Morgunblaðið - 22.03.1967, Qupperneq 25
WIVjmiUINBL.AtJIÐ, IVlItl VlIVUUAtiUK Z2. MAKZ 1967.
25
Lægri unglingafar-
gjöld með flugvélum
HINN 1 . apríl n.k. býður Flug-
lélag Islands þeim farþegum sín
um, sem eru á aldrinum 12 til
22 ára upp á sérstök ungmenna-
fargjöld. Ungmennafargjöldin
eru 25% lægri en venjuleg far-
gjöld á sömu flugleiðum.
Illafariðmeð
gott land
„Illa farið með gott land“ datt
mér í hug á síðastliðnu sumri,
þegar ég fór úr Meðallandi upp
yfir hraun ytri leiðina. Þegar
komið var upp fyrir Leiðvöll,
átti ég von á að fara á brú yfir
Lækjalandsál, sem var áður tals
vert vatnsfall. Nú er þar ekkert
vatn og engin brú. Síðan héld-
um við áfram og upp yfir Skor
ur, og hvergi sást vatn, en all-
ir vatnsfarvegir tómir og flest-
ar grasfitjar svartar af sandi,
sem fokið hafði upp úr farveg-
inum. Enga sauðkind var að sjá
á þessari leið, enda ekki von,
þar sem hvergi var vatn að finna
og lítill hagi. Hér virðist allt
það land, þar sem áður voru góð
ir hagar, vera að fara í sand. Er
öðruvísi að litast hér um en þeg
ar ég og fleiri úr Meðallandi
vorum að fara til smalamennsku
upp I Skaftúrtungu á haustin
og urðum að vaða öll þessi vötn,
þó að oft væri mikið vatn í þeim,
og þá var líka margt sauðfé á
þessum leiðum.
Ég hafði líka orð á því við
ýmsa Meðallendinga, þegar rætt
var um að veita vatninu úr þess
um hraunhvíslum, þ.e. Skorum
og Kvíalækjum, að landið yrði
ekki lengi að verða örfoka, þeg-
ar farvegirnir þornuðu og sand-
urinn tæki að fjúka úr þeim. Því
miður var þetta ekki lengi að
koma í ljós — og er það vissu-
lega illa farið. Eina trygga ráð-
ið er að hleypa vatninu aftur
í sína farvegi. Er þá líklegt, að
koma megi í veg fyrir frek-
ari landspjöll og landið grói aft
ur upp smám saman. Um leið
myndi vatnsmagnið aftur
minnka í Asavatni og myndu
fáir harma það.
Jón Ormsson
Á fargjaldaráðstefnu Alþjóða-
sambands flufélaga IATA, í
Honolulu s.l. haust komu Evrópu
flugfélögin innan samtakanna
sér saman um að koma á sér-
stökum lágum ungmennafar-
gjöldum á flugleiðum innan Evr
ópu. Þetta mál var rætt á fund-
inum í Honolulu, en var síðan
endanlega samþykkt á fram-
haldsfundi, sem haldinn var í
Róm í nóvember s.l.
Samkvæmt hinum nýju regl-
um eiga ungmenni sem eru á
aldrinum frá 12 árum fram að
22 ára aldri, þegar ferð hefst,
kost á 25% afslætti, miðað við
venjulegt fargjald í flugleiðinni.
Afsláttur þessi gildir allt árið
og gildistími farmiða er eitt ár
frá því að ferð hefst. Skilyrði
er, að keyptur sé tvímiði og
hann nýttur báðar leiðir. Þess-
ar nýju reglur og lækkuðu far-
gjöld auðvelda unglingum mjög
ferðalög, en fram að þessu hafa
þeir unglingar, sem náð hafa 12
ára aldri, orðið að greiða fullt
fargjalcL
Tekið skal fram, að þessi nýju
fargjöld gilda hjá öllum flug-
félögum, sem fljúga áætlunar-
flug hingað til lands.
STJÓRiN og kjaramálanefnd
Hagfræðafélags fslands lýsa yfir
eindregnum stuðningi við þá
viðleitni Bandalags háskóla-
manna (B.H.M.) að öðlast samn-
ingsrétt fyrir hönd háskólamennt
aðra manna í opinberri þjón-
ustu.
Jafnframt skora stjórn og
kjaramálanefnd félagsins á hæst
virta ríkisstjórn að hlutast til
um, að frumvarp um veitingu
samningsréttar til B.H.M. verði
lagt fyrir Alþingi, á því þingi
sem nú situr.
(Stjórn og kjaramálanefnd
Hagfræðafélags fslands).
Opið í kvöld til kl. 1.
OG HLJÓMSVEIT SKEMMTA.
Hljómsveit Elfars Bergs leikur
í ítalska salnum, sön^kona
Mjöll Hólm.
^ Skírdag lokað — Föstudagurinn langi lokað.
Laugardagur opið til kl. 11,30. — Páskadag lokað.
Annan í pasktim, opið til kl. 1.
HOTEL
JACK
&
JUDO
Hljómsveit Karls Lilliendahl ásamt söng-
konunni Hjördísi Geirsdóttur.
Borðpantanir í síma 22321.
Opið til kl. 1.
VERIÐ VELKOMIN.
INGÓLFS-CAFÉ
CÖMLU DANSARNIR í kvöld kL 9
Hljómsveit JÓHANNESAR EGGERTSSONAR.
Söngvari: GRÉTAR GUÐMUNDSSON.
Dansstjóri: Baldur Gunnarsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826.
BUÐIN!
VOW!
í KVÖLD
(MIÐVIKUDAGSKVÖLD)
TOXIC
TOXIC
TOXIC
sem sjá um að fjörið haldist frá kl. 9—1.
með nýjustu topplögin.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8.
BREIÐFIRÐINGABÚÐ.
Suðurnesjamenn OTfím 'i jren rei Suðurnesjamenn r nAOi/Anitinfí
f FÉLAGSBÍÓI í KEFLAVÍK í kvöld, miðvikudag kl. 9.
DREGIÐ IJT í KVÖLD 3 stórvinningar f kvöld 25 umferðir
16 daga páskaferð til Mallorca. ■jf Sjálfvirk þvottavél. dregnir út í Glœsilegasta
★ Frystikista 265 1. kvöld. Einstakt bingó ársins ■V» K« !%•
★ Grundig útvarpsfónn. 'A Húsgögn fyrir 15 þús krónur. tækifæri.