Morgunblaðið - 12.10.1965, Blaðsíða 6
6
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. október 1965
Páll frá Þverá og kona hans
arfleiöa Verzlunarráö íslands
Stofnaður skal sjóður til að efla hag
íslenzkrar verzlunarstéttar
í SKÝRSLU þeirri, er Þorvarður
Jón Júlíusson, framkvæmdastjóri
Verzlunarráðs íslands, flutti á
aðalfundi Verzlunarráðsins sl.
föstudag skýrði hann frá arf-
leiðsluskrá hjónanna Hallfríðar
Proppé og Páls Stefánssonar fra
Þverá, þar sem þau arfleiða
Verzlunarráð að eignum sínum.
Segir svo í arfleiðsluskránni:
„Við undirrituð hjón, ég P.
Stefánssön frá Þverá og ég Hall-
fríður Stefánsson, fædd Proppé,
sem eigum enga afkomendur,
gjörum hérmeð svofellda
Arfleiðsluskrá:
Hvort okkar sem lengur lifir
skal erfa það, sem fyrr deyr, að
öllum eignum þess, föstum og
lausum.
Eftir lót þess okkar, sem leng-
ur lifir, skulu allar skuldiausar
eignir dánarbúsins ganga til
Verzlunarráðs íslands. Skal Verzl
unarráðið stofna sjóð af erfða-
fjármununum, sem nefnist SJÓÐ
UR FRÍÐU PROPPÉ og P.
STEFÁNSSONAR FRÁ ÞVERÁ.
Fjárhagsár sjóðsins skal teljast
frá 7. marz ár hvert til jafnlengd
ar næsta ár, og stjórnar Verzlun-
arráðið sjóðnum og annast um
ávöxtun fjármuna hans, á sem
tryggilegastan hátt. Verði fjár-
munir dánarbús arfleiðanda þess,
er lengur lifir, að einhverju leyti
fasteignir eða verzlun í rekstri,
skal Verzlunarráðið annað hvort
sjá um að ná sem mestum arði
af fasteigninni og reka verzlun-
ina áfram á sem haganlegastan
hátt, eða selja þessar eignir
Iþannig, að sem bezt verð fáist
fyrir þær, allt eftir þvi sem væn
legast má telja fyrir sjóðinn. Þó
má hvorki verzlun né fasteignir
búsins komast í hendur neinnar
einkasölu né samvinnufélags til
eignar né umráða.
Verzlunarráðið annast um
styrkveitingar úr sjóðnum sam-
kvæmt því, er segir hér á eftir,
en styrkveitingar skulu fara
fram 18. maí það ár, sem styrkur
er veittur i fyrsta sinn 18. maí
1969.
Tilgangur sjóðsins skal vera að
efla hag hinnar íslenzku verzl-
unarstéttar ,vernda rétt hennar í
hvívetna, efla frjálsa verzlun i
landinu og vinna gegn hvers kon
ar verzlunarófrelsi, ríkiseinka-
sölu og sérréttindum einstakra
verzlunarfyrirtækja, sem njóta
skattfrelsins eða annarra hlunn-
inda um fram kaupmenn, þar á
meðal samvinnufélg og kaup-
félaga, sem reka jöfnum höndum
innflutning og útflutning eða
vöruskiptaverzlun.
Til þess að ná þessu markmiði,
sem sjóðnum er samkvæmt fram
anskráðu ætlað, má Verzlunar-
ráðið verja árlega allt að helm-
ing tekna sjóðsins gegn jöfnu
framlagi frá hinni íslenzku verzl-
unarstétt. Af þessu fé má á ári
hverju veita 1-2 ungum mönn-
um úr verzlunarstéttinni styrk til
framhaldsnáms í verzlunarfræði
í enskum eða amerískum verzlun
arháskóla. Það er skilyrði fyrir
styrkveitingunni, að styrkþegi
hafi gengið í Verzlunarskóla fs-
lands og útskrifast þaðan með
fyrstu einkunn. Ennfremur verð-
ur hann að hafa starfað við eina
af stærri verzlunum eða heild-
verzlunum hér á landi eða að
minnsta kosti 1-2 ár, og hafi hann
góð meðmæli fyrir reglusemi og
áhuga fyrir starfinu og ætli sér
og hafi skilyrði til þess að starfa
hér á landi og í þarfir hinnar
frjálsu islenzku verzlunarstéttar
á eigin ábyrgð eða hjá öðrum,
en ekki í samvinnufélögum, sem
hafa sameinaðan innflutning og
útflutning eða njóta skattfrelsis
eða annara hlunninda umfram
kaupmenn iandsins. Gangi styrk-
þegi síðar í þjónustu einhvers
slíks samvinnufélags eða einka-
sölu, skal hann skyldur að end-
urgreiða styrkinn og skuldlbinda
sig til þess um leið og styrkurinn
er honum veittur.
