Morgunblaðið - 01.03.1967, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967.
Hvað segja þeir í fréttum ?
I
Ráðgert að kísilgúrverksmiðjan
verði starfshæf í árslok
Rætt við Pétur Pétursson, forstjóra Kísiliðjunnar hf.
A SVONEFNDU Bjarnarflaffi
um 314 km. frá Mývatni er
um þessar mundir unnið að
smiði verksmiðju, er vinna
mun kísilg’úr úr botni Mý-
vatns, og miðar framkvæmd-
um vel áfram. Mbl. átti fyrir
skömmu viðtal við Pétur Pét-
ursson, sem gegnir starfi for-
stjóra meðan byggingarfram-
kvæmdir standa yfir, um
væntanlegar framkvæmdir við
verksmiðjuna og starfsemi
hennar.
— Við stefnum að því,
sagði Pétur, að ljúka bygg-
ingu verksmiðjunnar að öllu
leyti á þessu ári, svo að hún
verði starfshæf í lok ársins.
Er gert ráð fyrir að byrjunar-
rekstur geti hafizt í október,
en tveir til þrír máuðir munu
fara í ýmiss konar tilraunir
og þjálfun á starfsfólki, svo
og að stemma stigu við ýmiss
konar mistökum sem alltaf -
kunnu að verða, er slíkar
verksmiðjur taka til starfa.
— Undirbúningur, að bygg-
ingu verksmiðjunnar hófst að
verulegu leyti árið 1965, er
dæluprammi var settur út á
vatnið og allar nauðsynlegar
leiðslur settar upp, svo að
mögulegt væri að senda fyrir-
tækinu Johns Manwille, sem
við höfum samvinnu við,
nægileg sýnishorn af þeim
kísilgúr, sem við munum
vinna. En áður en þetta gerð-
ist höfðu rannsóknir staðið
yfir í um 10—15 ár á vegum
Baldurs Líndal og Raforku-
málastjórnar.
— Svo vikið sé að þeim
framkvæmdum sem liggja
fyrir á þessu ári, er þar fyrst
og fremst um að ræða að
koma fyrir öllum tækjum, sem
í verksmiðjunni verða notuð.
Gífurlegt verk er að koma
þessum tækjum fyrir, en ef
ekki stendur á afgreiðslu
þeirra, gerum við ráð fyrir að
verksmiðjan verði komin í
gagn í árslok. Eins og stend-
ur vinna 8—10 menn að bygg-
ingu verksmiðjunnar og eru
þeir þegar byrjaðir að setja
upp ákveðin tæki, en í sumar
munu vinna við hana milli
30 og 40 manns.
— Erlendir sérfræðingar
hafa mikið verið hafðir með
í ráðum við byggingu verk-
smiðjunar. Hún er teiknuð af
verkfræðifirmanu Kaiser í
Kanada, og hefur það annazt
skipulagningu verksmiðjunn-
ar, að öðru leyti en því sem
viðkemur innlendum aðstæð-
um. Kemur verkfræðingur frá
Kaiser hingað í marzlok n.k.
og verður hér til að hafa yfir-
umsjón með uppsetningu
tækja. Sérfræðingar Johns
Manwille hafa einnig fylgzt
með framkvæmdum frá upp-
hafi, og koma fjórir sérfræð-
ingar þeiira hingað nokkru
áður en rekstur hennar hefst.
Munu þeir vinna með fslend-
ingunum í verksmiðjunni
fyrst um sinn.
— Við höfum átt við ýmis
verkfræðileg vandamál að
Pétur Pétursson.
stríða, aðallega vegna þess að
þetta er í fyrsta skipti, sem
kísilgúr er unninn úr vatns-
botni. Hafa þeir unnið sam-
eiginlega að lausn þessa
vandamáls sérfræðingar Johns
Manwille og Baldur Líndal af
okkar hálfu, og tekizt með
ágætum. Þarf verksmiðjan í
því sambandi á mikilli gufu
að halda við framleiðsluna, og
því hefur það orðið úr að
ríkið byggi gufuveitu skammt
frá verksmiðjunni á næsta
sumri, og kaupir verksmiðjan
gufu frá henni. Alls staðar,
þar sem kísilgúr er unninn
annars staðar í heiminum, er
hann fenginn úr þurrum jarð-
vegi, og því ekki við þessi
vandamál að stríða. Gengið
hefur verið úr skugga um að
nóg hráefni er á botni Mý-
vatns, og er stærð kísilgurnám
unnar þar, sem kallað er ótak-
markað“, Er t.d. áætlað, að
vogurinn framan við Reykja-
hlíð muni nægja okkur í 37
ár. . Ennfremur hefur verið
gengið úr skugga um að gæði
Mývatnskisilgúrsins er eins og
bezt gerist erlendis.
