Morgunblaðið - 01.03.1967, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967.
Að annar hver Sovétborgari
sé íþróttamaður!
— er hlœgileg vitleysa seg/r sovezkt blað
Moskvu, 28. febrúar —NTB
MÓTLÆTI Sovétríkjanna á sviði
skíða- og skautaíþrótta hefur nú
að þvi er virðist orðið tilefni
til kröftugra mótmæla þar í
landi. Málgagn kennarasamtak-
anna í Moskvu, lltsjitelskaja
Gazeta, hefur vítt harkalega
hvernig tölur eru notaðar í
Góður gestur
judomanna
FÖSTUDAGINN 3. marz, kemur
hingað í boði JUDOKAN einn af
beztu judomönnum Bretlands,
Hoare 4. dan.
Syd Hoare tók þátt í Ólympíu
leikunum í Tokyo og einnig tók
hann þátt í heimsmeistarakeppni
judomanna 1966.
Hér mun hann dvelja a. h. k.
í tíu daga og kenna Judo hjá
JUDOKAN. z
íþróttaheiminum sovézka. f OI-
ympíuieikjunum hafa Sovét-
menn t.d. huggað sig við stað-
tölufræði og flóknar reikingsað-
ferðir, sem ekkert eiga skylt við
veruleikann.
Blaðið nefnir sem dæmi þær
tölur, sem gefnar eru upp í sam
bandi við Spartak-leikina, en
sagt er að 90 milljónir manna
muni taka þátt í leikjunum. Seg
ir blaðið, að menn þurfi ekki
annað en að líta í kringum sig
til að sjá hversu fjarri þetta er
Tvö heimsmet
TVÖ heimsmet í skautahlaupi
voru sett á móti í Inzell í gær.
Norðmaðurinn Fred Anton
Meier bætti sitt eigið met í 10
km hlaupi um 4/10 úr sek, hljóp
á 15:31.8.
Hollendingurinn Ard Schenk
setti heimsmet í 1000 m hlaupi
á 1:20.3 og bætti 12 ára gamalt
met um 2.2 sek.
sannleikanum. Samkvæmt þess-
ari tölu ætti anrtar hver Sovét-
borgari, án tillits til aldurs eða
kynferðis, að taka þátt í þeim.
f Spartak-leikjunum fyrir 4 ár-
um var sagt að 66 millj. manns
hefðu tekið þátt í þeim. En þess
gleymdist að geta, að sama per-
sónan fer í 5—6 og stundum
fleiri æfingar, og hún er reiknuð
með í hvert sinn. Þessvegna verð
ur talan svo hlægilega há, segir
blaðið.
Blaðið bendir einnig á það, að
geta afreksmanna í -vetraríþrótt-
um sé svo léleg, að það fáist ekki
framibærilegir varamenn, þegar
skautakappleigir eru háðir eða
skíðakeppni. Segii blaðið að 1-ok
um, að ef „fjöldavitleysunni“
verði hætt muni kannske fást fá
einir toppmenn í sovézkum vetr
aríþróttum.
Námskeið t stangar-
stökki tyrir drertgi
í hófi handknattleiksráffsins á sunnudaginn voru fimm menn sæmdir gullmerki ráffsins fyrir
vel unnin störf aff handknattleik og málefnum ráðsins. Er þetta í fyrsta sinn sem þetta heiffurs-
merki er veitt. Fimmmenningarn ;r er merkiff hlntu eru frá v. H'innes Þ. Sigurffsson, Sigurffur G.
Nordal, Valdimar Sveinbjörnsson, upphafsmaður handknattleiks á íslandi, Grímur Jónsson og
Árni Árnason.
AFRJÁLSÍÞRÓTTADEILD K.R.
mun í næstu viku hefja kennslu
í stangarstökki fyrir byrjendur
eingöngu.
Það hefur oft vilja brenna við,
að þeir ungu hafa ekki komizt
að, þegar þeir eldri hafa verið
að stökkva á stöng, og þess vegna
færíi byrjað að æfa þessa fögru
íþrótt en eðlilegt er. Frjáls-
íþróttadeild K.R. hyggst nú bæta
úr þessu, og verður námskeiði
því, sem nú er að hefjast haldið
áfram til vors.
Kennsla fer fram í K.R.-heim-
ilinu á miðvikudögum kl. 18.55,
en kennari verður hinn góðkunni
þjálfari Benedikt Jakobsson, sem
m. a. kenndi bæði Torfa Bryn-
geirssyni og Valbirni Þorlákssyni
að stökkva á stöng, en sem
kunnugt er, hafa þeir náð lengst
íslendinga í þessari grein, met
Torfa var 4.35 m, en það met
hefur Valbjörn bætt í 4.50 m.
Á námskeiðið eru velkomnir
allir piltar, sem eru 15 ára og
eldri.
Frœgustu knattspyrnulið Evrópu 8:
Vinna þá góðu - tapa fyrir lélegri
IJm Real Zaragoza á Spáni
SPANSKA liðið Real Zara-
goza hefur nú misst nær alla
von um að vmna meistaratit-
il Spánar í knattspyrnu. En
liðið byggir nú allar sínar
framtíðarvonir á velgengni í
lokaspretti keppninnar um
Evrópubikar bikarmeistarar.
