Morgunblaðið - 07.04.1966, Page 19
Timmtudagur 7. apríl 1966
MORGUNBLAÐIÐ
19
LIBANON
SÖGUFRÆGÐ OG NÚTÍMA ÞÆGINDI
Táknræn mynd írá fjallaþorpi í Líbanon
LÍBANON, smáríkið við botn
Miðjarðarhafs, er í hópi hinna
sögufrægustu ferðamannalanda
og sérstætt á margan hátt. —
íbúarnir, um 1,7 milljónir, eru
að meginstofni Arabar, en hafa
tileinkað sér í ríkum mæli
menningu og lifnaðarhætti
vestrænna þjóða. Menntun er
þar á háu stigi, t.d. fjórir há-
skólar, og þeir tveir elztu,
franskur háskóli og amerískur,
yfir aldargamlir. Þá er þar rík-
isháskóli og fyrir nokkrum ár-
um var stofnaður svokallaður
arabískur háskóli, sém mjög er
undir egypzkum áhrifum. Einn-
ig er þar'listaakademía.
Líbanon á sér langa sogu og
merka þó ekki sem sjálfstætt
sríki — því fullt sjálfstæði í nú-
verandi mynd hlaut landið ekki
fyrr en 1943 — heldur sem hluti
mikilla stórvelda. Nægir þar að
nefna veldi Persa, Grikkja og
Rómverja, Byzantíska veldið og
það Ottomannska og loks ný-
lenduveldi Frakka. Þar stóð
vagga Föníkíumanna, hinnar
miklu verzlunar- og siglinga-
þjóðar, sem stofnaði og réði yfir
fjölda borgríkja við Miðjarðar-
haf á sínum tíma. Allt frá
þeim .tíma hefur landið verið
miðstöð verzlunar og viðskipta
milli hins arabíska heims Aust-
urlanda og vestrænna landa.
Þangað komu kaupmenn með
varning jafnvel allt austan frá
Kína og höndluðu við þá, sem
höfðu Evrópuvörur á boðstól-
um.
Stærð landsins er um 9 þús.
ferkílómetrar. Það er mjög há-
lent, í rauninni aðeins tveir
fjallgarðar, Líbanons- og Anti-
Libanons-fjöll og dalurinn á
milli þeirra, Bekaa-sléttan. Á
arabísku heitir landið Djebel
Libnan, það er „Hvíta fjallið.“
• Höfuðborg Libanon, Beirut
.— gamla Fönekíuborgin Bery-
tus — er fögur og nýtízkuleg
borg í örum vexti. En gamli
borgarhlutinn vekur þó ef til
vill mesta athygli, og enginn
ferðamaður má láta hjá líða að
leggja leið sína þangað, þótt
margt annað glepji hugann,
ganga um þröngar markaðs-
göturnar þar sem allt er ið-
andi af lífi og hávaðinn yfir-
þyrmandi. — Þá kemst eng-
inn hjá því að heimsækja
þjóðminjasafnið með öllum sín-
um minjum, jafnvel heilu kon-
ungagrafhýsi. Einnig verður að
heimsækja Moskuna miklu.
Hún var í upphafi reist sem
kirkja, en nú verðum við kristn
ir menn að draga þar skö af
fótum og gefst þá tækifæri til
®ð sjá játendur Múhameðstrú-
ar tilbiðja guð sinn.
• Fyrir sunnan Beirut eru
hinar sögufrægu borgir Sidon
og Tiros, en fyrir norðan Bybl-
os og Tripoli. Allar eru þessar
borgir með merkum minjum
frá tímum Fönikíumanna,
Grikkja, Rómverja og krossfar-
anna og einnig frá veldistímum
Araba.
Byblos er elzt þessara borga,
raunar elzta byggða bólið, sem
vitað er um með vissu á þess-
ari jörð. í rústunum þar eru
merkilega skírar minjar jafn-
vel allt frá steinöld og síðan
hægt að rekja þróunarsöguna
um aldaraðir. Þaðan er stafa-
gerðin fengin og Biblian ber
nafn borgarinnar.
Kristur kom til Sidon og pré-
dikaði þar. Á dögum Dariusar
var borgin mikilvægt persneskt
vígi. Það tók krossfarana 47
daga umsátur að sigra borgina
é sínum tíma og þeir reistu
þar mikinn kastala 1228, sem
enn stendur. — Nebukadnesar
keisari reyndi í 13 ár að ná
borginni Tiros á sitt vald, en
varð að gefast upp við það.
