Morgunblaðið - 12.10.1965, Blaðsíða 17
MORGU N BLAÐIÐ
17
Þriðjudagur 12. október 1965
!
i
Rústirnar í Hvítárholti sýna snyrti-
mennsku í hýbýlum fornmanna
FJÖGUR jarðhús frá 10. öld
hafa verið grafin upp í Hvít-
árholti í Hrunamannahreppi,
svo sem frá var skýrt í sunnu-
dagsblaði Mbl., en þar var í
fyrra grafinn upp skáli frá
sama tíma, og í sumar fjós og
hlaða. Hér birtum við myndir,
sem Þór Magnússon, fornleifa
fræðingur, hefur tekið á upp-
graftarstaðnum. Sýnir ein skál
ann, önnur eitt jarðhýsið og
sú þriðja ræsi, sem frá því
liggur. Slíkt ræsi liggur að-
eins frá einu af smáhýsum, og
telur Þór öruggt að það jarð-
hús að minnsta kosti hafi ver-
ið baðstofa
Eitt grafhýsið.
— StoSarholur
. ,.«)» Jjást meðfram
reggnumog
1| eldstæSið t i 1
vinstri.
í jarðhúsinu, sem er 214x3%
m. á stærð, eru meðfram
veggj-um holur undan stoðum
hússins og sjást þær greini-
lega á myndinni. Til vinstri
eru hlóðirnar og sést inn í
þær. Þetta hefur að líkindum
verið gufuibað og segir þór, að
ef til vill hafi gufan fengizt
með því að hita steinana ofan
á hlóðunum og setja þá svo
glóðheita í kalt vatn. Aðspurð
ur hvort hugsast geti að forn-
menn hafi verið svo hreinleg-
ir að þeir hefðu fjögur bað-
hús á einum bæ; sagði Þór, að
óneitanlega hafi fornleifafræð
ingunum fundizt skrýtið að
finna 4 slík smáhýsi, en það
þeirra sem hefði frárennsli
hafi örugglega verið baðhús.
Slík niðurgrafin smáhjýsi hafi
fundizt í Danmörku og séu
menn ekki á eitt sáttir um til
hvers þau hafi verið notuð.
Sumir kalli þau „Affaldsgrub-
er“, þar eð aska og rusl hefur
fundizt í sumum þeirra, aðrir
telja það hafa verið þræla-
geymslur og sumir vefstofur,
því þar hafa fundizt snældu-
snúðar og kljásteinar. Hér
fundust reyndar nokkrir kljá-
steinar við uppgröftinn.
Þriðja myndin, sem hér
fylgir, sýnir hluta af skála-
rústinni. Þar sést röð af stein-
um meðfram veggjum og hol-
baðhúsinu.
ur á milli. Steinarnir, sem
eru meðfram báðum veggjum,
í miðju skálans og dálítið til
endanna, hafa verið til stuðn-
ings undir þiljunum, en hol-
urnar á milli eru undan mjó-
um stoðum. Líklegt að forn-
menn hafi notað birkirafta í
þetta, því þeir hafa ekki flutt
með sér nema nauðsynlegustu
máttarviði. Þessi hýbýli bera
vott um mikla snyrtimennsku.
I miðjum skálanum, sem er
mmnst skemmdur, var snotur
langeldur, heldur, hellur eru
í botni og hellurönd umhverf-
is. Telur Þór það mikinn
skaða að fá ekki þessa rúst
Framhald á bls. 21
I
Yale-kortii er hlekkur
sem lengi hefur skort
— segir Björn Þorsteinsson, sagnfr.
(Fixlanda-kortið): Hér birtist mynd af „fixianda“-kortinu frá
þriðja fjórðungi 15. aldar. Kort þetta markar tímamót í korta-
gerðarsögu íslands, hér faer 1 andið fyrst svip af sjálfu sér
(t. d. sjást eyjarnar á Breiða firði, Vestmannaeyjar o. fl.)
Illa verde (Græna eyjan) er Grænland, en suður af því er
Ila de Brazi, en svo nefndu Bri stol-menn Nýfundnaland á síð-
ari hluta 15. aldar. (Ástæðan til nafngiftarinnar er m. a. sú,
að Englendingar verzlstðu í ó leyfi í dansk- norska ríkinu, og
urðu þessvegna að koma sér u pp nýjum nafngiftum. Lengst
til hægri er írlan(d).
Af samanburði þessara korta og Yale-kortsins sést, hve miklu
framar Yale-kortið stendur öðrum kortum frá þessari öld.