Liðið máetir Glasgow Rangers
I 8 liða úrslitum. Verður fyrri
leikurinn í kvöld í Glasgow
en hinn síðari í Zaragoza 22.
marz. Veganesti Real Zara-
goza til þessara mikilvægu
leikja er að liðið hefur sigrað
í kappleikjum við hina erfiðu
andstæðinga, en tapað fyrir
þeim sem taldir eru auðveldir
viðfangs.
Þjálfari liðsins Daucik er
ættaður frá Ungverjalandi.
Hann segir: „Við vonumst til
að geta sýnt í Evrópukeppni
bikarmeistara, hvað í liðinu
býr. Piltarnir eru allir af
vilja gerðir til að gleðja stuðn
ingsmenn lið9ins og Real
Zaragoza hefuT á skrá 12.500
„unnendur“ sem greiða félag-
inu sérstakt ársgjald. Piltarn
ir munu gera sitt bezta“.
Real Zaragoza stefnir að
því að verða fyrsta spánska
liðið sem vinnur Evrópubik-
ar bikarmeistara. Engu
spönsku liði hefur tekizt vel
upp í þeirri Ktppni — bReal
Madrid hafi unnið Evrópulik
ar meistaraliða 6 simum.
Real Madrid hefur nu náð
nær öruggri forystu í meist-
arakeppni Spánar. Gaílinr. á
Real Zaragoza er hve mis-
jafna leiki liðið á. Liðsmenn
undirbúa vel og sameinast i
stórátaki til að vinna erfiðan
leik — en tapa svo þeim
næsta, stundum gegn miklu
lakara liði.
Megin orsökin til þess er
talinn lélegur sóknarleikur.
Spánverjar leggja mikið upp
úr framlínuleikmönnum og
fréttamenn kalla framvsrðina
oft „hina fimm stóru“. Fram-
herjar Zaragoza hafa aðeins
skorað 26 mörk í 16 leikjum
í 1. deildinni á Spáni — en
liðið hefur fengið á sig 28
mörk.
Miðherjinn Marcelino og h.
innh. Angel Santos eru mark-
hæstir með 7 mörk hvor.
Sumir skeila skuldinni á
Daucik þjálfara. Tveir leik-
manna, framvörðurinn Isasi
og miðvörðurinn Jose Santa-
maria, hafa opinberlega kvart
að yfir erfiðum æfingum og
drepandi aga þjálfarans.
Zaragoza nefur náð sér
hvað bezt á strik í bikarkeppn
inni nú. í fyrstu umferð vann
liðið norska liðið Skeid með
5—4 samanlagt og í næstu
Uimferð vann liðið stÓTsigur.
Það sigraði ensku bikarmeist-
arana Everton 2—0 á heima-
velli og í Englandi tapaöi
Zaragoza 0—1.
Spánskir fréttamenn telja
Zaragoza hafa góða mögu-
leika gegn Glasgow Rangers
þó þeir telji erfitt að sigra
Skotana í Skotlandi.
Auk áðurnefndra leik-
manna eru þeir beztir mark-
vörðurinn Manuel Alarcla,
sem kom til Zaragoza fyri”
nokkrum vikum. Hann er 22
ára og mjög öruggur.
Darcy da Silva sem kallað-
ur er „Canario" h. útherji
32 ára og áður stjarna í Real
Madrid. Hann lék í úrslita-
leik Evrópubikarsins 1960
með Real Madrid er það lið
vann Eintracht 7—3.
Skíðamót
á Húsavík
SL. sunnudag efndi skíðaráð
ÍFV til æfingamóts í svigi í
Skálamel við Húsavík. Keppt
var í karlaflokki og þrem ald-
ursflokkum unglinga.
Sigurvegari í karlaflokki var
Bjarni Aðalgeirsson,
2. Hreiðar Jósteinsson,
3. Aðalsteinn Karlsson.
í flokki drengja 15 til 16 ára
sigraði
Björn Haraldsson,
2. Þórhallur Bjarnason,
3. Bjarni Sveinsson.
í flokki drengja 13 til 14 ára
sigraði
Haraldur Haraldsson,
2. Kristján Ásgrímsson,
3. Benedikt Geirsson.
í flokki drengja 11 til 12 ára
sigraði
Jósteinn Hreiðarsson,
2. Böðvar Bjarnason,
3. Sigfús Haraldsson.
Rúmenar
áfram andvigir
Búkarest, 28. febrúar — AP
RÚMENSKIR leiðtogar hafa eim
á ný látiff í ljós andúff sína á
hugmyndinni um alþjóðaráð-
stefnu kommúnista til þess að
fjalla um deilurnar milli sov-
ézkra og kínverskra kommún-
ista.
Birtist í dag ritstjórnargrein f
málgagni rúmenska kommúnisía
flokksins, „Scinteia“, þar sem
segir, að einstakir flokkar eigi
að leysa deilumál sín út aff yrir
sig og án fhlutunar annarra
flokka. Jafnframt lætur blaðið
að því liggja, að meginorsöte
þess, að Rúmenar séu andstæðir
hugmyndinni um alþjóðaráð-
stefnu sé sú, að þeir óttist auk-
in áhrif og völd Moskvuflokks-
ins og að úr sjálfstæði annarra
flokka dragi. Leggur „Scinteia“
til, að flokkárnir í Rússlandi og
Kína leysi sjálfir deilumiál sín.