Morgunblaðið - 12.10.1965, Side 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. október 195*
!
LlwiiiSilí L.S
ÍMMÉVM ÍÍiUli
mannayfirsextugt
FIMMTI hluti þeirra þingmanna,
sem sæti eiga á 86. löggjafar-
þinginu er kominn yfir sextugt,
en tíundi hluti þeirra er undir
fertugsaldri. Skv. upplýsingum
frá skrifstofu Alþingis eru þessir
þinmenn nú komnir yfir sexutgt:
Bjartmar Guðmundsson, Björn
Jónsson, Hanníbal Valdemarsson,
Hermann Jónasson, Karl Krist-
jánsson, Sigurður Ágústsson,
Sigurður óli ólafsson og Skúli
Guðmundsson.
Undir fertugsaldri eru aðeins
sex þingmenn, Geir Gunnarsson,
Ingvar Gíslason, Jón Skaftason,
Pétur Sigurðsson, Matthías Á.
Mathiesen og Ragnar Arnalds.
Frumvarp til breytingu ú Iögum
um Bjurgrúðusjöð íslunds
Þingforsetar kjörnir á Aiþingi
Birgir Firmsson forseti Sameinaðs
Alþingis, Sigurður Óli Ólafsson forseti
Efri deildar og Sigurður Bjarnason
forseti Neðri deildar
f GÆR var agt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp til laga um
breytingar á lögum nr. 8 14.
fefor. 1961, um Bjargráðasjóð ís-
lands. í greinargerð er fylgir
frumvarpinu segir, að lagt sé til
að framlög sveitafélaga og rík-
issjóðs til Bjargrá'ðasjóðs verði
tvöfölduð. Á þessu ári nema
framlögin samtals ca. 1.9 millj.
króna. Sjóðurinn hefur orðið að
hlaupa undir bagga með bænd-
um, einkum á Austurlandi, nú
á þessu hausti vegna hins mikla
grasbrests, sem þar hefur oi'öið
vegna kals í túnum. Sjóðurinn
—Alfyingi
Framhald af bls. 1.
kostnaður við embættisrekstur
4,2 millj. Til læknaskipunár og
heilbrigðismála 143,8 millj. Vega
mál, samgöngur á sjó, vitamál
og hafnargerðir, flugmál, veður-
þjónusta o.fl. 141 millj. Eftirlaun
og styrktarfé 87,8 millj.
í greinargerð fyrir fjárlaga-
frumvarpinu segir m.a.:
Eftir reynslu ársins 1964 og
horfum um afkomu ríkissjóðs á
þessu ári, var augljóst við undir-
búning fjárlaga fyrir árið 1966,
að miðað við sömu tekjustofna
og óumflýjanlega útgjaldaaukn-
ingu, að óbreyttri löggjöf og fyr-
irsjáanlegum hækkunum verð-
lags og launa, hlyti að verða mik
ill greiðsluhalli hjá ríkissjóði á
næsta ári. Nauðsyn þess að
stöðva hinn alvarlega greiðslu-
halla verður naumast umdeild,
því að hallarekstur ríkissjóðs
hlýtur að hafa óheillavænleg á-
hrif á efnahagsþróunina í land-
inu.
Atvik þau, er ollu greiðsluhalla
ríkissjóðs árið 1964 og fyrirsjá-
anlegum halla 1965, komu til eft-
ir að fjárlög þessara ára voru af-
greidd. Verður auðvitað eigi séð
fyrir fremur nú, hvort efnahags-
þróunin á árinu 1966 hafi áhrif
í svipaða átt, en nauðsynlegt er
að mæta þá slíkri þróun með
skjótum gagnráðstöfunum. —
Grundvallarstefna fjárlagafrum-
varpsins er sú, að útgjöldum rík-
issjóðs á árinu 1966 verði haldið
innan þeirra marka, að unnt
hefur varið í þessu skyni sam-
tals 6,6 milljónum króna þar af
4,2 milljónum króna sem styrk
og 2,4 milljónum króna sem
vaxtalaus lán til 5 ára. Til þess
að geta gert þetta varð sjóður-
inn að taka 3 milljóna króna
lán í Búnaðarbankanum. Af
þessu má ljóst vera, áð tekjur
þær, sem sjóðurinn hefur nú,
hrökkva ekki til þess að veita
slíka aðstoð sem hér um ræðir.
