Morgunblaðið - 12.10.1965, Page 31
Þriðjudagur T2. október 1965
MORGUN BLADIÐ
31
Góð rækjuveiði í Dj
RÆKJUVEIÐIN hefir gengið vel
vestur í ísafjarðardjúpi að und-
anförnu. Leyfi var veitt til að
ihefja veiðarnar hinn 1. októ'ber
og magn það sem bátarnir mega
Iberjast um á næstunni er alls
600 tonn. 16 bátar hafa nú þegar
fengið leyfi til rækjuveiða, en
ihver bátur má ekki Veiða yfir
650 kg. á dag.
Veiðin hefir gengið ágætlega
!það sem af er og hafa skipin
fengið aflann við Æðey í ísa-
fjarðardjúpi að því er Böðvar!
Sveinbjörnsson á ísafirði tjáði I
blaðinu í gær. Háfa skipin ekki I
þurft annað en fara út, kasta og
hafa þá þegar fengið það afla-
magn, sem mátt hefir veiða. Nú
munu vera komin um 70 tonn af
rækju á land.
Á ísafirði eru það Niðursuðu-
verksmiðjan h.f. og Niðursuðu
verksmiðja Óla Olsen, sem taka
við síldinni og N.iðursuðúverk-
smiðja Björgvins BjamaS'Onar á
Langeyri. í>á er rækjuverk-
smiðja í Hnífsdal og einnig verk-
ar Einar Guðfinnsson í Bolungar-
vík rækju. Þrjú fyrsttöldú fyrir-
tækin bæði frysta rækjuna ög
sjóða niður, en hin verka aðeins
í frost.
Rækjuveiðin skapar talsverða
atvinnu og t.d. vinna nú 50
stúlkur hjá niðursuðuverksmiðj-
unum á ísafirði. Þar er rækjan
pilluð með höndunum, en á Lang
eyri er notuð vél við pillinguna.
Fólkselkla er nú nokkuð tekin að
há verksmiðjunum.
Stiauk uf
brezkum
Velktusf
Framha’d af bls. 32
hringinn í kringum hana, var
komin þoka. Við keyrðum þá
í áttina þangað sem við töld-
um Heimaey vera, en höfum
farið í aðra átt, því um kl. 4
vorum við komnir upp að
I landi á móts við Landeyjar.
Við keyrðum svo vestur eftir,
alveg upp við land, því svarta
i iþoka var, og um kl. 7—8 vor-
' um við komnir á móts við
Eyrarbakka. Þá bilaði vélin
og stöðvaðist.
f Mikið brot var þarna og
okkur rak í brimgarðinn. Við
reyndum að hamla á móti því
með því að róa eins og við
gátum, en báturinn var of
iþungur. Eftir að við vorum
; lentir í brimgarðinn, var það
tilgangslaust. Við fengum
alltaf ölduna á hlið. Jón krók
ur er lítill bátur, allur opinn,
nema smáskjól á hvalbakn-
um. Við sátum því bara og
breiddum segl yfir þá hliðina,
sem aldan kom inn á, til að
skýla okkur. Þarna höfðum við
verið að velkjast í tvo tíma.
— Kalt? Jú, við vorum
'hundblautir og frekar illa
klæddir. En við vorum allir
með bjargbelti og allir syndir.
Við hefðum bara ekki vitað
hvert við áttum að synda,-því
kolamyrkur var og þoka. Svo
rak okkur á bezta stað upp
í fjöru kl. um 6,30 um morg-
uninn. Báturinn lenti bara
öpp í fjörunni, þar sem sand-
ur er, og óskemmdur. Við
þurftum auðvitað að stökkva
í sjóinn, en gátum vaðið í
land. Svo gengum við upp í
þorpið, þar sem okkur var
mjög vel tekið og hlynnt að
okkur. Og okkur varð ekkert
meint af þessu.
— Eyrbekkingar, kunnugir
staðháttum, segja, að bátinn
muni hafa rekið inn sundið og
eftir þessari erfiðu innsiglingu
og það hafi bjargað ykkur?
