Morgunblaðið - 01.03.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967.
/
BILALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km.
SENDUM
MAGNÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftir lokvn sÍmi 40381 ”
SÍM11-44-44
mUfíBIR
Hverfisgöta 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BILALEIGAN
VAKUR
SundlaUgaveg 12. Sími 35135.
Eftir iokun 34936 og 36217.
áJ /LlyJlZ!
RAUOARARSTÍG 31 SlMI 22022
22-1-75
Með tækifærisvcrði
Bell og Howell 16 mm kvik-
myndunarvél, sama sem ónot-
uS, með skiptanlegri optik og
aukalinsu. UppL í síma 19790.
- I.O.G.T. -
St. Mínerva nr. 172
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Innsetning embættismanna.
Áríðandi að allir mæti. Kaffi
eftir fund.
Æt.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Næturlæknir
Eftirfarandi bréf hefur
borizt:
„Um miðætti aðfaranótt sL
fimmtudags stóð svo á á heim-
ili okkar, að álitið var nauðsyn-
legt að hringja í „næturlækni".
Við gáðum því í „Dagbók“
Morgunblaðsins, en þar er
mönnum vísað á símsvara
Læknafélags Reykjavíkur",
númer 18888. Símsvarið he'íur
verið lesið af stúlku, sem að
vísu er skýrmælt, en les allt of
hratt, miðað við það hvað svar-
ið er langt of flókið. Við vor-
um þrjú fullorðin (tvö mið-
aldra og einn roskinn) sem
hlustuðum á þennan símsvara
— sá roskni mörgum sinnum,
því að hann áttaði sig aldrei á
í hvaða númer ætti að hringja
til að koma orðum til nætur-
læknis. Helzt fannst okkur
hverju fyrir sig, að það myndi
vera númer 11510, þó að við
værum ekki ánægð með það
heldur. Sátum við svo stanz-
laust við símann frá kl. 1 til kl.
2, en fengum að vonum ekkert
svar.
Ástæðurnar til þessa mis-
skilnings verða væntanlega
skiljanlegar af orðalagi í sím-
svarinu, og set ég hér því cwð-
rétt leiðbeiningar þess um
hversu koma skulu hjálpar-
beiðni til læknis á framfærL
(Sá roskni varð að hlusta tíu
sinnum á símsvarann til að ná
því öllu):.. •
„f neyðartilfellum er tekið á
móti vitjanabeiðnum í síma
11510 á skrifstofu Læknafélags
Reykjavíkur kl. 9—12 og 1—5
alla virka daga, nema laugar-
daga kl. 9—12. Kvöld- og næt-
urvaktir hefjast hvern virkan
dag kl. 5 e.h. og standa til kl. 8
að morgni; um helgar frá kl. 1
e.h. á laugardegi til kl. 8 að
mánudagsmorgni. Vitjanabeiðn
ir í síma Slysavarðstofunnar er
sími 21230. Slysavarðstofan í
Heilsuverndarstöðinni er opin
allan sólarhringinn; sími
21230. Athugið að slysavarðstof
an gegnir aðeins fyrir slasaða
sjúklinga."
Síðasta leiðbeiningin var eig-
inlega hið eina sem okkur var
fyllilega ljóst í lok hins langa
og flókna og hraða lestrar.
Hana skildum við, hvert fyrir
sig, þannig, að þess væri ósk-
að að ekki væri hringt í 21230
liema vegna „slasaðra sjúkl-
inga“, Af því drógum við öll
þrjú þá ályktun, að hringja
ætti í 11510 þegar um sjúklinga
væri að ræða, sem ekki væru
slasaðir, þó að okkur þætti und
arlegt orðalag á leiðbeiningunni
um hringingar þangað; svo og
hitt, að ekki væri gegnt í þeim
síma milli 12 og 1 — af því að
við héldum að þar væri um
nóttina að ræða. Trúlegast
þætti mér, að við hefðum ráð-
ið í það rétta, ef hinar löngu
og flóknu leiðbeiningar hefðu
verið hægt lesnar, með nokkr-
um þögnum milli atriða.
