Morgunblaðið - 01.03.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967.
- LISTIR
- LISTIR
OOKMtfflTIR - LISTIR
- LISTIR
HID FRÆGA LEIKRIT PETERS WEISS,
MARAT'SADE Á SVIÐI ÞJÓDLEIKHUSSINS
CM næstu mánaðamót frum-
sýnir Þjóðleikhúsið hið fræga
leikrit Marat/Sade eftir sænsk-
þýzka leikritaskáldið Peter
Weiss. Um 40 leikendur taka þátt
I sýningunni, og eru inni á svið-
inu allan tímann sem leikurinn
stendur yfir. Með aðalhlutverk
fara leikararnir Gunnar Eyjóifs-
son er leikur Marat, Róbert Arn-
finnsson er fer með hlutverk
Sade, Margrét Guðmundsdóttir
sem leikur Charlotte Corday,
stúlkuna sem myrti Marat og
Herdís Þorvaldsdóttir er leikur
Simonne, konu Marats. Af öðr-
um leikurum má nefna þau
Helgu Valtýsdóttur, Árna
Tryggvason, Bessa Bjarnason,
Jón Sigurbjörnsson, Klemenz
Jónsson, Ævar R. Kvaran, Sig-
ríði Þorvaldsdóttur og Sverri
Guðmundsson.
Ennfremur standa nú yfir æf-
ingar hjá Þjóðleikhúsinu á leik-
ritinu Loftsteinninn eftir Fried-
rich Diirrenmatt. Er það gaman-
leikrit er fjallar um nóbelsverð-
launahafa. Leikendur í því verða
14 og fer Valur Gíslason með
aðalhlutverkið, en leikstjóri er
Gísli Alfreðsson. Ráðgert er að
frumsýning verði um páska.
Við fengum að líta inn á æf-
ingu á Marat/Sade nú fyrir
nokkrum dögum. Voru leikend-
urnir þá að fara yfir leikritið
og finna út hvar agnúar væru
hjá þeim og leikstjórinn Kelvin
Palmer hjálpaði þeim til að leið-
rétta þá. Sviðið verður hið sama
allan tímann og búningar þeir
sömu. Er sviðsmyndin og bún-
ingar, sem Una Coliins hefur
gert mjög smekkleg og undir-
strika þau áhrif sem leikritið
gefur.
samt leikrit sín á þýzku.
Að loknu skólanámi í Berlín
og Bremen fór Weiss til Parísar
og lagði stund á myndlistarnám.
Síðar hóf hann svo ritstörf og
gaf út nokkrar bækur á árunum
1947—1953, sem vöktu töluverða
athygli meðal bókmenntamanna.
Fyrsta leikrit Weiss er tekið var
til sýninga nefndi hann „Rot-
undan“, og var það sýnt á sviði
tilraunaleikhúss í StokkhólmL
Síðan hefur hróður Weiss, sem
leikritahöfundar stöðugt aukizt.
Kevin Palmer
Höfundur Marat/Sade, Peter
Weiss, er fæddur árið 1916 í Ber-
lín og ólst hann upp í Þýzka-
landi, Tékkóslóvakíu og Sviss,
en flutti til Svíþjóðar fyrir rúm-
lega 20 árum og hefur hann átt
þar heima síðan og hefur sænsk-
an ríkisborgararétt. Ritar hann
Leikritið Marat/Sade var
frumflutt í Schiller leikhúsinu í
V-Berlín 29. apríl 1964 og stjórn-
aði Konrad Swinarski leiksýn-
ingunni. Gerði Weiss sjálfur
leikmyndina, en búningateikn-
WMmWé.
wm.
■
Jón Sigurbjörnsson og Sverrir Guðmundsson í hlutverkura
sínura í MaraL
Sviðsmynd úr 2. þætti Marat. Fremst á myndinni er Gunnar Eyjólfsson er leikur Marat. Við
hliðina á baðkerinu situr Herdís Þorvaldsdóttir, en uppi á bekknum standa Margrét Guð-
mundsdóttir, Helga Valtýsdóttir, Bessi Bjarnason, Rúrik Haraldsson, Sverrir Guðmundsson og
Jón Sigurbjörnsson (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
ingar voru eftir eiginkonu hans.
