Morgunblaðið - 08.11.1966, Side 13
ÞriSjudagur 8. nóv. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
13
„NÝJUNGAR í UMFERÐA-
FRÆÐSLU í SKÓLUM"
Rætt við Pétur Sveinbjarnarson, fulltrúa umferða-
nefndar Reykjavíkurborgar
TTMFERÐARFRÆÐSLA á íslandi
hefur mjög verið efld núna síS-
ustu árin, þó sérstaklega í Reykja
vík, þar sem hætta af völdum
umferðar er mest. Hafa þessi
mál verið tekin mjög föstum
tökum af viðkomandi aðilum,
eem eru umferðarnefnd Rvíkur
og umferðardeild gatnamála-
stjóra, og lögreglan. Hafa þeir
gengizt fyrir útgáfu á margvís-
legum fræðslubæklingum um
umferðarmál, og fyrir umferðar-
herferðum með margvíslegum á-
róðursbrögðum, sem borgarbúar
muna eflaust eftir frá s.l. ári.
Mbl. átti fyrir skömmu tal
við Pétur Sveinbjörnsson, full-
trúa hjá umferðarnefnd, sem hef
ur unnið hvað mest að þessum
málum, og bað hann að skýra
frá því helzta sem gert hefur
verið í umferðarfræðslu upp á
síðkastið, og hvað væri í deigl-
unni að gera.
— Það var um svipað leyti
árs í fyrra, sagði Pétur að um-
ferðarnefnd, umferðardeild gatna
málastjóra, og lögreglan gerðu
áætlun yfir almenna umferðar-
fræðslu, og komu henni í fast
form. Við skiptum þessum áætl-
unum í tvo aðalhluta, en það
voru umferðarfræðsla í skólum,
cg umferðarfræðsla fyrir allan al
menning. Hefur þetta fræðslu-
kerfi verið reynt í rétt eitt ár,
en fullsnemmt er að tala um
hver árangur hafi orðið af því
— það á eftir að koma betur í
Ijós síðar. Þó má geta þess, að
undanfarna þrjá mánuði hefur
árekstra- og slysatala ekki
hækkað, þrátt fyrir hina gífur-
legu fjölgun bifreiða í umferð-
farni.
— Varðandi umferðarfræðslu í
skólum má fyrst nefna, að hún
er nú orðin skyldunámsgrein á
skólaskyldustiginu. Lögreglan
hefur ráðið sérstakan varðstjóra,
sem fer á milli skólanna og sér
þar um umferðarfræðslu, og má
sérstaklega hrósa henni fyrir það
framtak. Við höfum útbúið bækl-
inga með leiðbeiningum fyrir
gangandi vegfarendúr, og þeim
dreift í barna- og unglingaskól-
um. Þá var í vor gengizt fyrir
reiðhjólaskoðun í hinum ýmsu
hlutum borgarinnar, og börn-
unum um leið sýndar fræðslu-
kvikmyndir um umferðarmál.
í vetur gengumst við fyrir
spurningakeppni meðal skólabarn
12 ára bekkjardeilda barnaskól-
anna, og skiptum við keppninni í
þrjá hluta. Fyrst voru spurning-
ar lagðar fyrir öll skólabörn á
þessu aldursstigi, en með því
móti fengum við mjög góða heild
armynd af þekkingu barna á um-
ferðarreglunum. Síðan kepptu lið
hinna ýmsu skóla saman, og loka
þátturinn var, er þeir tveir skól-
ar, sem lengzt höfðu náð, kepptu
til úrslita. Höfum við í hyggju
að endurtaka þessa spurninga-
keppni aftur í vetur.
Þegar 7 ára bekkir barna-
skólanna byrjuðu í haust send-
um við með þeim dreifibréf til
foreldrana, þar sem við fórum
fram á það, að þau hjálpuðu
börnunum að finna hættu-
minnstu og öruggustu leið til
viðkomandi skóla, kenndu þeim
• Hitarar
Veturlnn er komlnn og MASTER hitararnir eru
líka komnir. — Fimm mismunandi stæðir.
— Tryggið yður hitara í tíma. —
G. ÞORSniNSSON 8 JBHHSON H.F.
Ármúla 1 - Grjótagötu 7
Simi 2-42-50
að fara rétt yfir götur o.s.frv.
