Morgunblaðið - 24.02.1968, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 1958
MAGIMÚSAR
SKiPHOlH 21 SÍWÁ* 21190
tt eftir lokun simi 40381
Hverfisgötn 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigngjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 ella 81748
SigurSur Jónsson.
BÍLALEIGAINi
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Nýr sími
23-222
SENDIBÍLAR H.F.
Einholti 6.
FÉLACSIIF
Ármenningar.
Skíðaferðir verða í Jósefs-
dal, laugardag kl. 7 og 6 og
sunnudag kl. 10 frá Umferðar
miðstöðinni. Nægur snjór er
og mun skíðalyftan verða í
gangi. Seldar verða veitingar
f skálanum. Ath. að gisting
verður seld við bilana.
Stjórnin.
K.R.-ingar, skíðafólk.
Næturgisting í Skálafelli
verður ekki helgina 24. febr.
Skíðafólk, sem ætlar í Skála-
fell á laugardag verður að
fara í bæinn aftur. Ferðir eru
uppeftir á sunnud. kl. 10 f. h.
Gott skíðafæri er í Skálafelli,
mikill snjór. Lyfta í- gangi.
Veitingar í skála.
Stjórnin.
'A' Bezta öryggisráð-
stöfunin að hver
leggi sitt af mörkum
Frá upplýsingafulltrúa
H-nefndaTÍnnax hefur Velvak-
anda borizt eftirfarandi bréf
sem svar við bréfi vegfaranda,
sem birtist hér í dálkunum í
fyrradag.
Ágæti Velvakandi.
í dag birtist bréf frá „Veg-
faranda" í dálkum þínum, og
spyr hann hvað gert verði til
að vernda öryggi okkar fyrir
þeim, sem ef til vill reyna að
hindra H-umferð.
í tilefni af þessu vil ég benda
„Vegfaranda“ á, hver svo sem
hann er, að við höfum ekki
trú á, að neinn reyni á H-dag-
inn, að koma í veg fyrir að
umferðarbreytingin geti átt sér
stað með eðlilegum hætti. f>að
kæmi verst niður á þeim sjálf-
um, sem það reyndu, því
þeirra biði, eftir það líklega
ekki nema grár fangaklefinn í
svo og svo langan tíma. Um-
ferðarbTeytingin er lög , og
eftir þeim ber öllum borgurum
þessa lands að fara. Þeir sem
brjóta Iögin fá sina hegningu.
Þ>á talar vegfarandi um
sjúkrahjálp á vegum úti á H-
dagin. Að sjálfsögðu verða
gerðar öryggisráðstafanir, til
þess að tryggja það, að um-
ferðarbreytingin fari sem bezt
fram. Því hefur þegar verið
lýst yfir að löggæzla á vegum
og í borgum verði stóraukin.
Þá hafa aðilar, sem hafa björg-
unar og hjátparstörf með
höndum boðið fram alla sína
aðstoð, bæð: hér í Reykj avík
og úti á landi.
Bezta öryggisráðstöfunin er
samt sem áður, að hver og einn
leggi sitt aí mörkum til þess
að umferða rbreytirvgin gangi
vel fyrir sig, og við sem störf-
um að því að koma á hægri
umferð á íslandi, efumst ekki
um að hver muni leggja sitt
af mörkum, eftir þær viðtökur,
sem erindrekar okkar fá víða
um land um þessar mundir.
Kári Jónasson,
upplýsingafulltrúi
H-nefndax.
'A' Enn íil hjálpar
hreindýrunum
Reykjavík 21/2. 1968.
Dýravinur skrifar:
Heiðraði „Velvakandi"!
Vegna bréf frá Valgerði sem
birtist í dálkum þinum í dag
vil ég eindregið leggja fram
sömu upphæð og hún til björg-
unar hreindýrunum og sendi
hana hér með. Ég trúi þvi ekki
þótt einhver segi að það sé
gagnslaust að gefa þeim. Hvað
annað á að gera en að senda
þeim fóður flugleiðis og það
sem fyrst. Fóðrið má binda
saman í bagga þannig að það
ekki fjúki í allar áttir, en sé
þó aðgengilegt til ætis. Flug-
vél gæti flutt það og varpað
því niður þar sem hreindýrin
eru.
Vinsamlegast,
Dýravinur.
★ Magartinn í hljóð-
varpinu
Ég var að hlýða á fréttir
úrvarpsins öðru nafni Hljóð-
varpsins, miðvikudagskvöldið
14. þ.m. Mér fannst ég kann-
ast við málróm fréttamanns-
ins, sem var að rekja eitthvert
viðtal, en kom ekki fyrir mig
nafni hans. Vart hafði hann
sleppt orðinu er þulan til-
kynnti að Tryggi Gíslason
mag. art. annaðist næsta dag-
skrárlið, íslenzkt mál eða dag-
legt mál, hvort sem það nú hét.
Og þegar hann hóf mál sitt var
málrómurinn hinn sami og
fréttamannsins, sem var að
Ijúka máli sínu. Tryggvi Gísla-
son, fréttamaður, og Tryggvi
Gíslason, íslenzkufræðingur og
mag. art., eru sem sé einn og
sami maðurinn.