Sá helmingur árstekna sjóðs-
ins, sem ekki verður notaður ár-
lega samkvæmt þessari máls-
grein, leggst við höfuðstól hans.
Verði eitthvert ár ekki helming-
ur árstekna sjóðsins notaður svo
sem að framan er fyrirmælt,
leggjast allar ónotaðar árstekjur
við höfuðstólinn.
Frá andláti arfleifðanda þess,
er lengur lifir, ber Verzlunarráð-
inu að sjá starfsmanni verzlunar
innar Jóni Proppé og konu hans
fyrir lífvænlegri atvinnu eða líf-
eyri meðan lifa, ef þau lifa arf-
leífendur bæði.
Leggist Verzlunarráð íslands
niður vegna pólitísks ofbeldis og
kúgunar ieða af öðrum ástæðum
svo sem þeim að öll verzlun í
landinu verði einokun ríkis eða
samvinnuféiags með sérréttind-
um umfram kaupmenn, þannig
að frjáls verzlun líði undir lok,
skal framangreindur sjóður
óskiptur falla undir umráð bún-
aðardeildar Háskólans og Búnað
arháskóla íslands, verði hann
Páll Stcfánsson frá Þverá.
stofnaður sem sérstök deild við
Háskólann. Skal þá helming
vaxta sjóðsins árlega varið til
þess að styrkja efnilega kandi-
data frá téðri búnaðardeild eða
búnaðarháskóla til framhalds-
náms við erlendan búnaðarhá-
skóla aðallega á Norðurlöndum,
en þó ekki í Þýzkalandi. Háskóla
ráð veitir styrkinn eftir sömu
reglum og að framan segir um
verzlunarstyrkinn eftir þvi sem
við getur átt, og er skylt að end-
urgreiða styrk, sem veittur er
samkvæmt þessari málsgrein,
Hallfríöur Proppé
sömu tilfellum og skylt er að end
urgreiða verzlunamámsstyrki.
Það okkar hj^.a, sem lengur
lifir, má ekki með arfleiðsluskrá
eða dánargjörningi ráðstafa eign-
um þeim, er það fær samkvæmt
þessari arfleiðsluskrá, og ekki
getur heldur annað okkar breytt
ákvæðum hennar í lifenda lífi
okkar beggja nema með sam-
þykki hins.
Reykjavlk, 6. maí 1942.“
Eignir dánarbúsins, sem arf-
•leiðsluskráin nær til, námu alls
rúmlega 556 þús. kr.
Greinargerð stúdentaráðs
iiin tannlæknad eildina
Stúdentaráð Háskóla íslands
viH vekja athygli á því vand-
ræðaástandi, sem skapazt hefur
við Tannlæknadeild Háskóla Is-
lands nú í haust við það, að
ákveðið hefur verið, að deildin
taki ekki við neinum nýjum
stúdentum. Hefur Stúdentaráð
kynnt sér alla málsmeðferð
vandlega og aflað sér tilheyr-
andi gagna.
Lagt hafði verið til fyrir
tveimur árum, að leitazt yrði
við að útskrifa 12-15 tann-
læknakandidata á ári, sam-
kvæmt athugunum Guðjóns
Hansens tryggingafræðings, til
að reyna að bæta úr þeim
mikla tannlæknaskorti, sem
ríkt hefur. Síðustu árin hafa
verið teknir inn í deildina ár-
lega 8-10 stúdentar, en um það
bil helmingi fleiri hvort árið í
fyrra og hittiðfyrra. Námstím-
inn er áætlaður 6 ár, og eru það
síðari 4 árin, sem skapa aðal-
vandamálið, en kennslan krefst
þá afar mikils húsnæðis og út-
búnaðar. 1 fyrra var áformað að
taka inn í deildina 8 stúdenta,
en fyrir tilstilli menntamála-
ráðuneytisins voru teknir inn 15
á grundvelli loforðs ráðuneyt-
isins um stóraukinn fjárhagsleg
an stuðning við deildina. Deild-
in hefur verið til húsa í Land-
sptíalanum í leiguhúsnæði, sem
löngu er orðið alltof lítið, og
þar á ofan bætist, að útlit er
fyrir, að deildin þurfi að víkja
úr húsnæðinu að ári. Forsvars-
menn deildarinnar litu því svo
á í fyrra, að með loforði ráðu-
neytisins væri við það átt, að
húsnæðisvandamál deildarinnar
yrðu leyst. Upp úr 15. sept. kom
í ljós, að þessi skilningur for-
svarsmanna deildarinnar var
rangur, þar eð ráðuneytið lét
í ljós, að það hefði aðeins ætl-
að að veita þennan fjárhags-
lega stunðing til rekstur deild-
arinpar ,en ekki til að leysa hús
næðisvandamálið, enda teldi
það, að vandamál ætti Háskóli
íslands að leysa sjálfur með
eigin fé.
