Morgunblaðið - 01.03.1967, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967.
Umboðsmaður fyrir bílamottur, sem eru þekktar innan
bílmarkaðsins í Danmörku og auðvelt að flytja inn, ósk-
ast. Umboðsmaðurinn getur fengið umboð fyrir okkar 1. fl.
bílamottur sem seldar eru af fremstu og beztu bílaverzlun-
um í Danmörku. Umboðslaun. Sendið skriflegar umsóknir
til E. Hartogsohn, Klostergade 3, Randers, Danmark.
Framtíðin byrjar
í dag
Óskum að ráða ungan mann til starfa við
viðgerðir og viðhald á skrifstofuvélum og
tækjum. Æskileg menntun er skriftvéla-
virkjun, en laghentur maður með áhuga
á sviði véla og tækni kemur vel til greina.
Viðkomandi sé á aldrinum 18—25 ára.
Einnig óskum við að ráða sölumann til að
selja skrifstofuvélar og önnur skrifstofu-
tæki. Æskilegt er að viðkomandi hafi próf
frá verzlunarskóla eða svipaða menntun,
og nokkra reynslu sem sölumaður. Ensku-
kunnátta er nauðsynleg.
Reglusemi og góðrar framkomu er kraf-
izt af báðum nefndum aðilum.
Upplýsingar verða ekki gefnar í síma, en
umsóknareyðublöð fást hjá verkstjóran-
um.
Klapparstíg 17 — Reykjavík.
- HVAÐ SEGJA ÞEIR
Framhald af bls. 10.
dráttar, og er gert ráð fyrir
því að um 45% þessara um-
boðslauna renni til ríkis- og
sveitarfélags sem skattar.
Varðandi framleiðslufélagið
sjálft er miklu erfiðara að spá
um, hvað það geti gefið, því
að þar veltur á ýmsu. T.d. er
mjög mikilsvert, hve mikið
verður hægt að halda fram-
leiðslukostnaðinum niðri,
hvernig gæðin verða og hve
mikinn hluta framleiðslunnar
okkur tekst að hafa í 1. gæða-
flokki. Enginn vafi er þó á
því, að strax og verksmiðjan
er búin að ná nokkurri stærð
ætti félagið að gefa bæði veru
legar tekjur og skatta, því
samskonar fyrirkomulag er
hjá því og sölufélaginu —
45% skattur sem rennur til
sveitarféiags- og ríkis. Mun
verksmiðjan bera sig, þegar
framleiðslan er komin upp í
9—10 þús. tonn, en síðan vaxa
tekjur ört, því að fastur kostn
aður vex litið.
— Framleiðslan verður flutt
út frá Húsavík, og munu stór-
Vanur
afgreiðslumaður
Duglegur, reglusamur afgreiðslumaður
getur fengið góða framtíðaratvinnu.
Upplýsingar á skrifstofu vorri í dag, mið-
vikudag kl. 5—7.
Verzlun O. Ellingsen hf.
Hafnarfjörður
Stúlka óskast til starfa á lögfræðiskrif-
stofu. Hálfsdags- eða heilsdagsstarf eftir
samkomulagi. Vélritunarkunnátta nauð-
synleg.
Umsóknir í pósthólf 33 Hafnarfirði fyrir
5. marz n.k.
BRÆÐURNIR KAMPAKÁTU -ý<----TEIKNARI: JÖRGEN MOGENSEN
JAMES BOND -
James Bond
8Y IAN FIEHING
ORAWING BY JOHN HclUSKY
Eftir- IAN FLEMING
u
Tiffany, farðu niður á gólfið og mjak-
aðu þér frá manninum í miðjum
klefanum.
KVIKSJA
Ég þorði ekki að hafa augun af þorp-
urunum tveimur.
Farðu nú inn í baðherbergið og leggstu
— — — — ■—K— “
í baðkerið.
Ég verð að vernda hana fyrir kúlna-
hriðinni.
FROÐLEIKSMOLAR
HVAR ERU
HALASTJÖRNURNAR?
