Morgunblaðið - 14.01.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1967.
Rúmenar eða A-Þjdöverjar falla úr
JúgósSavar, Svíar, V-Þjóðverjar,
Ungverjar, Tékkar, Danir og
Rússar komnir í 8 liða úrslit
f GÆR voru leiknir átta leikir í lokakeppni HM í handknattleik
í ýmsum borgum í Svíþjóö. Skírðust þá linurnar mjög og er nú sýnt
hvaða tvö lið komast áfram í keppninni í þremur riðlum af f jórum.
ÍJr A-riðli komast Svíar og Júgóslavar sem bæði hafa unnið tvo
leiki. Úr B-riðli komast V-Þjóðverjar og Ungverjar, sem bæði hafa
unnið tvo leiki. Úr D-riðli komast áfram Tékkar og Danir, sem
báðir hafa unnið tvo leiki. Óljóst er með C-riðil — erfiðasta riðil
keppninnar, þar sem Rúmenar, Rússar og A-Þjóðverjar berjast um
tvö sæti og hafa nú Rússar tryggt sér áframhald, hvernig sem við-
ureign þeirra við Rúmena fer, en hvort hitt liðana verður er enn
évist.
í gær urðu úrslit þessi:
Svíþjóð — Sviss 19-16.
Júgóslavía — Pólland 22-17
V-Þýzkaland — Japan 38-27
Ungverjaland — Noregur l'5-ll
Rúmenía — Kanada 27-3
Sovét. — A-Þýzkaland 22-17.
Danmörk — Frakkland 9-8.
Tékkóslóvákía — Túnis 23-10.
Næst í HM
NÆSTU leikir á HM í hand-
knattleik verða leiknir á
sunnudag. Þá leika saman
Sviþjóð — Júgóslavía
Pólland — Sviss
V-Þýzkaland — Ungverjal.
Japan — Noregur
Rúmenia — Sovét
A-Þýzkaiand — Kanada
Danmörk — Tékkóslóvakía
Frakkland — Túnis.
Lýkur með því keppni í riðl-
um. Á þriðjudag fara svo
fram 8 liða úrslit. Þá Ieika
saman
nr 1 í A-riðli gegn 2 i D-riðli
nr 1 í D-riðli gegn 2 í A-riðli
nr 1 í B-riðli gegn 2 í C-riðli
nr 1 í C-riðli gegn 2 i B-riðli.
A-riðill.
Með sigri sínum yfir Póllandi
í fyrradag, tryggðu Svíar sig til
framhalds í keppninni. >eir hafa
því að vonum tekið lífinu með
ró í leiknum við Sviss í gær og
aðeins gætt þess að vera yfir í
mörkum. Munurinn á löndunum
(19:16) er ekki stór í tölum en
án efa hefðu Svíar getað gert
betur, ef á hefði þurft að halda
Pólverjar hafa barist upp á líf
og dauða gegn Júgóslövum því
sigur yfir þeim var þeirra eina
von til framhalds í keppninni
Júgóslavar náðu undirtökunum
í byrjun og var staðan íhálfleik
14-8 þeim í vil. Munurinn minnk
aði um eitt mark í siðari hálf-
leik og lokastaðan var 22-17 —
og Pólland er svo gott sem úr
keppninni, vonlaust um fram-
hald.
B-riðill.
í>að er án efa nokkur fróðleik-
ur í að sjá hvernig Japanir leika
handknattleik. Furðulegt er hve
mörg mörk þeir skora í sínum
leikjum, jafnvel við stórveldi
eins og V-Þýzkaland. Sennilega
ríkir mikill hraði í leikjum
þeirra og þeir smjúga í vörn
mótherjana af sínum lipurleik.