Fyrir liggur áætlun. frá síð-
• Skattlagning á
Suðurnesjavegi
Velvakanda hafa borizt
bréf frá Suðurnesjamönnum,
þar sem mótmælt er fyrirhug-
aðri skattlagningu umferðar á
hinum nýja og steypta Suður-
nesjavegi. Segja bréfritarar, að
einkennilegt sé að skattleggja
þá eina landsmanna fyrir veg
um byggðarlag sitt, ekki sízt
þegar tillit sé tekið til þess,
hve mikill hluti þjóðartekn-
anna verði til þar í verstöðv-
unum.
• Venus skrifar
Velvakanda
Þá hefur Unglingaklúbb-
urinn Venus sent þessum dálk-
um bréf, þar sem kvartað er
undan því, hve lítið sé gert
fyrir unglinga á aldrinum
13 — 15 ára. Öll hús séu lokuð
fyrir þeim á kvöldin (hvað um
heimilin?), enda sé mikið um
unglinga á götunum á kvöldin.
Ekki sé einu sinni neitt í Ríkis-
útvarpinu fyrir þá að hlusta á,
nema þátturinn ,Lög unga
fólksins", sem sé á miðviku-
dagskvöldum. Hann sé þó ekki
nema í 45 mínútur, en mætti
gjarnan vera klukkutíma. Þá
er þeim tilmælum beint til út-
varpsins, að þátturinn „Með
ungu fólki“ hefjist að nýju.
„Og að endingu, munið: Æskan
í dag, þjóðin á rnorgun".
• Blaðaafgreiðsla
á ísafirði
„ísfirðingur" skrifar i
tilefni af klausu í einu dagblað-
anna um afgreiðslu viðkomandi
blaðs á ísafirði. í klausunni
segir, að þegar eftir komu flug-
vélar sé afgreiðslan opin bæði
*fyrir áskrifendur og þá, sem
vilji kaupa blaðið í lausasölu.
Megi til undantekninga telja, ef
menn geti ekki tekið með sér
blaðið, um leið og þeir fari í
hádegismatinn. Síðan segir „ís-
firðingur“:
„Þarna er einhver misskiln-
ingur á ferðinni, því að dagblöð
in eru yfirleitt ekki tilbúin til
afgreiðslu fyrr en eftir hádegi.
Annars er það ekki mergur
málsins heldur hitt, að blöðin
(þetta á við um öll dagblöðin)
eru ekki borin út til kaupenda,
heldur er ætlazt til að þau séu
sótt á afgreiðslurnar. Ég leyfi
mér að segja að þetta fyrir-
komulag sé algjörlega ófært; til
mikilla óþæginda fyrir kaup-
endur og til stórskammar fyrir
y* : ~
‘f' >t
asta ári um húsnæðis- og tækja-
þörf tannlæknadeildar, ef vel
ætti að vera, og er áætlaður
stofnkostnaður ca. kr. 50 millj-
ónir. Er fráleitt að láta sér til
hugar koma, að Háskóli íslands
geti með eigin fé komið upp
viðunandi húsnæði fyrir deild-
ina í náinni framtíð. Það er þvi
ljóst, að þar verður ríkisfram-
lag að koma til, og það mjög
fljótlega, eigi ekki að skapast
algjört neyðarástand í málefn-
um tannlæknadeildarinnar. Má
t.d. benda á, að útlit er fyrir,
að þegar í vetur komi upp mikl
ir erfiðleika á að sjá öllum stúd-
entum, sem þegar hafa hafið
verklega námið (búnir með tvö
ár), fyrir námsaðstööu hérlend-
is!
Stúdentaráð Háskóla Islands
leyfir sér að átelja harðleja
framkomu menntamálaráöu-
neytisins í þessu máli. Telur
Stúdentaráð, að með þessum
Framh. á bls. 31
umboðsmenn dagblaðanna á
ísafirði.
Laugardaga og sunnudaga eru
afgreiðslurnar opnar smástund
eftir komu flugvélar, sem yfir-
leitt kemur um kl. 1. Ef kaup-
andi hefur ekki aðstöðu til að
komast í afgeiðsluna þessa
stuttu stund, sem hún er opin,
þá er blaðið glatað þann dag-
inn. Virka daga er þetta ástand
jafnvel enn bagalegra, því að
fólk, sem er bundið við vinnu
frá kl. 1 — 6, hefur að jafnaði
engan kost á að fá blöðin. Þetta
fyrirkomulag er því furðulegra,
sem áskriftargjaldið virðist
vera það sama og annars staðar,
þar sem heimsending er inni-
falin. Það skal skýrt tekið fram,
að þetta á jafnt við um öll dag-
blöðin og er hér með skorað
á afgreiðslumenn þeirra að
kippa þessum málum í lag sém
allra fyrst.
— ísfirðingur".
Kaupmenn - Kaupfélög
Nú er rétti timinn til að panta
Raflilööur fyrir veturinn.
Bræ&urnir Ormssonhf.
Vesturgötu 3, Lágmúla 9.
Sími 38820.