Upphafleg tónlist í leikritinu
gerði Hans-Martin Majewski.
Frægasta uppfærslu Marats/
Sade var gerð í London 1965
undir stjórn Peters Brook. Hefur
volgu vatni, en Marat sem per-
sóna í leikritinu er stöðugt í bað-
keri.
Uppistaðan eða rammi leikrits
ins er sóttur í aðra átt. Á árun-
um 1787—1811 stóð forstöðumað-
Leikstjórinn Kevin Palmer útskýrir fyrir leikkonunum Helgu
Valtýsdóttur og Sigríði Þorva ldsdóttur,
sú uppfærsla verið mjög lofuð af
öllum þeim er hana sáu og leik-
urinn var síðar kvikmyndaður
með sömu leikurum, er léku í
London. Tónlistina við þá upp-
færslu gerði Richard Peaslee, og
er hún notuð við sviðsetningu
Þjóðleikhússins.
Nýjasta leikrit Peter Weiss er
Réttarrannsóknin er fjallar um
Nurnbergréttarhöldin, og nú
fyrir nokkru var svo frumsýndur
leikur er fjallar um nýlendupóli-
tík Portúgal í Angóla. Nefnist
það leikrit Lúsitanska grýlan.
Bæði þessi leikrit hafa vakið
mikla athygli.
Leikritið Marat/Sade er ekki
sögulegt verk um stjórnarbylt-
inguna miklu í Frakklandi um
1790. Viðureign Marats og Sade,
sem er uppistaðan í leiknum er
tilbúningur höfundar, reist á
þeim einu staðreyndum, að það
var Sade sem flutti ræðuna við
útför Marat og að Marat var
haldinn hörundssjúkdómi og
þoldi oft ekki við nema niður i
ur geðveikrahælisins i Charen-
ton, monsieur Coulsier, fyrir
reglulegum leiksýningum á spít-
alanum, sem voru liður í lækn-
ingameðferð á sjúklingunum.
Varð það fljótlega að nokkurs
konar tízku í París að heimsækja
sælið í Charenton, bæði til að sjá
hegðun sjúklinganna svo og sjálf
ar leiksýningarnar.
Charenton var hæli þar sem séð
var fyrir allskonar fólki sem
þótti ekki umgengnishæft með al
menningi, hvort sem það var
geggjað eða ekki. Frá 1801 til
dauða síns 1814, var hinn al-
ræmdi de Sade markgreifi, en við
hann er sadismi kenndur, hafður
í varðhaldi á Charenton-hælinu,
en þar stóð hann fyrir mörgum
leiksýningum með sjálfan sig og
aðra vistmenn sem leikara. Er
leikritinu Marat/Sade stillt upp
sem slíkri sýningu og Sade þá
sem „höfundi“ þess. Hugmynd
leikritahöfundarins er fyrst og
fremst sá að koma á framfæri
átökum milli öfgafyllstu ein-
staklingshyggju (Sade) og hug-
sjónar stjórnarmálalegrar og
mannfélagslegrar endurskipulagn
ingar, (Marat). Nær höfundur
fram sterkum áhrifum með orð-
ræðum Marats og Sades, sem
aðrir leikendur undirstrika með
hreyfingum sínum og látbragði.
Leikstjóri er Kevin Palmer og
er þetta fjórða leikritið, sem
hann stjórnar fyrir Þjóðleikhús-
Marat: Og situr ekki Robes-
pierre, sem fölnar við að heyra
orðið valdbeiting í tígulegum
matarveizlum og ástundar
menningarlegar samræður við
kertaljós. Ennþá viljið þið líkja
eftir þeim, þessum púðruðu
skálkum. Ég lýsi sök á hendur
þeim!
ið og einnig stærsta og viðamesta
verkefnið sem hann stjórnar þar.
Eins og áður segir gerir Una
Collins leikmyndir og búninga-
teikningar, en Magnús Blöndal
Jóhannsson er hljómsveitarstjóri.