í samfbandi við framangreinda
aðsto'ð sjóðsins ákvað ríkisstjórn
in að beita sér fyrir hækkun á
tekjum sjóðsins.
verði að forðast greiðsluhalla, án
þess að grípa til almennra skatta
hækkana.
Af þessu leiðir, að greiðslu-
jöfnuði verður ekki náð nema
með því að létta útgjöldum af
ríkissjóði og hækka álögur á tak
mörkuðum sviðum. í meginatrið-
um eru ráðstafanirnar þessar:
Fjárfestingarframlög verði svip
uð og á þessu árL
Hækkað hefur verið verð á á-
fengi og tóbaki.
Fellt verði niður að fullu beint
framlag ríkissjóðs til vegagerða,
en -fjárins aflað með hækkun á
benzín-skatti.
Létt verði af ríkissjóði að
greiða rekstrarhalla Rafmagns-
veitna ríkisins, en raforkuverð
hækkað sem því nemur.
Hækkaðar verðí ýmsar auka-
tekjur ríkissjóðs.
Lagt verði sérstakt gjald á far-
seðla til utanlandsferða, að und-
anskildum farseðlum námsmanna
og sjúklinga.
Eignarskattur verði hækkaður
til að standa straum af framlög-
um til húsnæðismála, svo sem
efnislega var samþykkt á síðasta
þingi.
Útgjöld ríkissjóðs á árinu 1966
verða skv. frv. 252.7 millj. kr.
hærri en í fjárlögum ársins 1965.
Þessi samanburður er þó ekki
raunhæfur fyrir þá sök, að fram
lög til fjárfestingar voru síðar
lækkuð um 20%, eða um 85 millj.
kr. til þess að mæta útgjalda-
auka vegna aðstoðar við sjávar-
útveginn skv. L nr." 34/1965, alls
Á FUNDI í Sameinuðu Alþingi
og deildarfundum í gær fór fram
kosning þingforseta. Forseti sam-
einaðs Alþingis var kjörinn Birg-
ir Finnsson, forseti Efri deildar,
Sigurður óli Ólafsson og forseti
Neðri deildar, Sigurður Bjarna-
son.
Halldór Ásgrímsson, aldursfor-
seti þingmanna stýrði fundi í
Sameinuðu Altþingi er hófst kl.
1.30 í gær, en skrifarar voru til-
nefndir Ólafur Björnsson og
Skúli Guðmundsson.
55 millj. kr., og 6.6% launahækk-
un öpinberra starfsmanna um 65
millj. kr. Yantaði því 35 millj.
kr. á að lækkun fjárfestingar
liða nægði til að mæta þessum
útgjöldum. Er því útgjaldahækk-
unin frá fjárlögum þessa árs
raunverulega um 217.7 millj. kr.
Tekjuáætlun frv. er byggð á
athugunum Efnahagsstofnunar-
innar í ágústmánuði. Er óhætt að
fullyrða, að sú áætlun er þanin
til hins ítrasta, þannig, að þar er
ekkert frekara svigrúm til hækk
unar.
Við samanburð á einstökum
greinum frumvarpsins og fjár-
lögum yfirstandandi árs, bér að
hafa í huga, að upphæðir þær,
er standa í fjárlögum, eru ekki
ætíð sömu upphæðir og þær, sem
raunverulega voru greiddar á
þessu ári, vegna þess að fram-
kvæmdur var 20% niðurskurður
ur á flestum fjárfestingarliðum.
