Morgunblaðið - 01.03.1967, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967.
21
- INNFLUTNINGS-
FRELSI
Framlhald atf bls. 8.
verð og gæði vöru sinnar, ef
hann á ekki að verða fyrir töp-
um og heltast úr lestinni. Rökin
fyrir því að fara þá leið, sem
lagt er til í þessu frv. fremur en
að hverfa aftur að einkasölunni,
hljóta þvi að vera þau að annað
henti ekki hagsmunum neytend-
anna. Hitt er svo annað mál, að
í öðrum tilvikum geta þetta verið
önnur sjónarmið en tillitið til
þess að þjóna sem bezt óskum
og þörfum neytendanna, sem
látin eru ráða því hvaða fyrir-
komulag vörudreifingarinnar sé
talið heppilegast. Sem dæmi um
það, má nefna Áfengisverzlun-
ina. Flestir munu sammála um
það, að áfengisnautn, nema þá
í miklu hófi sé skaðleg bæði ein-
staklingum og umhverfi hans.
Þar er því ekki sama ástæða til
að leggja sömu rækt við þjón-
ustu við neytendurna eins og
þegar um notkun menningar-
tækja, sem útvarpstæki verða að
teljast er að ræða. Dreifing
áfengra drykkja þjóna því öðr-
um markmiðum, nefnilega í
fyrsta lagi því að skattleggja
skaðlega neyzlu og í öðru lagi
því að takmarka neyzluna. Til
þess að þjóna slíkum markmið-
um, er ríkiseinkasala hentugt
tæki enda hygg ég það eiga fáa
formælendur utan þings eða
innan, að innflutningur áfengis
verði gefinn frjáls.
Ég get því að gefnu tilefni
ekki látið hjá líða að nota þetta
tækifæri til þess að andmæla
þeim áróðri, sem oft er hafður í
frammi gegn frelsi í innflutn-
ingsverzluninni, að slíkt frelsi
þjóni aðeins hagsmunum inn-
flytjenda, eða jafnvel aðeins
einstaklinga, sem innflutnings-
verzlun hafa með höndum. En
það leiðir að því, sem ég hefi
nú bent á, að þegar slíku er hald-
ið fram, er sannleikanum alveg
snúið við.
Við Sjálfstæðismenn erum því
að vísu vanir, að okkur sé borið
það á brýn að sjá ekki annað en
sérhagsmuni heildsalanna. Hitt
er ekki . að sama skapi daglegt
brauð, að Alþýðufl. og Fram-
sóknarfl. sem stundum hafa þó
lagt hönd á plóginn til þess að
auka verzlunarfrelsi, eins og t. d.
með því að státa að undirbún-
ingi þessa frv. sem hér liggur
fyrir og því nefndaráliti, sem ég
nú mæli fyrir marki einnig sína
málefnaafstöðu með tilliti til
sérhagsmuna heildsalanna. Allt
er það líka úr lausu lofti gripið,
að frjáls innflutningsverzlun sé
fyrst og fremst hagsmunamál
heildsalanna. Þeim eru ekki
sköpuð nein forréttindi með því
að gefa innflutninginn frjálsan,
enda hefur raunin engan veginn
orðið sú, að aukið frjálsræði í
influtningsverzluninni hafi leitt
til útrýmingar annarra innflutn-
ingsverzlunar en þeirrar, sem er
á vegum einstaklinga. S.Í.S. er
enn stærsta innflutningsfyrir-
tæki landsins, auk þess sem
tnikill innflutningur á sér stað
á vegum annarra félagasamtaka
og innkaupastofnana ríkis- og
bæjarfélaga og fyrirtækja þeirra.
Það eru ekki innflytjendurnir,
heldur neytendurnir eða al-
menningur, sem njóta góðs af
þeirri hagkvæmni, sem leiðir af
frelsi í innflutningsverzluninni.
Bf hlýða þykir hins vegar svo
sem Áfengisverzlunin, er dæmi
nm, að fyrirkomulag vörudreif-
ingarinnar sé notað sem tæki til
þess að skattleggja neytendurna
í þágu innflytjandans sem þar
er rikisvaldið, þá býst ég ekki
við að neinn ágreiningur sé um
það, að einkasala sé þar hentugt
tæki. Það getur lika átt við, þeg-
ar sérstakir örðugleikar eru á
því, að útvega vöruna, að ednka-
sölufyrirkomulag henti eða sé
jafnvel óhjákvæmilegt. En sem
betur fer er ekki nú um slíkt
að ræða, þótt hin almennu vand-
ræði, sem við var að etja á
kreppuárunum, þegar núgald-
andi löggjöf um einkasölu á við-
tækjum var sett, hafi ef til vill
réttlætt slíkt fyrirkomulag þætti
bezt hent þá.
En afstöðu til þess, hvort það
fyrirkomulag, sem rétt kann að
hafa átt á sér fyrir 30 árum mið-
að við þær aðstæður, sem þá
voru fyrir hendi ber auðvitað að
taka með tilliti til þeirra
ástæðna, sem nú eru fyrir hendi,
en skv. því sem ég hefi sagt
verður að telja að endurreisn
einkasölu ríkisins á viðtækjum
myndi verða andstæð hagsmun-
um notenda þessara tækja.
Gils Guðmundsson (K) vakti í
upphafi máls síns athygli á því,
að hagnaður af rekstri Viðtækja-
verzlunarinnar hefði jafnan
runnið til menningarstarfsemi,
fyrst til ríkisútvarpsins síðar til
greiðslu á byggingarskuldum
Þjóðleikhúss og Sinfóníuhljóm-
sveitar.
