Morgunblaðið - 22.03.1967, Side 32
Lang stœrsta
og tfölbreyttasta
blað landsins
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1967
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Ernir sjást
víða um land
TÖÍLUVERÐ brögð hafa verið
að því að fólk hafi séð erni á
flugi og hefur t.d. sést örn tvo
undanfarna daga á flugi yfir
Skerjafirði og á flugvallarsvæð
inu. Þá munu bræðurnir á Kví-
skerjum hafa séð tvo erni á
flögri þar um slóðir og einnig
sást til arnar nýlega í Bakka-
firði.
Hér mun vera um ungerni að
TæSar' sem enn hafa ekki orð-
ið kynþroska, en áður en örn-
inn kemst á þann aldur flæk-
ist hann oft og tíðum um land-
ið, unz hann leitar aftur á varp
stöðvarnar. Talið er að það taki
örn 6—8 ár að verða kynþroska.
Árið 1964 var hætt að kasta
á víðavang eitri og virðast all-
ar líkur þenda til að erninum
Þak af hlöðu og
hrotnar rúður
fari nú fjölgandi, þar eð ung-
fuglar sjást nú æ tíðar en áð-
ur. Mun þetta góðs viti og má
því ef að líkum lætur búast
við að erninum fari að fjölga
í lok áratugsins. Þó má ekki
slaka á friðuninni eigi erninum
að fjölga að marki.
Árin 1964 og ’65 munu um
20 arnarungar hafa komizt á
legg og við talningu arnarins í
fyrra töldust 16 ungfuglar, en
erfitt er að kasta tölu á þá,
vegna flökkunáttúru þeirra. í
sumar munu hins vegar ekki
hafa komizt á legg nema fjórir
ungar.
Á þremur stöðum á landinu
hefur hræ verið borið út handa
erninum, en ekki er kunnugt
um árangur þess.
Þess má geta að sú, er sá
örninn yfir flugvallarsvæðinu
var frú Irma Weile Jónsson, en
örninn, sem sást yfir Skerja-
firði sá Gísli Jónsson.
Svo sem getið var í fréttnm Mbl. fyrir helgi hrann hærinn Stifla í Vestur-Landeyjum til
kaldra kola á fimmtudagskvöldið. Engu var bjargað nema sjónvarpstæki hjónanna, sem þar
bjuggu, en þau heita Kristbjörg Ingvarsdóttir og Emil Guðmundsson. Vátrygging var lág og hafa
þau hjón og börn þeirra orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. (Ljósm: Markús Jónsson, Borgareyrum).
EGILSSTAÐIR, 21. marz. — Síð-
astliðinn föstudag gekk hér yfir
óveður með nokkurri snjókomu
og þá sérstaklega mikilli veður-
hæð. Hvassast mun hafa orðið
uppi í dölunum, sem venja er í
norðan átt. 1 Birkihlíð í Skriðdal
fauk þak af fjárhússhlöðu og all
ir gluggar brotnuðu í f járhúsinu.
Bóndinn, Björn Bjarnason, var
nýgenginn út úr hlöðunni og ætl-
aði að negla fyrir glugga, sem
fokið hafði úr húsinu. Um leið
og þakið fór komu þrjár járn-
plötur niður á skullu á heystæð
inu þar sem Björn hafði staðið
við að taka hey fyrir nokkrum
sekúndum.
Á Lambhúsum í Fljótsdal
brotnuðu 11 rúður í íbúðarhús-
inu af steinkasti. Ekki er vit-
að um fleiri skemmdir af völd-
um veðursins. — M. G.
Lítil telpa
fyrir bíl
UMFERÐASLYS varð við
Freyjugötu 10 síðari hluta dags
í gær. Þar hafði lítil telpa,
Hanna Bára Gestsdóttir, 5 ára,
hlaupið út úr undirgangi í hús
inu og út á götuna. I sömu svif-
um bar að bifreið, og skipti eng
um togum að litla telpan varð
fyrir bifreiðinni. Kastaðist hún
Framhald á bls. 31.
Færeyingar stofna eigiö flugfélag
Flugfélag íslands hefur ná missf allar þœr vinsœldir, sem það
hafði í Fœreyjum, að sögn Arge, fréttaritara Mbl.
FÆREYINGAR ætla að stofna j Mbl. í Færeyjum. Hlutafé hins
sitt eigið flugfélag, samkvæmt nýja flugfélags sem verður að
upplýsingum Arge, fréttaritara öllu leyU færeyskt er 1,5 millj-
Miklar annir í stop-
ulu innanlandsflugi
MIKLAR annir voru í innan-
landsflugi Flugfélags íslands
gær og fyrradag, þar eð að
undanförnu hefur verið stirð
tið og hafði safnazt fyrir tölu-
vert magn af vörum sem flytja
átti út á land. Einnig var mikið
um farþegaflutning, fólk á leið
í páskaleyfi, frá því um miðjan
dag í fyrradag og þar til í gær-
morgun. Mun félagið hafa flutt
fessum tíma um 750 farþega.
fyrradag, fyrri hluta dags,
lá innanlandsflug niðri, en er
leið á daginn fór veður batnandi
vestanlands og á Suðvesturlandi.
Hófust þá flugferðir og stóðu í
alla fyrrinótt og fram undir gær-
morgun, er veður fór aftur versn
andi.
f gærdag versnaði veður og
tók fyrir allt flug, en síðdegis í
gær skánaði það aftur. Miklir
fólksflutningar eru á milli Akur
eyrar og Reykjavíkur og ísa-
fjarðar og Reykjavíkur, enda er
skíðavika á ísafirði um það bil
að hefjast og munu margir eyða
páskaleyfinu vestra.
