Morgunblaðið - 22.03.1967, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1967.
i
19
— Borgarnes
Framhald af bls'. 17.
húsi, en það var sama hvert við
vorum send, allsstaðar var okk-
ur vel tekið af því góða fo'ki
sem í þessu þorpi bjó.
Allir flu'tningar hingað fóru þá
fram á sjó og komu skipin hing-
að einu sinni í viku og þá var
víða mikið að gera„bátsdagana“
margan naeturgestinn þurfti að
búa um, því að æfinlega vsr
skipið hér næturlangt og fór
gjarnan snemma morguns suður,
svo að var sumsstaðar ekki mik
ið sofið þá nóttina.
Unglingarnir sem sóttu fram-
haldsskóla til Reykjavíkur sendu
allt sitt dót í þvott og hreins-
un heim. Þá var vissara að vera
niðri á bryggju þegar bátarn-
ir komu að landi með fólk og
farangur, því að verið gat að
skórnir væru líka með, og þá
þurfti strax að, hlaupa til skó-
smiðsins, sem æfinlega gerði við
þá samdægurs og tálaði aldrei
um hve langur vinnudagurinn
væri heldur spurði hvenær ier
skipið aftur og mikið voru nú
þessir skipsmenn góðir þegar allt
var fullt af fólki, og við hímd-
um köld og sjó'veik uppi á dekki,
þá fóru þeir með okkur niður 1
sína klefa og hlúðu að okkur,
dsköp var svo gaman þegar
skólaveran var á enda, að fá að
fara í bíl heim, þótt ferðin tæki
9 klst. fyrir Hvalfjörð.
Enda þótt heimilin væru ávallt
opin til gleðifunda og skemmt-
opin fyrir unga fólkið þá fór nú
að fjölga fólkinu og það var
Ijóst að skólann var ekki hægt
að nota til samkrvæmalhalds þá
þurfti að leggja hönd á plóginn
og safna fé til samkomuhúiss, og
nú var gott að eiga gáfaða og
hagmælta unga menn, sem sett-
ust niður og sömdu revíur ívafðr
ar gamanvísum um menn bg
málefni bæjarins og léku síðan
Jórunn Bachmann
við góðan orðstír borgarbúa og
meir að segja þýddu og léku önd
vegisrit eins og Afturgöngur
eftir Ibsen og allt var gefið til
samkomu'hússins sem bæjarbúar
njóta enn þann dag í dag eða
síðastliðinn 35 ár og ekki mátti
hætta fyrr en hljóðfæri var líka
fengið og enn er spilað á það.
Nú er tíminn annar, þar sem
áður voru berar klappir hafa
verið græddir skógarlundir eða
byggðar nýtízku villu-r með öll-
um nútíma þægindum. Það eru
Kubnrettkvöld í Lídd
VEITINGAHÚSIÐ Lídó er a»
taka upp nýbreytni í skemmt-
analífi borgarinnar, sem eflaust
mun mælast vel fyrir. Það eru
kabarettkvöld sem haldin verða
á hverjum sunnudegi, og treð-
ur þar upp fjöldi okkar ágæt-
ustu listamanna með aðstoð koll
ega sinna ýmissa, utan úr
heimi. Fyrsta kabarettkvöldið
er í kvöld (miðvikudag) og
hefst klukkan sjö með glæsi-
legri fimmréttaðri máltíð.
