Morgunblaðið - 01.03.1967, Side 11
r'iWíi-; w i >e ■. />• t): 'twiC't #> 'í »**0<»*y
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967.
11
Frá fundi Kaupmannasamtakanna.
Aðalfundur Kaupmanna-
samtaka íslands í gær
— Sigurður Magnusson endurkjörinn formaður
AÐALFUNDUR Kaupmannasam
taka íslands 1967 var haldinn í
Átthagasal Hótel Sögu í gær.
Formaður samtakanna Sigurð
nr Magnússon setti fundinn og
tilnefndi Sigurð Óla Ólafsson,
alþingismann og Þorvald Guð-
mundsson sem fundarstjóra, en
þá Reyni Sigurðsson og Gunnar
Snorrason sem fundarritara.
Ávarpaði formaðurinn síðan
fundinn og er efni ávarpsins rak
ið stuttlega hér á eftir.
Framkvæmdastjóri samtak-
anna Knútur Brunn, hdl., flutti
ársskýrslu, og fjallaði i henni
m.a. um verðlagsmál, nýja verð
lagslöggjöf, nýja löggjöf nm
verzlunaratvinnu, um stofnlána-
deild verzlunanfy rirtækja við
Verzlunarbanka Islands h.f. o.fl.
Að lokinni skýrslu fram-
kvæmdastjóra lagði gjaldkeri
Kaupmannasamtaka fslands
fram ársreikning samtakanna og
að loknu matarhléi flutti Gylfi
>. Gíslason viðskiptamálaráð-
Iherra, ræðu og svaraði fyrir-
spurnum. Þorvaldur Guðmunds-
son flutti greinargerð um starf-
semi Verzlunarbanka íslands og
Hjörtur Jónsson greinargerð um
starfsemi Lífeyrissjóðs verzlun-
armanna.
Lagabreytingar voru til um-
ræðu á fundinum og voru gerðar
nokkrar breytingar á lögum sam
takanna. Ennfremur var sam-
þykkt að fulltrúaráð Kaupmanna
samtakanna tilnefni tvo fulltrúa
til setu í stjórn Verzlunarráðs
íslands.
Fyrir fundinum lá ennfremur
tillaga um að fjölga bankaráðs-
mönnum í Verzlunarbanka ís-
lands h.f. úr þremur í fimm, en
var tillaga sú felld með miklum
•tkvæðamun.
Kosinn var formaður og vara
formaður Kaupmannasamtak-
anna. Var Sigurður Magnússon
kosinn formaður með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða og Pét-
ur Sigurðsson hlaut samhljóða
kosningu sem varaformaður.
Verðstöðvunln nauðsyn
í ræðu sinni gat formaður
Kaupmannasamtakanna, Sigurð-
ur Magnússon, um ýmis málefni
er snerta smásöluverzlunina í
landinu og kom allvíða við. Um
verðstöðvunarlögin fórust hon-
um orð m.a. á þessa leið:
— Ég hygg, að tilkoma verð-
stöðvunarlaganna á sl. hausti og
sá tilgangur sem liggur að baki
þeirra, sé meðal þess markverð-
asta sem við höfum staöið
frammi fyrir um árabil. Ég held
Iika, að almenningur sé þeirrar
skoðunar, að með tilkomu verð-
stöðvunarlaganna sé gerð við-
tækari og alvarlegri tilraun cn
áður til að snúa við á þeirri
óheillavænlegu braut í kaup-
gjalds- og verðlagsmálum, sem
hér hefur náð að þróast á und-
anförnum árum.
Þá greindi Sigurður frá við-
ræðum sem fulltrúar Kaup-
mannasamtakanna hefðu átt við
viðskiptamálaráðherra og aðra
aðila um það leyti sem verið var
að undirbúa verðstöðvunarfrum-
varpið. og sagði formaðurinn að
ldkum eftirfarandi um verðstöðv
unarstefnuna:
— Persónulega er ég þeirrar
skoðunar, að verðstöðvunarstefn
an sem slík, sé þjóðarnauðsyn,
framkomin í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir meirilhátcar
efnahagsleg áföll. Hitt fer svo
ékki milli mála, að raunveruleg
áhrif og gagnsemi verðstöðvunar
1-aganna er mest komin undir for
Sigurður Magnússon.
ystumönnum hinna ýmsu hags-
munasamtaka, bæði í launþega-
og vinnuveitendastétt. Sagan seg
ir okkur og sýnii, að mól er að
linni, og að leggja verður niður
þá botnlausu kröfupólitík, sem
hér hefur verið rekin um ára-
bil. En til þess að svo megi
verða, þurfa forystumenn hags-
munasamtakanna að viðurkenna
þá staðreynd, að í þessum efn-
um verður að setja hagsmuni
heildarinnar ofar sérhagsmun-
um. Það veltur því á miklu,
hvort forystumenn hagsmuna-
samtakanna starfa af ábyrgðar-
tilfinningu og skynsemi, eða
hvort innbyrðist valdastreitu
þeirra og pólitískri vígstöðu er
þannig háttað, að þeir velji þann
kostinn að gera endalausar kröf-
ur, sem í veruleikanum engan
veginn fást staðizt.
