Morgunblaðið - 22.03.1967, Page 1
54. árg. — 67. tbL
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Borgarnes er 100 ára 1 dag. Er afmælisins minnzt í greinum á bls. 17 í blaðinu i dag.
Fréttir í stuttu máli
Vinnufriður í Danmörku
Kaupmann.aiiöfn, 21. marz
(NTB)
TVEGGJA ára vinnufriður
er nú tryggður í Danmörku.
Hafa fulltrúar vinnuveitenda
samtakanna og alþýðusam-
bandsins gert nýja samninga
um kaup og kjör, sem gilda
til febrúarloka 1969.
Nýi samningurinn var bor-
inn undir atkvæði hjá báðum
aðilum, ©g samþykktur með
yfirgnæfandi meirihluta. Hjá
alþýðusambandinu greiddu
323.763 atkvæði með samn-
ingnum, en 167.390 á móti.
Vinnuveitendur samþykktu
samninginn með 457 atkvæð-
um gegn 116.
136 lík fundin
Sao Paulo, Brasiliu,
21. marz (NTB)
FUNDIZT hafa 136 lík í rúst-
um sjóbaðstaðarins Caraqua-
tatuba, sem er miðja vegu
milli Sao Paulo og Rio de Ja-
neiro í Brasilíu. Óttazt er að
enn liggi um 300 manns í rúst
unum. Skýfall og skriður
gengu yfir bæinn um helgina,
og missti um þriðjungur íbú-
anna, sem eru 15 þúsund,
SAS-HÓTEL Á ÍSLANDI?
Hefur í hyggju að stórauka ferðamanna-
strauminn til Fœreyja, Islands og Crœnl.
Kaupmannaíhöfn, 21. marz.
Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins.
SAS hefur í hyggju að stór-
auka ferðamannastrauminn
til Grænlands, íslands og
Færeyja. Johannes Nilsen,
forstjóri Danmerkurdeildar
SAS, og Erik Palsgárd, fram-
kvæmdastjóri hótel- og veit-
ingahúsadeildar SAS, hafa
nýlega verið í Grænlandi til
að ræða hótelbyggingu í Nar-
sarssuaq við frú Ninu Holm,
framkvæmdastjóra Aero
Lloyd, en það fyrirtæki hefur
nú um nokkurra ára skeið
haft með höndum hótelrekst-
ur í smáum stíl í Narsarssuaq.
Nilsen sagði I viðtali við
fréttamenn Mbl., að SAS hefði
fullan hug á að bæta úr þessu
fyrir sumarvertíðina, og að hægt
sé að breyta þremur stórbygg-
Nýjar friðartil-
lögur U Thants
Saigon, 21. marz. NTB.
ÁREIÐANLEGAR heimildir í
Saigon herma að U Thant, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, hafi sent stjórnum N- og
S-Víetnam nýjar friðartillögur.
Hefur Bandarí'kjastjórn einnig
verið skýrt frá þessum tillögum.
Ekki hefur enn verið opinber-
lega skýrt frá efni tillagnanna,
en heimildirnar segja að þær séu
é mjög breiðum og sveigjanleg-
um grundvelli. Stjórn S-Víetnam
heifur þegar sent U Thant mjög
jákvætt svar, en ekki er vitað
um viðbrögð Hanoi-stjórnarinn-
•r. —■
ingum, sem Bandaríkjamenn
reistu á sínum tima, í hótel og
stórauka þannig gistirýmið. —
Sagði Nielsen að frú Holm væri
þess mjög hvetjandi að sameina
ferðamannastrauminn til Græn-
lands, íslands og Færeyja.
— Þýðir þetta þá að SAS
muni einnig reisa hótel á íslandi
og Færeyjum? ,
— Þetta hefur allt komið mjög
óvænt og við höfum enn ekki
fullgengið frá áætlunum okkar,
en ég get óhikað sagt, að SAS
mun í æ ríkari mæli beina at-
hygli sinni til þessara landa.
Svend Horn, umferðarmálaráð
herra Danmerkur, sagði í dag, að
Faroe Airways hefði enn verið
boðin ársframlenging á flugleið-
inni milli Kaupmannahafnar og
Færeyja og sé því ekki hægt að
segja að félaginu hafi verið
steypt. Sagði ráðherrann að fjár-
hagur félagsins væri nú mjög
slæmur og að mikið tap hefði
verið á rekstrinum sl. ár.
Miklar umræður hafa verið í
Færeyjum í dag um stofnun nýs
flugfélags, sem eingöngu sé eign
Færeyinga. Sjá nánari frétt á
baksíðu Morgunblaðsins.