Ræðumaður sagði að þau rök,
sem verið hefðu fyrir stofnun
Viðtækjaverzlunarinnar á sínum
tíma væru enn í fullu gildi. I
fyrsta lagi hefði þetta fyrirtæki
stuðlað að innflutningi hóflegra
margra tegunda og þá fyrst og
fremst viðurkenndra tækja. í
öðru lagi næðust betri viðskipta-
kjör, þegar allur innflutningur
væri á einni hendi. I þriðja lagi
væri hægt að komast af með
minni fjárfestingu í tækjum og
varahlutum, í fjórða lagi væri
auðveldara að hafa hemil á ólög-
legum innflutningi með einka-
sölufyrirkomulagi, í fimmta lagi
væri minni mannafli og minna
húsnæði bundið við þessa starf-
semi með þeim hætti og loks í
sjötta lagi væri tryggt að allur
hagnaður af þessari starfsemi
rynni til menningarþarfa.
Þá gerði Gils Guðmundsson að
umtalsefni það álit, sem fram
kemur í greinargerð frv. að það
mundi kosta 40—50 milljónir og
30 manna starfslið að endurreisa
Viðtækjaverzlunina og sagði að
ekkert lægi fyrir um það að
minna fjármagn og minni mann-
afli væri við þetta bundinn með
frjálsum innflutningi. Hann
kvaðst ekki'hafa heyrt athuga-
semdir kaupenda viðtækja við
þjónustu Viðtækjaverzlunarinn-
ar en hins vegar hefðu heildsalar
flutt þakkarávarp vegna frv.
Þá vék ræðumaður að afstöðu
Alþýðuflokksins til málsins og
las stuttan kafla úr bókinni
„Jafnaðarstefnan“ eftir Gylfa Þ.
Gíslason.
Gils Guðmundsson kvaðst að
lokum telja, að enn skorti allar
sannanir fyrir því að það væri
hagkvæmara þjóðhagslega séð
að láta einstaklinga annast inn-
flutning viðtækja heldur en rík-
isstofnun og því lægi ekkert á
að afnema þessi lög.
Ólafur B. Björnsson (S) sagði
að ekki væri að búast við að
miklar kvartanir heyrðust frá
neytendum um þjónustu Við-
tækjaverzlunarinnar, þar sem
hún hefði verið einkasala og fólk
hefði ekkert haft til þess að miða
við. Hann gerði að umtalsefni þá
röksemd, að einkasalan gæti gert
r
Arangursrík frönskunámskeið
nálæí»t París
frá 3. apríl — 28. maí, 3. júní — 28. júlí. Verð í 8
vikur F.F. 1150.— Innifalið: Fæði, húsnæði, 200
kennslustundir, 1600 km. ferðalög, verzlunarnám-
skeið, lokapróf, prófvottorð.
Skrifið til:
Institut International d’Etudes Francaises
B.P. Rambouileet, Frankreich.
stærri og hagkvæmari innkaup.
Reynslan hefði ekki sýnt, að
frjálsræði í innflutning i hefði
leitt til þess að allur innflutn-
ingur hefði færzt í hendur SÍS
og stærstu heildsalana, sem þó
hefði átt að vera skv. þessari
röksemd. Smærri fyrirtæki hefðu
haldið sínum hlut og vel það með
því að koma með ýmsar nýjung-
ar sem hinir stærri hefðu ekki
komið auga á. Ólafur Björnsson
sagði að í mörgum tilvikum
mætti ef til vill spara einhvern
gjaldeyri með stórum innkaupum
og innflutningi fárra tegunda af
hverri vöru. Á það mætti þó ekki
einblína heldur á að spyrja hvort
þjónusta við neytendur verði
jafngóð. Það eru ekki allir steypt
ir í sama mót og þarfir og óskir
manna mismunandi.
Þá kvaðst Ólafur Björnsson
draga í efa þá röksemd að hægt
væri að koma við sparnaði í
mannahaldi og fjármagni í opin-
berum rekstri. Ef einkafyrirtæki
hefur óþarflega marga starfs-
menn verður hagnaður minni en
mannhald opinbers fyrirtækis er
greitt af skattgreiðendum og það
sama er um fjármagnið að segja.
Varðandi þá röksemd að ríkis-
einkasala mundi auðvelda eftirlit
með ólöglegum innflutningi
sagðist Ólafur Björnsson ekki
hafa trú á því og spurði hvort
ekki væri smyglað áfengi og
tóbaki til landsins þrátt fyrir
einkasölu á þessum vörutegund-
um.
ATe/ióf/icrfor frystikistur
300 Iítro irystiklstur
Verð kr. 17.950,00
Viðgerðu- og varahlutoþjónusta
HEILDVERZLUNIN
HEKLA hf
Laugavegi
170-17 2
Simi
21240
Húsbyggjendur
athugið
Smíðum eldhúsinnréttingar og aðra
skápa í íbúð yðar. Vönduð vinna. Stuttur
afgreiðslufrestur. Vinsamlega leitið til
boða.
Húsgagnavinnustofa
SIGURÐAR ÁRNASONAR.
Auðbrekku 36, Kópavogi — Sími 38470.
Enskimám í Englandi
Scanbrit skipuleggur enskunámskeið fyrir útlend-
inga í Englandi á sumri komanda eins og á undan-
förnum árum. Dvelja nemendur á góðum enskum
heimilum og aldrei nema einn frá hverju landi á
hverju heimili. Ábyrgur leiðsögumaður verður með
nemendum bæði út og heim aftur. Einungis er hægt
að taka takmarkaðan fjölda nemenda héðan og er
því ráðlegt að sækja um sem fyrst. Allar upplýs-
ingar gefur Sölvi Eysteinsson, Kvisthaga 3, Reykja-
vík, sími 14029.