— Já, við hljótum að hafa
verið nálægt sundinu. Við
vissum ekkert um það. En það
var háflæði og það er mikill
munur.
Vitað var í Vestmannaeyj-
um, að þeir félagar höfðu far
ið á sjó á Jóni króki og ekki
setlað langt. Þar sem svarta
þoka var, fóru menn að svip
ast um eftir þeim upp úr miðj
um degi. Á sunnudagsgvöldið
var svo hafin regluleg leit.
Björgunarsveitin skipulagði
göngu á fjörur og fóru flokk-
ar allar fjörur á Heimaey.
Lóðsinn fór út að Surtsey og
beið þar átekta í þokunni, og
síldarbátar allir hættu veið-
um og tóku að leita. Það var
ekki fyrr en um morguninn
að boð komu -um að trillan
væri fundin og piltarnix heil-
ir á húfi.
togara
Skipverjarnir af Ág'úsfu í afgreiðslu Flugfélags Islands í gær.
TO'GARINN Ross Fighter kom I
hingað kl. 7 á laugardags- (
kvöld með veikan 1. stýri-
mann, sem hafði brjósklos íj
hrygg. Þá um nóttina strauk I
einn skipverja D. Poxon ogj
fannst ekki fyrr en eftir að!
skipið var farið á sunnudags- ;
morgun. Þá hitti hann um-
boðsmann togarans hér á Ak- (
ureyri, sem spurði hvort hannJ
ætti ekki að biðja togarannj
að snúa við og sækja mann-l
inn, en hann kvaðst aldrei)
mundu með togaranum sigla |
framar.
Litlu síðar hvarf hann úr
) bænum, sníkti sér far með'
(ýmsum bílum og létti ekkij
| fyrr en hann komst til Reykja ,
. víkur. Þar var hann handtek-
:inn um miðnætti í gærkvöldi ’
) og hlaut gistingu í Síðumúla. (
^Frá Reykjavik flýgur hann tilj
j Englands í fyrramálið.
Það er af stýrimanni að
Ísegja, að hann fór aftur með I
togaranum, en á að liggjaj
nokkra daga um borð. —Sv.P. i
llrslit Havana
métsins
ENDANLEG úrslit Havana-skák
mótsins liggja nú fyrir og urðu
þau þessi: 1. Smyslov' 1514 v.
2.-4. Bobby Fiseher, Geller og
Ivkov 15 v. hver. 5. Cholmov
14V2 v. 6. Paohman 13 v.
7. Donner 1214 v. 8. Róbatsch 12
v. 9. Bilek 1114 v. 10. Parma 11
vinninga.
— Agústa sökk
Framhald af bls. 32.
borð og í sumar höfum vi'ð feng-
ið 25 þúsund mál og tunnur. í
þessari ferð vorum við með 700
tunnur í lestum. j — Klukkan mun hafa verið
Guðmundur Frfðriksson skip- j um po þegar við björgúðum
stjóri^ á^ FriðrikLSigurðssyni Lá j skipVerjum af Ágústu. Við höfð-
um heyrt frá þeim kallið og mið-
Þorláksihöfn sagði svo frá í sim
tali við blaðið, en hann var þá
staddur á Seyðisfirði.
1 ]
Agústa VE 350. Myndin tekiner skipið bar nafnið Víðir SU.
(Ljósm.: Snorri Snorrason).
uðum þá strax og þegar vfð feng-
um skipið í ratsjána vorum við
fjórar mílur í burtu. Þegar tvær
mílur voru eftir hvarf skipið,
en áður höfðum við heyrt að
þeir væru að fara í bátana og
skipstjórinn þá einn eftir um
borð að senda síðasta' kall. Þa'ð
var dimm þoka þarna um hálfr-
ar mílu skyggni eða minna, en
við komum beint í brakið og
fundum strax gúmmbátana.
Mennirnir voru óhraktir. Vi’ð
fluttum þá svo hingað til Seyð-
isfjarðar.
Frekari upplýsingar er ekki að
hafa um atburð þennan fyrr ea
sjóprófum er lokið í málinu.