Úr því að við þrjú — venju-
legar skynsamar manneskjur —
misskildum þetta öll, finnst
okkur trúlegast að ófáum öðr-
um muni fara á sama hátt. Leyf
um við okkur því virðingar-
fyllst að leggja til, að nýjar
leiðbeiningar verði lesnar í sím
svarann — hægt lesnar, með
þögnum milli atriða, og að
nokkru með nýju og skilmerki-
legra orðalagi.
— Þrjú.“
Vietnam
Lesandi skrifar:
„Nú eru menn farnir að
fást við héimsvandamálin. af
meiri alvöru hér í Reykjavík
én áður. Sérstök ráðstefna hef-
ur komið saman til þess að
fjalla um Víetnam og hefði
það einhvern tíma þótt saga
til næsta bæjar, að íslendingar
boðuðu til slíkra funda til þess
að leysa ófrið austur í Asíu.
Ástæðan til þess að ég drep
á þetta hér er sú, að oddviti
þeirra, sem tekið hafa að sér
að kryfja , þessi málefni til
mergjar, kom fram í frétta-
tíma sjónvarpsins á sunnudag-
inn — og sagði, að ætlunin
væri að skoða viðfangsefnið
frá öllum hliðum. Lýsti hann
tillögum U Thants. En er hann
var spurður um afstöðu til til-
lagna Bandarikjamanna um að
her Norður-Víetnam færi heim
til sín og loftárásum yrði hætt,
svaraði hann ekki, heldur söng
vísu, sem átti að lýsa því hve
Johnson Bandaríkjaforseti væri
lákur leiðtogi. Og svo ætlar
hann að telja fólki trú um að
hann sé að reyna að skóða
málið með augum hlutleysis.
1 Það er eitt, sem gleymist
alltof oft, þegar rætt er um
Víetnam. Ég á þar við hlut
Norður-Víetnam. Ég efast um
að menn hefðu fokið úpp til
handa og fóta yfir stríði í smá-
ríki austur í Ásíu, ef Norður-
Víetnam hefði í rólegheitum
Iagt Suður-Víetnam úndir sig,
innlimað landið á kommúníska
vísu. — Eða gengust kömmar
fyrir ráðstefnu vegna innlimun
ar Eystrasaltsríkjanna og Aust-
ur-Evrópuríkjanna á sínum
tíma? Og eru þau þó ögn nær
okkur.
En af því að Bandaríkja-
menn komu Suður-Víetnam til
aðstoðar til þess að reka árás-
arherinn út fyrir landamærin
fá ýmsir menn tækifæri til
þess að fyllast heilagri vand-
lætingu og fordæma Banda-
ríkjamenn vegna þátttöku í
stríðinu þarna. Ýmsir ágætir
menn virðast — viljandi eða
óviljandi — horfa framhjá
staðreyndum málsins, skella
skollaeyrum við árásaraðilan-
um en m ina á Bandaríkja-
menn. Og ekki stendur á að
fordæma Bandaríkjamenn —
en þá gleyma menn líka gjarna
íuásaraðilanum.
Af hverju fordæmdu menn
ekki Bandaríkin á sama hátt
fyrir að koma vinum sínum til
hjálpar i síðari heimstyrjöld-
inni? Því í ósköpunum gerðu
Bandaríkjamenn loftárásir á
Þýzkaland? Var ekki Hitler
jafngóður og Hó Sí Mín? Hvor-
ugur fór a.m.k. með ófriði á
hendur öðrum — eða er það?
Það er út af fyrir sig gleði-
legt, að sjóndeildarhringur
fólks á íslandi er ekki bundinn
við næsta nágrenni — og, að
fólk hefur áhuga á að ræða
málefni fjarlægra landa. En
það á ekki að láta kommúnista
komast upp með að sprengja
reyksprengjur í áróðursskyni
fyrir heimskommúnismann —
með aðstoð þeirra, sem í raun
og veru vilja ekki styðja komm
únista, en láta gabbast. Þeir
andkommúnistar, sem gengið
hafa til ráðstefnunnar með
kommum og þeirra fylgifiskum
til þess að ræða Víetnam, eru
glámskyggnir, etf þeir láta
kommúnista fá yfirhöndina í
væntanlegri Víetnam-nefnd —
ef þeir láta nota sig fyrir vagni
kommúnista. Þeir úr hópi lýð-
ræðissinna, sem þarna eiga
hlut að máli, ættu að hafa
þetta hugfast,
Lesandi".
