Morgunblaðið - 01.03.1967, Síða 32
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddaia
en nokkurt annað
íslenzkt blað
MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1967
4000 t
til Eyja
VESTMANNAEYJUM, 28. febr.
— í gærkvöldi komu fjölmargir
bátar hingað með fullfermi af
loðnu, sem þeir höfðu fengið
austan við Eyjar og út af Reyn-
isdröngum. Er loðnan á vestur-
leið, en í dag er rok og stór-
viðri og ekki hægt að vera við
veiðar. Munu hafa komið um 4000
tonn af loðnu hér á land af um
25 bátum, bæði Eyjabátum og
aðkomubátum, því hingað var
stytzt að sigla með aflann eða
3—4 tíma stim.
Bátarnir voru allir með full-
fermi, allt frá 100 tonnum upp
í 250 tonn, og þeir allra stærstu
með um 300 tonn. Verður loðnan
brædd. í Eyjum eru þrær miklar
og verksmiðjurnar voru tómar
fyrir, en nú mun vera orðið
þröngt. — Björn.
Norfi kom með
310 tonn
TOGARINN Narfi kom til Hafn-
arfjarðar í gær af veiðum á
heimamiðum og mun vera með
um 310 tonn af heilfrystum fiski
og um 26 tonn á dekki. Er það
þorskur og ufsi, sem landað verð-
ur í Hafnarfirði, eins og jafnan
áður.
Iceland II, þar sem skipið liggur á strönd Bretonsskagans á Nova Scotia, en togarinn strandaði síðastliðinn laugardag Á mynd
inni er björgunarsveitarmaður að fara niður í togarann til þess að rannsaka flakið. Með skipinu fórust 10 manns. Eins og sagt
var frá í Mbl í gær var togarinn eign Jónasar Björnssonar, skipstjóra.
Þrjór togaro-
sölur í gær
í gærmorgun seldu þrír íslenzk-
ir togarar erlendis.
Sigurður seldi í Bremerhaven
306 tonn fyrir 257 þús. mörk.
Úranus seldi í Hull 174 V4 tonn
fyrir 13,111 sterlingspund. Sval-
bakur einnig í Hull tæp 11’5 tonn
fyrir 9022 sterlingspund.
DC-6 flugvélar hætta að nota
jafnþrýstiloftskerfi í klefunum
— meðan rannsókn á rifinni flugvél fer fram
Burn fyríi bíl
ÞRIGGJA ára barn úr Reykja-
vík hljóp fyrir bíl á Akranesi
um kl. 2.30 í gær og fékk höfað-
högg. i>að var komið heim til
sín í gærkvöldL
I GÆRMORGUN bárust flug,
ferðaeftirlitinu í Reykjavík boð
um það frá Flugmálastjórn Banda
ríkjanna að hún færi fram á að
flugvélar af gerðinni DC—6 og
DC—7 væru ekki látnar fljúga
með jafnþrýstiloftskerfið í gangi
í klefunum meðan athugun færi 1
fram. Ástæðan væri sú að flug-
vél af gerðinni DC-6 hefði fengið
á sig rifu og misst þrýstinginn |
í háflugi. Sigurður Jónsson hjá
Lioftferðaeftirlitinu staðfesti
þessa fregn við Morgunblaðið.
DC-6 flugvélarnar eru gamal-
reyndar flugvélar, komu í far- j
þegaflugið 1948, og hafa verið
geysimikið notaðar í heiminum.
Bæði íslenzku flugfélögin nota
slíkar vélar. Flugfélagið á tvær
og Loftleiðir fimm. Hafa þau.
bæði gert ráðstafanir til að fara
að þessum tilmælum og nota ekki
jafnþrýstiloftskerfi sín á flugi,
sem táknar það að þær geta
ekki flogið hærra en í 10 þús.
feta hæð meðan á þessari rann-
sókn stendur.
Jóhann Gíslason, sem stjórnar
utanlandsflugi F.í. sagði blaðinu
að strax og þessi fyrirmæli komu
hefði verið sent skeyti til DC-6
flugvélar félagsins, sem var á
heimleið um að hún notaði ekki
jafnþrýstiloftskerfið. Hin flug-
vélin er í skoðun í Noregi.
Sagði hann að þarna mundi vera
um varúðarráðstöfun að ræða, en
alltaf væri í flugmálum sendar
Reynt að ná flugmann-
inum er nauölen j
Ross býður Halldóri
á Maí nýtt skip
* FLUGMAÐUR Aero Command- , gær, en varð frá að hverfa. Átci
HALLDÓR Halldórsson, skip
stjóri á togaranum Maí, fékk
fyrir skömmu starfstilboð frá
Ross útgerðarfélaginu í Grims
by. Bauð það honum mikil
vildarkjör, fjögur og hálft pró
sent af brúttóverðmæti aflans
og hvaða skip sem hann vildi,
Er félagið jafnvel reiðubúið
að smíða nýtt handa honum.