Hóskóloíyrii-
lestiu í
læknisliæði
PRÓFESSOR G. M. Wyburn frá
Glasgow-háskóla flytur fyrir-
lestra fyrir læknanema um efni
úr fræðigrein sinni, líffærafræði,
miðvikudag 13. okt. og fimmtu-
dag 14. okt. kl. 10-11 báða dag-
ana. Fyrirlestrarnir verða fluttir
í I. kennslustofu Háskólans, Þá
flytur prófessor Wyburn enn-
fremur almennan fyrirlestur úr
fræðigrein sinni í I. kennslustofu
föstudag 15. okt. kl. 20.30, og er
sá fyrirlestur fyrir lækna og
læknanema.
Gamla skólahúsið í Reykjane
stjóraíbúðin, hið eina sem n
— Reykjanesskóli
Framhald af bls. 32.
Fátt fólk var á staðnum en
dreif að af næstu bæjum mjög
fljótt.
Skammt frá eldri byggingum
staðarins er nýja heimavistar-
byggingin og er eldhafið var
mest teygðu eldtungurnar sig
langleiðina að því og röðuðu
björgunarmenn sér á milli til
að verja nýju bygginguna ef
þurft hefði. Það er tæplega 8000
rúmmetra bygging.'
Slökkviliðið frá ísafirði kom
inn að Reykjanesi og var komið
þangað um kl. 5.30. Þá voru öll
þök fallin en mikil glóð í gólfum
og slökkti liðið hana.
Hér varð gífurlegt tjón af þess
um eldsvoða, auk þess sem fyrr-
greindar byggingar gerónýttust
Þarna voru tvær stórar ljósavél-
ar sem eyðilögðust, innbú fólks-
ins er bjó í vélahúsinu brann allt,
svo og mikið af byggingarefni,
sem var í leikfimihúsinu vegna
byggingaframkvæmda á staðn-
um. Kennslutæki brunnu öll, svo
sem kvikmyndavélar, segulbands
si. Lengst til hægri er skóla-
ú stendur uppL
tæki, trésmíðatæki og annað er
við kom verknámsdeild skólans.
Einnig brann bókasafn skólans
og hreppsins, sem þarna var til
húsa, svo og elztu skjöl skólans.
Hins vegar voru flest skjöl skól-
ans í skrifstofu skólastjóra í íbúð
hans.
Skólann átti að setja nú á
þriöjudag 12. okt. og eru nemend
ur á leiðinni til okkar. Hefir
skólasetningu verið frestað um
óákveðinn tímá] Á staðnum
verða nú nothæfar aðeins tvær
kennslustofur, sem uru raunar
setustofru í heimavis.tarbygging-
unni og er þar hægt að 'kenna
nærfellt helmingi nemenda. Bú-
ast má við að fyrst í stað verði
aðeins kennt 3. bekk skólans en
nemendur 1. og 2 .bekkjar sendir
heim um sinn.
Reynt verður að hefjast handa
unr framkvæmdir hið allra
fyrsta og verða starfsmenn sem
hingað koma af þeim sökum að
búa í heimavistum nemenda,
sagði Páll skólastjóri að lokum.
Skólahús og kennslutæki voru
vátryggð.
Happdrætti
Háskólans
í GÆR var dregið í 10. flokki
Happdrættis Háskóla íslands,
Dregnir voru 2.500 vinningar að
fjárhæð 4.820.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 200 þús.
krónur, kom á hálfmiða' númer
20.858. Tveir hálfmiðar voru
seldir í umboði Arndísar Þor-
valdsdóttur, Vesturgötu 10, og
hinir tveir voru seldir í umboð-
inu á Akranesi.
100 þús. krónur komu á heil-
miðff númer 49.887 sem voru
báðir seldir í umboði Þóreyjar
3jarnadóttur, Laugavegi 66.