1 Á fundi með fréttamönnum
sögðu forráðamenn hússins að
ætlunin væri að hafa mjög
margvísleg skemmtlatriði, bæði
af léttara taginu og svo alvar-
legri list. Meðal listamanna sem
koma fram í kvöld má nefna I
óperusöngvarana Svölu Nielsen I
og Jón Sigurbjörnsson, sem í
reyndar munu syngja eitthvað
af léttara tagi í þetta sinn. >á
flytja þeir Rúrik Haraldsson og
Bessi Bjarnason leikþátt og síð
an tekur við eftirhermumeist-
arinn Karl Einarsson. Utan úr
heimi koma dönsku fjölleika-
stúlkurnar Dorelles systur, sem
þegar hafa vakið athygli hér
fyrir sérstæða og skemmtilega
sýningu. Sextett Ólafs Gauks
leikur fyrir dansi til klukkan
eitt eftir miðnætti. Skemmtun-
in í kvöld er nokkurs konar
páskakabarett og þar sem þetta
er hinn fyrsti hefur verið út-
búinn sérstakur hátíðarmatseð-
ill. Ef fól'ki fellur svo þessi ný-
breytni vel í geð er ætlunin að
halda áfram á sunnudagskvöld-
um, að sjálfsögðu með nýjum
skemmtikröftum í hvert sinn
sögðu forráðamenn að lokum.
ekki lengur gripabús við fbúðar
húsgaflana og kálgarðar mót
suðri, slíkt tiliheyrir ekki nú-
tíma bæjarlífi, nú sækjum við
mjólkina í samlagið, og tilreidd-
an matinn í matarbúðirnar ~>g
svo bregðum við okkur til
Reykja'Vlkur og tökum þátt í
gestaboðum að kvöldi og keyr-
um síðan heim, svo mikill er
hraðinn örðinn'og þægindin, en
með aukinni velmegun koma
áður óþekkt vandamál, nútíma-
kona vill brjóta af sér fijötra sem
fylgja því tímabili hennar að
eiga og ala upp börn, hún vill
vinna úti og gerir kröfur til
bæjarfélags síns og það starf-
| ræki barnaiheimili og leikvelli,
! unga fólkið vill fá íþróttasvæði
og félagsheimili og fullorðna
fólkið vinnur að elliheimilismál-
um, en til þess að ná þessu
marki þá verður mannkærleiki,
ráðdeild og fyrirhyggja að sitja i
öndvegi.
Jórunn Bachmann.
Alþýðusamband Vest-
fjarða fertugt í gær
í GÆR átti Alþýðusamband Vest I
fjarða 40 ára afmæli. Var það
stofnað 20. marz 1927 og bar þá
heitið Verkalýðssamband Vest-
fjarða. Stóðu að stofnuninni sex
félög: Verkalýðsfélagið Baldur,
tsafirði og Jafnaðarmannafélag
ísafjarðar, og höfðu þau for-
göngu um stofnunina, Sjómanna-
félag ísfirðinga og Verkalýðsfé-
lögin á Hnífsdal, Bolungavík og
Önundarfirði.
Fyrstu stjórn A.S.V. skipuðu:
Ingólfur Jónsson, forseti, Hall-
dór Ólafsson ritari, Finnur Jóns-
son gjaldkeri, Ingimar Bjarna-
son og Sveinn Sveinsson. í vara-
stjórn áttu sæti Eiríkur Einars-
son, Helgi Hannesson og Árni
Sigurðsson.
Forsetar A.S.V. hafa verið
Ingólfiur Jónsson 4 ár, Finnur
Jónsson 4 ár, Hannibal Valdimars
son 19 ár og Björgvin Sighvats-
Sambandssvæði A.S.V. er nú
miðað við aílt Vestfjarðakjör-
dæmi, en var lengst af miðað við
ísafjörð, ísafjarðarsýslur og
Barðastrandasýslu.
Starfsemi A.S.V. hefur að
mestu beinzt að kjaramálum og
hefur sambandið náð því mark-
miði, að heildarsamningar um
kaup og kjör giltu um allt sam-
bandssvæðið. Hafa samskipti
sambandsins við Vinnuveitenda-
félag Vestfjarða og Útvegs-
mannafélag Vestfjarða verið góo
og án alvarlegra árekstra.
