Morgunblaðið - 22.03.1967, Blaðsíða 11
MURtíUNBL.AÍJ1Ö, MltíVlKUUAUUR 22. MAHZ 1967.
11
og ananasrækt til útflutnings, en
•ðrir ávextir eru einkum rækt-
*ðix fyrir heimamarkað.
Eldfjallaland
Madeira er eldfjallaeyja eins
og Azoreyjar, en eldgígar sjald-
•eöir. Hún er 57 kílómetrar á
lengd og 22 kílómetrar á breidd
þar sem hún er breiðust. Strand-
lengjan er 152 kílómetra löng.
Eyjarskeggjar eru 300.000 talsins,
en í Funchal búa 40.000 manns.
Mad'eira er ákaflega fjöllótt, og
er hæsti tindurinn, Pioo Ruivo
á miðri eynni, rúmlega 2000
metra hár. Funohal liggur á suð-
urströndinni, sem er miklu þétt-
býlli en norðurströndin, enda er
veðurfar þar mun betra sökum
fjallgarðs sem liggur eftir endi-
langri eynni og ver suðurpartinn
fyrir norðannæðingum. Norður-
ítröndin er klettóttari og villt-
ári. Sunnan til á eynni eru skóg-
ar.nálega horfnir, en þöktu hana
alla fyrir eina tíð. Uppi i fjöll-
unum hafa verið gróðursett barr-
tré á stórum svæðum, og eru
þau helzta eldsneyti eyjar-
akeggja, en hfbýli þeirra eru öll
óuppihituð. Snjór sezt á fjöllin
einu sinni eða tvisvar á vetri, en
aldrei fyrir neðan 700 metra
beltið. Meðalársihiti er 19 stig, en
yfir kaldasta árstímann (októ-
ber-maí) er meðalhiti 13 stig.
Veðurfar er nokkuð breytilegt,
«n yfirleitt mjög gott.
Forsaga
f lögsagnarumdæmi Madeira
er önnur eyja, Porto Santo, sem
liggur í 40 kílómetra fjarlægð.
Fiskibátarnir liggja í fjörukambinum, en sjómennirnir rabba saman og spUa.
Strönd Vestur-Afríku og villtist
af leið. Madeira fannst trveimur
árum síðar, en líkur benda til
að Genúamenn hafi komið þang-
að áður, þvi landabréf frá 1351
sýnir eyjamar greinilega, og
sennilega vissu Geniúamenn om
Hluti hópsins solar sig uppi á efri þiljum.
I»ar búa 3500 manns. Sumrr
halda, að Fönikíumenn hafi
kjomið til Madeira, og rómverski
ritíhöfundurinn Plinius getui
tveggja eyja sem gætu verið
Madeira og Porto Santo. Róman-
tisk saga hermir, að tveir elsk-
endur, Robert Madhim (eða
Madham) og Anna d'Arfet, sem
flúðu frá Englandi til Frakk-
lands árið 1370, hafi ratað í haf-
vidlu og lenit á strönd Madeira,
þar sem nú heitir Madhidio — til
minningar um atburðinn. Por.ú-
galski sæfarinn Joao Gancalvez
Zarco sá fyrst Porto Santo árið
1418, þegar hann var að kanna
þær fyrir 1339. Hinrik sæfari hóf
landnám á Madeira eftir heim-
sókn Zarcos: skógar voru höggn-
ir niður og sykurrækt Varð brátt
arðvænlegur atvinnuvegur á
eynni. Þrælaihald var afnumið
árið 1775. Brezkar hersveitir
hernámu eyna árið 1801 og aftur
1807-1014, en síðan 1833 hefur
allt verið þar með kyrrum kjör-
um.
Eyjarskeggjar eru Portúgalar,
en eittlhvað blandaðir Márum og
blökkumönnum. Á seiinni árum
hefur verið allmikill fólksflótti
til Brasilíu og Bandaríkjanna.
Fiskimannaþorp
Á leiðinni frá Cabo Girao til
Funchal höfðum við stutta við-
drvöl í fískimannaþorpinu Gam-
ara de Lobos og komumst í nán-
ari snertingu við mannliif á
1 eynni. Fiskimennirnir voru
flestir tötralega klæddir og
gengu nálega allir berfættir.
Þeir stunda veiðar á opnum róðr-
arbátum og seglskútum, og
sækja fiskinn á 2000 metra dýpi,
enda er mjög aðdjjúpt við eyna.