V-Þjóðverjar skoruðu 1'7 mörk
gegn 12 í fyrri hálfleik og héldu
Framlhald á bls. 31
Átta af „10 beztu“ íþróttamönnum ársins, sem mættir voru i hófinu í gær. Frá vinstri talið: Ól>
afur Guðmundsson KR, Guðmundur Gisiason ÍR, Gunnlaugur Hjálmarsson Fram, Geir Hall-
steinsson FH, Hermann Gunnarsson Val, Kolbeinn Pálsson með styttuna, Sigurður Dagsson o*
Árdís Þórðardóttir frá Siglufirði.
Kolbainn Pálsson KR
Iþróttamaður ársins 1966
Árangurinn er félögum
mínum mest að þakka
sagði Kolbeinn Pálsson, sem lika
verðlaun fyrir skautahlaup
— Ég vona að ég reynist
þess verðugur að bera það
sæmdarheiti sem ég hef verið
kjörinn til, sagði Kolbeinn
Pálsson íþróttamaður ársins
1966 er hann sagði nokkur
orð í þakklætisskyni í hófi
iþróttafréttamanna í gær.
Þessi orð lýsa Kolbcini Páls-
syni aílvel. Hann sýnir ævin-
lega fágaða framkomu og
kann sýnilega að meta á verð-
ugan hátt framkomu annarra.
Þess vegna hefur hann valizt
til þess hlutverks að vera
fyrirliði landsliðsins í körfu-
knattleik, og þess vegna á
hann án efa eftir að njóta
vegs og virðingar á ókomnura
árum.
— Ég var 12 eða 13 ára
þegar ég hóf að leika körfu-
knattleik, sagði hann í stuttu
viðtali við Mbl.
— Við stofnuðum þá nokkr-
ir strákar skólafélag í Haga-
skóla en gengum siðan allir
í KR og höfum haldið saman
alla tið.
— Og hefurðu aldrei stund-
að aðrar íþróttir?
— Jú, ég lék með KR í
handknattleik um nokkurt
skeið en þegar flokkarnir
voru orðnir fjórir sem ég var
í sá ég að um of var færzt í
fang og valdi körfuknattleik-
inn.
— Knattleikir eru sem sagt
þinar íþróttir?
Hlaut 63 stig at 66 mögulegum
KOLBEINN PÁLSSON, fyrirliði landsliðsins í körfuknattleik, var
kjörinn „lþróttamaður ársins 1966“. Var kjöri lýst í gær í kaffi-
samsæti er Samtök iþróttairéttamanna efndu til. Eru liðin 10 ár
siðan íþróttafréttamenn efndu tU atkvæðagreiðslu um slíkan
mann og á tímabilinu hafa fjórir hlotið titilinn, Vilhjálmur Ein-
arsson, Guðmundur GísJason, Valbjörn Þorláksson og Jón Þ. Ólafs-
son. —
í upphafi minntiat Sigurður
Sigurðsson, formaður Samtaka
íþróttafréttamanna, Benedikts G.
Waaigie, iheiðursforseta ÍSÍ, sem
var brautrýðjandi íjþróttafrétta-
mennsku hér á landi og bar
eina gulimenki Samtaka íþrótta-
fréttamanna, sem gert hefur ver
ið. —
Sigurður 'hvað sil. ár eíkki hafa
verið mikið sigurár fýrir islenzk
ar iþróttir og búizt hefði verið
við að atkvæði skiptust mjög að
þessu sinni. En á daginn kom að
svo varð ekki.
íþróttamaður ánsins var kjör-
inn Kolíbeinn Pá>l&son, sem fyrr
segir. Hlaut hann 63 stig af 66
miögudegum en 6 menn (hafa at-
kvæðisrétt í þessu kjöri, einn
frá hverju blaði og frá útvarpi.
Kolibeinn var fyrinliði körfu-
kna.ttleiiksilandisliðsins, sem á ár-
inu lék 8 landisleiki og vann 4
þeirra. Getur ekkert anna'ð sam-
band stært sig af sflákum árangri
s'l. ár. Koilbeinn færði að öðrum
ólöstuðum íslandi þriðja sætið i
Norðiurilandamiótinu sL vor með
því að skora úr tveim vítaköst-
um á síðustu sekúndum spenn-
andi leiks. Hann sýndi og lang-
bezta frammistöðu fsilendinga í
leik nýverið við Evrópumeistar-
ana í körfulknaittlaiik.