Jú, milkið rétt. Ég þekki nú
ekkert til þessa unga manns,
sem nýlega mun hafa lokið há-
skólaprófi í íslenzum fræðum,
nema hvað ég minnist þess að
hafa heyrt í honum sem frétta-
manni hljóðvarpsins öðru
hvoru á undanförnum árum.
En nú er þessi fréttamaður sem
sé orðinn mag, art. og mál-
fræðingur og fullur af merki-
legheitum. Yfirlætisdómur ung
liða þessa, er sem sé ástæðan til
þess að ég rita þennan pistil.
Það var enginn smékalli sem
■knésetti Alþingi og Sjónvarpið
þetta kvöld í Hljóðvarpinu.
„Sáuð þið hvernig ég lagði
hann piltar".
Það prýðir vitaskuld hvern
þingmann, eins og aðra menn,
að tala fagurt mál. En fleira
kemur til greina en málsmekk-
ur frambjóðenda, er menn
velja fulltrúa á Alþing. Og
hvaðan kemur magartinum vit-
neskja um lélegt málfar al-
þingismanna almennt, nema
hann eigi einhvern sögumann á
þingi. Þingmenn korna sjaldn-
ast fyrir eyru útvarpshlust-
enda í eigin persónu, og þvi
hægra er um vik fyrir magart-
inn í Hljóvarpinu að læða því
inn hjá almenningi að þeir tali
slæmt mál.
Og þessi vígdjarfi riddari
hefir ekki fyrr greitt Alþingi
banahöggið en hann vegur í
knérunn Sjónvarpsins og vex
nú ásmegin, enda orðinn reið-
ur „mjök“. Var mieð engu móti
unnt að skilja ummæli mag-
artins um sjónvarpsmenn, á
annan veg en sem atvinnuróg.
Vildi hann hreinlega láta reka
þá úr vistinni og mátti lesa
milli Mnanna að mikill væri nú
munurinn ef þar væri á vist
andlegur jafnokí hans sjálfs.
(Eða kannske hann léti tilleið-
ast, ef að honum væri lagt,
þjöðarinnar vegna, að gerast
þar sjálfur vistmaður?) Ekki
nefndi hann þó nema eitt
dæmi til stuðnings þessari hug
mynd sinni um hreinsun hjá
Sjónvarpinu, sem sé að sögnin
að framkvæma væri ofnotuð
hjá þeirri stofnun, enda virð-
ist hafa verið mikið fram-
kvæmt þar á skömmum tíma
og tekist flestu öðru betur sem
ráðizt hefir verið í hér á landi.
Ég fór að hugsa um það
hversu framúrskarandi smeikk-
laust það væri, að ekki sé sagt
drengskaparlítið, að vega
þannig opinberlega og órök-
stutt að samstarfsmönnum sín-
um eins og fréttamaður Hljóð-
varpsins í gervi magartsins
gerði þetta kvöld. Því að vita-
skuld eru Sjónvarp og Hljóð-
varp ein stofnun, sem sé Ríkis-
útvarpið, og allir staTfsmenn
Ríkisútvarpsins því samstarfs-
menn. Ég get ómögulega séð
að þetta fyrirbæri hjá Tryggva
Gíslasyni sé anað en angi af
þeirri afbrýðisemi í garð Sjón-
varpsins, sem þráfaldlega hefir
skotið upp kollinum í dag-
skrám hljóðvarpsmanna síðan
Sjónvarpið tók til starfa. Þetta
er skiljanlegt, þar sem Sjón-
varpið s kyggir í sívaxandi
mæli á Hljóðvarpið og hefur
„slegið í gegn“. En stórmann-
leg eru þessi viðbrögð Tryggva
Gíslasonar og haaas nóta ekki og
aðeins til þess að vekja atihygli
á öfund þeirra og sárindum.
Reynið að bera harm ykkar i
hljóði hljóðvarpsmenn góðir.
Sjónvarpsmenn virðast umbera
nagg ykkar með fullkominni
þögn og skilningi á sálar-
ástandi ykkar en við hlustend-
ur, sem ekki höfum alveg hætt
að hlýða á Hijóðvarpið ennþá,
nennum ekk: lengur að um-
bera öfundar- og ólundartón-
inn í ykkur.
Einbýlishús
Vil skipta milliliðalaust á 6 herbergja hæð í tví-
býlishúsi á mjög fallegum stað og um 200 ferm.
einbýlishúsi fullkláruðu eða langt komnu. Það
þarf ekki að vera alveg nýtt og má vera í Kópa-
vogi. Lysthafendur leggi símanúmer sitt inn hjá
afgreiðslu Mbl. merkt: „Einbýlishús — 8844“.
H. BENEDIKTSSON. H F.
Sudurlandsbraut 4
Nauðungaruppböð
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og lögmanna
verður opinbert uppboð haldið við Bílaverkstæði
Hafnarfjarðar laugardaginn 2. marz n.k. kl. 14.00.
Seldar verða eftirtaldar bifreiðar: G-123, G-161,
G-947, G-1531, G-2932, G-3422, G-4097 og G-4322.
Auk þess verður seld loftpressa.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
S. R. P.
Tilboð
óskast í sendiferðabifreið og nokkrar fólksbif-
reiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, miðviku-
daginn 28. febr. kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sölunefnd varnarliðseigna.
^ClϚning U}.
„MAY FAIR“ Vinyl veggfóðrið fyrirliggjandi.
KLÆÐNING H.F.
Laugavegi 164 — Sími 21444.