Þá ræddi formaður samtak-
anna um nauðsyn þess að rann-
sakað yrði til hlítar, hvort ekki
væri hægt með aukinni hagræð-
ingu í verzlunarrekstri að stuðla
að bættri afikomu smásöluverzl-
unarinnar. Greindi hann m.a. frá
slíkum athugunum sem fram
færu í Danmörku skv. sérstök-
um lögum þar í landi frá 1958.
í þessu sambandi gat hann þess
að með opinberum aðgerðum á
sviði skipulagsmála og peninga-
mála, væri hægt að hafa veru-
leg áhrif á, að hagkvæmari nýt-
ing fengist bæði á mannafla, hús
næði, áhöldum og tækjum, og
mundi slíkt í senn leiða til örugg
ari afikomu fyrirtækjanna og
bættrar þjónustu við almenning.
Loks taldi hann, að með sam-
stöðu fleiri verzlana mundi hægt
að ná haglkvæmari samningum
um ýmsa mikilvæga kostnaðar-
liði og á þann hátt stuðla að
öruggari afkomu.
í lok ræðu sinnar ræddi Sig-
urður Magnússon um síaukna
starfsemi Kaupmannasamtak-
anna og stórum bætta starfsað-
stöðu með tilkomu eigins hús-
næðis. Loks lagði hann áherzlu
á nauðsyn þess, að verzlunar-
stéttin í heild hefði sem virk-
asta samstöðu i sameiginlegu n
málum.
Nefnd skipuð til að athuga
verðlagslöggjöfina
Viðskiptamálaráðherra, Gylfi
Þ. Gíslason, ræddi í upphafi
máls síns um þá þróun sem orð-
ið hefði í efnahagsmálum þjóð-
arinnar og um afkomu þjóðar-
búsins á sl. ári og þá ástæður
þess að ríkisstjórnin taldi á sl.
hausti brýna og sérstaka nauð-
syn bera til þess, að verðlag og
kaupgjald héldist óbreytt og stöð
ugt nú um skeið.
Ráðherra sagði m.a.:
— Á síðastliðnu ári mun mark
aðsvirði þjóðarframleiðslunnar
í heild hafa numið um 24.000
millj. kr. Innflutningur vöru og
þjónustu nam 9.550.— millj. kr.
Utflutningur vöru og þjónustu
nam nokkru minna en innflutn-
ingurinn eða 9.200,— millj. kr.,
þannig að þjóðin ráðstafáði um
350 millj. kr. meiru en þjóðar-
framleiðslunni nam, og svarar
þessi upphæð til hallans á
greiðslujöfnuði í utanríkisvið-
skiptum vegna vöru og þjónustu.
Á árinu 1965 hafði þjóðin hins
vegar ráðstafað um 200 millj. kr.
lægri upphæð en þjóðarfram-
leiðslunni nam, og kom þetta
fram sem greiðsluafgangur
vegna vöru og þjónustu. Hér
kemur greinilega fram sú mikla
breyting á aðstöðunni í efnahags
málum, sem gerði verðstöðvun-
arstefnuna nauðsynlega.
En hvernig notuðum við svo
þjóðarframleiðsluna á síðast-
íiðnu ári? Um þetta liggja enp
aðeins fyrir bráðabirgðatölur, en
samkvæmt þeim gengu 15.250
millj. kr. til einkaneyzlu, 2.150
millj. kr. til sameiginlegrar
neyzlu á vegum ríkis og bæiar-
og sveitarfélaga og 6.865 millj.
kr. til fjármunamyndunar. Út-
flutningsbirgðir jiikust um 35
millj. kr., en bústofn landbúnað•
arins minnkaði um 20 millj. kr.
Hlutfallslega varð imm meir:
aukning á fjármunamyndun’nni
en einkaneyzlunni og samneyzl-
unni. Hins vegar varð miklu
miruni aukning á birgðum út-
fluthingsvöru en árið áður, en
þá hafði hún orðið sérs ak'.ega
mikil. Fróðlegt er að athuga á
hvaða sviðum fjarmunamyndun'
in er. Af þeim 6.855 miLj. kr.,
sem á sl. ári gengu til fjár-
munamyndunar, gekk s*jersti
hlutinn til íbúðarhúsabyggmgs:
eða um 1700 millj. kr. Næst
stærsti liðurinn var fjármuna-
myndun í iðnaði, 910 millj. kr,
en þar af eru 363 millj. kr. í fisk
iðnaði. Þriðji stærsti liðurinn
var byggirig samgöngumann-
vinkja 790 millj. kr. Þar á eftir
kom f jármunamyndun í landbúr.