Alexander mikli tók hana áft-
ur á móti eftir sjö mánaða um-
sátur. Varð hann að láta grafa
til þess mikið síki, sem enn
sjást minjar um.
• Þá er og mjög fróðlegt að
heimsækja Beit Eddine kastal-
ann í hlíðum Líbanonsfjalla.
Hinn frægi Emis Bashir (1788—
1840) lét reisa hann. Er kastal-
inn og allur búnaður hans tákn
rænn fyrir byggingarstíl og
austurlenzka list á þeim tíma.
• Fyrir norðan Beirut fund-
ust fyrir nokkrum árum miklir
hellar við upptök Hundaár,
Jeita-hellarnir. Er siglt um þá
eftir ánni mörg hundruð metra
inn í iður jarðar. Eru hellar
þessir stórkostlegt náttúruund-
ur, svo mikil er sú „listsköp-
un“, sem þar hefur átt sér stað.
• Á Bekaa-sléttunni, sem í
’heild er hinn frjósamasti aldin-
garður, verður heimsóknin til
Baalbeck eftirminnilegust og
alls ógleymanleg. Borgin er
upphaflega reist til dýrðar sól-
arguðinum Baal, en síðar reistu
Rómverjar þar stórfengleg hof
til vegsemdar og tilbeiðslu
guða sinna og þó kannski ekki
síður sem tákn um yfirburði
sína og veldi. Júpíters-hofið
með stórum hofgarði var þeirra
mest, en þá Bakkusar-hofið og
Venusar-hofið minnst. Rústir
þessar hafa varðveitzt betur en
rústir nokkurra annarra róm-
verskra hofa, þrátt fyrir skipu-
lagða eyðileggingarherferð
krossfaranna, sem var sérstak-
lega uppsigað við myndir hinna
heiðnu guða og síðar Araba.
Jarðskjálftar komu og einnig
til. Ekki er hægt að segja um,
hver áhrif þessar rústir hafa
á hvern og einn, en flestir
standa orðlausir og fá ekki svar
við ásæknum spurningum.
Hvernig til dæmis farið var að
því að flytja hin gífurlegu
björg, sem þar eru, í ’heilu lagi
ofan úr fjöllunum og koma
þeim iiyrir tilhöggnum á sínum
stað. ímyndunaraflið fær kann-
ski leyst úr öðrum að einhverju
leyti, til dæmis í sambandi við
hina einstæðu listsköpun, bæði
hvað byggingarnar sjálfar snert
ir og skreytingu þeirra. Ef stein
arnir tala þá gera þeir það á
þessum stað.
Hin síðari ár er haldin mikil
listahátíð í Baalbeck. í ár stend
ur hún yfir frá miðjum júlí til
3. september. Þar eru sýndar
óperur, leikrit og ballett, haldn
ir sinfóníuhljómleikar, kórsöng
ur og sýndir helgileikir.
• Baalbeck er ekki eini stað-
urinn, sem vert er að heim-
sækja í Bekaa-sléttunni. Sjálf-
sagt er einnig að koma við í
Anjar. Þar eru miklar rústir
arabískrar borgar frá Ommay-
ad-tímabilinu.
• En Líbanon er ekki aðeins
sögufrægt land heldur nýtízku
ferðamannaland, þar sem á-
herzla er lögð á að láta gest-
um líða sem bezt og gefa þeim
kost á að njóta lífsins. Beirut
hefur nú tekið við af Cairó sem
aðal-ferðamannamiðstöð land-
anna.^við botn Miðjarðarhafs.
Fjöldi nýrra hótela hefur risið
þar upp á síðustu árum, en
mörg eldri voru fyrir. Eins
manns herbergi er hægt að fá
þar fyrir allt frá 6 LL (Liban-
ons-lírur. Hver LL jafngildir
um kr. 14,50. 3 LL eru 1 dollar)
upp í 45 LL á lúxus-hótelum
eins og Phönicia og Saint Ge-
orges.