— Rytgaard.
Orð/ð að lögum:
FrumvarpSð um
ráðstafanir vegna
sgávarútvegsins
FRUMVARP ríkisstjórnarinn
ar um ráðstafanir vegna
sjávarútvegsins var sam-
þykkt við þriðju umræðu
málsins í neðri deild Alþing-
is í gær og er þar með orð-
ið að lögum.
Samkvæmt því mun ríkis-
sjóður greiða 140 milljónir
króna til verðuppbóta á fryst
an fisk og 100 milljónir tii
verðbóta á fiskverð. Eins og
kunnugt er, var frumvarpið
borið fram m.a. vegna hins
mikla verðfalls á frystum
fiski erlendis.
Vorster og Smith
Höfðaborg, 21. marz (NTB) |
IAN Smith, forsætisráðherra
Rhodesíu, ræddi í dag við
John Vorster, forsætisráð-
herra Suður-Afríku, í Höfða-
borg. Er þetta í fyrsta skipti
sem stj órnarleiðtogar ná-
grannaríkjanna ræðast við
eftir að Rhódesia lýsti ein-
hliða yfir sjálfstæði fyrir
hálfu öðru ári.
Chichester á Atlantshafi:
Frækileg sigling í f árviðri fyrir S. Ameríku
Punta Arenas, Ohile,
21. marz (AP-NTB)
BREZKI sægarpurinn Sir
Francis Chichester er nú kom
inn austur fyrir syðsta höfða
Suður-Ameríku á leið sinni
frá Ástralíu til Bretlands. Sir
Francis er einn á ferð í segl-
bát sínum „Gipsy Moth IV“,
og vonast til að komast til
Bretlands um 18. maí, eftir
110 daga siglingu frá Sidney.
Flugmaður frá brezka út-
varpinu B.B.C. flaug yfir bát
Chichesters í dag og skýrði
svo frá að hann hefði aldrei
fyrr augum litið jafn slæmt
sjólag.
Áður en Ohiöhester hélt frá
Ástralíu urðu margir til þess
að vara hann við hættunum
á siglingaleiðinni suður fyr-
ir Ameríku. Er siglingaleiðin
talin hættuleg stærri skipum
jafnvel þótt veður sé sæmi-
legt, enda hefur fjöldi skipa
farizt á þessurr. slóðum. Sjálí-
ur taldi Ohiohester að líkurn-
ar væru 3 á rnóti 1 gegn því
að kann kæmist hjálparlaust
á leiðarenda.
Fyrir brottförina frá Ástra-
líu hinn 28. janúar sl. hafði
Chichester siglt bát>i sínum
þangað alla leið frá Bretlandi,
fyrir suðurodda Afríku, og
tók sú ferð hann 107 daga.
Var þetta erfið ferð, og létt-
ist Ohiohester um 50 pund
á leiðinni. Reyndur skipstjóri
í Sindney taldi það afrek
Ohiohesters mjög glæsilegt,
en barnaleik hjá því, sem
framundan værL Skipstjóri
þessi, Alan Villiers, stjórnaði
eitt sinn Seglskipum á sigl-
ingaleiðinni fyrir Suður-
Ameríku, og sagði hann við
brottför Ohiohesters: „Þarna
er versta og ótrúlegasta sjó-
lag, sem ég hef nokkurn tíma
lent í — það versta, sem nokk
ur getur lent í.“
Chichester var ekki hepp-
inn með veðui er hann sigldi
suður fyrir Ameríku. Flug-
maðurinn Ro'berto Fuenzalida
frá Chile flaug yfir „Gipsy
Motlh IV“ í nótt, og sagði að
þar hafi verið fárviðri. Nú
er Ohiehester kominn heilu
og höldnu yfir á Atlantsihaf-
ið, og stefnir norður á bóg-
Inn áleiðis til Falklandseyja.
Versti farartálminn er að
baki hans, og vonir standa til
að hann haidi áætlun og
komi til Plymuutih á tilsettum
tíma eftir rumlega 46 þúsund
kílómetra sigiingu umlhverfis
hnöttinn.
Sir Franeis Ohiohester er
nú 65 ára að aldri, og á sér
merka sögu. Hann strauk úr
skóla í bernsku og gerðist
landbúnaðarverkamaður þrátt
fyrir bann föður síns, sem
var efnamaður. Seinna flutti
hann til Nýja Sjálands, og
gerðist hlutihafi í fasteigna-
sölu þar 21 árs gamall. Fimm
árum seinna, árið 1927, voru
Framhald á bls. 31