Þegar búið var að finna
nokkrar halastjörnur árið
1965 var hafizt handa um að
rannsaka hvað þær gætu ver-
ið. Búið var að finna 1700, en
enginn vissi með vissu hvað
þær voru. Öldum saman hef-
ur verið lítið á halastjörnur
sem fyrirboða stríðs eða ein-
hverskonar ógæfu og enn vita
vísindamenn ekki fullkom-
lega úr hverju þær eru. Nýj-
asta kenningin segir að „ský-
ið“, sem álitið er að hafi um-
leikið sólkerfið okkar, hafi
einu sinni fyrir um 4.600.000,-
000 árum byrjað að mynda
„smáhluti" — „óhreina snjó-
bolta“ úr ryki og ís. — Voru
þeir úr metan, ammóníaki og
vatni. Nokkrir þessara snjó-
bolta hafa síðan fallið niður
á pláneturnar, aðrar á sólina.
En 1% af þeim hefur hafið
sjálfstæða hringrás um sól-
ina og hafa ekki eyðzt eða
breytt um rás. Þeir minnstu
eru örsmáir, en þeir stærstu
hafa um 30 km þvermál fyrir
utan sjálfan halann.
ar vörubifreiðar flytja hana
frá Mývatni. Fer hver bifreið
með 20 tonn í ferð, 10 tonn á
palli og önnur 10 tonn á stór-
um aftanívagni. Vegna þessa
verður að byggja á þessari
leið nýjan veg, og sér ríkis-
sjóður um þær framkvæmdir.
Er þegar búið að opna tilboð
í mestan hluta þess vegar. Var
upphaflega ráðgert að byggja
hann á einu sumri, en nú
verður sennilega ofaná að
byggja hann á tveimur sumr-
um, sem er ódýrara og að
mörgu leyti auðveldara við að
fást. Ég geri líka ráð fyrir að
við munum komast af fyrsta
árið, enda þótt við verðum
ekki búnir að fá veginn alla
leið.
— f Húsavík eru talsverðar
framkvæmdir vegna fyrirhug-
aðs útflutnings þaðan. Hefur
þar á sl. ári verið allmikil
hafnarframkvæmd, sem gerir
okkur kleift að byggja geysi-
stóra vöruskemmu alveg við
hafnarbakkann, skammt frá
sjálfri útskipuninni. Verður
þessi skemma 25x28 m að
stærð, og er ráðgert að byggja
þar aðra álíka stóra eftir 2—3
ár. Við Mývatn gerum við ráð
fyrir að byggja 10 starfs-
mannahús, sem standa mun
skammt frá Hótel Reykjá-
hlíð. Hafa þessi hús þegar ver-
ið boðin út, og tilboðin eru í
athugun.
— Allar hugsanlegar ráð-
stafanir hafa verið gerðar til
þess að valda ékki spjöllum
á náttúrufegurð og íuglalífi
við Mývatn. Verksmiðjan er
af þessum sökum bygg i tals-
verði fjarlægð frá vatninu,
þannig að hún sést vart það-
an, og ryki því, sem kemur
úr verksmiðjunni, söfnum við
saman. Mesta hættan stafar af
olíumengun í vatninu, og er
mikið gert til að fyrirbyggja
það. í kringum dælupramm-
ann á vatninu munum við
setja olíugildru, og kringum
olíutankana tvo í landi — sá
minni er niðri við vatnið en
hinn stærri upp við Verk-
smiðjuna, höfum við byggt
þrær, svo að þótt þeir
springju ætti olían ekki að ná
að blandast vatninu.
— Minning
Framhald af bls. 22.
t>ú barst til íslands barnagullin
þín
í björtum höndum.
Og enn þá skærast óskaperlan
skín
frá æskuströndum.
Og stundum var þér strangt
í dagsins önn
og stormar kaldir.
En allar byrðar barstu djörf
og sönn
og brosin taldir
Þú hímdir stundum hljóð á auðri
strönd
með höfgum tárum.
Þá dreymdi þig um suðræn
sumarlönd
með sól og bárum.
Ég finn, að þangað ber nú bátinn
þinn
um bárufalda.
Og burtför þína blessar
Drottinn minn
um bifröst kalda.
Þín systkin kveðja blíðum
bænarróm
frá barnsins árum.
Og minning þína svæfa söngsins
hljóm
og söltum tárum.
Þinn mánn og sonu vef ég
bljúgri bæn
og blíðum orðum.
Þeim verði ísland vorsins eyja
græn
sem var þér forðum.
Allt hljóð ég þakka, hjartans
Dagmar mín
frá horfnum árum.
Við bylgjuniðinn bezt ég
minnist þín
í brosi og tárum.