Auk þess er áætlún fyrir 3%
vísitöluuppbót á laun á 19. gr.
fjárlaga í einni tölu. Á móti kem
ur, að áætlun fyrir 4% grunn-
launahækkun starfsmanna rík-
isins, er kom til framkvæmda 15.
júlí s.l., og um 1% hækkun á
kaupgreiðsluvísitölu, og er þá
miðað við vísitöluna, eins og hún
var 1. júní s.l., þar af hafði ver-
Forseti Sameinaðs Alþingis
var kjörinn Birgir Finnsson (A)
með 30 atkvæðum, Karl Krist-
jánsson (F) hlaut 17 atkvæði og
Hannibal Valdimarsson (K)
9. Sigurður Ágústsson (S) var
kjörinn fyrsti varaforseti með 30
atkvæðum. 27 seðlar voru auðir
og annar varaforseti var kjörinn
Sigurður Ingimundarsson (A)
með 30atkvæðum, 27 seðlar voru
auðir.
Þá voru haldnir deildafundir
ið áætlað fyrir 3% hækkun henn-
ar á 19. gr. fjárlaga í ár, eins og
fyrr segir, sem var nokkurn veg-
inn í samræmi við hækkun henn
ar 1. marz s.l., en þá hækkaði
hún um 3.05%. Ástæðulaust þyk
ir að rekja hækkanir á einstök-
um launaliðum frumvarpsins, er
verða á þessum sökum, en þær
breytingar á rekstrarútgjöldum,
er mestu máli skipta, eru eftir-
farandi, og er þá tekið tillit til
niðurskurðar fjárfestingarliða í
núgildandi fjárlögum.
Dómgæzla og lögreglustjórn
hækkar um 20 millj. kr., m.a.
vegna aukinnar löggæzlu. Fram-
lag til vegamála lækkar um 38
millj. kr., en gert er ráð fyrir
því, að vegasjóði verði bættur
upp sá teknamissir með hækkun
innflutningsgjalds af benzíni.
Kennslumál hækka verulega að
vanda eða um 53 millj. kr. Kem-
ur þar m.a. til árleg nemenda-
fjölgun og sú kennarafj ölgun, er
af henni leiðir, svo og hækkun
fjárveitinga til skólabygginga.
Landbúnaðarmál hækka um 21
millj. kr., aðallega vegna auk-
innar jarðræktarframlaga. Raf-
orkumál lækka hins vegar um 39
millj. kr., þar eð gert er ráð fyr-
ir því, að ríkissjóður standi ekki
lengur undir . hallarekstri Raf-
magnsveitna ríkisins.
Frumvarp um úrbætur í Húsnæðis-
málum láglaunafólks
lagt fram I gær — Fasteignamat
til eignaskatts sexfaldað
1 GÆR var lagt fram á Alþingi
frumvarp til laga um breytingu
á lögum um Húsnæðismálastofn-
un ríkisins. Efnislega er frum-
varp þetta í samræmi við yfir-
lýsingu þá, er ríkisstjórnin gaf
í sumar um húsnæðismál í
sambandi við samninga verka-
lýðsfélaganna um kjaramál. Er
þar gert ráð fyrir sérstökum úr-
bótum í húsnæðismálum lág-
launafólks. Ennfremur eru í
frumvarpinu ákvæði um sex-
földun fasteignamats til eigna-
skatts.
Með frumvarpinu er ráð fyrir
þvi gert, að ríkisstjórnin fái
heimild tiá að láta byggja hag-
kvæmar ódýrar íbúðir í fjölbýl-
iShúsum í samvinnu við lilutað-
eigandi sveitarfélög. íbúðir þess-
ar skulu vera vandaðar, hag-
kvæmar og stáðlaðar án ótþarfa
íburðar. Þá eru ákvæði um, að
hámarkslán Húsnæðismálastjórn
ar skuli framvegis hækka eða
lækka í samræmi við vísitölu
byggingarkostnaðar 1. júlí 1964.
Þó er heimilt að veita hærri lán
til efnalítiila meðlima verkalýðs
félaganna og skal í því skyni
verja 15—20 milljónum kr. ár-
lega af tekjum byggingarsjóðs
ríkisins. Láglaunafólk í verka-
lýðsfélögunum skal hafa for-
kaupsrétt að íbúðum þeim, sem
byggðar eru skv. framansög'ðu
og er heimilt að veita meðlim-
um verkalýðstfélaga lán tiil kaupa
á íbúðunum, sem nemur 4/5 hlut
um af verðmæti ibúða og skal
þá telja gatnagei'ðargjald með
verðmæti íbúða.