Niðri í fjörunni voru nokkrir
fiskimenn að búa til fiskilínur
úr sérstakri kaktustegund, og eru
þær sagðar mjög sterkar. Vbru
vinnubiögð þeirra forvitnileg,
en ekki skildi ég fyllilega
hvernig þeir unnu verkið. Inni í
þorpinu sátu menn annars flest-
ir í samræðum niðri við hafnar-
bakkann eða spiluðu á gang-
stéttunum. Bátarnir lágu hlið
við hlið í fjörukambinum.
Undir háum hamri niðri við
flæðarmálið voni nokkrar kon-
ur að þvo þvott í steinsteyptum
þróm og höfðu rennandi vatn úr
kiönum. Gerðu þær taleverðan
uppsteyt þegar við reyndum að
taka myndir af þeim. Berfætt
börn eltu okkur I stórum hópum
sibetlandi, en við og við komu
sómakærir borgarar og stökktu
þeim á brott.
Síðasta spölinn til Fundhal
veittum við því eftirtekt, að
körfur sem fólk bar á höfði eða
öxlum voru allar þaktar lauti,
og spurðum leiðsögumanninn
hverju það sætti. Þetta var
vegna „illa augans", sagði hann.
Eyjarskeggjar trúa því að
áicveðnir menn hafi „fll augu“
og geti unnið öðrum tjón með
þeim, t.d. skemmt varning sem
þeir sjá. Laufið yfir körfunum
er vörn gegn þessum illu áíhriX-
um.
Þó Madeira sé varla mikltt
frjósamari en Azoreyjar, er allt
annar og glæsilegri bragur yfir
lífinu þar. Bílar eru áberandi
margir og flestir nýir. fbúðar-
hús eru bæði stærri og umfram
allt miklu vandaðri en á Azor-
eyjum, a.m.k. húsin í FundhaL
Það sem gerir gæfumuninn er
ferðamannastraumurinn. Hann
er aukagetan sem bætt hefur
lífskjör Madeirabúa til þeirra
muna, að þeii mega teljast
bjargálna, þó vitanlega sé láfs-
gæðunum misskipt þar ekki síð-
ur en annars staðar.
Mörgum úr hópnum þótfi
mest koma til Madeira af þeim
stöðum, sem við 'heimsóttum,
enda er eyjan bæði fögur og
veðursæl, oft nefnd „perla At-
lantsfaafsins", en mér fannst húa
hafa spillzt af ferðamannafarg-
inu, og verða það fyrr eða síðar
örlög allra staða sem hafa upp
á eitthvað óvenjulegt að bjóða.
Við sigldum frá Madeira
seint um kvöldið eftir sólheitan
og viðburðarríkan dag og tók-
um stefnuna á Teneriffe, sem
liggur tæpum 400 kílómetrum
sunnar. Veður var stillt og vrð
eyddum lágnættinu að venju við
söng og dans uppi á efri þiljum.
Verkstjórar
Vita- og hafnarmálastjórnin vill strax ráða til sín
verkstjóra. Iðnmenntun, próf frá stýrimannaskóla
eða ámóta menntun ásamt starfsreynslu við verk-
stjórn er nauðsynleg.
Skriflegum umsóknum sem greina um menntun og
fyrri störf sé skilað til Vita- og hafnamálaskrif-
stofunnar-
VITA- og HAFNARMÁLASTJÓRNIN
Seljavegi 32 — Simi: 24433.
Hafnarfjörður
Húseignin Þórsmðrk við Lækjargötu er til sðlu.
Eldra steinhús í góðu standi um 80 ferm. að grunn-
fleti. 7 herb. og eldhús á hæð og í risi. Kjallari.
Bifreiðageymsla. Stór og vel ræktuð lóð. Verð kr.
1 millj. og 500 þús. Útborgun eftir samkomulagi.
GUÐJÓN STEINGRÍMSSON, HRL.
Linnetsstíg 3 — Sími 50960.
Heimasimi sölumanns: 51066.
m
Gull og
dýrir stelnar
Nýtízkulegt úrval.
Demaui.ar — Kuiturperlur.
bjomennirnir gera fiskilmur úr sérstakri kaktustegund.
i uiqniunuGGon
Skorlpripaverzlun
„Fagur gripur
er æ til yndis
44