölmörg félög
og aðila, sem vinna að æsku-
lýðsmálum, t. d. hin fjöl-
mörgu kirkjulegu félög,
Skátahreyfinguna og íþrótta
félögin, svo eitthvað sé nefnt.
Ungt fólk, sem hefur hug á
að stofna félög eða klúbba
um áhugamál sín er velkom-
ið að leita til framkvæmda-
stjórans, Reynis Karlssonar,
og njóta þeirrar aðstoðar,
sem æskulýðsráð getur veitt.
En víkjum aftur að sýn-
ingunhi á félags- og tóm-
stundastarfsemi Æskulýðs. —
Þar gefur að líta fjölmarga
eigulega hluti, bæði sem unn
ir hafa verið á vegum Æsku-
lýðsráðs í skólum og í klúbb-
unum sjálfum, og má þar
nefna bast- og tóarvinnu,
bein- og homavinnu, flug-
módelsmiði, leðurvinnu o. m.
fl. 1 heild er sýning þessi hin
skemmtilegasta og mjög gott
dæmi um hina miklu og gagn
legu starfsemi Æskulýðsráðs.
Einnig voru ungmennin, sem
skemmtu gestunum við opn-
un sýningarinnar, klúbbum
sínum og Æskulýðsráði til
mikils sóma. Sýningunni lýk-
ur eins og áður segir kl. 10
í k völd.
vinna að þessu markmiði með
almennum félagsfundum, bók
menntakynningum og tilsögn
í leikbókmenntum. Á áður-
nefndri sýningu gafst gesttun
kostur á að sjá nokkrar ljós-
myndir er teknar hefðu verið
af sýmngum klúbbsins og einn
ig kom þar fram par úr
klúbbnum og söng nokkur lög
úr þekktum söngleikjum.
Stjörnuklúbburinn nefnist
annar og er markmið hans að
stuðla að heilbrigðu félagslífi
og vinna gegn notkun áfengis
á skemmtunum æskufólks. Til
gangi sínum hyggst klúbbur-
inn ná með því að halda uppi
fjölbreyttu félagslífi, gangast
fyrir ferðalögum og efla á-
huga félagsmanna á listurn og
menningarmálum almennt. f>á
er einmg starfandi Fugla-
fræðiklúbbur og efnir klúbb-
urinn til fræðslufunda, kvik-
myndasýninga, auk þess sem
hann fer könnunarferðir um
ágrenni borgarinnar.
Á sýningunni gafst gestum
einnig kostur á að heyra
hljómsveitia „Léttir tónar“
leika undir stjórn Karls
Jónatanssonar, en markmið
tóhlistarklúbbsins er að efla
tónlistaráhuga æskufólks og
kynna því bæði sígilda og
þjóðlega tónlist, auk nútíma-
tónlistar og danslaga. Klúbb-
urinn hefur í hyggju að
mynda stóra hljómsveit sem
leikið geti sem fjölbreyttasta
tónlist, og er hljómsveit sú er
sýningargestum gafst kostur
á að heyra í fyrsti vísirinn
að henni.
Einnig má nefna Borðtenn
isklúbbinn, en hann vill efla
áhuga æskufólks fyrir borð-
tennis. Þá mun Æskulýðsráð
nú eins og undanfarna vetur
efna til námskeiða í sjóvinnu
og hefjast þá í lok október.
Starfsemi flestra fyrr-
nefndra klúbba fer fram að
Fríkirkjuvegi 11.
í golfskálunum í Öskjuhlíð
er annað tómstimdaheimili
Æskulýðsráðs og þar hafa
þrír klúbbar starfsemi sína
til húsa. Er þar fyrst að
nefna vélhjólaklúbbinn Eld-
ingu, en hann efnir til
fræðslu- og skemmtifunda.
í>á er einnig verkstæði á veg
um kiúbbsins, þar sem fé-
lagar geta unnið að viðgerð-
um hjóla sinna flest kvöld
vikunnar.
Bifreiðaklúbbur Reykjavík
ur er tiltölulega nýr af nál-
inni, stofnaður í fyrra, en
markmið hans er að veita
félagsmönnum aðstöðu til
eigin viðgerða á bifreiðum
sínum, efna til akstursæfinga
og stuðla að hópferðum um
landið á vegum klúbbsins.
Einnig heldur hann fræðslu-
og skemmtifundi. Þriðji
klúbburinn sem hefur starf-
semi sína til húsa í golfskál-
anum í Öskjuhlíð er Flug-
módelklúbbur Rvíkur og er
vinnustofa klúbbsins opin
flest kvöld vikunnar. Um-
sjónarmaður með starfsem-
inni í golfskálanum er Jón.
