Morgunblaðið - 12.06.1968, Qupperneq 2
2
!:>*; ÍHTJt : H OAg IVCHVJ , i■ ■ >ft
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JUNÍ
Unniö af kappi að undirbúningi
byggingar félagsheimilis stúdenta
- ríkissjóður hefur lagt tœpar 4 millj. fra m til byggingarinnar
Háskólaráð hefur ákveðið, að
veita Félagsstofnun stúdenta 5
milljón króna styrk af happ-
drættisfé til byggingar félags-
heimilis stúdenta, eins og fram
hefur komið. Hér birtist mynd
af tillögu um útlit Félagsheimil-
isins eftir Jón Haraldsson arki-
tekt, og er hún tekin úr Stúd-
entablaði frá 1964.
f stúdentaráði því, er Björn
Bjarnason stud.jur veitti for-
formennsku og lauk störfum í
apríl s.l. var unnið að frekari
undirbúningsvinnu undir bygg-
ingu félagsheimilisins af hags-
munanefnd stúdentaráðs. Hér fer
á eftir skýrsla formanns þeirrar
nefndar, Jóhanns Heiðars Jó-
hannssonar, stud med, um það
starf. Skýrslan er tekin úr Vett-
vangi stúdentaráðs, sem nýlega
kom út:
Jón Haraldsson arkitekt boðað-
ur á fund með nefndinni og voru
þar ræddar teikningar að félags
heimilinu, sem gerðar voru 1964.
Ljóst var, að talsverðra breyt-
inga var þörf og var því hafizt
handa um að kanna óskir stúd-
enta í sambandi við félagsheim-
ilið. Auglýst var eftir umsókn-
um frá félögum og samtökum
stúdenta í háskólanum um að-
stöðu í vaentanlegu félagsheim-
ili. Umsóknir bárust frá deildar-
félögunum 8, SFHÍ, SÍSE og
Stúdentablaðinu. Að þessu loknu
var gerð nákvæm skrá yfir þær
vistarverur, sem nauðsynlegar
mættu teljast I félagsheimilinu.
Þegar hér var komið sögu, var
skipuð samstarfsnefnd SHÍ og
Háskólaráðs um félagsheimilis-
málið. Af hálfu SHÍ voru valdir
dr. Ragnar Ingimarsson, formað-
ur og Leifur Benediktsson, stud
polyt., en haf hálfu Háskólaráðs
prófessorarnir Árni Vilhjálma-
son og Loftur Þorsteinsson.
Nefnd þessi átti að hafa umboð
byggingarnefndar, unz stjórn fé
lagsstofnunar stúdenta tæki til
starfa. Fyrsta verk nefndarinn-
ar var að fela Jóni Haraldssyni,
arkitekt, að gera nýjar tillögu-
teikningar að félagsheimilinu og
voru teikningar frá 1964 og
skýrsla hagsmunanefndar lagðar
til grundvallar. Snemma í apríl
toru þessar teikningar tilbúnar
og fékk hagsmunanefnd þær þá
til umræðu. Virtust þær full-
nægja óskum okkar á viðunandi
hátt. Þegar þetta er ritað, fara
fram umræður um ráðningu verk
fræðings vegna félagsheimilisins
til þess að hægt verði að full-
gera teikningar næsta vetur. í
sjóði til félagsheimilisbyggingar
mun nú vera talsvert á fjórðu
Framh. á bls. 3
SBBBEHBa
Útlitsteikning félagsheimilis stúdenta við vesturenda Gamla Garðs, sem gerð var af Jóni Haraldssyni, arkitekt.árið 1964.
ÖRYGGI ER FYRIR ÖLLU
SEGJA LOFTLEIDAMENN
- 20 farþegar hættu við
flugferð vegna bilanna
„Stærsta málið í starfi nefnd-
arinnar í vetur var félagsheim-
iiismálið. Það mál hafði legið ut-
an garðs í nokkur ár. í upphafi
var reynt að kanna á hverju mál
ið hefði strandað síðast, en bar
það lítinn árangur. Fundir voru
haldnir með háskóiarektor og
skýrði hann afstöðu sína og Há-
skólaráðs í málinu. Síðan var
Fyrsta sending
í kísilgúr
tíSILGÚRVERKSMIÐJAN við
Mývatn hefnr sent frá sér eina
sendingu af framleiðslu sinni til
útlanda, og voru það alls 65
tonn. Fóru 25 tonn til Englands
en 40 til Þýzkalands. Ekki hef-
ur frétzt hvemig framleiðslan lík
aði, en hún komst seinna á á-
fangastað en ráðgert var. Olii
því hafísinn fyrir Norðurlandi,
er teppti för flutningaskipsins
um skeið.
