Morgunblaðið - 12.10.1965, Page 21
T>riðjudagur 12. október 190S
tyORGU N BLAÐIÐ
21
>jarni Helgasen
Kveðjuorð
t>a'ð vakti athygli vegifarenda
mánudaginn 4. október síðastlið-
inn, að fáni var dreginn í hálfa
stöng á Menntaiskólanum -í
Reykjavík. Maður spurði mann,
hverju þetta mundi sæta, hvort
einhver af hinum gömlu og
þekktu kennurum þess skóla
hefði nú kvatt þetta líf eftir
langan starfsdag.
Svo var þó ekki. Þennan dag
hafði látizt einn af nemendum
skólans, piltur taeplega 17 ára
gamall, á morgni starfsdags,
sem allar líkur bentu til að yrði
giftudrjúgur, ef heilsa og líf
hefði enzt.
Þessi piltur var Bjarni Helga-
Bon frá Silfurtúni í Garðahreppi.
Hann var fæddur í Ólafsvik 12.
nóv. 1048, sonur hjónanna Helga
Björnssonar og Kristínar Gunn-
arsdóttur. Helgi er ættaður úr
Ólafsvík, sonur Björns Jónssonar
sjómanns þar og konu hans
Kristínar Bjarnadóttur, en Björn
var móðurbróðir Alexanders
Stefánssonar kaupfélagsstjóra,
Fríðu Eyfjörð kennara og þeirra
eystkina. Kristín kona Helga er
norðlenzkrar ættar, dóttir Gunn-
ars Marteinssonar bónda í Kast-
hvammi í Reykjadal, en það er
ein grein Reykjahlíðarættar og
náskylt Jóni Sigur’ðssyni í Yzta-
felli. í þessum ættum bæði
nyrðra og vestra er margt af
traustu og vönduðu fólki og vel
greindu, eins og þeir vita, sem
'því eru ki.nnugir. Og Bjami
Helgason sór sig í ættina.
Bjarni fluttist ungur með for-
eldrum sínum í Silfurtún og ólst
þar upp á góðu heimili þeirra
ásamt tveim systrum. Hann
stundáði nám í Flensborgarskól-
anum í Hafnarfirði í þrjá vetur
og þó raunar ekki nema tvo og
hiálfan, því að fyrsta veturinn
'kom hann ekki í skólann fyrr en
eftir nýár vegna veikinda, og
mun það hafa verið sami sjúk-
dómurinn og nú dró hann til
dauða eiftir nokkurra vikna
sjúkrahúslegu. Reyndist Bjarni
ágætur nemendi, þótt heilsan
væri aldrei sterk, hljó'ðlátur og
hlédrægur, en þó góður félags-
maður og gat vel tekið þátt í
góðu gamni, prúður og jafnlynd-
ur, drjúgur vi’ð námið, enda bæði
iðjusamur og prýðilega greindur,
samviZkusamur og vandaður í
vinnúbrögðum. Lauk hann lands
prófi við góðan orðstír vori'ð
1064. Gerðum við kennarar hans
okkur vonir um, að þar gæfist
þjóðfélaginu sfðar nýtur og far-
sæll starfsmaður, sem Bjami
Helgason var.
En þetta hefur farið á annan
veg. Eiftir eins vetrar nám í
menntaskóla er Bjarni horfinn
úr hópi glaðra námssystkina,
1
Sölumaður
sem standa eftir með þunga al-
vöru í huga og eiga erfitt með að
átta sig á því, áð þessi góði,
trausti og elskulegi félagi þeirra
komi aldrei aftur. Söknuður
þeirra er djúpur og sárari en
þau fái komið í orð, ekki sízt
þeirra, sem haifa fylgzt með hon
um í námi nú í fjóra vetur, not
ið ljúfrar nærveru hans í leik
og starfi. En allir, sem þekktu
Bjama, sakna hans og sjá eftir
honum. Og við, sem eldri erum,
skiljum, að þjó'ðlfélagið missir
mikils við fráfall efnilegra ung-
menna eins og Bjarna Helgason-
ar.