— Þegar verksmiðjan verð-
ur fullgerð á afkastageta
hennar að verða 30 þús. tonn
á ári, en ákveðið hefur verið
að, fresta uppsteningu á
ákveðnum tækjum um tvö til
þrjú ár, og getur hún fram-
leitt 14—16 þús. tonn, eins og
hún er byggð núna. A hinn
bóginn verður það mjög kostn
aðarlítil framkvæmd að
stækka hana. Við höfum gert
sölusamning við fyrirtækið -
Johns Manwille, sem hefur 3A
eða 75% af allri kísilgúrsölu
í Evrópu, og gildir samningur-
inn til 20 ára. Er fyrirhugað
að Johns Manwille kaupi 6
þús. tonn fyrsta árið, níu þús.
tonn það næsta, og magnið
fari síðan hækkandi upp í 30
þús. tonn á sex til sjö árum.
Er þetta fyrst og fremst ör-
yggisráðstöfun hjá Johns Man
wille meðan hinn íslenzki kís-
ilgúr er að vinna sér álit
meðal evrópskra kaupenda.
En frá því að samningarnir
voru gerðir hefur hvort
tveggja gerzt, að verðið er tal-
ið vera heldur á uppleið, og
Johns Manwille er bjartsýnna
Stúka Laugardalsvallar stækk-
uð og yfirbyggð á næsta ári
Rœtt við Stefán Kristjánsson, íþróttafulltrúa Reykjavíkur-
borgar, um framkvœmdir í íþróttamálum
Á UNDANFÖRNUM árum
hafa náðst mikilsverðir áfang-
ar i byggingu íþróttamann-
virkja í Reykjavík, og í Laug-
ardalnum hefur nú á nokkr-
um árum risið fullkominn
íþróttaleikvangur, glæsileg
íþróttahöll með aðstöðu til alls
kyns innanhúsíþrótta, og inn-
an skamms verður tekin í
notkun mjög fullkomin keppn
islaug þar í dalnum. Ýmislegt
fleira er á döfinni, og fékk
Mbl. Stefán Kristjánsson,
íþróttafulltrúa Reykjavíkur-
borgar, til þess að skýra frá
væntanlegum framkvæmdum
á þessu sviði.
— Mikilvægasta fram-
kvæmdin, sagði Stefán, sem
byrjað verður á þessu ári er
stækkun stúkunnar á Laugar-
dalsleikvangi. Framkvæmdir
eiga að hefjast næsta haust,
og ráðgert að ljúka þeim á
árinu 1968. Verður stúkan
stækkuð um helming, og get-
ur þá tekið um 3600 manns í
sæti. Jafnframt verður þá um
leið byggt yfir hana.
— Þegar þessu er lokið er
næst á dagskrá að koma upp
nýjum malarvelli fyrir aust-
an leikvanginn. Verður þetta
fullkominn æfinga- og keppnis
völlur, og er honum ætlað að
taka við hlutverki Melavalí-
ar. Lóðinni, sem Melavöllur
stendur á, hefur þegar verið
ráðstafað til Háskólans, en við
treystum því að fá að halda
Melavelli áfram, þar til þessi
nýi völlur hefur verið gerður
I Laugardal. Þá er .það líka
ofarlega á óskalistanum að
koma þar upp fullkomnu
skautasvelli, og þá helzt yfir-
byggðu. Er í því sambandi
fyrirhugað strax í sumar að
laga svæði þar, og leggja í
það vatnsleiðslur, þannig að
næsta vetur verði þar allstór
skautasvell. Loks verða gerð-
ar grasflatir inn eftir Laugar
dal fyrir 6 til 8 grasvelli, og
verður þar aðstaða til úti-
handknattleiks. Annars er nú
verið að vinna að heildar-
skipulagi Laugardalsins, og
mun það verk vera á loka-
Stigi.
— En svo vikið sé að öðr-
um framkvæmdum en í Laug
ardal, þá er framundan við-
bygging við Sundlaug Vestur-
bæjar. A þar að byggja ný
búnings — og baðherbergi, og
er þörfin á því orðin mjög að-
kallandi. Núverandi búnings-
herbergi voru upphaflega að-
eins ætluð fyrir skólann, þeg-
ar sundlaugin yrði fullgerð.