Áframhaldandi framleiðslu á
kísilgúr verksmiðjunnar miðar
jafnt og þétt, áfram en menn
fara sér þó hægt nú fyrst um
sinn meðan árangur fyrstu send
ingarinnar liggur ekki fyrir. Hef
ur samt talsvert magn kísilgúrs
verið flutt í skemmur, að því er
Vésteinn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði Morgunblað
inu í gær.
SÁ atburður gerðist í gærmorg-
un suður á Keflavíkurflugvelli,
að 20 farþegar með flugvél Loft-
leiða hf., sem var á leið frá New
York til Luxemborgar með 189
farþega, neituðu að ganga upp í
vélina, er hún átti að hefja sig
til flugs frá vellinum. Þeir hurfu
af landinu síðar um daginn með
öðrum flugvélum félagsins eða
annarra flugfélaga. Astæða þess-
arar neitunnar farþeganna voru
ítrekaðar bilanir á vélinni. Mbl.
sneri sér af þessu tilefni til Sig-
urðar Magnússonar, blaðafull-
trúa Loftleiða hf., og sagði hann,
að atburðir sem þessi gætu gerzt
og gerðust hjá hvaða flugfélagi
sem er, en Lofleiðir myndu ekki
slaka á öryggiskröfum sínum
vegna hans.
Farþegarnir neituðu að fara
upp í flugvélina, að því er einn
þeirra skýrði blaðinu frá, þegar
vélinni hafði seinkað um 30
tíma, einkum vegna vélarbilana.
Hafi henni verið snúið við stuttu
eftir að lagt var af stað frá New
York, þegar ein hr«yfill hennar
bilaði. Ferðin hingað til Islands
hafi hins vegar gengið vel, eftir
að lagt v£ir af stað að nýju. Á
Keflavíkurflugvelli hafi það hins
vegar borið við, að er farþegar
höfðu tekið sér sæti í vélinni og
búist til brottferðar, voru þeir
allir beðnir að fara úr vélinni,
vegna þess að einn hreyfillinn
fór ekki í gang. Er þeirri við-
gei'ð var lokið komst vélin að
nýju af stað, en þegar henni
hafði verið flogið í nokkurn tíma
var snúið til baka til Keflavíkur
vegna bilunnar. Sagði farþeginn,
að þá hefði sér og nokkrum
öðrum orðið nóg boðið og neit-
að fljúga áfram með vélinni,
virtist maðurinn mjög æstur og
mfður sín yfir þessu öllu saman.
Eins og fram kemur hér að
framan voru það 20 farþegar,
sem neituðu að halda áfram með
vélinni. Loftleiðir hf. greiddu
götu þessa fólks og komu því á
aðrar vélar hjá félaginu eða öðr-
um félögum. Með vélinni voru
189 manns, er hún kom til Kefla-
víkur og þaðan héldu með henni
169 farþegar.
Vegna þessa máls sneri Mibl.
sér til Sigurðar Magnússonar,
blaðafulltrúa Loftleiða hf., til
þess að heyra sjónarmi'ð félags-
ins. Sigurður sagði: „Atburður,
sem þessi geta gerzt og gerazt
hjá hvaða flugfélagi sem er. Og
hjá okkur er ekki farið af stað
með farþega í vél, þar sem einn
hreyfill er vafasamur og tel ég
það okkur fremur til sóma en
svívirðingar. í öðru lagi vil ég
geta þess, að sá, sem kvartaði, er
ein af þeirri manntegund, sem
kallast „hippies" og er þekkt
fyrir að mótmæla öllu því, sem
venjulegt er og hefðbundið, og
þar me’ð einnig sjálfsögðu örygg
isráðstöfunum flugfélaga. I þriðja
lagi eru Loftleiðir hf. kunnir að
því, að hafa alltaf gert allt til
þess að tryggja farþegum sínum
örugga ferð og ef þessum unga
manni finnast öryggisreglur okk
ar of strangar, verður hann að
ferðast með öðrum flugfélögum.
Við munum ekki láta af okkar
öryggiskröfum vegna kvartana
frá hans likum. Hvað varðar
seinkunina, vil ég að lokum segja
þetta: „Vi kommer sent men vi
plejer at komme godt.“
AÐALFUNDUR Sjóvátrygging-
arfélags íslands hf., var haldinn
7. júní I húsakynreum félagsins í
Ingólfsstræti 5.