BJÖRN Þorsteinsson, sagnifræð-
ingur flutti fréttaauka í ríkisút-
varpið í gærkvöldi og ræddi
hinn nýja kortafund. Morgunblað
ið hefur fengið leyfi til áð birta
fréttaaukann og fer hann í heild
ihér á etfir:
Með miklum ævintýrum hefur
Jandabréf frá 15. öld komið í
dagsljósið vestur í Bandaríkjun-
um. Þetta er heimskort, sýnir
veröldina, sem vestrænir menn
þekktu um þær mundir er kortið
var dregið: Evrópu, Afríku og
l
Asíu og hluta af Norður-Ame-
ríku, sem ber nafnið Vínland,
og á kortinu kvað standa, að
þann heimshluta hafi þeir fundið
Bjarni og Leifur, en þeir félagar
munu vera íslendingarnir Bjarni
Herjólfsson og Leifur heppni
Eiríksson. Eftir þeim fréttum
sem borizt hafa, þá virðist kort-
ið vera ófalsað. Upplýsingar þess
eru auðvitað engin nýlunda, sízt
hér á landi. Fomsögur okkar og
aðrar heimildir sanna, að það
landsvæði, sem við köllum austur
strönd Norður-Ameríku, fundu
og könnuðu Islendingarnir Bjarni
og Leifur á árunum 9S6—990.
Síðan stunduðu Grænlendingar
siglingar þangað vestur a.m.k.
fram undir miðja 14. öld. Svarti
dauði herjaði Evrópu um 1350,
og eftir það er okkur ókunnugt
um ferðir evrópskra manna vest
ur til ameríska meginlandsins
fyrr en Bristolmenn fard í könn-
unarferð þangað, sennilega um
1430.
Það hefur verið skammt milli
stóratburða í landfundasögunni á
síðustu tímum. Árið 1956 fann
bandarískur prófessor, Vigneras
að nafrd, í skjalasafni í Simanca
á Spáni forna skýrslu um sigl-
ingu John Cabots til Nýfundna-
lands 1497, en þar segir m.a., að
Bristolmenn hafi fundið og kann
að austurströnd Kanada í gamla
daga. Þessir gömlu dagar voru
eftir mínum heimildum um 1430,
en aðrir telja þá hafa verið á
árunum 1481—95, en það er önn-
ur saga. Skjalið frá Simanca
taldist til dagsins 1 dag mesta
uppgötvun aldarinnar í Land-
fundasögu Ameríku. Nú hefur
annar atburður orðið engu ó-
merkari.
Simanca-skjalið sannar, að
Norður-Ameríka var þekkt land-
fræðileg staðreynd í Evrópu á
15. öld, áður en Kólumbus fór
sína frægðarför. Bristolmenn
stunduðu miklar siglingar til ís-
lands, og fjölmargt bendir til
þess, að þeir hafi einmitt siglt
héðan til Grænlands og þá vest-
ur yfir Davíðssund. — Yale-kort-
ið staðfestir óvéfengjanlega, að
hin íslenzk-norska landfræði-
þekking er orðin alþjóðleg í
Evrópu um miðja 15. öld. Að
vísu eru til ýmsar aðrar kunnar
heimildir, sem sanna þetta sama.
Hinir vísu menn, sem fjallað hafa
um Yale-kortið, staðhæfa, að það
sé fyrsta landabréf fyrir daga
Kólumbusar, sem sýni einhvern
hluta Ameríku. Þetta er rangt,
því að Grænland er vel merkt
á landabréf þegar um 1427, og
frá miðri öldinni eða sama tíma
og Yale-kortið er til svonefnt
Fixlanda-kort, enskt að uppruna,
sem sýnir bæði Grænland og
eyna Brazil þar suður af, en
Brazil er 15. aldar nafn á Ný-
fundnalandi.
Yale-kortið ætti að vera þeim
mönnum áminning, sem gjarnt
er að véfengja fornar og góðar
heimildir, islenzkar og erlendar.
Adam ad Brimum getur um Vín-
land í bók sinni um Hamborgar-
biskupa seint á 11. öld, og þatf
með var það komið inn í landa*
Framhald á bls. 21
; (Cloudius Clavus) — Hér er hluti af korti Claudiusar Clavus ar frá Fjóni, sem Björa Þor-
steinsson minnis á i þessari g rein sinni. Kortið er frá því um 1430 eða skömmu síðar og sýnir
Grænand, ísland, Bretlandsey jar og Skandinavíu. Kortið er talið gert að undirlagi Eiríks
konungs af Pommern.