Um 150 næturklúbbar eru í
Beirut, og skulu hér aðeins
nefndir tveir, Bacchus, þar sem
söguminjar skapa andrúmsloft-
ið og einn sá nýjasti í Coral
Beach hótelinu, sem er í póly-
nesiskum stíl. Skammt norðan
við Beirut er Casino du Liban,
spilavíti, sem þarlendir menn
leggja til jafns við þau stærstu
í Monte Carlo.
Rétt fyrir sunnan Beirut ér
stór baðströnd og norðan við
borgina er nýreist mótel-hverfi,
Tabarja Beach, þar sem sól-
og sjódýrkendur fá notið lífsins.
Verðlag þar er lægra en í
Beirut og almennt gildir það
um staði utan höfuðborgarinn-
ar.
• f auglýsingapésum frá Lib-
anon segir, að sól skíni þar 300
daga á ári. Bezti tíminn fyrir
fslendinga að ferðast þangað er
tvímælalaust snemma á vorin
eða seint á haustin. Uppi i fjöll
unum er þó alltaf miklu sval-
ara en við ströndina og þar erú
víða gististaðir, sem menn geta
leitað tii. — Mestur þeirra
er Laklouk þar sem bæði eru
hótel og mótel. Þar festir snjó
á veturna og hægt að iðka skíða
ferðir fram á vor.
Aðalskíðasvæðið er þó í Iandi
sedrus-skóganna frægu. Nú
standa þar aðeins 400 tré, þau
yngstu nokkurra alda gömul,
en þau elztu nokkur þúsund
ára. Sedrus-viðurinn er slíkur
kjörviður, að faraóarnir eg-
ypzku sóttust mjög eftir honum
og Salomon „konungur notaði
hann í musteri sitt.
• íslendingar þurfa vegabréfs
áritun til að ferðast til Liban-
on. Hafi menn ekki fengið hana
fyrirfram í einhverju sendiráði
landsins erlendis, er hægt að
fá hana hjá útlendingaeftirlit-
inu í hafnarborgum landsins og
flugvellinum í Beirut. Aðeins
verður að gæta þess að hafa
ekki ísraelska vegabréfsáritun í
sama passa. í Beirut geta menn
svo fengið vegabréfsáritun til
annarra Arabaríkja í sendiráð-
um þeirra þar.
• Sjálfsagt er fyrir ferða-
menn, sem ekki eru í hópferð-
um að leita upplýsinga hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins í Beir-
ut, National Office of Turism.
Til dæmis um bílstöðvarnar,
þar sem hægt er að fá leigð
sæti í leigubílum. Þannig kemst
maður, sem er einn á ferð sem.
farþegi í fimm manna leigubíl
frá Beirut til Baalbeck og aftur
til baka fyrir 10 LL og hring-
ferð Beirut-Baalbeck-Damask-
us í Sýrlandi-Beirut kostar ekki
nema 13 LL.
• Líbanon hefur tekið að sér
forystuhlutverk sem ferða-
mannaland í Austurlöndum nær
Sögufrægðin og náttúrufegurð-
in ein ráða þar ekki öllu um,
heldur einnig stöðugleiki í
stjórnmálum landsins, sem er
þveröfugt við það, sem er í
öðrum arabalöndum austur þar.
Þ=ttc, er þeim mun athyglisverð
ara þar sem helmingur lands-
manna er múh&meðstrúar og
helmingur kristinn. Arabíska
er þjóðtungan, en frönskukunn
átta er almenn, og ferðamaður,
sem talar ensku, er á grænni
grein hvað málið snertir.
• í Líbanon fæst „allt milli
himins og jarðar" hvaðanæva
að úr heiminum. Þó skyldu
menn ráðfæra sig við kunnuga,
ef skartgripur eða minjagrip-
ur er keyptur, því nóg er af
ódýrum eftirlíkingum á boð-
stólum. Og óskemmtilegt er að
koma heim með austurlenzkan
minjagrip „made in Japan“. En
margar verzlanir hafa ein-
göngu ekta vörur á boðstólum.
Skal hér aðeins nefnd ein, sem
er viðurkennd: Indian Store
(Grand Magasin Indien), 66
Avenue des Francais, Beirut.
Nú er
rétti timinn
til þess ab ákveða
sumarleyfið og
tryggja sér far
með GULLFOSSI
Reykjavik — Leith
Kaupmannahöfn
Siglingaleið m/s Gullfoss.
HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Farþegadeild — Sími 21460.
VK