Skólasystkin Bjama senda for-
eldrum hans og öðrum vanda-
mönnum innilegar samúðar
kveðjur. Undir þær kveðjur taka
allir, sem honum voru kunnugir.
Megi foreldrum hans verða þáð
huggun í sárum harmi, að þar
áttu þau vammlausan og góðan
dreng, sem Bjarni var.
Óiafur Þ. KrLstjánsson.
— Yale-korfið
Framhald af bls. 17
fræði kirkjunnar á miðöldum og
taldist liggja undir biskupsstól-
inn á Görðum á Grænlandi. Það
hiskupsdæmi glataðist aldrei úr
landafræðinni og þar með ekki
heldur Ameríka. — Menn telja
að Yaie-kortið sé gert á kirkju-
þingi, sem haldið var í Basel í
Sviss 1431—49. En rökin em mér
ekki kunn. Þetta þing sóttu menn
víða að úr kristninni. Það var
þing sameinuðu þjóðanna í þá
daga, og einingin var engu djúp-
stæðari milli þeirra en við eig-
um að venjast. Þar sátu fulltrúar
Eiríks af Pommern, konungs
- íbróttir
hættu við ÍBK markið eftir
þetta.
Hins vegar urðu Keflvíkingar
all ágengir við mark KR er á
leið og tókst reyndar að skora
á síðustu mínútu leiksins, en það
mark var dæmt ógilt vegna rang
stöðu — en sá dómur er ekki auð
skilin af frásögn leikmanna, en
undiritaður var ekki í aðstöðu til
að dæma þar um.
■ár Liðin
Lið KR barðist af miklum
krafti og sýndi mikinn baráttu-
vilja. En knattspyrnulega séð
stóðu þeir að baki Keflvíkingum,
þó sjö leikmanna liðsins hafi leik
ið í landsliðinu. Sveinn Jónsson
var bezt maður liðsins. Ágætan
leik áttu og Gunnar Guðmanns-
son, Gísli markvörður, Örn Stein
sen, Ólafur miðherji og Hörður,
sem þó barðist stundum meir af
kappi en forsjá.
f^flvíkingunum tókst ekki að
sýna sína beztu hlið og hefur
kannski völlurinn háð þeim hvað
mest. Framherjarnir fóru sér oft
of geyst í fyrri bálfleik miðað
við aðstæður og fengu oft hlaup
en engin kaup. Vörnin var betri
hluti utísins svo og hliðarfram-
verðirnir. Sigurvin bakvörður,
Sig. Albertsson, Högni, Guðni og
Kjartan áttu beztan leik. Fram-
herjarnir náðu oft laglegum leik
en Rúnar, Jón Jóh. og Jón Ólafur
glötuðu allir upplögðum tæki-
færum.
— A. St.
Norðurlanda, tveir biskupar, og
var annar sænskur: Nikulás
Ragvaldi. Þegar átti að skipa
þeim félögum til sætis, vandað-
ist málið. Nikulás hinn sænslci,
krafðist að sitja á fremsta bekk,
þar eð hann væri fulltrúi göfug-
ustu þjóðar heims, Gotanna
fornu, sem væru forfeður allra
frægra þjóða, og afrek þeirra
sjálfra reyndust óteljandi. Þing-
ið sendi legáta til Banmerkur,
og þar sannfréttu þeir, að ríki
Eiríks næði til yztu marka verald
ar. Það var ekki á færi neins
kanslara að skrá nöfn allra þeirra
landa og eyja, sem lágu undir
þennan stólkonung,- sem ríkti
m.a. yfir skrælingjum og and-
fætlingum, sögðu þeir. Kirkju-
þingið var öðrum 'þræði skóli
í landafræði og ríkjaskipan. Fátt
hefur mönnum þar þótt forvitni-
legra en fréttir af hinu mikla
veldi konungsins í Kaupmanna-
höfn.