í upphafi fundaTins minntist
formaður félagsstjórnar, Sveinn
Benediktsson, framkvæmdastj.,
fjögurra hluthafa, sem látizt
hafa frá síðasta aðalfundi, þeirra
frú Áslaugar Benediktsson, frú
Jónínu Arnesen, Davíðs Þor-
steinssonar á Arnbjargarlæk og
Arents Claessens, stórkaup-
manns.
Vottaði fundurinn þeim virð-
ingu sína.
FundaTstjóri var Benedikt
Blöndal, hrl., en fundarritari
Axel J. Kaaber, skrifstofustjóri.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Stefán G. Björnsson, flutti
skýrslu um rekstur og hag fé-
lagsins, en árið 1967 var 49.
starfsár þess. Jafnframt skýrði
hann hina ýmsu liði ársreikning-
anna.
Samanlögð iðgjöld sjó-,
EKIÐ var á kyrrstæða bifreið,
R-17926, sem er af Volkswagen-
gerð, þar sem hún stóð á stæð-
inu við Kalkofsveg og Geirsgötu.
Gerðist þetta hinn 7. júní sl. Var
bifreiðin dælduð og rispuð á
hægri hlið, og var blá máining í
förunum. Biður umferðardeild
rannsóknarlögreglunnar þá seon
einihverjar upplýsingar geta gef-
ið, um árekstur þennan, að hafa
samband við sig.
Reitingsafli
ÖTj
REITINGSAFLI hefur verið hjá
togurunum að undanförnu. t sl.
vikn komu fjórir togarar til
Reykjavíkur og lönduðu, og
voru það Narfi með 223 tonn,
Þorkell máni með 93 tonn, Júpí-
ter með 274 tonn og Hallveig
Fróðadóttir með 262 tonn.
Einn togari hefur landað, það
sem af er þessari viku. Er það
Neptúnus, sem kom til Reykja-
víkur með 170 tonn eftir 9 daga
útivist á heimamiðum. Von er
ennfremur á Agli Skallagríms-
syni og Þormóði goða, en hinn
síðarnefndi hefur verið á A-
Grænlandsmiðum.
bruna-, bifreiða-, ábyrgða- og
endurtrygginga námu um 166,5
milljónum króna, en af líf- og
líifeyristryggingum um 3,7 millj.,
eða samtals um 170 milljónir.
Fastur eða samningsbundinn
afsláttur til viðskiptamanna er
þegar frádreginn í upphæðuim
þessum, svo og afslóttur eða bón
us til bifreiðaeigenda, samtals
um 25,8 milljónir.
Stærsta tryggingardeildin er
Sjódeild, iðgjöld tæplega 75
milljónir, en þar urðu tjónin líka
77 milljónir króna.
í tjónabætur voru greiddar
samtals um 135,6 milljónir, en í
laun, kostnað, umboðslaun og
skatta um 28,3 milljónir króna.
Iðgjöld og tjónavarasjóðir, svo
og vara- og viðlagasjóðir eru nú
um 114,3 milljónÍT króna.
Er Líftryggingardeildin ekki
talin með í þessum tölum. Ið-
gjaldasjóður, vara- og viðlaga-
sjóður hennar eru hinsvegar tæp
lega 57,9 milljóndr króna.
SamanlagðÍT varasjóðir eru því
um 172 milljónir.
Nýtryggingar í Líftryggingar-
deild námu 20,3 milljónum en
samanlagðar líftryggingar í gildi
um sl. áramót voru um 166
milljónir
Stjórn félagsins skipa, Sveinn
Benediktsson, framkvæmdastj.,
Ingvar Vilhjálmsson, útgerðar-
maðuT, Ágúst Fjeldsted, hrl.,
Bjöm Hallgrímsson, framkvstj.,
og Teibur Finnbogason, stór-
kaupmaður. (Fréttatilkynning).
ELZTI borgari Hafnarfjarðar, Sigurveig Einarsdóttir, vist-
kona að Sólvangi í Hafnarfirði, átti 100 ára afmæli í gær.
Bárust henni fjöldi blóma og heillaóska, og bæjarstjóri Hafn
arfjarðar, Kristinn Ó. Guðmundsson, heimsótti gömlu kon-
una. Færði hann henni blómakörfu ásamt ámaðaróskum
bæjarstjómar. Sigurveig er eini vistmaðurinn að Sólvangi,
sem náð hefur svo háum aldri.
Aðalf undur Sjðvátrygg
ingarf élags Islands hf.