Samfara þessu reyndum við að
auka eins og kostur var um-
ferðaröryggið í nánd við skólana.
Og fleiri nýjungar mætti nefna
í þessu sambandi. Við munum
núna einhverja næstu daga senda
sérstakt kennsluplagg með vetr-
arumferðarreglum heim með 7
ára börnum, sem þau verða að
læra. Þessu plaggi fylgir sér-
stakt eyðublað, þar sem foreldr-
arnir viðurkenna að börnin hafi
kynnt sér þessar reglur. Að laun
um fá börnin eins konar viður-
kenningu, sem eru lítil endur-
skinsmerki. Reykjavíkurborg
hefur fyrir milligöngu samtak-
anna „Öruggur akstur“ fest kaup
á 10 þúsund endurskinsmerltj-
um, sem afhent verða öllum
skólabörnum. Nú, og þá er kom-
ið að atriði, sem við erum ákaf-
lega stoltir af. Við höfum látið
gera kver upp á 64 síður, sem
kallast „Vegastafróf". Er það
eins konar vinnubók fyrir um-
ferðarfræðslu. Lögreglan mun
heimsækja alla barnaskóla, af-
henda þeim þetta kver, og ræða
við börnin um umferðarmál.
En við ætlum að reyna að ná
til fleiri en bara skólaskyldunn-
ar. í fyrravetu-r gerðum við til-
raun í samráði við Æskulýðs-
ráð með námskeið fyrir 16—17
ára unglinga, þar sem við gáf-
um þeim kost á að undirbúa sig
undir ökupróf. Það hefur oft
verið talað um að unglingarn-
ir séu viss plága í umferðinni
en með betri þjálfun og undir-
búningi má auðveldlega koma í
veg fyrir það. Þessi námskeið
voru 8—12 kennslustundir, og
komu þar fram lögregluþjónar
og menn úr bifreiðaeftirlitinu
og fræddu unglingana um ör-
yggi, ábyrgð og skyldur öku-
manna. Gaf þetta námskeið mjög
góða raun, og er ákveðið að
endurtaka það í 4-bekk gagn-
fræðaskólanna, og halda slík
námskeið í allan vetur.
— Við munum í framtíðinni
að sjálfsögðu leitast við að halda
uppi stöðugri umferðarfræðslu
til handa almenningi, og verður
það gert á sama hátt og áður,
með þáttum í útvarpi, 'blöðum
og væntanlega í sjónvarpi. Eins
og menn muna höfum við geng-
izt fyrir umferðarherferðum í
samvinnu við þessa aðila, —
við höfum látið útbúa ýmis kon-
ar áróðursspjöld, og stillum upp
bílflökum við fjölfarna staði.
En það sem er okkar mesta á-
hugamál núna, er að efna til
kvöldnámskeiða 1—2 kvöld í.
viku fyrir þá sem lokið hafa bíl-
prófi og vilja rifja upp og fylgj-
ast með. Þetta er mjög tíðkað
erlendis, og þykir gefa mjög
góða raun.
LÓAINI tiEkynnir:
líýkomið í miklu úrvali telpnakjólar, stærðir:
1 til 14 ára. — Úlpur 1 til 12 ára, verð frá kr. 350,00
til kr. 550,00. — Kuldastretchbuxur, skriðbuxur,
vettlingar, hanzkar, húfur í glæsilegu úrvali.
Telpnasloppar 2 til 14 ára og fleiri vörur.
ATH.: Eldri kjólar seldir á niðursettu verði.
Verð frá kr. 150,00.
Barnafataverzlunin LOAN
Laugavegi 20 B.
(Gengið inn frá Klapparstíg, móti Hamborg).
'
NY
CORTINA
ALGERLEGA NÝ CORTINA 1967
Hinir framúrskarandi kostir eldri Æ
gerða Cortina nýttir til hins ýtr- |
asta. Glæsilegt útlit, þægindi og
rými. Vélar 59,5 og 65 hestöfl
5 höfuðlegur. Hita- og loftræsti-
kerfið „Aeroflow" eykur enn
þægindin. Gírskipting í gólfi, á
stýri eða sjólfskipting.
KYNNIST CORTINA 1967
d§?>UMB0ÐIÐ Hfí HRI5TJÁN550N H.F
SUÐURLANDSBRAUT 2 • SlMI 3 53 00