Verð þorskalýsis
Velvakanda hefur borizt
eftirfarandi bréf frá Lýsi hf.
Vegna greinar í dálki yðar
28. febrúar um verðhækkun á
þorskalýsi á flöskum er pkk-
ur skylt eg ljúft að gefa eftir-
farandi skýringu:
Bréfritari yðar, Flatabúi,
getur þess réttilega að verð-
hækkunin stafar hverki af
verðhækkun lifrar né launa-
hækkun starfsfólks. Hins veg-
ar hefði hann mátt renna grun
í, að verðbreytingin stæði í
einhverju sambandi við breytt
ar umbúðir, sem hann getur
um í bréfi sínu.
Á síðastliðnum 2 áfum höf-
um við gert riákvæmar r'ann-
sókriir á rarinsó'knastófu Pkk-.
ar á gæðabreýtingúm lýsis eft-
ir að byrjað er að nota lýsið
úr flöskunum. Kom í ljós að
gæðum lýsisins hrakaði svo í
325 gramma umbúðunum að
síðustu 5—6 skeiðarnar voru
tæpast neyzluhæfar vegna þráa
ef aðeins var tekin ein skeið
á dag.
Ákváðum við þá að breyta
umbúðunum þannig að í stað
325 gramma umbúðanna settum
við á markaðinn 220 gramma
flöskur, sem einkum eru ætlað-
ar þeim heimildum, þar sem
notkun er ekki mikil daglega,
en fyrir hina, sem meira nöta
höfum við á boðstólum dósir
sem taka 1 líter. Kosta flösk-
urnar í heildsölu kr. 14.— en
dósirnar kr. 26.— Gefur sá verð
munur strax nokkra hugmynd
um verðmætahlutfall innihalds
og umbúða.
Þakkir á Flatabúi fyrir ár-
vekni sína og ábendingu--til ýfir
valdanna, en við vorum þó á
undan honum, því Verðlags-
stjóra hefur verið gerð grein
fyrir verðbreytingunni, þó svo
að hún hafi átt sér stað fyrir
verðstöðvunarlögin.
Stafar verðbreytingin ein-
göngu af því, að hinar nýju og
minni umbúðir eru dýrari á
hvert gramm innihalds. En eins
og að ofan segir eru á boðstól-
um hjá okkur stærri umbúðir
— ca. 4 sinnum meira innihald
fyrir tæplega tvöfalt verð og
vonum við að þau heimili sem
mikið nota af lýsi nýti mögu-
leikann á sparnaði með kaup-
um á lýsi í hinum stærri um-
búðum.
Ástæða þess, að flöskurnar
eru ekki endurkeyptar ér sú,
að kostnaður er orðinn svo
mikill við söfnun og hreinsun
þeirra að við höfum neyðst til
áð hætta endurkaupum.
Áð lokum þokkum við svo
Flatarhúa viðskiptin og vonum
að skýring okkar sé honum
fullnægjandi.
Virðingarfyllst,
LÝSI H/F.
Óskum að ráða
stúlku vana
fatapressun
Efnalaugin Glæsir
Laufásveg 17—19.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í akstur með skólanemend-
ur barnaskóla og gagnfræðaskóla Garða-
hrepps.
Útboðsgögn fást í skrifstofu undirritaðs.
Tilboðsfrestur er til 8. marz n.k. og verða
tilboð opnuð þann dag kl. 13.30 í skrif-
stofu Garðahrepps Sveinatungu við Vífil-
staðaveg.
Sveitastjórinn í Garðahreppi 27/2 ’67.
>