Morgunblaðið - 22.03.1967, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1967.
5
Snjór á Selfossi
SNJÓR er fullorðnum hvim-
leiður. Hann tefur samgöngur
og veldur ýmsum usla á lifi
samborgaranna, s e m e k k i
mega vera að því að doka við
f hinu hraða lífi nútímans. Þó
eru sumir á meðal okkar, sem
gleðjast yfir snjónum og njóta
hans tii hins ítrasta.
Þegar blaðamaður og ljós-
myndari Mbl. voru á ferð um
Ölfus og Flóa, ekki alls fyrir
löngu, hittu þeir krakkahóp
við Ölfusárbrú. Krakkarnir
klifruðu upp á riðið á brúnni
og hoppuðu síðan niður í stóra
og mikla fönn, sem safnazt
hafði í hléi Selfossmegin við
brúna. Virtust krakkarnir
hafa góða skemmtan af þess-
um leik og báru hláturssköll-
in þess gleggst vitni
Um leið og ljósmyndarinn
birtist varð og uppi fótur og
fit á meðal krakkanna:
— Manni taktu mynd af
mér,hrópaði lítil hnáta um
leið og hún hoppaði og stakkst
á kaf í mjúka fönnina, svo að
einungis höfuðið stóð upp úr.
— Hvað segir lögreglan við
þessum leik ykkar? spurðum
*■ .................................................................................................................................................................................................................................................■ ■■ '• ■■ • ••'•••...........................................................................................................
Taktu mynd af okkur. — Stöllurnar heita frá vinstri: Agn-
es, Gunnarsdóttir, Kristin Gísladóttir og Guðrún Marteins-
dóttir.
við og litum íbyggnir á krakk
ana.
— Uss, þeir mega ekkert
vera að því að skipta sér af
okkur, sagði þá stór og stæði-
legur strákur heldur borgin-
mannlega.
— f>eir eru önnum kafnir
við að spila póker inni á lög-
reglustöð, bætir annar minni
við. Hann er miklu fremur
líkari snjókarli en Selfyssingi,
svo snjóugur er hann eftir
leikinn.
— Kemur þetta í Moggan-
um, segir þá Mtil hnáta og
Virðist með eftirvæntingar-
glampa í augum.
Við jánkum því, en í sama
mund setjast þrjár litlar stöll-
ur á brúðarriðið og segja:
— Taktu mynd af okkur.
Ljósmyndarinn lætur ekki
segja sér það tvisvar og
myndin verður til.
Síðan klifra allir krakkarn-
ir upp á riðið, einn þeirra
segir: 1, 2 og 3 og allir hoppa
fyrir ljósmyndarann.
f»að er gaman að leika i
snjónum og jafnvel þótt hinir
fullorðnu séu miður hrifnir af
honum, þá rifjast þó alltaf
upp skemmtilegar endurminn-
ingar úr bernsku, þegar fer
að snjóa.
Hún stakkst á bólakaf
á fönnina.
Njátið hinnar útfjólubláu geislunar af fjallasnjónum
Verið brún - Brennið ekki
Coppertone er langvinsælastl sólaráburðurinn í Bandaríkjunum í dag, enda hafði Copperton og Q. T. (Quick Tann-
ing) frá Coppertone 77,4% af allri samanlagðri sölu á sólaráburðum þar árið 1966.
Fáanlegt af Coppertone vörum eru: Coppertone Lotion, Coppertone Oil, Copperton Oil Spray, Coppertone Shade
(fyrir rauðhærða og viðkvæma húð), Coppertone Noskote (til varnar bruna á vörum, nefi, eyrum) og Q. T. (Quick
Tanning) frá Coppertone.
Útsölustaðir: Herradeild P. & Ó., Gjafa- og sny rtivörubúðin, Ocúlus h.f., Sápuhúsið, Vesturgötu 2, Verzlunin Mirra, Austurstræti 17, Vestur-
bæjar Apótek, Holts Apótek, Laugavegs Apótek, Garðs Apótek.
Amaró h.f., Akureyri, Kaupfélag Árnesinga, Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag Héraðsbúa, Kaupfélag ísfirðinga, Parísarbúðin, Vest-
mannaeyjum, Sauðkróks Apótek, Hafnarbúð, Hafnarfirði, Verzlunin Edda Keflavík, Apótekið Eskifirði.