aði, 63'5 millj. kr., og verður
ekki sagt, að það. sé um æski-
lega þróun að ræða, þegar hlið-
sjón er höfð á því, .að 1 land-
búnaðinum er um að ræða alvar
lega offramleiðslu, sem selja
þarf til útlanda fyrir brot af
framleiðslukostnaði. Það er að
sjálfsögðu yerðlagskerfi það,
sém gildir á sviði landibúnaðar-
ins og tryggir bændum hliðstæð-
ar tekjur við launastéttir við
sjávar'síðuria, sem veldur því, að
framleiðsla og fjármunamyndun
í land'búnaði heldur áfram að
vaxa, án tillits til sambandsins
milli framleiðslukostnaðarins og
verðlagsins erlendis. Fjórði
stærsti þáttur fjármun.amynduv
arinnar voru flutnángatæki 700
millj. króna. Fjármunamyndun í
verzlun og veitingastarfsemi var
436 millj. kr. Þegar fjármuna-
mynduninni er skipt í tegundi-,
kemur í ljós, að 3.465 millj. kr
gengu til bygginga, 2.165 millj.
í vélar og tæki og 1.225 rrriuj.
kr. í önnur mannvirki.
Þessu næst ræddi ráðherra um
afkomu þjóðarbusins út á við á
síðastliðnu ári og gat þá m a.
að verðmæti útflutningsfram-
leiðslunnar hefði verið minni í
fyrra en á árinu 1905, og væri
það í fyrsta skipti síðan á árinu
1960 sem líkt ætti sér stað. Bráða
birgðatölur bentu til þess, að
verðmæti útflutningsframleiðsl-
unnar hefði lækkað um tvö pro-
sent frá 1965, á sl. ári.
Að lokum vék svo ráðiherra að
verðlagslöggjöfinni og sagði þá: <
— Það er kunnara en frá '
.þurfi að segja, að í nálægum
lönidum eru opmber afskipti af
verðlagi og verðiagsmyndun með
nokkuð ólíkum hætti. Víðast
hvar hefur sams konar eftirlit
með verðlagi og tíðkaðist á styrj
aldarárunum og fyrstu árunum
þar á eftir verið afnumið, en
yfirleitt er þó í gildi lagaákvæði,
sem veita hinu opinbera ýmist
rétt eða skyldu til meiri eða
minni afskipta af óeðlilegri verð
lagsmyndun eða samtökum fyrir
tækja til þess að halda uppi
óhæfilegu verðlagi Á undan-
förnum árum hefur oft verið að
því vikið í opinberum umræð-
um, að tímabært væri að endur-
skoða verðlagslöggjöfina ís-
lenzku og færa hana í svipað
horf og nú tíðkazt t.d. á hinum
Norðurlöndunum. Ríkisstjórnin
hefur niú ákveðið að skipa nefnd
Framihald á bls. 31.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 59. og 61. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hluta í Stóragerði 4, hér í borg,
þingl. eign Kristjáns Guðmundssonar, fer fram eft-
ir kröfu Gunnars M. Guðmundssonar hrl. og
Gjaldheimtunnar í Reykjavík, á eigninni sjálfri,
fimmtudaginn 2. marz 1967, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Heildverzlun
óskar eftir húsnæði, með góða aðstöðu fyr-
ir lagerpláss.
Þarf að vera laust strax, eða sem fyrst.
Tilboð sendist í pósthólf 1282.
íbúðir í Hafnarfirði
Til sölu meðal annars:
3ja herb. íbúðir í fjögurra íbúða húsi við
Öldugötu. Seljast fullfrágengnar að öðru
leyti en því að eldhúsinnrétting og
hreinlætistæki fylgja ekki. Tilbúnar til af-
hendingar næsta haust. Bílgeymslur
fylgja tveim íbúðanna. Verð frá kr. 750
þús.
5 herb. íbúðir tilbúnar undir tréverk í fjöl-
býlishúsi við Álfaskeið. Verð frá kr. 710
þús.
Tvær 5 herb. íbúðir í ca. 125 ferm. þríbýlis-
húsi við Kelduhvamm fokheldar og full-
frágengnar að utan með tvöföldu gleri og
útihurðum. Bílgeymsla fylgir annarri
íbúðinni. Verð kr. 570 þús. og 760 þús.
Glæsileg 3—4ra herb. ca. 125 ferm. íb. á
jarðhæð við Arnarhraun, sérhiti, sérinn-
gangur.
Glæsilegt einbýlishús við Grænukinn,
með bílskúr og fallegri lóð.
ÁRNI GUNNLAUGGSSON HRL.
Austurgötu 10, Hafnarfirði — sími 50764.
kl. 9—12 og 1—4.