10 þúsund krónur hlutu:
1636 2140 4702 8242 12691
15185 15893 17543 18657 20680
25008 25608 27918 28723 31607
32255 34288 35293 35360 36382
36385 -36435 37478 38252 43725
44720 45579 46126 46663 47379
49973 50366 51549 52542 53166
56431
Aðalfundur Varð-
bergs á fimmtudag
AÐALFUNDUR Varðbergs félags
ungra áhugamanna um vestræna
samvinnu, verður haldinn
fimmtudagskvöldið 14. október.
Athygli félagsmanna er vakin á
breyttum fundartíma, þar sem
áður hafði verið auglýst að fund-
urinn yrði haldinn miðvikudags
kvöldið 13. október. Fundurinn
hefst með borðhaldi í Þjóðlfeik-
húskjallaranum kl. 19.00.
Á fundinum mun Stefán Jó-
hann Stefánsson flytja erindi um
persónulegar minningar úr is-
lenzku utanríkisþjónustunni,
bæði frá ráðherra- og- sendiherra
árum sínum. Að því loknu fara
fram venjuleg aðalfundastörf,
flutt verður skýrsla stjórnar um
starf félagsins á sl. ári, stjórnar-
kjör og fl. (Frá Var'óbergi).
Formaður Verzl-
unarráðs kjörinn
á fimmtudag
SVO sem skýrt hefir verið frá
í frétt hér í blaðinu hefir stjórn
Verzlunarráðs íslands verið kjör-
in. í henni eiga sæti 16 stjórnar-
menn, 8 úr Reykjavík og 2 utan
af landi auk 6, sem eru kosnir
af sérgreinafélögum samtakanna.
Næstkomandi fimmtudag kemur
stjórnin saman og verður þá kjör
inn formaður og tveir. varafor-
menn.
Slótuilélagið
kanpii kjöibúð
í Húoleiti
SLÁTURFÉLAG Suðurlands hef
ir nýlega gert samning við h.f.
Austurver um að kaupa á næsta
ári húsnæði fyrir kjörbúð í verzl
unarmiðstöð, sem er í smíðum að
Háaleitisbraut 68.
í þessum áfanga, sem nú er í
smiðum, er gert ráð fyrir kjör-
búð, fiskbúð, bakaríi, apóteki og
ýmsum fleiri sérverzlunum.
í sambandi við væntanleg
kaup Siáturfélagsins á fyrr-
greindu verzlunarhúsnæði hefir
félagið nú tekið við rekstri kjör-
búðar, sem rekin er í bráða-
birgðahúsnæði á lóðinni.
— Greinargerð
Framhald af bls. 6
aðgerðum sé stefnt að því, að
lögð verði niður kennsla í tann-
lækningum hérlendis, en slíkar
aðgerðir hljóta að skoðast alvar
leg skerðing á frelsi íslenzkra
stúdenta til háskólanáms og geta
hæglega leitt til þess á skömm-
um tíma, að tannlæknaskortur-
inn verði sýnu alvarlegri. Stúd-
entaráð hlýtur að krefjast þess,
að þegar verði hafnar raunhæf-
ar aðgerðir, sem leiði til skjótr
ar lausnar þessa máls.
Ennfremur vill Stúdentaráð
eindregið átelja þann hátt, sem
á var hafður nú í haust, er
dregið var fram til 22. sept. að
tilkynna þeim 20 stúdentum
(þar af var einn erlendur stúd-
ent), sem sótt höfðu um inntöku
í deildina nú í haust, hvér úr-
lausn þeim yrði veitt, og þeim
þá öllum vísað frá. Slíka fram-
komu telur Stúdentaráð óverj-
andi gagnvart stúdentum í heild,
en meðferð málsins í heild tel-
ur ráðið hins vegar óvérjandi
gagnvart öilum almenningi í
landinu eins og viðurkenndum
kröfum um heilbrigðisþjónustu
er nú háttað. Nú sem stendur
kemur einn tannlæknir á hverja
3000 íbúa hériendis, en ef vel
ætti að vera er talið, að koma
ætti einn á hverja 1000 íbúa.
Með þökk fyrir birtinguna.
Stúdentaráð Háskóla íslands.