Eiríkur konungur lét gera
merkilegt kort af ríki sínu um
1430. Það er alkunnugt, sýnir
m.a. Grænland mjög vel, og því
fylgir klausa, sem segir, að hægt
sé að sigla vestur frá Noregi
til Kína. Þetta kort kemst í hend-
ur á Paolo Toscanelli, ítölskum
lækni og kortagerðarmanni, ári’ð
1439, en hann gerði svo landa-
bréf fyrir Kristofer Kólumbus
Á 15. öld er ísland mitt í hring
iðu mikilla atburða. Þá situr utan
ríkismálaráðherra Norðurlanda,
Daniel Kepken frá Liége í Belgíu
um skeið á vetrum við hirðina
á Skarði á Skarðsströnd hjá þeim
Birni Þorleifssyni og Ólöfu ríku
Yale-kortið er sá hlekkur, sem
lengi hefur skort til þess að
tengja með fullum myndugleik
forna atburði íslenzkrar sögu við
atburði 15. aldar.
Ég hef reynt að gera það í rit-
gerð í Sögu, tímariti Sögufélags-
ins, sem á að koma út innan
'skamms. Ég hafði ekki hugmynd
um Yale-kortið; þess vegna er
þar margt sagt með varfærni,
sem nú mun teljast fullsannað.
Séð yfir hluta af skálarustunum. Meðfram torfveggnum
er helluröð undan þiljum méð stoðarholum á milli.
— Rústirnar
Framhald af bls. 17.
alveg óskemmda, því slíkir
þiljusteinar með stoðarholum
á milli hafa ekki fundizt hér
áður. Þessi sJsáli mjólskar í
báða enda, en það er einkenn
andi fyrir alla meiri háttar
skála frá Víkingaöld. Setin
eru um 20 sm. hærri í ’skál-
unum í Hvíbárholti en þau voru
jafnan upphækkuð á slíkum
skálum og síðan koma torf-
veggirnir utan um.
óskast frá næstu mánaðamótum. Upplýsingar á
skrifstofunni í dag og á morgun kl. 10—12 og 2—5.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Efnagerð Reykjavíkur hf.
Laugavegi 16.
Atvinna óskast
Stúika vön almennum skrifstofustörfum óskar eWr
atvinnu. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m.
merkt: „Stundvís“.
r *
ODYRT - ODYRT
Drengjabuxur, terylene frá kr. 195,00.
Herrabuxur, terylene kr. 495,00.
Gallabuxur kr. 129,00.
Bílateppi kr. 155,00.
Vmnufatakjallarinn
Barónsstíg 12.
Stú’ka eða piltur
óskast til sendiferða hálfan eða allan daginn. —
Upplýsingar á skrifstofu Friðriks Jörgensen, Ægis-
götu 7, Reykjavík. — Sími 22000.
Husnæði óskast
Viljum taka á leigu ca. 250 fermetra húsnæði fyrir
skrifstofur og verkstæði. — Þarf að vera tilbúið 1.
maí 1966.
Löggildingarstofan,
Skipholti 17, Reykjavík.
Lausar stöður
Stöður tveggja eftirlits- og viðgerðamanna við lög-
gildingarstofuna í Reykjavík, eru lausar til um-
sóknar. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfa
manna. — Umsóknarfrestur til 20. október 1965.
Löggildingarstofan,
Skipholti 17, Reykjavík.
Verðlækkun
Seljum næstu daga barna- og unglingabækur á stór
lækkuðu verði. — Haustið er lestrartími, notið
því tækifærið og kaupið gott lesefni á lágu verðL
Verðlækkun þessi stendur aðeins í nokkra daga.
Bókabúð Æskunnai*
Kirkjuhvoli.
Jólahannyrða-
vörurnar
komnar. Mikið úrval. — Einnig klukkustrengir og
hör. Margt fleira til hannyrða.
Verzlunin Jenny
Skólavörðustíg 13A.