Lán þessi skulu vera til 33 ára
afborgunarlaus fyrstu 3 árin, en
endurgreiðast á 30 árum. Kaup-
andi skal hafa greitt 5% aif verð
mæti íbúðarinnar einu ári áður
en honum verður afhent fullgerð
íbúð, en 16% ber honum að
greiða með jöfnum afborgunum
næstu þrjú árin.
Sem fyrr segir eru ákvæði í
frumvarpi þessu um sexföldun
fasteignamats til eignaskatts en
í athugasemdum við frumvarpi'ð
segir, að hækkun fasteignamats,
sem samþykkt var á síðasta
þingi hafði gefið 16—19 millj.
kr. Vanti því 21—24 mililj. kr.
upp á framlagið. Er því lagt til
,að fasteignamat verði þrefaldað
í þessu sambandL
og stýrðu aldursforsetar deild-
anna fundi, í efri deild Sigurð-
ur Óli Ólafsson (S) og í neðri
deild Halldór Ásgrímsson (F).
Forseti Efri deildar var kjörinn
Sigurður Óli Ólafsson (S) með 11
atkvæðum, fyrsti varaforseti Jón
Þorsteinsson (A) með 11 atkvæð-
um og annar varaforseti Þorvald
ur Garðar Kristjánsson (S) með
11 atkvæðum.
Forseti Neðri deildar var kjör-
inn Sigurður Bjarnason (S) með
19 atkvæðum, fyrsti varaforseti
Benedikt Gröndal (A) með 19
atkvæðum og annar varaforseti
Jónas Rafnar (S) með 17 atkvæð
um. Skrifarar Efri deildar voru
kjörnir þeir Bjartmar Guðmunda
son (S) og Karl Kristjánsson (F)
og skrifarar Neðri deildar Matthl
as Bjarnason (S) og Sigurvia
Einarsson (F).
Útgjöld til félagsmála hækka
um 106 millj. kr. í því sambandi
ber að hafa í huga, að á 19. gr.
núgildandi fjárlaga er í liðnum:
„hækkun útgjalda vegna áætl-
aðrar 3% launahækkunar" gert
ráð fyrir 16.4 millj. kr. vegna
hækkunar á almannatrygging-
um, og verður hækkun á félags-
málum samkvæmt" frumvarpinu
þá um 90 millj. kr. og stafar raun
ar að langmestu leyti af hækk-
un á almannatryggingum.
Gjöld samkvæmt 19. gr. hækka
um 111 millj. kr. Munar þar mest
um liðinn: „hækkun útgjalda
vegna launahækkunar“, 100 millj.
kr., er kemur í stað áðurnefnda
liðar vegna 3% áietlaðrar hækk-
unar á kaupgreiðsluvísitölu, að
upphæð 42 millj. kr. Auk þess
hækka niðurgreiðslur um 16
millj. kr. og útflutningsuppbæt-
ur um 26 millj. kr.
Útborganir á 20. gr. lækka um
21 millj. kr. miðað við núgild-
andi fjárlög, en hækka raunveru-
lega um 3 millj. kr. þegar tekið
er tillit til niðurskurðar á fram-
lögum til verklegra framkvæmda
á yfirstandandi árL
Lóntaho vegna
vega og flugvalla
í gær var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um heimild
fyrir ríkisstjórnina tiil lántöku
vegna vega og flugvallargerða.
Er það frumvarp til sta’ðfesting-
ar á bráðalbirgðalögum er gefin
voru út 8. júlí s.l. en þar kveður
á um að ríkisstjórninni sé heim-
ilt að taka ián, allt að 60 mill-
jónum króna vegna flugvalla og
vegagei'ða á Vestfjörðum og
vegna lagningar Reykjanesbraut-
ar.
Voromenn taha
sæti d þingi
TVEIR varaþingmenn táka nú
sæti á Alþingi. Eru það Ragnar
Jónsson skrifstofustjóri er tekur
sæti Davíðs Ólafssonar og Ingi
R. Helgason lögfræðingur er
tekur sæti Edvarðs Sigurðssonar,