Mbl. hafði tal af Halldóri
þar sem hann var við veiðar
við austurströnd Grænlands í
gær, og staðfesti hann frétt-
ina.
— Þetta er samt allt á um
ræðustigi ennþá, og ég hefi
ekki ákveðið enn hvort ég tek
tilboðinu. Þetta eru prýðileg
kjör sem þeir bjóða.
— Hefurðu mælt þér mót
við þá til viðræðna?
— Nei ekki ennþá, ég þarf
að atthuga minn gang áður en
nokkuð verður ákveðið, og
ég hefi ekki hugmynd um
hvenær ég tala við þá. Ef
til kæmi myndi ég ráða mig
til þeirra á þessu ári.
— Hvernig er aflinn hjá
þér núna Halldór?
— Góður vona ég, við erum
bara ekki búnir að kasta út
ennþá.
er vélarinnar, sem nauðlenti a
Grænlandsjökli í fyrradag heit-
ir George Grosfoehme og vinn-
ur fyrir Air Carrier Services
Inc., sem annast ferjuflug á flug
vélum til kaupenda. Hann var
ómeiddur eftir lendinguna og
fiugvélin aðeins lítið skemmd.
Vistum og hlífðarfatnaði var
varpað niður til tians og dvaldist
hann í flugvélinni um nóttina.
í gær var svo ráðgert að bjarga
honum og kom þar þrennt til
greina. í fyrsta lagi að láta
bandaríska herflugvél af gerð-
inni C-130D lenda og taka hann
upp, í öðru lagi að senda þyriu
frá danska flughernum í Syðra-
StraumfirðL og láta þá banda-
rísku varpa til hennar benzín-
birgðum, og í þriðja lagi að
senda leiðanigur landleiðina.
Þess má geta að C-130D eru
fjögurra hreyfla risastórar flutn
ingavélar, en geta lent við ótrú-
legustu aðstæður.
Reyndi síðastnefnda flugvéUn
að lenda á jöklinum síðdegis í
hún að reyna aftur í dag.
út slíkar tilkynningar, ef minnstl
grunur væri um að ekki væri
allt í lagi.
Loftleiðir gerðu einnig strax
ráðstafanir til að ekki yrði not-
að jafnþrýstiloftskerfið í þeirra
flugvélum á meðan ekki væri
aflétt þessum tilmælum Banda-
rísku flugmálastjórnarinnar. En
búizt er við að fljótlega komi
einhver tilkynning um að þessi
varúðarráðstöfun sé óþörf eða að
einhverju þurfi að breyta, ef svo
reynizt.
Stykki sprakk úr flugvélinni.
í fréttaskeyti frá AP fréttastof-
unni segir svo um ástæðuna fyrir
Framhald á bls. 31.
Utanbæjormað-
ur fyrir bíl
í GÆRKVÖLDI um 9 leytið fór
maður utan af landi fyrir bif-
reið á gatnamótum Hringbraut-
ar og Njarðargötu. Volkswagen
bifreið var á leið vestur Hri.ig-
brautinna og maðurinn gekk
suður yfir götuna. Fék'k haon
áverka á andlit og höfuðmeiðslL
Maðurinn heitir Rögnvaldur
Guðbrandsson frá Tröð í Kol-
beinsstaðaihreppi.
Bílar komust til
Akureyrar í gær
Annars sfabar vlða ófærð
t GÆR hjálpaði Vegagerðin bíl-
um á norðurleiðinni, eins og
: venja er á þriðjudögum. Gekk
1 áætlunarbílunum ferðin ágæt-
I lega, miklu betur en búast mátti
! við og reyndist fært alla leið til
| Akureyrar. Eins fór áætlunar-
bíllinn til Hólmavíkur og þegar
j fréttist til hans var ágætt útlit
fyrir að hann kæmist alla leið.
Aftur á móti var ófært frá
Akureyri til Húsavíkur og yfir-
leitt þungfært í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum. Og á Austfjörð
um var stórhríð og lítið vitað
um færð á vegum, reiknað með
að allt væri lokað.
Um Suðurlandsundirlendi var
sæmileg færð í gær, farið um
Þrengslin, þar sem Hellisheiði
var lokuð. Einnig var ágætt fyrir
Hvalfjörð, um Borgarfjörð, á
Snæfellsnesi, þar sem fjallvegir
voru hreinsaðir í gær og um
Bröttubrekku í Dali. Á sunnan-
verðum Vestfjörðum er snjólítið
og t.d. fært um Patreksfjörð og
á Bíldudal. En um norðanverða
Vestfirði var farið að þyngjast í
gær, þar sem að undanförnu hef-
ur verið fært innanfjarða.