Pálsson.
Reynir Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Æskulýðsráðs.
Kynning á starfsemi Æskulýösráös
STAKSTFII\iAR
Framsóknar-
afturhaldið '
Þótt Framsóknarflokkurinn
hafi jafnan reynt að nudda sér
utan i ýmsa frjálslynda flokka
í Bandarikunum og Vestur-
Evrópu, i þeirri von, að kjós-
endur telji eitthvað líkt meS
Framsóknarflokknum og þeim,
sýnir þó saga Framsóknarflokk*
ins og verk hans allt annað. Hin
dauða hönd Framsóknaraftur-
haldsins lá eins og mara á þjóð-
inni á þeim tima, sem Fram-
sóknarflokkurinn var mest ráð-
andi um stórnmál í landinn
og hefti athafnaþrá hennar.
Greinilegast af öllu er þetta þó
á ákveðnum landsvæðum á ís-
landi, þar sem Framsóknarmenn
hafa verið mikils ráðandi um
langan aldur réðu Framsóknar-
menn ríkjum á Austurlandi og
í Strandasýslu. Allir vita, að
þessir landshlutar drógust langt
aftur úr öðrdm hlutum landsins,
í framförum og uppbyggingu.
Hin dauða hönd
Það var í rauninni ekki fyrr
en fyrir rúmlega hálfum áratug,
að Austurland fór að rétta úr
kútnum eftir þriggja áratuga
yfirráð Eysteins Jónssonar. Sér-
staklega drógst. landbúnaðurinn
í þessum landshluta aftur úr
landbúnaðinum annars staðar í
landinu, þótt víða á Austurlandi
séu mjög búsældarleg héruð.
Ástæðan fyrir þessu var fyrst
og fremst sú, að Framsóknar-
foringjarnir á Austurlandi héldu
bændunum niðri af ráðnum hug.
Þegar aðrir bændur á íslandi
hófust handa um mikla rækt-
un og uppbyggingarstarfscmi
skömmu eftir styrjöldina, ráð-
lagði kaupfélagsstjóri einn á
Austurlandi bændunum þar að
geyma peningana sína í kaupfé-
laginu fremur en að leggja þá
í framkvæmdir. Afleiðingin
varð sú, að það var ekki fyrr en
Iangt var liðið á sjötta áratug
aldarinnar, að verulegar fram-
farir hófust í landbúnaði á Aust-
urlandi. Hin dauða hönd Eysteins
Jónssonar og Framsóknaraftur-
haldsins sá fyrir því að Aust-
firðingar bjuggu ekki við eins
miklar framfarir og aðrir lands-
menn. Sömu sögu er að segja
úr Strandasýslu, þar sem Her-
mann Jónasson var um áratugi
einráður. Þar eru einnig búsæld-
arleg héruð, en Hermann sá fyrir
því, að Strandasýsla drógst langt
aftur úr öðrum hlutum Vest-
fjarða í uppbyggingarstarfsemi,
vegalagningu og almennri fram-
faraþróun. Hin dauða hönd Her-
manns og Framsóknarafturhalds-
ins sá fyrir því, að Strandamenn
bjuggu við verri hag en aðrir
landsmenn.
Verkin tala
f báðum þessum landshlutum
hafa orðið geysimiklar framfarir
á undanförnum árum. Sildin
hefur auðvitað átt mikinn þátt i
að skapa velsæld á Austurlandi,
en það frelsi sem núverandi
ríkisstjórn hefur veitt mönnum
til athafna hefur haft hvetjandi
áhrif. Vegalagnir í Strandasýslu
hafa stóraukizt, og nú nýlega
hefur Árneshreppur komizt i
vegasamband við aðra hluta
landsins. En ólukkufuglar Fram-
sóknarafturhaldsins hafa enn sin
áhrif víða í landinu. í Kópavogi
ræður framkvæmdaleysið ríkj-
um og hin dauða hönd Fram-
sóknarafturhaldsins sem þar er
í samvinnu við kommúnista
hefur sett sitt mark á þennan
unga kaupstað. Framsóknaraftur
haldið lætur ekki að sér hæða,
verkin tala ,og má með sanni
segja, að verkin sýni að mesti
afturhaldsflokkur á íslandi er
Framsóknarflokkurinn, sem svo
sannarlega ber ekki nafnið með