ónir danskra króna eða 9,4 millj
ónir íslenzkra króna.
Svo sem kunnugt er samein-
uðust Skandinavíska flugfélag-
ið SAS og Flugfélag íslands um
Færeyjaflug til og frá Norður-
löndum á þeim grundvelli að fél
ögin skiptu á mili sín kostnaði
og tekjum samkvæmt ákveðnum
samningi. Var ætlunin að flug-
vél frá Flugfélaginu yrði not-
uð við þetta flug.
Meðal Færeyinga hefur þessi
samningur mælzt mjög illa fyr-
ir og lítur landsstjórnin í Fær-
eyjum svo á að Faroe Airways
hefði átt að njóta sama leyfis
og SAS hefur frá og með L
apríl n.k.
f gærmorgun var síðan ákveð
ið að stofnað skyldi alfæreyskt
flugfélag og er undirbúningur
að stofnun þess í fullum gangi.
Hlutaféð mun hafa verið greitt
að mestu leyti í gær, að því er
Arge tjáði Mbl. Félagið verður
eign einkaaðila í Færeyjum, en
þó munu þeir hafa hug á að fá
Lögþingið til þess að veita fé
til félagsins. Er síðan ætlunin
að félagið taki við allri þjón-
ustu, sem Faroe Airways hafði
með höndum fáist til þess leyfi
danskra flugyfirvalda.
Arge sagði að Flugfélag Is-
lands hefði verið mjög vinsælt
í Færeyjum, allt til þess er samn
Framhald á bls. 31.
Herjólfur og Esja
fengu á sig hnúta
— Miklar annir hjá Ríkisskip
Bjargaði mannslífi í
Stýrði skipi í 12 vindstigum með
málarapramma úti á miðju Atlantshafi
„ÞETTA var svo sem ekki
neitt. Ég var aðeins að bjarga
landa míntun frá drukknun",
sagði Arne Samuelsen hov-
mester á Kronprins Frederik,
þegar við hittum hann að
máli í gær, og vildi sem
minnst úr þessu þrekvirki
sinu gera.
Staðreyndir eru samt þær,
að þegar skipað var að fara
frá Þórshöfn í Færeyjum á
dögunum til Reykjavikur,
bjargaði Arne Samuelsen
mannslifl.
„Það er eignlega ekkert um
þetta að segja, en samt var
það svo, að mér varð gengið
upp í matsalinn hér aftur á
og varð þá þess áskynja, að
einhver var að reyna að losa
bjargbelti, og varð mér þá
strax ljóst, að maður myndi
vera í höfninni. Við lágum
við nýju bryggjuna í Þórs-
höfn, en þannig hagar til,
að hún hefur verið byggð
sem viðbót við þá gömlu, og
skagar nokkuð út, þannig að
maður, sem gengur tæpt á
þeirri nýju, athugar máski
ekki vegna ókunnugleika, að
allt í einu er ekkert fyrir
nema sjórinn, og það mun
hafa valdið slysinu.
Og það kom í ljós að mað
ur var fyrir borð, og m.a.s.
tveir, sá hinn annar ætlaði
að reyna að bjarga honum.
Framhald á bls. 21.
Arna Samuelsen „hovmester"
—
Vestmannaeyjaskipið Herjólf-
ur fékk á sig sjó, er það var á
leið frá Eyjum síðastliðið laugar
dagskvöld. Var skipið statt norð
vestan við Eyjar í vonzkuveðri
og miklum sjó.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
jóns Teitssonar framkvæmda-
stjóra Skipaútgerðar ríkisins mun
tjónið á skipinu ekki mikið og
mun viðgerð hafa lokið í gær-
kvöldi. Mun skipið hada til Eyja
í dag. Við sjóinn, sem kom á
skipið brotnuðu svokallaðir stól-
ar undir björgunarbát á báta-
dekki og losnaði báturinn. Einn
ig beyglaðist lunning og ýmsar
smærri skemmdir urðu á skip-
inu.
Þá sagði Guðjón að Esjan hefði
og orðið fyrir dálitlum hnút um
svipað leyti. Kastaðist við ágjöf
ina bjargbeltakassi til, en
skemmdir urðu ekki stórvægi-
legar.
Miklar annir eru nú hjá Ríkis
MIKIL hálka var á götum
Reykjavíkur í gær og frá morgni
til kvölds hafði lögreglan fengið
tilkynningu um 20 árekstra. Eng
inn þeirra var þó alvarlegs eðlis.
skip, vegna þess hve erfið færí
er á landi. í fyrradag fór Herðu-
breið vestur og norður með ful
fermi af vörum og Esjan, sem
fara á í dag var þegar í gær orð
in fullfermd.
Togarar
selia vel
Togarinn Þormóður goði seldi
í fyrradag ísfisk í Bremerhaven,
240 lestir fyrir 266 þúsund mörk.
Er það þriðja hæsta sala íslenzks
togara í Þýzkalandi, en tvær
síðustu sölur togarans Maí eru
hærri.
Togarinn Karlsefni seldi í
Cuxhaven í gær 154,6 lestir fyr-
ir 188.230 mörk, en það er og
rnjög góð sala. Þá átti togarinn
Úranus að selja í Þýzkalandi 1
gær, en ekki höfðu borizt fréttir
af sölunni.
Togarinn Kaldibakur átti að
selja í Englandi í fyrradag, en
komst ekki að. Hafði hanm enn
ekki selt í gær er síðast fréttist.