Hefur aðsókn að lauginni vax-
ið mikið, svo að árið 1966
jaðraði hún við 200 þús.
manns, og er það miklu meira
en búningsaðstaðan þar ann-
ar. Er áætlað að hefjast
handa um þessar framkvæmd-
ir á næsta ári. Nauthólsvík
hefur verið mjög vinsæll bað-
staður að undanförnum árum,
og nú eru á prjónunum áætl-
anir um að bæta aðstöðuna
þar. Hefur borgarstjóm skip-
að nefnd til að gera tillögur
að skipulagi og mannvirkjum,
sem rísa munu í Nauthólsvík,
og starfar sú nefnd undir for-
ystu borgarlæknis.
Á næstu árum byggjast í
Breiðholti stór íbúðahverfi,
þar sem áætlað er að verði
um 25 þúsund íbúar. Er því
nauðsynlegt að þar komi góð
íþróttaaðstaða, svo sem keppni
og ævingavöllur, sundlaug og
íþróttahús. Áhugi er líka fyrir
því að bæta aðstöðu borgar-
búa fyrir vetraríþróttir. Skíða
félögin í bænum eiga öll eigin
skála, og er aðstaða þar sæmi-
leg, en meðal skíðamanna er
töluverður áhugi fyrir því að
byggja upp einn stað, sem
yrði miðstöð fyrir skíðaíþrótt-
ina. Yrði þar um að ræða betri
aðstöðu, en hvert einstakt fé-
lag gæti boðið upp á. Þetta
mál er þó ekki komið veru-
lega á rekspöl ennþá.
— Nú er líka að komast
talsverð hreyfing á bygginga-
mál íþróttafélaganna í borg-
inni, en um skeið hafa því
miður verið of litlar fram-
kvæmdir hjá félögunum, og
ný félagssvæði ekki myndazt
eins Og vonir stóðu til. Nú eru
tvö félög, Þróttur og Fram,
farin að hugsa sér til hreyf-
ings. Þróttur er að byggja upp
sitt svæði í Langholtinu, og
er komið svo langt, að félagið
mun flytja starfsemi sína
þangað inn eftir í vor. Þá
verða Þróttarar búnir að
koma sér þar upp húsnæði
með búningsklefum og böð-
um, og ennfremur félagsað-
stöðu, auk þess sem þar verð-
ur þá kominn malarvöllur.
Framarar verða innan
skamms að vfkja frá sínu
gamla svæði fyrir neðan Sjó-
mannaskólann. Þeim hefur
verið úthlutað svæði við hlið
með söluna en áður, vegna
aukinnar eftirspurnar.
— Gert er ráð fyrir þvf,
þegar verksmiðjan er komin f
fullan gang að útflutning»-
verðmæti framleiðslunnar
verði um 3 milljónir dollara.
Af því fer um 30% í umboðs-
laun, en þau fara hækkandi
eftir því sem framleiðslan
vex, og byrja á 12% fyrsta
árið. Við þessi umboðslaun er
það að athuga, að Johns Man-
ville hefur sett upp umboðs-
skrifstofu á Húsavík, sem hef-
ur sáralítinn kostnað til frá-
Framhald á bls. 24.
Stefán Kristjánsson.
Álftamýrarskólans við Miklu-
brautina, og nú standa yfir
milli forráðamanna Fram og
fulltrúa borgarinnar viðræð-
ur um þá flutninga, en þeim
er enn ekki lokið. Eru vonir
um að framkvæmdir þar geti
hafizt mjög fljótlega. Fleiri
félög eru ekki að hefja vallar-
framkvæmdir, en á hinn bóg-
inn þurfa nokkur að fá betri
félagslega aðstöðu. Til dæmis
hefur ekki verið gengið frá
því hvar ÍR fær vallaraðstöðu,
en á því er brýn þörf, þar sem
félagið hefur enga eins og er.
Þar sem bærinn hefur vax-
ið mjög á síðustu árum, hafa
þegar myndazt skilyrði fyrir
því að fjölga íþróttafélögum í
Reykjavík. Að mínum dómi er
það tvímælalaust bezta lausn-
in á málinu, að hver bæjar-
hluti hafi sitt íþróttafélag, og
að þau starfi í ákveðnum
hverfum, fremur en að þau
séu dreifð innan um hvert
annað. Enda hefur þróunin
líka eindregið verið í þessa átt
á síðustu árum.
íþróttafélag þarf að stofna f
Árbæjarhverfi ,og vonandi
líður ekki á löngu þar til á-
hugamenn um íþróttir, sem
þar búa, stofna félag til að
vinna að íþróttamálum f
hverfinu. Þegar Breiðholt
byggist verður þar einnig þörf
fyrir eitt eða tvö ný íþrótta-
félög. íþróttafélögin eiga að
vinna í góðri samvinnu við
skóla hverfisins, og íbúarnir
að styrkja þau til góðra verka.
i