Eins otg kunnugt er skrifa þeir
er atkvæðisrétt hafa 10 nöfn í-
þróttíynanna á kjörseðilinn. —
Efsta nafnið hilýtur 11 stig, ann-
að nafnið 9, þrfðja 8 o. *. frv.
— Ja, ég á nú einnig
verðlaunapening fyrir skauta-
hlaup. Keppti í 500 m skauta-
hlaupi þegar ég var 14 eða 15
ára — en aldrei síðan.
Kolbeinn er sonur Páls Sig-
urðssonar hárskerameistara í
Eimskipafélagshúsinu og bróð
ir Vigdisar sem verið hefur
ein sterkasta handknattleiks-
kona Vals.
Kolbeinn kvaðst mjög á-
nægður með árangur körfu-
knattleiksmanna sl. ár en eft-
irminnilegasti leikurinn væri
án efa leikurinn við Dani sem
vannst á síðustu sekúndum
með 1 stigi (Kolbeinn tók þá
tvö vitaköst og hitti í bæði
skiptin og tryggði sigurinn).
Hann sagði að þessi heiður,
sem honum nú hefði hlotnazt
væri félögum sínum að þakka.
— Hópurinn allur tekur
þátt í leiknum, án þeirra gæti
ég einn litið.
Úrsliiin í atkvæðagreiðslu um
10 beztu urðu þessi:
íþróttamaður ársins:
KoKbeinn Pál&son, KR, 63
Sigurður Dagsson, Vai, 45
Guðmundur Gíslason, ÍR, 32
Óiliafur Guðmundss., KR, 30
Geir HaSlsteinsson, FH, 26
Gunnl. Hjálmarss., Fram, 20
Hermann Gunnarsson og
Jón Þ. Óiafsson, ÍR, 19
Árdís Þórðardóttir,
Siglufirði, 18
Lilja Sigurðard., HS(Þ, 12
2.
3.
4.
5.
6.
7.
9.
10.
Aðrir sem stig bl/utu voru
Kjartan Guðjón sson, ÍR, Hrafn-
hildur Gúðmundsdióttiir, ÍR,
Kristinn Bienediktsson, Hnifs-
dail, Ármann J. Lárusson, Breiða
bliki, Xngólfur Óskarsson, Fram,
Davíð Valgarðsson, ÍBK, Jón
Árnason, TBR, Vallbjöm Þor-
láksson, KR, Árni Njálsson, Va\
og Magnús Guðmundsson, ÍBA.
Aillir muna frammistöðu Sig-
urðar Dagssonar í marki Vals si.
sumar. Guðmundur Gfelason
bætti enn nokkrum metum I
safn sitt og var eini sigurvegartt
íslendinga í Jandsikeppni við
Dani. Ólafur Guðmundsson settí
m.a. Norðurlandamet ungjUnga I
tugþraut. Geir Hallsteinsson á.tti
einna flitríkastan leik í hand-
knattleik á árinu og sama er að
segja um Gunnlaug Hjálmars-
son. Hermann Gunnarsson var
bæði í knattspyrnu- og hand-
knattleiksland,s 1 iðum með mikl-
■um sóma og Jón Þ. Ólafsson
vann bezta afrek íslendinga í
frjáflsum Jþróttum er hann stökk
2.08 m og hefði það afrek verið
unnið á annarri stund og öðra n
sta'ð, t.d. í Búdapest á EM, h,: i
hann verið á verðlaunapalli. -
dís Þórðardóttir var sigursa
af öllu wskíðafjólki sl. ár og T i
Sigurðardóttir setti met í fr,
Framhaid á Wis. 31