A.S.V. starfrækir skrifstofu á
Isafirði og annast þar marghátt-
aða fyrirgreiðslu fyrir sam-
bandsfélögin. í stjórn Alþýðu-
sambands Vestfjarða eiga nú
sæti: Björgvin Sighvatsson, for-
seti, Pétur Sigurðsson, ritari,
Kristinn D. Guðmundsson, gjald-
keri. Auk þess eiga miðstjórnar-
menn Alþýðusambands íslands á
Vestfjörðum sæti í stjórn A.S.V.,
en á síðasta þingi A.S.Í. voru
þeir Karvel Pálmason og Björg-
vin Sighvatsson kjörnir frá
Vestfj. í miðstjórnina.
Wýtl tungl
fundið
jbað tíunda vi*
Satúrnus
NÝTT tungl er fundið hjá S
Saturnusi og er það 10. tungl ■
ið, sem vitað er um kring- $
um þá stjörnu. Franskur \
stjörnufræðingur fann þetta I
tungl í desembermánuði, en (
beðið var frekari staðfesting- s
ar á því að það væri þar. I
Nú hefur líka verið tekin ^
mynd af þessu nýja tungli i s
Ameríku og hefur það þvi )
verið viðurkenrt. Þykir vís- |
indamönnum þetta mjög s
merkilegt, bví tungl finnast i
) örsjaldan. Það 9. sem fer •
Salurnus fannst s
S
Sæmundsson, S
Ný tegund snjóbíla
í kringum
árið 1898.
Þorsteinn
stjörnufræðingur veitti Mbl. )
upplýsingar um þetta nýja J
tungl. Það er mjög náíægt s
Saturnusi eða i 160 þús. km.)
fjarlægð og fer kringum Sat- |
urnus á 18 tímum. Frakkinn (
Dollfuss, sem fyrstur fann S
það, kallar þsð Janus. Þann- •
ig stóð á að har.n kom auga ’
á það, að í desembermánuði
voru hringir i kringum Sat-
urnus á rönd og minni birta
en venjulega og því hægt að S
sjá nýfundna tunglið.
Síðast fannst nýtt tungl ár- s
ið 1951, en það var 12. tungl- i
ið kringum Jupiter.
VÍÐA er snjóþungt í sveitum
landsins þessa dagana og sjálf-
sagt margur óskað þess að hafa
snjóbíl tiltækan. Ágúst Jónsson,
innflytjandi, hefur fengið kana-
diska snjóbíla, sem hann telur
hagkvæma fyrir héraðslækna,
björgunarfélög, sportmenn og
yfirleitt alla sem um óbyggðir
ferðast.
Upphaflega er farartækið smíð
að sem herbíll en með því að
taka burt byssur og annan út-
búnað sem stríði tilheyrir er
hægt að setja hann á almennan
markað. Farartækið ber nafnið
Universal Carrier og er knúinn
85 hestafla 8 cyl. Ford vél.
Breiddin er 83 tommur, hæð 63
tommur og lengd 12 fet. Carrier-
inn hefur 80 lítra benzíngeymi
og með benzínforða á hann að
komast 120 mílna vegalengd. Há-
markshraði er um 50 km. Hann
ber auðveldlega átta manns, en i
neyðartilfellum má koma tólf 1
hann, og einnig getur hann dreg-
ið á eftir sér einn eða fleiri stóra
sleða. Ágúst sagði að hann hefði
verið beðinn að leita að farar-
tæki sem gæti farið yfir fjöll og
íirnindi og gert það víða. Hefði
sér litizt bezt á þann kanadiska,
m.a. vegna þess að verðið væri
hóflegt, um 130 þúsund krónur
hingað kominn.
Moskvu, 20. marz. NTB.
Á LAUGARDAG vísaði Sovét-
stjórnin úr landi tveimur starfs
mönnum við sendiráð Kína i
Moskvu og er talið að þetta muni
vera gert í hefndarskyni fyrir
brottvísun tveggja sovézkra sendi
ráðsmanna úr Kínaveldi á dög-
i unum.